Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996 JjV
fútíönd
stuttar fréttir
Drepinn við skóla
Korsískur þjóðemissinni var
! skotinn til bana fyrir utan skóla í
I borginni Ajaccio í gær og voru aðrir
aðskilnaðarsinnar þar að verki.
í ESB og NATO
Alexander
Kwasniewski,
| forseti Pól-
Ílands, sagði eft-
ir viðræður við
ungverskan
starfsbróður
sinn, Arpad
Goncz, i gær að
löndin tvö
| þyrftu að starfa saman að því að
: komast í NATO og ESB en ekki
' keppa hvort við annað.
I
Afmæli fagnað
Mikið var um dýrðir í Norður-
Kóreu í gær í tilefni 54 ára afmælis
: verðandi leiötoga landsins en ekki
j gekk það svo langt að hann væri
krýndur eftirmaður fóður síns, Kims
Il-sungs sáluga.
Tímabundin spenna
Stjómvöld á Taívan segja að
spennan í samskiptunum við Kína
sé aðeins tímabundin og hverfi þeg-
ar misskilningi milli ríkjanna verði
eytt.
Þing leyst upp
Scalfaro Italíuforseti leysti þing
landsins upp í gær til að hægt væri
að boða til þingkosninga.
íhuga bann
Spænsk stjómvöld sögðu í gær að
1 þau kynnu að banna starfsemi
I stjómmálaarms ETA, aðskilnaðar-
samtaka Baska.
Tokyo skelfur
Öflugur jarðskjálfti, sem átti upp-
I tök sin undir hafsbotni, skók Tokyo,
höfuðborg Japans, í gær en ekki er
vitað um meiðsl eða skemmdir.
Deilt um tilgang
Hersveitir NATO segjast hafa
fundið þjálfunarbúðir fyrir hryðju-
verkamenn á vegum Bosníustjómar
sem segir hins vegar að þama sé á
ferðinni njósnaskóli.
Solana til vesturs
Javier Sol-
Íana, fram-
kvæmdastjóri
Atlantshafs-
bandalagsins,
heldur til
Kanada og
Bandaríkjanna
i næstu viku til
að sýna sig og sjá aðra og mmi m.a.
hitta að máli Jean Chrétien, forsæt-
isráðherra Kanada, og Bill Clinton
Bandaríkjaforseta.
Neytendavænt ESB
ESB hefur i hyggju að auðvelda
neytendum sem kaupa gallaða vöm
að leita réttar síns fyrir dómstólum.
Kauphöllin í Wall Street:
Þreyttir fjár-
festar
„Það kom einhver þreyta í fjár-
festana eftir hasar síðustu daga en
þeir munu fara af stað aftur innan
skamms tíma,“ sagði verðbréfamiðl-
ari í Wall Street í samtali við Reut-
er- fréttastofuna. Dow Jones hluta-
bréfavísitalan náði sögulegu há-
marki sl. þriðjudag þegar hún fór
yfir 5.600 stig en eftir það hefur hún
lækkað. Eftirspurn eftir hlutabréf-
um hefur minnkað eftir nokkuð
mikla ásókn undanfarnar vikur.
Fyrstu vikuna í langan tíma voru
söguleg met ekki slegin í kauphöll-
um eins og í London, Frankfurt,
Tokyo og Hong Kong. í London og
Hong Kong voru hlutabréfavísitöl-
urnar hins vegar á uppleið og nálg-
uðust sögulegt hámark sl. fimmtu-
dag.
Bensín- og olíuverð á heimsmark-
aði hækkaði talsvert í vikunni,
einkum gasolía vegna aukinnar
húshitunar. -Reuter
Olíuslysið við strendur Wales ógnar fuglalífi:
Olíubrákin komin
upp i fjorusteina
— allur tiltækur búnaður notaður við björgunarstörfin
Atta kílómetra löng olíubrák úr ol-
íuflutningaskipi, sem strandaði und-
an ströndum Wales á fimmtudags-
kvöld, var farin að koma að landi síð-
degis í gær og stóð fuglalífí á svæð-
inu mikil ógn af. Fjögur þúsund tonn
af olíu fóru í sjóinn þegar leki kom
að skipinu við strandið, skammt frá
hafnarbænum Milford Haven.
„Hún er komin upp á nokkrar
strendur en ég get ekki sagt til um
hversu margar þær eru. Einhver dýr
hafa oröið fyrir barðinu á henni en
ekki mjög mörg að svo stöddu," sagði
embættismaður. „Veðrið er að breyt-
ast og við erum með fimm flugvélar í
viðbragðsstöðu, tilbúnar að úða á ol-
íubrákina."
Höfnin í Milford Haven, sem er
miðstöð olíuhreinsunar, var lokuð í
gær og héldu dráttarbátar olíuskip-
inu á floti. Svo virtist sem tekist
hefði að stöðva lekann.
„Við höfum tekið í notkun næstum
hvert einasta tæki sem við gátum
fengið í Bretlandi til að fást við at-
burð af þessu tagi,“ sagði Joe Small,
yfirmaöur stofnunar sem berst við
sjávarmengun.
Um borð í skipinu voru 130 þúsund
tonn af hráolíu úr Norðursjó á leið í
hreinsistöð Texaco í Milford Haven.
Umhverfisverndarsinnar hafa
krafist ítarlegrar rannsóknar á
strandinu.
Reuter
Poppstjarnan Madonna er í Argentínu um þessar mundir þar sem hún leikur titilhlutverkið í kvikmyndinni Evitu, um
þjóðardýrling þeirra Argentínumanna, Evu Peron. Hér sést söngkonan við kvikmyndatökur í bænum Zapiola. Flest-
ir Argentínumenn eru andvígir því að Madonna leiki Evu Peron. Símamynd Reuter
Danir hæstánægðir og
tilbúnir að færa fórnir
Danir eru ánægðari með þjóðfé-
lagið sem þeir lifa í og eigið lif um
þessar mundir en þeir hafa verið
undanfarin fimmtán ár. Þeir eru
viljugir til að færa fórnir til að leysa
aðkallandi samfélagsvandamál og
þeir eru einnig í vaxandi mæli til-
búnir að taka meiri ábyrgð á eigin
tilveru en áður.
Þetta kemur fram í könnun sem
sálfræðideild Árósaháskóla stóð fyr-
ir á árunum 1982 til 1994. Alls tóku
níu þúsund manns þátt í könnun-
inni, 1800 í hverri lotu. Frá þessu er
skýrt í danska blaðinu Politiken.
Könnunin leiddi m.a. í ljós að
hvorki fleiri né færri en 31 prósent
aðspurðra sögðust tilbúnir að
greiða hærri skatta og. 60 prósent
eru tilbúin að herða sultarólina ef
stjórnmálamenn krefiast þess, eins
og þeir gerðu á níunda áratugnum.
Eggert Petersen prófessor, sem
stjórnaði rannsókninni, segir að í
ljósi niðurstaðna könnunarinnar
eigi ríkisvaldið, og ekki síst jafnað-
armannaflokkurinn, að höfða meira
til fórnarvilja dönsku þjóðarinnar
og löngunar hennar til að vera með
í að koma landinu aftur á réttan
kjöl. Hann segir að flokkurinn muni
hágnast á því.
„Grundvallaratriði í stjórnmálum
er að segja almenningi hvað sé
raunhæft að ætla sér og hvað sé
nauðsynlegt. Almenningur þolir vel
að heyra slíkt, ef rökin eru góð,“
segir Eggert Peterseh.
Friðflytjendur í
Bosníu eftir á
nóbelslista
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
• seti og Richard
Holbrooke,
j harðskeyttur
j;í samningamað-
ur hans í Bos-
níu-deilunni,
I® eru meðal
rúmlega eitt hundrað manna sem
þegar hefur verið stungið upp á
fyrir friðarverðlaun Nóbels á þessu
ári.
Norska fréttastofan NTB hafði
það eftir ónafhgreindum heimild-
armönnum að margir aörir lykil-
menn í friðargerðinni i Bosníu
væru einnig á listanum, menn eins
og Franjo Tudjman Króatíuforseti,
Slobodan Milosevic Serbíuforseti
og Alija Izetbegovic Bosníuforseti.
Thorvald Stoltenberg, fyrrum
utanríkisráöherra Noregs, og Dav-
id Owen, sem stjórnuðu í samein-
ingu alþjóðlegri ráðstefnu um fyrr-
um Júgóslavíu, eru einnig hugsan-
legir kandídatar.
Lögfræðingur
krukkarí
Skálafjalls-
málið
P
Danski lögfræðingurinn John
Petersen hefur verið skipaður sak-
| sóknari í hinu umdeilda færeyska
| máli sem kennt er við togarann
Skálafiall. Sjö færeyskir kaup-
1 sýslumenn voru fyrir ekki löngu
■: sýknaðir af ákæru um fiársvik í
tengslum við togarasmiðina.
Petersen fær það hlutverk að
■: sannfæra Eystri landsrétt í Kaup-
mannahöfn um að fram hafi komið
afgerandi nýjar upplýsingar í mál-
inu frá því ríkissaksóknari ákvaö í
desember að áfrýja því ekki þar
| sem ekki væru neinar líkur á aö
það ynnist fyrir rétti.
Skálafiallsmálið var prófmál fyr-
ir mörg önnur mál þar sem of mik-
il lán voru veitt við smíði fær-
eyskra togara. Mál þessi hafa kost-
að danska skattgreiðendur 2,5
milljarða íslenskra króna.
Frönskumæl-
andi ræða um
Internetið
Fulltrúar frönskumælandi ríkja
sitja á fundum í frönsku borginni
Bordeaux til að bera saman bækur
sínar um hvernig hægt sé að
spoma við yfirráðum enskunnar á
Internetinu og efla þátt frönskunn-
ar í þessum vaxandi miðli.
Klúbbur frönskumælandi þjóða
hefur ákveðið að hasla sér völl á
Internetinu til að gefa m.a. fátæk-
um Afríkuþjóöum aðgang að nýrri
upplýsinga- og samskiptatækni. í
heiminum eru 400 milljónir
frönskumælandi manna.
Jeltsín leikur á
als oddi í kosn-
ingabaráttunni
■ Borís
Jeltsín Rúss-
landsforseti
lék á als oddi í
gær þegar
hann ávarpaði
verkamenn í
stáliðjufyrir-
tæki í bænum
Tsjeljabinsk á
fyrsta degi kosningabaráttu sinn-
ar, þrátt fyrir htlar vinsældir með-
al þjóðarinnar, ef marka má skoð-
anakannanir. Hann tilkynnti á
; fimmtudag aö'hann ætlaði að sækj-
ast eftir endurkjöri í sumar.
„Ég er í baráttuskapi," sagði
Jeltsín og baðaði út handleggjun-
um. „Baráttan verður erfið en
þungu fargi er af mér létt eftir að
ég tilkynnti ákvörðun mína."
Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis |
DAX-40 1
2500í* yv
2400 v. 11
_ffj f-
2423
N D J F
Hong Kong
Hang Seng