Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Blaðsíða 27
DV LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996
Island
-plöturog diskar -
. ( 7 ) Life
Cardigans
!. ( - ) Murder Ballads
Nick Cave and The Bad Seeds
I. (1 ) Crougie d’ou lá
Emilíana Torrini
I. ( 2 ) The Memory ofTrees
Enya
i. ( 3 ) Presidents of the United States...
Presidents of the United States...
i. ( 8 ) Waiting to Exhale
Úr kvikmynd
. ( 6 ) Boys for Pele
Tori Amos
i. (10) (What's the Story) Morning Glory?
Oasis
I. ( 5 ) Gangsta's Paradise
Coolio
I. ( 9 ) Melon Collie and the Infinite ...
Smashing Pumpkins
. (18) Jagged Little Pill
Alanis Morrisette
. (16) The Bends
Radiohead
. (11) (Different Class
Pulp
. ( - ) The Boy with The X-Ray Eyes
Baylon Zoo
. (Al) Reif í skóinn
Ýmsir
. (14) Crazysexycool
TLC
. (Al) Cypress Hill III (The Temple of...)
Cypress Hill
. (20) Liquid Swords
Genius
. ( 4 ) Pottþétt 1995
Ýmsir
. (15) Maxinquaye
Tricky
London
-iög- _
( 1. (1 ) Spaceman
Babylon Zoo
) 2. ( 2 ) Anything
3T
| . t 3. ( - ) I Got 5 on It
Luniz
t 4. ( - ) Open Arms
Mariah Carey
• 5. ( 4 ) Lifted
Lighthouse Family
$ 6. ( 3 ) Slight Return
Bluetones
• 7. ( 6 ) One of Us
Joan Osbourne
* 8. ( 5 ) I Just Want to Make Love to You
Etta James
# 9 (7) Do U Still?
East 17
t 10. ( 8 ) I Wanna Be a Hippy
Technohcad
NewYork
| 1.(1) OneSweetDay
Mariah Carey & Boyz II Men
t 2. ( 3 ) Missing
Everything but the Giri
| 3. ( 2 ) Exhale (Shoop Shoop)
Whitney Houston
t 4. ( 6 ) Not Gon' Cry
Mary J. Blige
t 5. ( 9 ) Nobody Knows
The Tony Rich Project
t 6.(13) Sittin' Up in My Room
Brandy
i 7. ( 5 ) Hey Lover
LL Cool J
) 8. ( 8 ) Be My Lover
La Bouche
i 9. ( 4 ) One of Us
Joan Osbourne
i 10. ( 7 ) Name
Goo Goo Dolls
Garth Brooks slær öllum við vestra
Garth Brooks fær helming hagnaðarins af hverri plötu sem selst með honum og hefur tryggan plötusamning til
sautján næstu ára.
Það vakti heimsathygli á dögun-
um þegar kántrítónlistarmaðurinn
Garth Brooks neitaði því að hann
ætti skilið að hljóta verðlaun sem
tónlistarmaður ársins 1995 í Banda-
ríkjunum og afþakkaði verðlaun
sem átti að veita honum fyrir árang-
urinn. Þetta gerðist við hátíðlega at-
höfn er bandarísku tónlistarverð-
launin - The American Music
Award - voru afhent. Fólk varð agn-
dofa þegar Garth Brooks gekk á
svið, að því er virtist til að veita
verðlaununum viðtöku og afþakk-
aði þau síðan með þeim orðum að
rokkhljómsveitin Hootie and the
Blowfish hefði skilað mun betri ár-
angri á síðasta ári og því hefðu að-
standendur verðlaunanna átt að sjá
sóma sinn í að verðlauna hljóm-
sveitina en ekki sig. Því gæti hann
ekki, samvisku sinnar vegna, gert
annað en að skilja verðlaunagripinn
eftir þar sem hann stæði.
Undraskjótur árangur
Svona getur væntanlega enginn
hegðað sér nema sá sem hefur náð
góðum árangri. Garth Brooks er að
sönnu lítt'þekktur hér á landi og
annars staðar í Evrópu seljast plöt-
ur hans fremur lítið og tónleikasal-
irnir sem hann kemur fram í eru
ekki af stærri sortinni. í heimaland-
inu, Bándaríkjunum, hefur enginn
slegið þessum firnavinsæla kántrí-
söngvara við hvað plötusölu varðar
það sem af er áratugnum.
Garth Brooks þurfti ekki að eyða
árum eða áratugum í fátækt áður
en hann sló í gegn. Allt frá því að
fyrsta platan, Garth Brooks, kom út
hafa vinsældir hans verið óumdeil-
anlegar. Reyndar var hann búinn að
eyða næstu fimm til sex árum á
undan við að spila á börum og
semja lög en það telst ekki langur
tími þegar ungur maður hyggur á
frama í tónlistinni.
Brooks varð annars 34 ára fyrr í
þessum mánuði. Hann aflaði sér
góðrar menntunar í háskóla heima-
ríkisins, Oklahoma, áður en hann
gerðist atvinnumaður í tónlistinni.
Á unglingsárunum þótti hann efni-
legur íþróttamaður, bæði í frjáslum
íþróttum, hafnabolta og amerískum
fótbolta. Hann lauk námi í auglýs-
ingafræðum og sótti jafnframt tíma
í markaðsfræðum án þess þó að
ljúka prófi í þeim. Margt hefur ver-
ið sagt um hvernig Garth Brooks
nýti sér menntun sína sér til fram-
dráttar í tónlistinni. Sjálfur segist
hann vita eftir árin í háskóla að
fleiri kaupi miða á tónleika ef verð-
ið sé lágt og að því leyti nýti hann
sér menntunina. Einnig segir hann
að það borgi sig að hafa gott efni í
bolunum sem seldir eru með mynd-
um af honum. Þá endast þeir lengur
og auglýsa þar með listamanninn
lengur en þeir bolir sem eru saum-
aðir úr lélegum efnum og eyðileggj-
ast eftir skamma hrið.
Nashville heillar
Það var árið 1985 sem Garth
Brooks reyndi fyrst fyrir sér í há-
borg kántrítónlistarinnar, Nas-
hville. Þá hafði hann um skeið spil-
að á börum sex kvöld vikunnar.
Hann dvaldi innan við sólarhring í
Nashville þegar hann kom þangað
fyrst. Tveimur árum síðar reyndi
hann fyrir sér aftur, þá kvæntur
maður. Og eftir tveggja ára streð við
að láta réttu mennina heyra í sér
fékk hann loksins plötusamning.
Eftir fimm ár krafðist hann þess að
samningurinn yrði endurskoðaður
og sú endurskoðun leiddi til þess að
hann samdi við plötufyrirtækið
Capitol til tuttugu ára og fær helm-
ing hagnaðarins af hverju seldu ein-
taki í sinn vasa. Samningar sem
þessi eru einsdæmi i dægurtónlist-
inni. Brooks þarf hins vegar sjálfur
að standa straum af kostnaði við
upptökur platna sinna, myndbanda-
gerð og ýmsan annan rekstrarkostn-
að. Það skyldi þó ekki blunda vísir
að viðskiptafræðingi í auglýsinga-
fræðingnum!
Nýjasta plata Garths Brooks er
Fresh Horses. Hún kom út í lok nóv-
ember og hefur þegar hlot.ið hlýjar
viðtökur kántríaðdáenda Þegar
platan kom út voru liðin meira en
tvö ár frá því að Brooks hafði síðast
sent frá sér plötu með nýju efni en
meðan hann afkastaði sem mestu
gerðist það stundum að hann átti
tvær til þrjár plötur meðal tíu
hinna söluhæstu í Bandaríkjunum.
Enginn kántrítónlistax-maður kemst
með tærnar nálægt því þar sem
Garth Brooks hefur hælana um
þessar mundir. Menn sem slíkum
árangri hafa náð geta leyft sér að
setja ofan í við aðstandendur banda-
rísku tónlistarverðlaunanna séu
þeir ekki sammála þeim niðurstöð-
um sem þeir komast að. -ÁT
Bretland
——- plötur og diskar - —
| 1.(1) (What's the Story) Morning Glory?
Oasis
| t 2. ( - ) Don't Stop
Status Quo
t 3. (20) Bizarre Fruti/Bizarre Fruit II
M People
I 4. ( 2 ) Jagged Little Pill
Alanis Morrisette
| 5. ( 4 ) The Bends
Radiohead
t 6. (- ) The Boy With The X-Ray Eyes
Babylon Zoo
I 7. ( 3 ) Different Class
Pulp
t 8. ( - ) Morder Ballads
Nick Cave And The Bad Seeds
t 9. (26) Welcome To The Neighbourhood
Meat Loaf
t 10. (- ) This World And Boy
Marion
Bandaríkin
| 1. (1 ) Waiting to Exhale
Úr kvikmynd
t 2.(3) Jagged Little Pill
Alanis Morrissette
t 3. (- ) Str8 Off Tha Streetz Of Muthaph...
Eazy-E
| 4. ( 4 ) Daydream
Mariah Carey
| 5. ( 5 ) What's the Story) Morning Glory?
Oasis
t 6. ( 7 ) The Woman in Me
Shania Twain
| 7. ( 6 ) Sixteen Stone
Bush
| 8. ( 8 ) Cracked Rear View
Hootie and the Blowfish
i 9. ( 2 ) Boys for Pele
Tori Amos
#10. ( 9 ) The Memory of Trees
Enya