Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Qupperneq 8
r
isielkerinn
LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR 1996
Veitingastaðurinn Grænn kostur:
Kryddaður grænmetis-
karríréttur frá Pakistan
Það er Robeena Abdul Karin,
kokkur á veitingastaðnum
Grænum kosti, sem ætlar að
gefa lesendum DV upp-
skrift að góðum og vel
sterkum pottrétti
frá Pakistan. Rétt-
urinn er kar-
ríkryddaður og
með honum er
gott að bera
Robeena Abdul
metiskarrírétt.
fram svokallað
agúrkuraita sem er köld
agúrkusósa sem kælir
Karin, kokkur á Grænum kosti, með sterkan græn-
DV-mynd GS
bragðlaukana niður á milli munn-
bita. Uppskriftin er fyrir fjóra til
sex.
3 msk. olía
1 stór laukur í sneiðum
1 tsk. flnt söxuð engiferrót
2 hvítlauksrif, pressuð
1 msk. karrí
1 tsk. kúmenduft
1 tsk. kóríander
1 tsk. kardimommur
1 tsk. chilipipar
lYi tsk. salt eða eftir
|g&sj|É||s þörfum
. N 200 ml jógúrt
í ^ * eða AB mjólk
$ 3 gulrætur
r-:\. í sneiðum
: 2 kartöflur í
þunnum sneið-
tiiír um
y2 blómkálshöf-
uö í litlum
bitum
250 g grænar baunir, frosnar
2 msk. fersk kóríanderlauf, má
sleppa
Laukurinn er mýktur í olíunni í
tvær til þrjár mínútur eða þar til
hann verður gullinn. Hvítlauk, engi-
fer, karríi, chili og salti bætt út í og
látið malla í eina og hálfa mínútu.
AB mjólkinni er bætt út í og hrært
vel saman við. Lok er sett á pottinn
og látið krauma í um það bil flmm
mínútur. Hrærið í einu sinni eða
tvisvar svo að ekki brenni við. Nú
er grænmetinu bætt út í og hrært í
um það bil eina mínútu. Lok er sett
á og látið malla í 10 mínútur eða þar
til grænmetið er orðið meyrt. Stráið
fersku kóríander yfir rétt áður en
rétturinn er borinn fram. Gott er að
bera þetta fram með hrísgrjónum,
steiktum eða soðnum.
Agúrkuraita
-Sws-'.'-gr
tgæðingur vikunnar
Kjúklingur í
portvínssósu
Þessi kjúklingaréttur er
auðveldur og fljótlegur.
Uppskriftin er fyrir sex.
650 g kjúklingabitar
(skinn- og beinlausir)
V2 tsk. muliö timian
salt og pipar eftir smekk
1V2 msk. ólífuolía
100 g villtir sveppir, svo
sem cremini, shítakes-
veppir eöa ostrusveppir,
skornir í þunnar sneiðar
V, bolli kjötsoð
3 msk. Marsala portvín
1 msk. rifinn parmesa-
nostur
2 msk. söxúð steinselja
1 sítróna, skorin þunnt.
Setjið kjúklingabitana á
milli plasthimna og fLetjið
þá örlítið út með kjöt-
hamri. Kryddið með timi-
an, salti og pipar og leggið
til hliðar. Hitið olíuna í
stórri pönnu. Bætið svepp-
unum út í og steikiö í eina
til tvær mínútur. Takið
sveppina upp úr án þess
að fjarlægja olíuna og
steikið kjúklingabitana í
um þaö bil flmm mínútur
á hvorri hlið eða þangað
til þeir eru orðnir létt-
brúnir. Þeim er haldið
heitum. Hrærið kjötsoðinu
og portvíninu út á pönn-
una og gætið þess að
blanda því vel saman viö
steikarsoðið sem var á
pönnunni. Kjúklingurinn
er aftur settur á pönnuna
og sveppimir yfir. Síðan
er parmesanosti dreift yflr
og sósan tekin með skeið
og látin drjúpa yfir. Lækk-
ið hitann, lokið pönnunni
og látið malla i fimm til
tíu mínútur eða þangað til
kjúklingabitarnir eru
orönir vel steiktir. Dreifið
steinselju yfir og skreytið
með sítrónusneiðum ef
vill.
Japanskt og taílenskt
„Austurlenskur matur og þá helst
taílenskur og japanskur er núna í al-
gjöru uppáhaldi hjá mér,“ segir Ásta
Birna Hauksdóttir, flugfreyja hjá
Flugleiðum og umsjónarmaður köku-
klúbbs Vöku-Helgafells, en hún er
matgæðingur vikunnar að þessu
sinni.
Ásta Bima kynntist þessari matar-
gerð á ferðum sín-
um erlendis í flug-
freyjustarfinu. „Ég
reyni yfirleitt að
komast út að borða
á einhverja asíska
staði þegar ég er
stödd í New York.
Ég kaupi líka mikið
af blöðum og hef
ofsalega gaman af
því að pæla í mat og
fer með kokkabæk-
ur í rúmið á kvöld-
in.“
Ásta Birna segir
réttina ekki vera
sterka. Allt innihald
má fá í sérversl-
unum með krydd
eða í heilsubúðum.
Vert er að benda á
að matvöruverslanir
og fiskbúðir eru
stundum með sér-
staka fiskdaga þar
sem hægt er að
kaupa alls konar
kynjafiska sem eru
góðir í japanska réttinn,
2 tsk. Wasabi (horseradish duft),
blandað saman við 2 tsk. af vatni,
hrært saman og látið bíða í 10 mínút-
ur. Blandað siðan eftir smekk út í
sojasósu. Hver og einn dýfir fiskinum
1 tsk. sykur
y2 bolli basillauf
Kjúklingurinn er marineraður í
skál með 2 msk. af fisksósu i 30 min-
útur. Kartöflumjöli er síðan bætt við
DV-mynd
Japanskt fondue
Búri, skötuselur, humar, rækjur
og hámeri
1 bolli sojasósa
1 dl saki
114 bolli fisksoð
bonitokrydd eftir
smekk
75 g sykur
2-3 þarablöð
Fiskurinn er skorinn í þunnar
sneiðar. Sósa, sake, soð, krydd og
þarablöð hrærð saman og hituð upp á
eldavél og sett í fonduepott. Fiskin-
um dýft í heitan vökvann örstutt.
í eftir steikingu. Gulrætur, sellerí og oglátið þekja kjúklinginn. Olía er
brokkólí er skorið smátt og snöggs- __ . hítuð á pönnu og karríi bætt út í.
teikt á pönnu. " Laukur og kjúklingur sett út i og lá-
Borið fram með grænmetinu og tið steikjast þangað til kjötið er til-
búið. Papriku, vor-
lauk og bamboó
shoots bætt út í og
1 msk. af fisksósu.
Kókosmjólk og
sykri bætt út í og
látið sjóða í 2 mín-
útur. Tekið af hell-
unni og basillauf-
um bætt út í. Borið
fram með taílensk-
um jasminhrís-
grjónum.
Isterta
1 lítri rjómi,
til að þeyta
1 egg
1 msk. sykur
75 g rifið
suðusúkkulaði
Vr-1 dl Irish mist
líkjör
400 g makkarónu-
kökur
Egg og sykur þeytt
saman þar til það
verður ljóst og létt.
Súkkulaði hrært út
í og öllu blandað saman við þeyttan
rjómann. Plastfilma er sett í botninn
á kringlóttu formi. Makkarónukök-
um er raðað á botninn og bleytt með
líkjörnum. ísinn settur yfir. Endur-
tekið ca þrisvar sinnum, eftir stærð
formsins. Sett í frysti yfir nótt. Tekið
úr forminu og smurt með þeyttum
rjóma. Sett aftur í frysti. Tekið út
hálftíma fyrir notkun og skreytt með
ferskum jarðarberjum, grænum og
bláum vínberjum.
Ásta Birna ætlar að skora á Vigni
Albertsson, byggingatæknifræðing
hjá Reykjavíkurhöfn, að vera næsti
matgæðingur. „Hann er alveg frábær
kokkur og sérstaklega í fiskréttum.“
-ból
Ásta Birna Hauksdóttir flugfreyja hefur dálæti á austurlenskum réttum.
Brynjar GautiO
hrísgrjónunum og að sjálfsögðu er
ómissandi að drekka japanskt saki
með.
Taílenskur kjúklingur
2 kjúklingabringur
3 msk. fisksósa
1 msk. kartöflumjöl
2 msk. hnetuolía
1 bolli laukur, niðurskorinn
1-2 msk. rautt karrí-pasta
(eftir smekk)
1 bolli rauð paprika, niöurskorin
1 stk. vorlaukur
2 stk. hvítlauksrif
1 bolli bamboo shoots, niðurskorið
y2 dós kókosmjólk
250 g AB mjólk
Vi tsk. salt
1 tsk. kúmenfræ
rifin agúrka, magn fer eftir smekk
Öllu er blandað saman í skál og
látið vera um stund i ísskápnum
áður en það er borið fram. Hægt er
að rífa tómata, lauk eða radísur og
setja út í ef óskað er eftir meira
bragði.
-ból
Langafasta
Nú liður ao löngufóstu sem
stendur til páska. Sá kristni sið-
ur að fasta fyrir páskana er
óvíða hafður i heiðri núna en
áður fyrr borðaði fólk oft ekki
annað en vatn og brauð í sjö vik-
m- fyrir páska. Þrír síðustu dag-
arnir áður en langafasta hefst
hafa orðið að nokkurs konar
kjötkveðjuhátíð. Fólk gerir sér
dagamun og treður sig út af mat
áður en fastan hefst. Hverjum
þessara daga, bolludegi,
sprengidegi og öskudegi, fylgja
sérstakar venjur og siðir.
Hallgerður Gísladóttir, sagn-
fræðingur á þjóðháttadeild Þjóð-
minjasafnsins, segir að bolluát á
bolludegi hafi fyrst borist hingað
með dönskum bökurum upp úr
miðri 19. öld. Fyrst voru bollurn-
ar nokkurs konar ástarpungar,
úr kleinudeigi með rúsinum og
steiktar úr feiti. Það er ekki fyrr
en nokkuð er liðið á þessa öld
sem bollurnar breytast, rúsín-
urnar hverfa og þær eru búnar
til úr hveiti og geri og farið er að
setja á þær þeyttan rjóma eða
krem.
Hér koma tvær uppskriftir að
bollum úr bókinni Bökun í
heimahúsum eftir Helgu Sigurð-
ardóttur.
Langaföstubollur
500 g hveiti
375 g smjörlíki
2,5 dl mjólk
25 g pressuger
50 g sykur
eplamauk, rúsínur eða súkkat
Hveitið sáldað og velgt, einnig
mjólkin. Gerið brytjað og brætt
með sykrinum. Smjörlíkið mulið
saman við hveitið. Það sem eftir
er af sykrinum hrært saman við.
Vætt í með gerinu og mjólkinni
og hrært þar til seigt. Deigið fært
í hrúgu í fatinu og hveiti stráð
yfir. Hulið með bréfi og látið
bíða á heitum stað í 45 mínútur.
Hnoðað í fatinu. Deigið hlutað í
smástykki, heldur stærri en egg,
og flatt í lófanum. Eplamauk,
súkkat eða rúsínur sett á miðju
deigsins og það því næst brotið
saman og látið á smurða, hveiti
stráða plötu þannig að samskeyt-
in snúi að plötunni. Platan látin
vera við hita þangað til kökurn-
ar hafa lyft s'ér. Þá eru þær
smurðar eggjahvítu og bakaðar
við mikinn hita i um það bil
stundarfjórðung.
Rjómabollur
75 g smjörlíki
114 dl vatn
75 g hveiti
3 egg
salt og sykur
yt 1 rjómi
súkkulaði og vatn
Smjörlíkið og vatnið látið í
pott og soðið. Þegai’ sýður er
hveitið hrært út í. Hrært fljótt og
vel saman með sleif uns það losn-
ar við sleifina og pottinn. Látið í
skál og salti og sykri stráð á.
Kælt. Deigið hrært og eggin
hrærð saman viö eitt og eitt í
senn. Því næst hrært í 20 mín.
Látið á smurða plötu með teskeið
eða sprautið úr poka. Bakað við
meðalhita í 20 min. Má eigi opna
ofninn fyrstu 2-3 mín. Súkkulað-
ið skafið niður mjög smátt og
brætt ásamt ögn af vatni í skaft-
potti sem settur er ofan í heitt
vatn. Hrært í þar til súkkulaðið
er bráðið og það þá borið á boll-
urnar. Efsti hluti bollanna skor-
inn af og þeyttur rjómi látinn á
milli. Gott er einnig að láta
berjamauk i botn kökunnar. -ból