Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Page 10
10
lauGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996 JLJP V
Tangódella grípur landann:
Höfuð sperrast og fætur flækjast,
andardrátturinn verður ör og ein-
beitnin skín úr andlitunum.
Hátt í tvö hundruð manns hafa á
undanförnum misserum dregið
fram dansskóna og liðið um gólf
Kramhússins í blóðheitum tangó.
Bryndís Halldórsdóttir tangókenn-
ari segir að della hafi gripið land-
ann.
„Þetta gengur í bylgjum. Við
fundum fyrir vaxandi áhuga í fyrra
og núna er áhuginn virkilega mik-
ill,“ segir Bryndís.
Tangóuppsveifla í Evr-
ópu
Tangó er í mikilli uppsveiflu í
allri Evrópu. Hægt er að dansa
tangó á hverju einasta kvöldi á sér-
stökum tangóklúbbum í helstu borg-
um Evrópu um þessar mundir og
fólk flykkist á tangónámskeið.
Það eru bæði byrjendur og lengra
komnir sem dansa í Kramhúsinu
undir handleiðslu Bryndísar xig eig-
inmanns hennar, Hany Hadaya.
Hany er austurískur, lærður ballett-
dansari sem kom fyrst til íslands til
að starfa með íslenska dansflokkn-
um.
„Við fórum upphaflega saman á
tangónámskeið og síðan hefur þetta
þróast og bæði orðið okkar áhuga-
mál og ástríða. Við höfum mikið
þróað okkar eigin stíl með æfingum
og áhuga og svo hlustum við mikið
á þessa tónlist. Það má alveg segja
að við séum með þessa tangódellu
sem hefur gripið marga sem hafa
farið út í þetta,“ segir Bryndís.
Bryndisi og Hany dreymir um að
fara til Argentínu á sérstakan
tangóháskóla þar. Þau fóru til Sviss
síðasta sumar þar sem þau lærðu
tangó hjá nokkrum af færustu.
argentínsku kennurunum sem
starfa í Evrópu og sóttu meðal ann-
ars tíma hjá kennara frá tangóhá-
skólanum.
„Þetta var mjög öflugt vikunám-
skeið og það var dansað allan sólar-
hringinn. Það fór alveg sólarhring-
ur í að sofa úr sér á eftir."
Kemur innan frá
Bryndís segir að tangó sé dans
fyrir alla.
„Það hefur verið mjög breiður
aldurshópur á námskeiðunum hjá
okkur þó að persónulega finnist
mér tangó ekki vera mikið fyrir
unglinga. Mér finnst þetta meira
vera fyrir fullorðið, þroskað fólk því
tangóinn hefur svo mikla dýpt og
dansinn kemur svo mikið innan frá.
Unga fólkið er oft mjög, mjög fært
tæknilega en það vantar dýptina.
Þetta er tilfinningalegur dans og
það er oft þannig að fullorðna fólkið
á auðveldara með að tjá sig að þessu
leyti. Mér finnst óskaplega gaman
að sjá fullorðið fólk dansa og finnst
mjög gaman að dansa við herra sem
eru komnir af yngsta skeiði. Það
verður að vera mikil tilfinning í
tangónum. Ef hún er ekki þá vantar
eitthvað upp á,“ segir Bryndís.
Það eru um tíu ár síðan byrjað
var að kenna íslendingum tangó í
Kramhúsinu. Þá greip um sig
tangóæði og stofnaður var
tangóklúbbur sem starfaði á Hótel
Borg. Síðan kom lægð í starfsemina
en núna hefur tangóklúbburinn ver-
ið endurvakinn og Reynir Jónasson
og Szymon Kuran leika mánaðar-
lega fyrir dansi á efri hæðinni á Sól-
on íslandus þar sem tangódansarar
landsins geta fengið útrás fyrir
dansgleðina.
Dans gleðikvenna
Tangóinn á rætur sínar að rekja
til Argentínu en í dansinum bland-
ast áhrif frá mörgum löndum, með-
al annars frá Afriku. Byrjað var að
dansa tangó um miðja 19. öld í und-
irheimúm og næturklúbbum Buen-
os Aires, höfuðborgar Argentínu.
Dansinn þótti í upphafi frekar vera
Bryndís Halldórsdóttir og Hany Hadaya kenna íslendingum að dansa tangó.
fyrir fólk af lægri stéttum og sér-
staklega var litið niður til þeirra
kvenna sem hann dönsuðu. Það
þótti ekki sæma nema gleðikonum
af verstu sort að dansa tangó.
Náin snerting
Tangóinn olli byltingu á sínum
tíma vegna þess hversu nálægðin er
mikil á milli dansaranna sem verð-
ur til þess að fólk snertist mjög
náið. Vegna alls þessa þótti
tangóinn mjög djarfur.
Um 1910 berst tangóinn til Evr-
ópu og þar grípur um sig algjört
tangóæði. í nokkur ár var ekki tal-
að um annað, skrifað um annað eða
sungið um annað og tangó var dans-
aður á hverju horni.
Þetta tangóæði hófst í París. Sag-
an segir að eitt sinn hafi ungur,
myndarlegur, ríkur og glæsilegur
argentínskur rithöfundur, Ricardo
Gúiraldes, verið staddur á nætur-
klúbbi þar sem beðið var um að
gestirnir sýndu eitthvað sem væri
einkennandi fyrir þeirra þjóð, ann-
aðhvort söng eða dans.
Gúiraldes, sem lýst er sem djörf-
um glaumgosa frá Buenos Aires,
stóð upp, valdi sér unga konu úr
áhorfendahópnum og byrjaði að
dansa við hana. Hann fann að hún
fylgdi honum vel eftir og gekk þá
lengra og lengra. Áhorfendur féllu í
stafi og ekki var aftur snúið.
Bannaður af páfa
Tangóinn breiddist síðan hratt út
um Evrópu, til London, Rómar og
víðar. Þar kom að páfanum ofbauð
þessi djarfi dansi og hann bannaði
tangóinn árið 1914.
í Evrópu dönsuðu allir tangó,
ekki bara lágstéttin. Tangóæðið
barst svo aftur til Argentínu þar
í villtri tangósveiflu.
sem það varð smám saman viður-
kennt að hástéttin mætti dansa
tangó líka og þar náðu vinsældir
dansins hámarki um 1930. Eftir það
kom mikil lægð og á eftirstríðsárun-
um voru uppi vangaveltur um hvort
dansinn væri endanlega dauður.
Það er síðan ekki fyrr en eftir
1960 að tangóinn rís upp frá dauðum
með nýjum hljómsveitum sem fara
að spila tango nuevo eða hinn nýja
tango. Þar er einna fremstur í
flokki, Astor Piazzolla frá Argent-
ínu, sem kom með meiri dramatík
og tilfinningar inn í tónlistina og
samdi stór konsertverk.
Bryndís segir að oft hafi þótt
mjög erfitt að dansa við þessa mús-
ík sem var frekar eins og klassísk
músík en dansmúsík. En á þessum
tíma spruttu líka upp danshljóm-
sveitir eins og Sexteto Mayor sem
sló svo rækilega í gegn að hún var
bókuð mörg ár fram í tímann.
Rifist um hvað er rátt
Að sögn Bryndísar er nú aftur
farið að dansa tangóinn eins og gert
var í upphafi. Kennarar frá Argent-
ínu eru smám saman að færa dans-
inn nær upprunanum en nýju
áherslurnar leyni sér þó ekki.
„Gamli tangóinn var meira bara
gönguspor. í hinum nýja varð mikil
dramatík og kannski erótík. Bland-
an af þessu núna er að grunnurinn
er notaður en með alls konar fóta-
flækjum. Síðan eru auðvitað mjög
skiptar skoðanir um þetta allt sam-
an og menn rífast um það alveg
fram í rauðan dauðann hvað sé
hinn eini sanni tangó," segir Bryn-
dís.
-ból
Tangó þótti á sínum tíma mjög djarfur vegna þess hve dansararnir snertast
náið og var dansinn bannaður af páfa. DV-myndir Teitur
Blóðheitur og diarfur dans