Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Side 31
39
TT> ..T LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996
Páll Úskar Hjálmtýsson:
Ný plata á íslandi og í Evrópu
„Verðlaunin söngvari ársins er
þægilegasta þruma úr heiðskírunni
sem hægt er að hugsa sér,“ sagði
Páll Óskar Hjálmtýsson sem valinn
var söngvari ársins á fimmtudags-
kvöld.
„Ég er bara hress, þetta er algjört
klimax. Það er búið að vera í það
„fríkaðasta" að vera til þessa dag-
ana. Ég er búinn að „stúdera" Björk
í heila viku fyrir kvöldið. Ég er bú-
inn að klippa myndband með nýju
lagi Making Love og gefa út lag með
Leoncie. Ég held áfram að kynna
sjálfan mig eins og ég er búinn að
gera undanfarið eitt og hálft ár í
Þýskalandi og Skandinavíu. Það
hefur gengið æðislega en þetta er
áttatíu prósent kynningarstarfsemi
og fimmtán prósent tónlist. Ég er að
byrja að vinna næstu plötu en hún
verður mjög poppuð dansplata með
frumsömdu efni. Sú plata kemur út
á Islandi og viðar í Evrópu. Það
verður gaman að þrykkja gullplötu
og verðlaunastyttu framan í kallana
með peningana," sagði Páll Óskar
Hjálmtýsson.
-em
Gunnlaugur Briem:
Tónlistin kemur
Kristján Kristjánsson:
Mjög
frá hjartanu
„Mér er það mikill heiður að fá
þessi verðlaun og þykir vænt um að
lesendur og dómnefnd skuli sýna
mér þennan stuðning," sagði Gunn-
laugur Briem, trommuleikari árs-
ins, í samtali við DV eftir afhend-
inguna.
Gunnlaugur leikur með hljóm-
sveitinni Mezzoforte. Hann sagðist
hafa verið mjög heppinn með sam-
starfsfólk og benti á að félagar hans
væru fremstir í flokki í tónlistinni á
íslandi. Það hefði hjálpað honum að
ná eins langt og raun bæri vitni.
„Á siðustu árum hef ég farið að
gera það sem mér býr í brjósti varð-
andi tónlistina. Þegar öllu er á botn-
inn hvolft kemur tónlistin frá hjart-
anu. Ég trúi því að ef ég spila af ein-
lægni skíni það í gegnum tónlistina.
-em
þakklátur
„Ég er mjög þakklátur fyrir
verðlaunin og finnst það mikill
heiður. Ég pældi ekkert í þessu
áður þannig að verðlaunin
komu mér mjög á óvart,“ sagði
Kristján Kristjánsson eftir að
hann tók við verðlaunastyttu
sem textahöfundur ársins.
Kristjáni var ákaft fagnað og eft-
ir koss frá eiginkónunni gekk
hann á svið. Kristján hefur ekki
spilað mikið að undanförnu þar
sem hann er að ná sér eftir slys.
Hann fer að byrja vinnslu á
nýrri geislaplötu sem væntan-
lega kemur út í sumar.
„Verðlaunin sýna að einhver
tekur eftir manni og það er gam-
an ef fólki líkar það sem maður
er að gera.“
-em
Guðmundur Steingrímsson:
Ánægður með kvöldið
„Það er alltaf gaman þegar manni
er komið svona á óvart. Ég var mjög
ánægður með kvöldið,“ sagði Guð-
mundur Steingrímsson, eða Papa
Jazz, sem fékk heiðursverðlaun Is-
lensku tónlistarverðlaunanna á
fimmtudagskvöld. Guðmundur er
stofnandi Jazzvakningar á íslandi.
Hann heyrði fyrst djass á striðsár-
unum og heillaðist upp úr skónum.
Hann lék með KK-sextettinum í tíu
ár auk þess sem hann hefur leikið
með Hauki Morthens, Ragga Bjarna
og Tríói Björns Thoroddsen.
I DV í gær víxlaðist fyrirsögn á
greinum um Guðmund Steingríms-
son og Gunnlaug Briem. Guðmund-
ur hreppti heiðursverðlaun kvölds-
ins og Gunnlaugur er trommuleik-
ari ársins en ekki öfugt eins og stóð
í blaðinu í gær. Guðmundur og
Gunnlaugur eru beðnir velvirðing-
ar á þessum mistökum.
-em
Guðmundur Steingrimsson var
hissa á afhendingunni.
Guðmundur Pátursson:
r
Eg er þakklátur
„Já, já, ég er ánægður en þetta
var orðið svolítið fyrirsjáanlegt,
finnst mér. Ég tek þetta nú ekki of
hátíðlega en ég er samt mjög þakk-
látur,“ sagði Guðmundur Pétursson
sem valinn var gítarleikari ársins
við afhendingu íslensku tónlistar-
verðlaunanna. Salurinn fagnaði
ákaft þegar Guðmundur gekk að
sviðinu.
Guðmundur lék í Jesus Christ Sú-
perstar og hefur einnig leikið með
Emilíönu Torrini, svo eitthvað sé
nefnt. Það er ýmislegt á döfinni hjá
honum eins og tvö stór leikhúsverk
og drög að plötu.
-em
Björk Guðmundsdóttir:
Borðar kolkrabba í New,York
og fær fimm verðlaun á íslandi
Björk Guðmundsdóttir sópaði að
sér verðlaunum á hátíðinni. Hún
var tilnefnd til sex verðlauna og
hreppti fimm þeirra eins og fram
kom í DV í gær. Móðir Bjarkar,
Hildur Hauksdóttir, var afar stolt af
dóttur sinni og tók við verðlauna-
súpunni með dyggri aðstoð Einars
Arnar, Sykurmola. Hildur var ekki
margorð frekar en dóttirin í þakkar-
ræðunni en hún var mjög ánægð
með kvöldið.
Björk var af dómnefnd og lesend-
um DV valin söngkona ársins, flytj-
andi ársins, lagahöfundur ársins,
hún átti lag og plötu ársins. Björk
sendi DV og hátíðinni símbréf í gær
þar sem hún þakkaði fyrir sig jafn-
framt sem hún sagðist vera að
borða kolkrabba í Hong Kong þar
sem hún er stödd á tónleikaferða-
lagi.
Hljómsveitin Botnleðja, sem gaf út geislaplötuna Drullumall fyrir jól, var val-
in bjartasta vonin.