Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Page 36
44 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996 JlVV í$viðsljós Feiminn rauð- vínskarl - Timothy Dalton segir söguna um sjálfan sig „I raun er ég mjög óframfærinn," segir Timothy Dalton sem þekktur er í gervi ofurnjósnarans James Bond og flagarans Rhett Butlers í sjónvarpsþáttunum Á hverfarida hveli. „Ég fékk leikhúsbakteríuna þegar ég var drengur. Þá sá ég Macbeth og var ekki í vafa um hvaða starfs- grein ég ætlaði að leggja fyrir mig.“ Þótt Dalton leiki nær eingöngu í kvikmyndum núna er hann trúr for- tíð sinni og segir af og til já við lítt borguðum tilboðum um að leika á sviði. „Að taka vel launuðu kvik- myndatilboöi hefur ekkert með pen- inga að gera, þannig lagað, heldur er ég að tryggja mér framfærslu í ellinni," segir Dalton sem ekur um á gamalli Toyotu og býr í gömlu húsi í Chiswick í London. Hann fæddist í Wales og á fjögur systkin. Pabbi hans vann við aug- lýsingagerð og í fyrstu ætlaði Dalton að verða efnafræðingur. Áhuga sinn á leikhúsi á hann hins vegar afa sínum að þakka sem rak leikhús í Bath. Hann fór því í leik- listarskóla og menn voru fljótir að koma auga á hæfileika hans. Árið 1968 lék hann í sinni fyrstu kvik- mynd, Ljóni vetrarins, en aðalhlut- verkin voru í höndum Katharine Hepburn, Peter O’Toole og Anthony Hopkins. Síðan komu önnur hlut- verk en fyrir leik sinn í kvikmynd um ævi Maríu Stuart fékk hann mikið lof og komst á kortið. Við leik í þeirri mynd kynntist Dalton, sem er 48 ára, Vanessu Red- grave, sem er tíu árum eldri. Þau voru saman í 15 ár og eru góðir vin- ir enn í dag. Dalton hefur aldrei ver- ið giftur en er þekktur fyrir að vera mikið kvennagull. Hann neitar þó að ræða sitt einkalíf í viðtölum við fjölmiöla. „Ef ég hitti réttu konuna getur það þýtt brúðkaup og barn. Ég hef þó ekki verið svo lánsamur enn þá. Þangað til eyði ég frítíma mínum í stangaveiði og skrepp á knæpuna með félögum mínum. í sannleika sagt þá kann ég ekki við mig f fé- lagsskap ofurfallegra kvenna og því síður vil ég eiga flotta og dýra bíla. Ég þoli hreinlega ekki að fólk horfi á mig.“ Stangaveiði og bjór á knæpunni með félögum sínum. Þannig eyðir Dalton frístundum sínum. Margrét setur stórt spurningarmerki við Kötju Nú er útlit fyrir að hin þokkafulla Katja, kærasta Friðriks krónprins, verði aldrei drottning í Danaríki. Margrét Danadrottning ku einblína á skamma menntagöngu stúlkunnar en Katja Storholm Nielsen hefur jafnframt lýst því yfir að hún hafi takmarkaðan áhuga á að bæta úr því. Sem drottning telur Margrét sig bera ábyrgð því að lífsforunautur krónprinsins sé hlutverki sínu vax- Hathaway hjúkka í bólinu Emmy-verðlaunahafinn Julianna Margulies, sem er betur þekkt sem Hathaway hjúkrunar- kona í Bráðavakt- inni, hagar sér allt öðruvísi í einkalíf- inu en í fyrrnefnd- um sjónvarpsþátt- um. Hún þolir ekki hjúkku- búninginn en heldur þeim mun meira upp á eggjandi klæðnað. Þar fyrir utan á hún eigin uppskrift að því hvernig á að halda línunum í lagi. „Ef maöur stundar gott kynlíf langar mann alls ekki til að stunda einhverj- ar þreytandi líkamsæfing- ar,“ segir hin 26 ára rísandi stjarna sem einnig trúir á end- urholdgun, vítamín og nægan svefn. inn. Ekki sé nóg að stúlkan sé falleg og vel vaxin. Hennar hlutverk sé að vera fulltrúi Danaveldis á erlendri grundu, hún þurfi að geta haldið uppi samræðum um hin flóknustu málefni og vera málamanneskja. Hún má ekki skapa hættu á því að hneykslismál komi upp á yfirborðið og að myndir sem særi blygðunar- kennd manna birtist í blöðum. I fáum orðum sagt er það mat drottningarinnar að undirfatamódel sé ekki krónprinsessan sem Dan- mörk þarf á að halda. Katja hefur verið eftirsótt sýning- arstúlka frá því hún hóf feriliip og því hætti hún námi að loknu stúd- entsprófl. Nú kunna sumir að benda á að námsferill Díönu prinsessu af Wales sé ekki frábrugðinn ferli Kötju en á hitt ber að líta að brestir í hjónabandi hennar og Karls rikis- arfa komu irieðal annars fram af því að þau höfðu um fátt að ræða. Danska þjóðin klofin Eitt vandamálið til viðbótar, sem vex Margréti Þórhildi í augum, er sá fjöldi kærasta sem Katja hefur átt. Hún hefur starfað í þeim geira þar sem kirkjubrúðkaup hafa ekki átt upp á pallborðið. Allar þessar vangaveltur kljúfa dönsku þjóðina í tvær fylkingar. Önnur styður það að Friðrik fái að giftast þeirri konu sem hann lystir en hin sjónarmið móður hans, Mar- grétar. „Það eru mannréttindi að fá að gera það sem hjartað segir manni,“ hefur Ole Espersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra Dana, látið hafa eftir sér. „En ef tilvorrandi brúður krónprinsins uppfyllir ekki ákveðin skilyrði þá getur danska þingið ekki lagt blessun sína yfir ráðahaginn. Margrét Þórhildur liggur ekki á þeirri skoðun sinni að ráðahagur Friðriks krónprins sé ekki að henn- ar skapi. Ef hann heldur skoðunum sínum til streitu þrátt fyrir þetta þýðir það að hann verður að afsala sér erfðarétt- inum, rétti sínum til hallar og líf- eyris." Þetta þýddi að Joachim prins og Alexandra prinsessa tækju við völd- um. Ólyginn sagði... .. .að nú stæðu yfir tökur á kvik- mynd sem fjalla mun um ást- arsamband Díönu prinsessu og James Hewitt. Líklegt er að Nicole Kidman fari með hlut- verk Díönu í myndinni en þar mun ástarleikur sá sem hún sagði frá í frægu sjónvarpsvið- tali verða settur á svið. . . .að Ralph Fiennes, sem fór með hlutverk eins af fólunum í Schindlers listanum, mundi fara með hlutverk Hewitt majors í myndinni um þau skötuhjú. Myndin ku byggja á bók Önnu Pasternak, Ástfangin prinsessa. Ólygnir segja að Di- ana kvíði mjög sýningu mynd- arinnar. . . .að Diane Keaton hefði verið haldin sjúklegri þrá eftir því að eignast barn þegar hún lék í myndinni Baby Boom árið 1987. Þá var hún í sambúð með leikaranum Al Pacino en ekkert gengið hjá þeim skötuhjúum. Nú er Diane einstæð og fimm- tug og tveimur dögum fyrir jól varð henni að ósk sinni og fékk dóttur til ættleiðingar. . . .að einn eftirsóttasti pipar- sveinn í Hollywood, „vinurinn" Mathew Perry, væri genginn út. Sú heppna er engin önnur en Julia Roberts. . . .að Fred Dryer, sem íslend- ingar þekkja líklega betur sem Hunter úr samnefndum sjón- varpsþáttum, væri kominn fram fyrir kvikmyndatökuvélarnar á ný. Dryer ætlar að fara að keppa við Hazelhoff strandvörð því í nýju þáttunum leikur hann einkaspæjara á fínni baðströnd. Þættirnir heita Lands End.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.