Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Side 38
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996 JLÍ"V
46 (þróttir
Eydís Konráðsdóttir, sunddrottning úr
Keflavík, leggur gífurlega hart að sér til að ná
settu marki fyrir stærstu íþróttahátið heims-
ins í sumar en þá verða haldnir sumarólymp-
íuleikarnir í Atlanta í Bandaríkjunum.
Eydís gefur ekkert eftir í baráttunni við að
ná lágmarkinu sem krafist er af sundmanni í
100 metra flugsundi. íþróttamaður sem ætlar
sér eitthvað í íþrótt sinni þarf á óhemju mikl-
um sjálfsaga að halda og þá ekki síst í einstak-
lingsíþrótt þar sem íþróttamaðurinn treystir
á engan nema sjálfan sig.
í gegnum tíðana hafa íslendingar oft átt
sterka sundmenn sem þeir hafa verið stoltir
af. Frá því að íþróttafréttamenn hófu að velja
íþróttamann ársins 1956 hafa þrír sundmenn
hreppt þennan titil sem alla íþróttamenn
dreymir um. Guðmundur Gíslason hreppti
hann fyrstur, síðan var komið að Eðvarði Þór
Eðvarðssyni og loks Ragnheiði Runólfsdóttur.
Eftir að Ragnheiður hætti æfingum og
keppni varð bakslag í sundinu en til að íþrótt
verði sem mest í sviðljósinu verður hún að
eiga íþróttamenn sem skara fram úr.
Ekki leið á löngu þar til sundið var aftur
komið í umræðuna. Ungir og efnflegir sund-
menn komu smám saman fram í sviðsljósið og
eiga eftir að verða fleiri á næstunni. Uppbygg-
ingin innan sundsins á síðustu árum er farin
að skfla sér þótt ótrúlegt megi virðast.
Sundmenn hér búa við aðstæður sem eng-
inn sundmaður úti í hinum stóra heimi
myndi láta bjóða sér í dag. íslenskir sund-
menn stæðu örugglega enn framar ef eðlileg-
ar aðstæður væru fyrir hendi. Ekkert bendir
til að þær batni á næstu árum miðað við síð-
ustu ákvarðanir yfirvalda.
Eydís Konráðsdóttir, sem æft hefur sund
frá sjö ára aldri og hélt upp á 18 ára afmæli
sitt i gær, hefur með ómældri vinnu og sjálfs-
aga komið sér á fremsta bekk sundmanna á
íslandi. Tár og sviti hafa örugglega fallið til að
ná þessum árangri. Eydís hefur ekki á síðustu
mánuðum setið með hendur í skauti. Hún
æfir gífurlega þessa dagana því hún á ekki
langt í land með að ná lágmarkinu í 100 metra
sem hún stefnir að að keppa í á ólympíuleik-
unum í sumar.
Ég ætla að
klára dæmið
DV lék forvitni á að spyrja Eydísi hvað
hún æfði mikið á dag og eins hvort hún
væri bjartsýn á að ná lágmarkinu fyrir
ólympíuleikana.
„Ég er nýkomin heim frá Þýskalandi þar
sem ég æfði og keppti. Eftir heimkomuna var
þráðurinn tekinn upp að nýju og daglega er ég
að synda í kringum 10 kOómetra. Þegar ég er
heima í Keflavík byrja ég að æfa klukkan sex
á morgnana en annars klukkan átta þegar ég
æfi í Reykjavík. Síðan taka við æfingar aftur
seinni part dagsins. Auðvitað er þetta mikil
vinna en hún er hiklaust þess virði. Úr þessu
verður ekki aftur snúið og ég ætla að klára
dæmið. Ég ætla hið minnsta ekki að hlaupa
frá hálfkláruðu verki. Ég æfi undir hand-
leiðslu Þjóðverjans Martins Rademachers og
ég er mjög ánægð með að hafa hann. Ég
treysti honum fuUkomlega og myndi fylgja
honum hvert sem er blindandi,” sagði Eydís í
spjallinu við DV, nýkomin af morgunæfingu,
í vikunni.
Bróðirinn stefnir einnig
á ólympíuleikana
Magnús, bróðir Eydísar, æfir einnig með
systur sinni alla daga. Hann er í hópi bestu
sundmanna landsins og stefnir að sama marki
og Eydís; að ná lágmarkinu fyrir ólympíuleik-
ana í sumar. Magnús er i 1.5 sekúndur frá lág-
markinu í 100 metra bringusundi. Eydís var
bjartsýn fyrir hönd bróður síns og spáði því
að hann myndi ná lágmarkinu í tæka tíð.
„Ég hef lengi stefnt að ólympíuleikunum í
Atlanta. Á Evrópumeistaramótinu í Vínar-
borg í fyrra gerði ég mér fyrir alvöru það
ljóst að ég ætti möguleika á að ná lágmark-
inu. Islandsmet mitt í 100 metra flugsundi er
1:03,38 mínútur en lágmarkið er 1:03,18 mínút-
ur.”
Eydís sagði ekki ákveðið enn hvenær hún
reyndi við lágmarkið næst. Það er þó fastá-
kveðið að hún taki þátt í mótum í Cannes og
Mónakó í endaðan maí og byrjun júní. Verið
er að finna mót fyrr en það kemur ekki alveg
strax í ljós.
Eydís er aðeins
20 sekúndubrotum frá
lágmarkinu og ef fram heldur sem horfir er
aðeins spursmál um vikur hvenær Eydis brýt-
ur múrinn. Fá mót eru hérlendis á næstunni
og þá ekki nema í 25 metra laugum en lág-
markinu verður að ná í 50 metra laug. Meist-
aramót íslands verður í Eyjum í apríl og sagði
Eydís að hún stefndi að sjálfsögðu að þátttöku
þar.
- Nú fer gríðarlegur tími 1 æfingar. Þetta
hlýtur að bitna á ýsmum hlutum eins og
t.d. skólagöngu þinni?
„Það er góður skilningur á þessum málum
í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þar sem ég er
við nám. Á þessari vorönn hef ég frjálsa mæt-
ingu og eins stunda ég nokkra áfanga utan-
skóla. Það er ekki lítið atriði að hafa þennan
skilning skólayfirvalda en það er alveg ljóst
að ég gæti þetta ekki öðruvísi. Það hjálpar
mér einnig í þessu sambandi að ég hef alltaf
átt gott með að læra.
Fyrst ég þarf alltaf að vakna snemma á
morgnana þurfa dagarnir að vera vel skipu-
lagðir. Ég segi að ég fer oftast nær snemma að
sofa en ekki alltaf. Stundum geri ég undan-
tekningu og legg því bara harðar að mér á æf-
ingu daginn eftir.”
_ Nú eiga margir íþróttamenn sér fyrir-
myndir í íþróttinni. Áttu einhverja slíka?
Já, ég get ekki leynt því að ég á nokkrar
slikar. Þær eru danska stúlkan
Nette Jakobsen, sú þýska Fransizka
van Almsick og Krisztina Egerszeki frá Ung-
verjalandi. Þetta eru allt frábæarar sund-
konur. Það hefur komið fyrir að ég hef keppt
á sama sundmóti og þær,” sagði Eydís.
Vantar yfirbyggða
keppnislaug
_ Nú er Ijóst að ekkert verður af bygg-
ingu yfirbyggðrar 50 metra sundlaugar á
næstunni. Eru það ekki vonbrigöi fyrir
sundmenn á íslandi að þurfa að búa við
sama ástand áfram?
Jú, því er ekki að leyna að það urðu sund-
mönnum mikil vonbrigði að ekki verði af
byggingu hennar. Ég átti satt best að segja
ekki von á því að yfirbyggð sundlaug myndi
rísa. Þetta var of gott til að vera satt. Það hef-
ur í mörg ár öllu fögru verið lofaö í sambandi
við þessa byggingu en öll loforð hafa að engu
orðið. Fyrst ekki verður af byggingu laugar-
innar í tengslum við Smáþjóðaleikana sé ég
hana varla rísa í náinni framtíð. Það er slæmt
mál en með betri aðstöðu kæmu fleiri til að
æfa sundið. Um leið myndum við eignast
fleiri góða sundmenn. Þetta aðstöðuleysi
teygir anga sína víða,” sagði Eydís Konráðs-
dóttir.
-JKS
II
.
Þjóöverjinn Martin Redemacher er þjálfari systkinanna, Eydísar og Magnúsar. Hér gefur hann þeim góð ráð á æfingu í Keflavík í vikunni sem leið
. Það verður í nógu að snúast hjá þeim á næstunni í baráttunni við lágmörkinni fyrir Ólympíuleikana í Atlanta í sumar. DV-MYND Ægir Már
er þess
■ *"FF
viroi
- segir Eydís Konráðsdóttir sem syndir tíu kílómetra á dag
Besti sundmaður landsins stefnir ákveðið á ólympíuleikana í Atlanta:
„Þetta