Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Síða 53
•; LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996
Bubbi Morthens flytur gömul og
ný lög.
Bubbi á Tveimur vinum
Það verður hátíð í bæ á
Tveimur vinum í kvöld en þá
mun stíga á stokk einn dáðasti
tónlistarmaður okkar, Bubbi
Morthens, og hefja upp raust
sína. Munu tónleikar hans hefj-
ast kl. 23.00.
Tónleikar
Bubbi Morthens er einn þeirra.
sem óþarft er að kynna. Sjálfsagt
hefur enginn íslenskur tónlistar-
maður selt jafn margar plötur á
heimaslóðum og hann og er
skemmst að minnast plötu hans
sem kom út fyrir jól þar sem
hann söng lög sem frændi hans,
Haukur Morthens, hafði sungið
inn á plötu. í kvöld mun Bubbi
flytja gömul og ný lög og rabbar
örugglega við gesti inn á milli
laga, eins og honum er einum
lagið.
Skipta laun kennara
einhverju máli?
Málþing undir yfirskriftinni:
Skipta laun kennara einhverju
máli? verður haldið í dag kl. 13
til 17 að Lóni við Hrísalund á
Akureyri.
Aðalfundur HÍN
Aðalfundur Hins íslenska
náttúrufræðifélags verður hald-
inn í dag kl. 14 í stofu 101 í Odda.
Söngprófstónleikar
Birna Ragnarsdóttir sópran
lýkur síðasta hluta prófs úr átt-
unda stigi söngdeildar með tón-
leikum í sal Nýja tónlistarskól-
ans á morgun kl. 17. Tónleikarn-
ir eru öllum opnir og eru án
Samkomur
gjalds. Birna hefur verið nem-
andi hjá Sigurði Demetz fyrst og
síðan hjá Alinu Dubik.
Bollukaffi og aðalfundur
Átthagafélag Vestmannaey-
inga á Reykjavíkursvæðinu
verður með bollukaffi og aðal-
fund í Akoges- salnum, Sigtúni 3,
á morgun kl. 14.30.
Opið hús hjá Bahá'íum
Bahá’íar eru með opið hús að
Áifabakka 12 í Mjódd í kvöld kl.
20.30.
Félag eldri borgara í Reykjavík
Sveitakeppni í brids í Risinu
kl. 13 á morgun og félagsvist kl.
14. Dansað í Goðheimum kl. 20
annað kvöld.
Gengið
AÍmennt gengi LÍ nr. 35
16. febrúar 1996 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 66,160 66,500 67,300þþ
Pund 101,890 102,410 I01,150þþ
Kan. dollar 47,890 48,190 48,820þþ
Dönsk kr. 11,6480 11,7100 11.6830Þ
Norsk kr. 10,3110 10,3670 10,3150þ
Sænsk kr. 9,5550 9,6070 9,5980þ
Fi. mark 14,4150 14,5000 14,7830þ
Fra. franki 13,0810 13,1560 13,l390þ
Belg. franki 2,1897 2,2029 2,1985þ
Sviss. franki 55,1800 55,4800 55,5000þ
Holl. gyllini 40,1900 40,4300 40,3500þ
Þýskt mark 45,0500 45,2800 45,1900þ
It. líra 0,04174 0,04200 0,04194
Aust. sch. 6,4020 6,4410 6,4290þ
Port. escudo 0,4331 0,4357 0,4343þ
Spá. peseti 0,5344 0,5378 0,5328þ
Jap. yen 0,62450 0,62820 0,63150
Irskt pund 104,810 105,460 104,990þþ
SDR 96,82000 97,40000 97,83000
ECU 82,6400 83,1400 82,6300þ
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270
Urkomulítið sunnan til
í dag verður norðan- og norðaust-
anátt á landinu, hvöss á Vestfjörð-
um fram yfir hádegi en annars
stinningskaldi eða allhvasst. Um
landið norðanvert verður éljagang-
Veðrið í dag
ur eða snjókoma en skýjað með köfl-
um og úrkomulítið sunnan til. í
kvöld lægir. í nótt verður suðaust-
angola eða kaldi og dálítil él um
landið sunnan og vestanvert en
skýjað með köflum norðaustan til. í
dag verður hiti nálægt frostmarki
um landið sunnanvert en frost á bil-
inu 0 til 5 stig norðan til. í nótt kóln-
ar heldur. Á höfuðborgarsvæðinu
verður norðan og norðvestan stinn-
ingskaldi eða allhvasst og él fram að
hádegi en síðan skýjað með köflum.
Minnkandi norðanátt í kvöld. Aust-
an gola eða kaldi í nótt. í dag verð-
ur hiti nálægt frostmarki en frost á
bilinu 1 til 4 stig í nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 18.03.
Sólarupprás á morgun: 9.18.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 16.34.
Árdegisflóð á morgun: 05.04
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrið kl. 12 í gær:
Akureyri snjóél 0
Akurnes skýjaö 1
Bergsstaðir rigning 1
Bolungarvík snjóél -3
Egilsstaðir snjókoma -0
Keflavíkurflugv. léttskýjaö 1
Kirkjubkl. léttskýjaó 1
Raufarhöfn slydda 1
Reykjavik léttskýjaó 1
Stórhöfði skýjaó 3
Helsinki alskýjað -2
Kaupmannah. Ósló snjókoma -4
Stokkhólmur skýjað 1
Þórshöfn slydda 3
Amsterdam rign. á síö.klst. 6
Barcelona mistur 9
Chicago alskýjaó 9
Frankfurt rigning 2
Gldsgow skúr á síó.klst. 6
Hamborg rigning og súld 5
London skýjað 10
Los Angeles þokumóóa 15
Lúxemborg súld 1
París skýjað 7
Róm léttskýjáö 2
Mallorca skýjað 12
New York alskýjaö -4
Nice léttskýjaó 13
Nuuk skýjaó -4
Orlando rigning 17
Vín snjóél á síð.kls. 3
Washington snjókoma -1
Winnipeg heiðskirt -22
Næturgalinn, Kópavogi:
Greip á Galanum
Kópavogur getur ekki státað af
miklu skemmtanalífl á kvöldin bg
er skemmtistaðurinn Næturgalinn
likast til eini staðurinn í Kópa-
vogi, sem býður upp á dans og lif-
andi tónlist um helgar, en Nætur-
galinn er staðsettur að Smiðjuvegi
14. í gærkvöldi lék hljómsveitin
Greip fyrir gesti staðarins og hún
mun einnig leika í kvöld. Um er að
ræða funm manna hljómsveit, sem
leikur fjölbreytta tónlist, sem inni-
heldur létt og þekkt lög sem flestir
kannast við.
Skemmtanir
„Stundvísum“ gestum, eða þeim
sem mæta á bilinu 22.00 til 24.00,
býður staðurinn upp á óvæntan
glaðning. Það má gera sér fleira tO
dundurs á Næturgalanum en að
skemmta sér yfir lifandi tónlist.
Staðurinn er með breiðtjald, þar
sem allir helstu íþróttaviðburðir
eru sýndir, og er oft sýnt beint frá
íþróttaviðburðum um allan heim.
Greip er fimm manna hljómsveit sem skemmtir á Næturgalanum í kvöld.
mmmmmmmmmmmammsi
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1446:
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi
dagsðnn «
Janet Leigh og John Gavin leika
elskendur í Psycho.
Tvær Hitchcock-
myndir
Hreyfímyndafélagið sýnir tvær
, kvikmyndir eftir meistara Hit-
| chcock um helgina í Háskólabíói,
j en Alfred Hitchcock er einn
| þekktasti og virtasti kvikmynda-
I leikstjóri þessarar aidar og ferill
hans spannaði fimmtíu ár.
Foreign Correnspondent
(1940) er ekki ein af þekktustu
myndum meistarans, þótt gagn-
j rýnendur hafi ekki haídið vatni
| yfir henni í gegnum tíðina. Mynd-
in gerist 1939 og er njósnamynd
um bandarískan blaðamann, sem
0 staddur er í Evrópu til að athuga
; hvort heimsstyrjöld vofi yfir.
Hann kemst á snoöir um ráða-
gerð nasista um að ræna hol-
I lenskum ræðismanni sem er að
reyna stuöla að friði. Mörg eftir-
minnileg atriði eru í myndinni,
0 t.d. flugslysið og vindmylluatrið-
1 ið.
Kvikmyndir
Psycho gerði hvorki meira né
| minna en að breyta kvikmynda-
sögunni og er hún af mörgum tal-
in mesta spennumynd sem gerð
0 hefur verið. Hitchcock braut öll
þau boð og bönn sem lögð höföu
| verið fyrir framleiðendur spennu-
| mynda og lét áhorfendur heldur
[ betur finna fyrir því hvernig það
j er að bregða. Psycho verður á
0 miðnætursýningu í kvöld og For-
eign Correspondent kl. 11 sunnu-
| dags- og mánudagskvöld.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Farinelli
Laugarásbíó: Skólaferðalagið
Saga-btó: Dumbo-aðgerðin
Bíóhöllin: Eitthvað til að tala
um
Bíóborgin: Heat
Regnboginn: Fjögur herbergi
Stjörnubíó: Körfuboltadagbæk-
urnar
Bikarmót og
meistaramót í
fimleikum
Það verður að venju mikið um
að vera í íþróttum um helgina og
er keppt í mörgum íþróttagrein-
um. Það verður strembin helgi
hjá okkar besta fimleikafólki en
tvö mót verða bæði í dag og á
morgun en bæði mótin fara fram
í íþróttahúsinu í Digranesi og er
það Gerpla sem sér um fram-
kvæmdina.
í dag fer fram bikarmót kl.
11.30 með keppni í fjórða þrepi
og kl. 14.00 hefst svo keppni í 3.
þrepi. Fimm félög senda lið í
keppnina en þau eru frá Ár-
manni, Gerplu, Gróttu, Keflavík
Iþróttir
og Stjörnunni. Á morgun fer síð-
an fram meistaramót og þar
keppa einungis þeir keppendur
sem hafa ná ákveðnum stiga-
fjölda. Hefst það mót kl. 14.10.
Það verður mikið um að vera í
handboltanum um helgina og
verður í dag og á morgun keppt í
1. deild karla og kvenna og eru
margir leikir á dagskrá sem fyr-
ir fram má búast við að verði
spennandi.