Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1996, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1996, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1996 Viðskipti Tekjur Marels jukust um 46 prósent Rekstrartekjur Marels á síðasta ári námu rúmum 1,1 milljarði króna sem er 46% aukning £rá fyrra ári. Hagnaður af rekstri eftir skatta var 55,9 milljónir króna samanborið við 14,8 milljónir_ árið 1994. Arðsemi eigin {jár var 32,9% en var 9,5% árið áður. Útílutningstekj- ur námu 907,6 milljónum króna sem er 87% af vörusölu móðurfélagsins sem var um 1 milljaröur króna. Þetta er aukning um 52% milli ára. Heildareignir Marels í lok júní voru bókfærðar á um 670 milljónir en það er 38% hækkun frá fyrra ári. Eigið fé fé- lagsins í árslok var 222 milljónir og hafði þá aukist um 33% á árinu. Hluta- fé er 110 milijónir að nafnverði. Starfs- menn fyrirtækisins eru nú 126, þar af starfa 8 hjá dótturfyrirtækjum erlendis. Aðalfundur verður haldinn 6. mars nk. Þar verður lagt til að greiða 10% arð af nafnverði hlutaíjár og auka hlutafé um 20% með útgáfu jöftiunarhlutabréfa. 202 milljóna hagnaður Þormóðs ramma Þormóður rammi á Sigluflrði skilaði um 202 milljóna króna hagnaði á síð- asta ári eða um 10% af veltu. Hagnað- urinn árið 1994 nam 126 milljónum. Heildarvelta fyrirtækisins varð 1.971 milljónir og jukust tekjur þess um 18% frá fyrra ári. Um 200 manns unnu að jafnaði hjá Þormóði ramma. Góð rækjuveiði á íslandsmiðum og Flæmska hattinum er helsta skýringin á hagstæðri afkomu, að sögn forráða- manna félagsins. Þá hefur verð á rækjuafúrðum verið gott. Rækjuafurðir eru 78% af tekjum fyrirtækisins. Eigið fé nam 869 milljónum í árslok og hefur eiginflárhlutfallið hækkað I 44,7%. Nettóskuldir eru 576 miUjónir. Aðal- fundur Þormóðs ramma veröur hald- inn miðvikudaginn 6. mars. Gula skráin fyrir Windows PPan-fjölmiðlun hefur gefið út Gulu skrána, fyrirtækja- og þjónustuskrá í formi tölvuforrits sem keyrir á PC-tölv- um undir Windows. Framleiðandi for- ritsins er Fontur sf. sem sér um alla hugbúnaöarvinnu við Gulu skrána. Þess má geta að PPan-fjölmiðlun hefúr séð um útgáfu ET-blaðsins. Gagna- grunnur forritsins er byggður upp af fyrírtækjum sem óska eftir skráningu í Gulu skrána. Hægt er að fletta beint upp á fyrirtækjum eftir nafni og eins eftir sérstakri þjónustuskrá. -bjb Fundir og ráðstefhur HentiTánaskipum Qölgar í farskipaflotanum: Fimm farskip eru skráð á íslandi - ekkert þriggja skipa Samskipa skráð hér Svokölluðum hentifánaskipum hefur fjölgað verulega í íslenska far- skipaflotanum undanfarin ár. Nú er t.d. svo komið að aðeins tvö af tíu skipum Eimskips eru skráð á ís- landi og ekkert af þremur skipa Samskips. Samkvæmt nýjustu skipaskrá eru aðeins 5 farskip af ríf- lega 20 í íslenskri eigu skráð hér á landi. „Aðeins Brúarfoss og Laxfoss eru skráð hérlendis hjá Eimskipi. Það er nú allur fjöldinn hjá óskabarni þjóðarinnar. Mér skilst að senda eigi skipin út í haust í staðinn fyrir ný þannig að þá gæti ekkert skip verið með íslenskum fána hjá Eim- skip. Hver veit,“ sagði Birgir Björg- vinsson hjá Sjómannafélagi Reykja- víkur en félagið hefur gagnrýnt mjög þessa þróun hjá skipafélögun- um. Auk skipa Eimskips er Hofsjökull hjá Jöklum hf. skráð hérlendis og tankskipin Kyndill, sem Olís og Skeljungur reka, og Stapafell, sem er í eigu Olíufélagsins. Öll þrjú skip Nesskips; Selnes, Akranes og ísnes, eru skráð erlend- is. Sömu sögu er að segja um þrjú skip skipafélagsins Ness. Þá eru nokkur skip í leigu hjá íslensku skipafélögunum sem öll eru skráð á erlendri grundu. Að sögn Birgis starfa um 200 ís- lendingar á farskipum í dag og hef- ur fækkað verulega síðustu misseri. Sjómannafélagið hafi barist harðri baráttu fyrir að halda störfum fyrir sína félagsmenn um borð í skipun- um og það tekist þannig að íslensk- ir hásetar væru í flestum farskip- anna. Hins vegar væru útlendingar yfirleitt í störfum stýrimanna og vélstjóra. -bjb Ársfundur Verðbréfaþings var haldinn í gær. Auk venjubundinna ársfundarstarfa voru flutt tvö erindi. Forstjóri kaup- hallarinnar í Kaupmannahöfn, Bent Mebus, fjallaði um breytingar í rekstrarumhverfi evrópskra kauphalla og Ólafur Nilsson endurskoðandi ræddi um áhrif skattalaga á hlutabréfamarkað. Hér sést Eiríkur Guðnason, stjórnarformaður Verðbréfaþings, á milli fyrirlesaranna Ólafs og Bents. DV-mynd GS Lítil en dreifð hlutabréfakaup Hlutabréfaviðskipti um kerfi Verðbréfaþings íslands og Opna til- boðsmarkaðarins í síðustu viku námu 35 milljónum króna. Þetta verða að teljast lítil viðskipti miðað við það sem á undan hefur gengið en viðskiptin voru engu að síður dreifð í mörgum félögum. Stærstu viðskiptin urðu með bréf Borgeyjar á Höfn í Homafírði, eða fyrir tæpar 12 milljónir. Næst komu bréf SR- mjöls með 8 milljóna viðskipti og í Pharmaco fyrir tæpar 5 milljónir. Síðan komu mörg hlutafélög með í kringum 1 milljónar viðskipti í vik- unni, m.a. stóru félögin eins og Eim- skip, Flugleiðir, Skeljungur, Grandi, Hampiðjan og íslandsbanki. Upplýsingar um utanþingsviðskipti vikunnar lágu ekki fyrir í gær. Þingvísitala hlutabréfa náði sögu- legu hámarki sl. mánudag þegar hún fór í 1545 stig. Enda urðu við- skipti töluverð eða fyrir 50 milljón- ir, þar af fyrir 26,5 milljónir með bréf Tæknivals. Þingvísitala hús- bréfa hefur lítið breyst, var 146 stig á mánudag. 16,3 milljónir upp úr Dala- Rafni Togarinn Dala-Rafn seldi í Brem- erhaven í Þýskalandi í síðustu viku og fékk ágætisverð. Alls seldust 127 tonn fyrir 16,3 milljónir króna. Fleiri urðu skipasölumar ekki þá vikuna, samkvæmt upplýsingum frá Aflamiðlun LÍÚ. í gámasölu í Englandi seldust 324 tonn fyrir 47,5 miUjónir. Álverð á heimsmarkaði breyttist óverulega í síðustu viku, lækkaði þó lítilsháttar. Staðgreiðsluverð í Lon- don var 1.580 doUarar fyrir tonnið. Gengi helstu gjaldmiðla gagnvart íslensku krónunni lækkaði í síðustu viku nema hvað lítilsháttar hækkun varð á jeni. -bjb Höfum sali sem henta fyrir alla fiundi og ráðstefinur HÓTELÍgM 5687111 Gámaþorskur Skipasölur Dollar 101.81 Flugleiðir Eimskip 6,65 Olíufélagið Skeljungur Pingvisrt. hlutabr. PV- 0,66 0, 0, 0, 0, Kr 1600 1550 1500 USD/ 200 10C ' Kr/ Kg N D J 0,6276 1700 1500 1400 130 65,97 Þingvísrt. húsbr. Námsstefna í árangurs- stjórnun Sljórnunar- félag Islands efnir til náms- stefnu í árang- ursstjórnun fimmtudaginn 7. mars nk. með dr. Guð- finnu Bjarna- dóttur, fram- kvæmdastjóra ráögjafarfyrirtækis- ins LEAD Consultings í Bandarikj- unum. Guðfinna hefur starfað að fiölbreyttum ráðgjafarverkefnum fyrirtækja í Evrópu, Asiu og Bandaríkjunum. Meðal viðskipta- vina Guðfinnu vestanhafs eru ráðuneyti landbúnaðar-, heilbrigð- is-, iðnaðar- og varnarmála, Gener- al Electric, Citizens Bank og Union Carbide. LEAD Consulting hefur starfað frá árinu 1992. Guðfinna er menntuð í stærð- fræði og hegðunarsálfræði með sérstaka áherslu á framkvæmda- stjómun. Sérgrein hennar er að hjálpa fyrirtækjum að hrinda áætl- unum sínum og framtiðarsýn í framkvæmd með fræðslu og skipu- lagningu. Bílanaust kaupir Þýsk- íslenska Ómar Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri og aðaleigandi Þýsk- íslenska og Metró hf., hefur selt öU hlutabréf sín í félaginu. Kaupandi er BUanaust hf., Matthías Helga- son, aðaleigandi þess og fjölskylda hans. Engar breytingar verða á rekstri Þýsk- íslenska eða Metró verslunum. Ómar mun áfram starfa með hinum nýju eigendum. Breytingar á eftirmarkaði Seðlabanki íslands, Handsal, Landsbréf og Verðbréfamarkaður íslandsbanka hafa samið um fjár- vörslu og hlutverk viðskiptavaka ríkisskuldabréfa á grundvelli út- boðs Seðlabankans sem fram fór í byrjun desember sl. Samningarnir fela það í sér að Seðlabankinn af- hendir verðbréfafyrirtækjunum tU fjárvörslu ákveðinn hluta af verð- bréfasafni sínu sem þau munu nota tU þess að fjármagna og stunda eftirmarkaðsviðskipti með langtímabréf ríkissjóðs. Samningarnir tóku gUdi 20. fe- brúar sl. Sama dag hætti Seðla- bankinn að gegna hlutverki við- skiptavaka með spariskírteini, húsnæðisbréf og rikisbréf, önnur en þau sem eru á gjalddaga á þessu ári. 3,9 milljarða viðskipta- afgangur Samkvæmt bráðabirgðatölum Seðlabankans var viðskiptajöfnuð- ur við útlönd, samanlagður vöru- skipta- og þjónustujöfnuður, hag- stæður um 3,9 miUjarða króna á síðasta ári. Á fjórða ársfjórðungi var 800 miUjóna viðskiptahalli. Heildargreiöslujöfnuður, sem svar- ar til breytingar á gjaldeyrisstöðu Seðlabankans, var óhagstæður um 1 milljarð á árinu 1995. Viðskiptaafgangurinn minnkaði um 5,2 miUjarða frá 1994. Afgang- urinn á síðasta ári svarar til 0,9% af vergri landsframleiðslu ársins, samanborið viö 2,1% afgang árið 1994. Útflutningstekjur jukust í fyrra um 2,3% og innflutnings- verðmæti vöru og þjónustu jókst um 5,8% frá fyrra ári. Afgangur á vöruskiptajöfhuði minnkaði um 6,1 miUjarð en á móti dró úr haUa á þjónustujöfnuði, einkum vegna minni vaxtagreiðslna af erlendum lánum. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.