Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1996, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1996, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1996 13 Fréttir Börnum á Höfn verði ekið átta kílómetra leið í skólann: Kostirnir miklu meiri en ókostirnir — segir Hallur Magnússon, félagsmálastjóri á Höfn, vegna mótmæla foreldra DV, Hö£n: Ekki eru allir foreldrar eða for- ráðamenn skólabarna á Höfn ásáttir með að færa 1.^4. bekk barnaskól- ans í Nesjaskóla sem er um 8 km frá Höfn. Það er einkum aksturinn á milli staða sem fólk er ósátt við. Undirskriftalistar, þar sem skorað er á bæjarstjórn Hornafjarðar að taka þessi mál til endurskoðunar og leita annarra leiða, lágu frammi í verslunum á Höfn. Alls skrifuðu 480 manns undir þessa áskorun - 400 eldri en 18 ára - og var listinn af- hentur Sturlaugi Þorsteinssyni bæj- arstjóra 19. febrúar. DV hafði samband við Hall Magn- ússon, félagsmálastjóra hér á Höfn, og spurði hann um viðbrögð bæjar- stjórnar við þessari áskorun fjölda manns. „Það eru bara tvær leiðir - þessi eða að byggja. Nesjaskóli og um- hverfi hans henta svo miklu betur þessum aldurshópi. Þarna eru skólastofur á jarðhæð og strax í haust hægt að bjóða börnunum upp á máltíðir í mötuneyti sem hannað er sem mötuneyti. í skólaakstri sem þessum er þessi aldurshópur sá langmeðfærilegasti og börnin verða undir stjórn gæslumanns. Við álít- um að kostirnir séu miklu meiri en ókostirnir," sagði Hallur. Ekki er hægt að líta framhjá kostnaðinum yrði farið út í viðbygg- ingu við Hafnarskóla - barnaskól- ann á Höfn - en sá kostnaður er um 140 millj. króna án búnaðar. Við- 'bygging við Heppuskóla kostar 220-240 millj. króna án búnaðar. Breyting á íþróttahúsi við Heppu- skóla, væri þvi breytt í kennslustof- ur, yrði 180 millj. króna auk bygg- ingar nýs íþróttahúss. Beinn kostn- aður við að koma þessari kennslu á í Nesjaskóla er tæplega 18 millj. króna og aukakostnaður vegna skólaaksturs 4‘/r-6 millj. króna. Hallur Magnússon sagðist ekki trúa öðru en góð sátt næðist um þessi mál þegar fólk athugaði dæm- ið betur. Bæjarfélagið hefði ekki nema 170 millj. króna í þetta næstu þrjú árin. Einnig mætti benda á að skólaakstur hefur lengi tíðkast hér í sveitum og engin mótmæli komið þar um. -JI Þórgunnur Torfadóttir afhendir Sturlaugi Þorsteinssyni bæjarstjóra mótmælalistann. Skemmtilegt leigir: Rafdrifna 12v bíla Stórt - öruggt trampólín Hoppkastala Auglýsinga- fígúrur - uppblásnar Sterk og falleg tjöld Borð og stólar • Gjallarhorn • Bjarndýrabúr • Hestakerrur Alveg gráupplagt fyrir fyrirtæki sem vilja athygli eða halda hátíð. Tjaldaleigan Skemmtilegt Sími 587-6777 Skólastarf í Hornafirði: Stefnt að því að skipta grunnskólanum í þrennt DV, Höfn: Skólamál í Hornafirði hafa verið mikið til umræðu undanfarið vegna þeirra breytinga á skóla- starfi sem verða vegna nýju grunn- skólalaganna. Lögin gera ráð fyrir að rekstur grunnskólans verði al- farið færður til sveitarfélaganna og þar er meðal annars kveðið skýrt á um að skólinn skuli vera einsetinn. Er sveitarfélögum gert að uppfylla þetta skilyrði laganna fyrir árið 2001. Þær breytingar sem stefnt er að í skólastarfinu í Hornafirði er að skipta grunnskólanum í meginatr- iðum í þrennt. Miðað er við að 1.-4. bekkur verði í Nesjaskóla, 5.-7. bekkur í Hafnarskóla og 8.-10. bekkur Heppuskóla. Mýraskóli verður rekinn áfram með sama sniði og áður. Með þessu fyrir- komulagi mun meginreglan verða sú aö í hverjum árgangi munu yfir- leitt verða tveir bekkir af hag- kvæmri stærð og með því eiga bekkir með allt að 30 nemendum að vera úr sögunni. I samþykkt bæjarstjórnar er gert ráð fyrir að bjóða nemendum Grunnskóla Hornafjarðar upp á lengri viðveru í skóla en nú tíðkast með það að markmiði að skóla- starf, tónlistarnám, íþróttaiðkanir og ýmis tómstundastarfsemi myndi eina samfellu í daglegu lífi hvers nemanda. Grunnskólalögin kveða á um lengri skóladag en hingað til hefur tíðkast og kennsludagur grunnskólanema skuli hefjast að morgni. Lenging skóladagsins ger- ir það að verkum að ekki hefur ver- ið mögulegt að tvísetja Hafnarskóla á skólaárinu 1996-1997 eins og hingað til hefur verið gert. Við breytingar í skólastarfinu í Hornafirði er gert ráð fyrir að allir árgangar hefji skólastarf kl. 8.30. Breytingar þessar kalla á endur- skipulagningu skólaaksturs í Hornafirði. Nú verður ekki einung- is heimaakstur úr dreifbýlinu held- ur mun nemendum 1.-4. bekkjar, sem búa á Höfn, væntanlega einnig verða ekið í og úr skóla. Mikil áhersla er lögð á öryggi barnanna í þessum akstri og við útboð á skóla- akstrinum verður gerð krafa um bílbelti og gert er ráð fyrir að sér- stakur gæslumaður verði í skóla- bílnum. Ljóst er að auka þarf við húsnæði grunnskólans svo að hægt verði að reka einsetinn skóla og því er fyrirhugað að byggja tvær lausar kennslustofur sem komið verður fyrir við Nesjaskóla þar sem hann mun tengjast húsnæði skólans með tengigangi. Stefnt er að því að þessar breytingar verði komnar á fyrir næsta skólaár. -JI Aukablaö um FERÐIR Mibvikudaginn 6. mars W^ WW W W71 TTk W O mun aukablað um ferðir JLJ f \ IjPj 1 W Jfjf’ í erlendis fylgja DV. Efni blaðsins verður lielgað sumarleyfisferð- um til útlanda í sumar og ýmsum hollráðum varðandi ferðalög erlendis. X Þeim sem vilja koma á framfæri efni í blaðið er bent á að bafa samband við Þuríði Kristjánsdóttur á ritstjórn DV í síma 550-5819. Þeir auglýsendur, sem hafa áliuga á að auglýsa í þessu atikablaði, vinsamlega liafi samband við Ragnheiði Gustafsdóttur, auglýs- ingadeild DV, hið fyrsta í síma 550-5725. Vinsamlegast athugið ab síóasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn 29. febrúar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.