Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1996, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1996, Page 32
K 1 [ N G A L«TT« til ttúMs aé mtttt&. Þriðjudagur 27.2/96 @©©@ ©(S)® KIN FRETTASKOTIÐ SlMINN SEM ALDREI SEFLIR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Mál biskups aftur hjá Prestafélagi ,_-=^saksóknari vísar málinu frá „Stjórnin mun koma saman eins fljótt og auðið er og ræöa málið á hendur biskupi," segir séra Geir Waage, formaður Prestafélags ís- lands. Klögumálin á hendur biskupi eru nú enn á ný komin tfl félagsins eftir að siðanefnd þess vísaði frá sér að taka afstöðu tfl ásakana þriggja kvenna á hendur biskupi fyrir til- raunir til nauðgunar og kynferðis- lega áreitni. Geir sagðist ekki hafa séð viðtalið við biskup í sjónvarpi í gærkvöld og gæti hann því ekki sagt neitt um það. í viðtalinu vísaði Ólafur Skúia- son öflum ásökunum á hendur sér á bug og einnig öllum hugmyndum um að hann segði af sér. ' "Konurnar þrjár, sem bera biskup þungum sökum, sendu frá sér yfir- lýsingu eftir sjónvarpsviðtalið, og segja að þeim sé „næst skapi að nota sömu aðferðir og biskup leyfði sér að beita okkur, þ.e. að koma fram í fjölmiðlum með eigin útgáfu af þeim atburðum, sem áttu sér stað og snerta okkur“. Ríkissaksóknari vísaði í gær frá ósk biskups um opinbera rannsókn á ásökunum í hans garð. Segir rík- issaksóknari að hvorki mannrétt- ■*~indasáttmáli Evrópu né almenn hegningarlög gefi tilefni til opin- berrar rannsóknar. -GK Eskifjörður: Anakan kyrrsett Krafist hefur verið kyrrsetningar á gríska skipinu Anakan á Eski- firði, þar til dæmt hefur verið í skaðabótamáli sem útgerð loðnu- skipsins Alberts GK höfðar gegn út- gerðinni vegna skemmda sem það olli á loðnuskipinu þegar verið var að bjarga því í fárviöri fyrir nokkrum vikum. Sýslumaður hefur orðið við óskum um kyrrsetningu gegn einnrar milljóna króna trygg- — ingu. -S.dór Jólalandið: Nauðasamn- inga leitað Forráðamenn Jólalands ehf. hafa ákveðið að leita heimildar til nauða- samninga við kröfuhafa þar sem ljóst er að verulegt tap varð á rekstri félagsins um jólin. í næstu viku skýrist hvort heimildin fæst. Hefldarskuldir félagsins eru áætl- aðar um 25 milljónir króna en hlut- afé nemur 3 milljónum króna. Gert ivar ráð fyrir 15-20 þúsund gestum í Wlalandið um jólin en þeir urðu að- eins 10 þúsund. -GHS Stjórn Sjúkrahúss Suðurnesja grípur til niðurskurðaraðgerða: Starfsfolki sagt upp og samningar við lækna endurskoðaðir - lokun fæðingardeildar til umræðu - 36 milljóna hallarekstur í ár að óbreyttu DV, Suðurnesjum: Heilbrigðisráðuneytið hefur ít- rekað við stjórn Sjúkrahúss og heUsugæslustöðvar Suðurnesja að stofnuninni beri að halda sig inn- an ramma fjárlaga. Miöað við óbreyttan rekstur frá 1995 verður rekstrarhalli sjúkrahússins 36 millj. króna í ár samkvæmt gerðri áætlun. Stjórn sjúkrahússins hefur tek- ið þá ákvörðun að segja upp starfs- fólki eldhúss frá 1. mars vegna endurskipulagningar. Þar starfa 8 manns. Jafnframt hefur verið ákveðið að segja upp samningum við Reykjanesbæ, Brunavarnir Suðurnesja og Grindavíkurbæ um sölu matar tU aldraðra í heima- húsum og starfsmanna stofnana. Þá er verið að skoða gjaldtöku fyr- ir fæði starfsmanna og innheimtu þess gjalds. Með þessu telur stjórnin að talsverður sparnaður náist. Þá hefur stjórnin ákveðið að segja upp starfssamningum 5-6 lækna frá 1990 um greiðslur fyrir bakvaktir en greiða þeim sam- kvæmt samningi. Stjórnin hefur þó efasemdir um að að það spari þrjár millj. króna eins og tUsjónar- maður telur. Ákveðið er að taka akstursamn- inga til endurskoðunar og segja núverandi samningum upp. Það er einkum starfsfólk Víðihlíðar í Grindavík sem fær ökustyrki og eins þarf að borga sérfræðingum sem fara frá Reykjanesbæ til Grindavíkur. í bréfi stjórnar til heflbrigðis- ráðherra kemur fram að stjórnin er sammála um að ekki sé unnt að ná fram sparnaði án verulegrar skerðingar þjónustu, uppsagna starfsfólks og lokunar deilda. 1 bréfinu segir: „Stjórnin hefur marglýst yfir að hún muni ekki gera tiUögur um slíkt. Þar sem ráðuneytið hefur ít- rekað að stofnunin haldi sig innan fjárlaga getur stjómin ekki annað en lagt fram eftirfarandi valkosti fyrir ráðuneytið til að því mark- miði sé náð: Lokun fæðingardeUdar. Árlegur kostnaður um 30 miUjónir og fækkun stöðugUda um 8,6 lækna, það er lækna og hjúkrunarfólks. Heildarfjöldi fæðinga hefur verið um 250-300 undanfarin ár. Hér er einungis verið að benda á leiðir tU að mæta væntanlegum rekstrarhaUa í ár. TUsjónarmaður hefur metið uppsafnaðan rekstrar- haUa fyrri ára 51 milljón og gert tUlögur um hvernig honum verði mætt,“ segir m.a. í bréfinu. HeUbrigðisráðherra hefur ekki svarað bréflnu. Ekki náðist í Ingi- björgu Pálmadóttur í gær en hún er á Grænlandi í embættiserind- um. ÆMK Á fjölmennum félagsfundi í Leikfélagi Reykjavíkur í gærkvöldi var samþykkt ályktun um að leikhússtjóri þurfi að bera uppsagnir starfsmanna undir leikhúsráö. Hér koma Sveinn Einarsson leikstjóri og Kristján Franklín Magnús leikari til fundarins sem stóð fram yfir miðnætti. DV-mynd ÞÖK Viðar Eggertsson: Aðrar aðstæð- ur en ég var ráðinn til „Það er komin upp slík staða að ég hlýt að þurfa að endurskoða mína stöðu hjá leikfélaginu. Þetta eru aðrar aðstæður en ég taldi mig vera ráðinn tU. Ég þarf að skoða nánar hvert starfssvið mitt verður,“ sagði Viðar Eggertsson, nýr leik- hússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, við DV í morgun um ályktun félags- fundar LR í gærkvöldi. Á fundinum var samþykkt álykt- un um að leikhússtjóri þurfi að bera uppsagnir starfsmanna undir leik- húsráð í samræmi við lög félagsins en ráðið afsalaði sér þessum rétti í janúar. Sigurður Karlsson, starf- andi formaður LR, segir að þetta sé ekki í samræmi við það sem starfað hafi verið eftir undanfarið. Þetta séu fyrirmæli tU leikhússtjóra. „Viðar Eggertsson þarf bara að bera sínar reglur undir leikhúsráð. Mér tókst að starfa svona og ég hef enga trú á öðru en að það takist áfram,“ sagði Sigurður Hróarsson, leikhússtjóri Borgarleikhússins. -GHS/bjb ÞEIR HAFA ÞÁ FARIÐ í JÓLAKÖTTINN! Veðriö á morgun: Rigning eða súld Á morgun verður suðlæg átt, víða kaldi. Rigning eða súld um landið sunnanvert og einnig úr- koma norðan til þegar líður á daginn. Hiti á bilinu 2 til 6 stig. Veðrið í dag er á bls. 44 kéLU, ÍT- ■■■'/’ f ’# 1 7 5 5 9 Súpa og salatbar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.