Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996 Fréttir Bílaleigan Hasso-Island komin með forláta Rolls Royce: Dýrgripurinn lánaður endurgjaldslaust Bílaleigan Hasso-ísland fékk í gær til landsins forláta Rolls Royce bifreið í eigu auðkýfingsins Hasso Schutzendorfs. Rollsinn verður í út- leigu hjá bílaleigvmni til hátíða- birgða. í tilefni af komu bílsins til landsins gefst viðskiptavinum leig- unnar kostur á að leigja hann frítt í dag í styttri ferðir um höfuðborgar- svæðið. Um glæsilegan bíl er að ræða með öllum lífsins þægindum. Andvirði bílsins er á við góðan tog- ara. Sigurður S. Bjarnason, fram- kvæmdastjóri bílaleigunnar, sagði í samtali við DV að lengi hefði staðið til að fá Rollsinn til landsins. „Hasso á það marga bíla af þess- ari tegund að hann er kominn i vandræði með geymslupláss. Hon- um fannst tilvalið að senda Rolls til íslands og vildi reyndar senda Qeiri en ég taldi rétt að fá einn til að byrja með. Bíllinn átti að koma fyr- ir mánuði en það varð að fresta því vegna veikinda Hassos. En karlinn er búinn að ná sér og bað kærlega að heilsa öllum Islendingum," sagði Rolls Royce bifreiðin frá Hasso Schutzendorf vakti athygli í Sundahöfn i gær þegar henni var skipað á land. Bifreið- in fæst leigð frítt eftir klukkan 14 í dag hjá Bílaleigunni Hasso-ísland, Strandgötu 21 í Hafnarfirði, eða þegar Rollsinn kemur úr tolli. Sigurður en hann fór á dögunum til Mallorca að ná í RoUsinn sem kom með Eimskipum í gær. Sigurður sagðist reikna með að fá bUinn út úr toUi um miðjan dag í dag. Eftir kl. 14 yrði hann tU sýnis DV-mynd BG og útleigu hjá bUaleigunni sem er til húsa að Strandgötu 21 í Hafnar- firði, í sama húsi og GistiheimUið um höfuðborgarsvæðið í dag Fegurðardrottning Suðurlands, Aðalheiður Millý Steinþórsdóttir, 18 ára gömul stúlka frá Selfossi. DV-mynd Sigrún Lovísa ■KHBíCúalinSc fM Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já 11 ,r ö d d \ F0LKSINS1* 1 Nel _2_| 904-1600 Eru stöðumælagjöld of há? Besta afmælis- gjofin min - sagði Aðalheiður Millý, nýkjörin fegurðardrottning Suðurlands DV, Hveragerði: Það ríkti suðræn stemning á Hót- el Örk sl. fostudagskvöld þegar Feg- urðarsamkeppni Suðurlands var haldin. Þrettán stúlkur tóku þátt í keppninni. Aðalheiður Millý Steind- órsdóttir, 18 ára gömul stúlka frá Selfossi, vann titilinn fegurðar- drottning Suðurlands að viðstöddu fjölmenni. í öðru sæti varð Telma Róbertsdóttir, 17 ára, frá Vest- mannaeyjum, og í þriðja sæti varð Eydís Dögg Eiríksdóttir, 18 ára, frá Hvolsvelli. Ljósmyndafyrirsæta var valin Guðlaug Böðvarsdóttir, 19 ára, frá Eyrarbakka. Stúlkurnar völdu Eydísi Dögg vinsælustu stúlkuna. Aðalheiður MiUý eða bara MUlý, eins og hún er köUuð, vinnur á hárgreiðslustof- unni Verónu á Selfossi og er stefnan tekin á nám í hárgreiðslu en hún hefur lokið tveimur önnum í Fjöl- brautaskóla Suðurlands. AðaUieiður MiUý er 178 cm á hæð. Foreldrar hennar eru Erna Magnúsdóttir og Steinþór K. Reyn- isson og hún á eina yngri systur. Áhugamál Aðalheiðar MUlýar eru íþróttir og skemmtanir. Henni hef- ur þótt mjög gaman að taka þátt í þessari keppni. „Mér er sýndur mikiU heiður, þetta er alveg ótrúleg tilfinning, ég hef aldrei upplifað annaö eins,“ sagði hún. Aðalheiður MiUý varð 18 ára sama dag og keppnin fór fram. Hún hlakkar tU að takast á við fegurðar- samkeppnina á Hótel íslandi í vor. Telma Róbertsdóttir, sem varð núm- er tvö, mun einnig taka þátt í þeirri keppni. - -SL Könnun Gallups um forsetaframboð: Olafur Ragnar langefstur - helmingur úrtaks tók ekki afstöðu Ólafur Ragnar Grímsson varð langefstur í nýlegri skoðanakönnun GaUups þegar um 770 manns voru spurð hvern þau vildu sem næsta forseta íslands. Úrtak GaUups var 1118 manns þannig.að svarhlutfaUið er 69 prósent. Nærri 20 prósent svarenda nefndu Ólaf Ragnar Grímsson. Næst kom Guðrún Pét- ursdóttir meö um 11 prósenta fylgi og þá Guðrún Agnarsdóttir með ríf- lega 6 prósenta fylgi. Rétt er að taka fram að náðst hafði í tvo þriðju úr- taksins þegar Ólafur Ragnar til- kynnti framboð sitt sl. fimmtudag. Á eftir þeim nöfnum komu Pálmi Matthíasson og Davíð Oddsson en um 2 prósent svarenda nefndu þá hvora. Óákveðnir voru sem fyrr seg- ir um helmingur úrtaks eða 50,8 prósent nákvæmlega. Ef aðeins er tekið mið af sem afstöðu tóku nefndu 40 prósent Ólaf Ragnar og um 20 prósent Guðrúnu Pétursdótt- ur. Ef fylgjendum forsetaframbjóð- enda er skipt eftir flokkum þá kem- ur í ljós að Ólafur Ragnar hefur nokkuð dreift fylgi, þó mest frá al- þýðubandalagsmönnum. -bjb Arahús. Ekki verður tekið við pönt- unum í síma en eins og áður sagði verður Rollsinn leigður út frítt í dag í styttri ferðir. Þeir sem taka rúnt á bílnum fá tilvísun á frían bílaleigu- bU hjá Hasso á Maflorca. -bjb Stuttar fréttir Bræðsla í Mexíkó íslensk bræðsluverksmiðja tek- ur von bráðar til starfa í Mexikó. Samkvæmt Mbl. er um 90 millj- óna króna fjárfestingu að ræða hjá fyrirtækinu Mex-Ice. SÍF flytur í dag Sölusamband íslenskra Fisk- framleiðenda, SÍF, flytur með höf- uðstöðvar sínar tU Hafnarfjarðar í dag, nánar tiltekið á 5. og 6. hæð í nýrri skrifstofubyggingu við Fjarðargötu 13-15. Korni sáð um helgina Korni var sáö í 2 hektara lands hjá bóndanum á Þorvaldseyri undir EyjafjöUum mn helgina. Ríkissjónvarpið greindi frá þessu. Rætt við þingmenn Að sögn framkvæmdastjóra ASÍ æUar fólk um aUt land að ræöa viö sína þingmenn og reyna að fá þá tU að afstýra frumvarpi um stéttarfélög og vinnudeUur. Þetta kom fram á RÚV. Ný munkaregla Líkur eru á að regla Benedikts- munka taki tU starfa á íslandi fyr- ir aldamót. Samkvæmt RÚV hefur aðsókn að kaþólskum messum á íslandi aukist mjög í vetur. Skeljungur kærir VÍS Skeljungur ætlar að kæra Vá- tryggingafélag íslands tU Sam- keppnisráðs vegna meintrar ólög- legra auglýsinga um barnabU- stóla. Þetta kom fram á Stöð 2. Canada 3000 kvartar Flugfélagið Canada 3000 hefur ákveðið að draga úr Uugi á milli íslands og Kanada vegna hárra af- greiðslugjalda Flugleiða í Leifs- stöð. Samkvæmt Stöð 2 ætlar utanríkisráðuneytið að kanna ásakanir Cánada 3000 í garð Flug- leiöa um okurgjöld. MR-ingar vitrastir Lið Menntaskólans í Reykjavík bar sigur úr býtum i spuminga- keppni framhaldsskólanna, Gettu betur, en úrslit fóru fram í gær- kvöldi. MR-ingar lögðu Flensborg- arskólann í Hafnarfirði að velli í beinni útsendingu,. 34-17. -bjb Frá og með 1. aprU 1996 hækk- ar áskriftarverð DV úr 1550 kr. í 1700 kr. (að meðtöldum virðis- aukaskatti) eða um 9,7%. Langt er um liðið frá því að verð blaösins hækkaði síðast og í mUlitíðinni hefur dagblaðapappír hækkað í verði um tæp 50% og launavísi- tala um 10%. Verð blaðsins í lausasölu verður áfram óbreytt en það er (aö meðtöldum virðisauka- skatti) 150 kr. á virkum dögum og 200 krónur um helgar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.