Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Page 16
16
í faðmi fjalla blárra
Útsýnisferð um þorpin þrjú • Brettamót • Skíkross • Garpamót
Skotkeppni • Miðnætursund * Sælgætisregn • Megastuð á skíðum
Þyrluflug • Gönguferð á Bolafjall • Týrólakvöld • Slunkaríki • Djasskvöld
Menningarvaka • Handverkssýningar • Guðsþjónustur • Gönguferð um Eyrina
Magnús Scheving • Markaður • Tónlistaratriði • Hjónakvöld • Ljósmyndasýning
Leiksýning í Edinborgarhúsinu * Sjóminjasafnið * Sund & heilsurækt • Dansleikir
Sögukvöld - Skíðavika hin fyrri • Gönguferð um Holtin • Ævintýraferð á snjósleðum
Kvöldsigling, dansað á dekki • Gönguferð á söguslóðir Gísla Súrssonar • Fonduekvöld
Gönguskíðaferð á Hornströndum • Ratleikur á Eyrinni • Furðufatadagur • Grillað á fjöllum
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996
Meruúng
Úr uppfærslu Leikfélags Akureyrar á leikriti Kjartans Ragnarssonar og
Einars Kárasonar, Nönnu systur.
Baksviðs í
félagsheimilinu
Það er sannarlega hasar á
heimavelli!
Þetta gerist um hávetur og í fé-
lagsheimilinu standa yfir æfingar
á FjaUa-Eyvindi sem nú skal setja
upp sem músíkal.
Allt gengur fyrir sig svona á
venjulegan máta. Leikstjórinn er
að sunnan (og heimsfrægur þarna
í þorpinu), konumar vilja allar
leika Höllu en karlarnir eru eitt-
hvað skeptískir á leikstjórann.
Ekki örgrannt um að þeim finnist
hann einum of fjölþreifinn viö
kvenþjóðina.
En svo fer allt á fúllan skrið
þegar sóknarpresturinn kemur
heim eftir vafasama ferð sem
hann fór til að veita mágkonu
sinni aðstoð í skilnaðarþrenging-
um hennar. Sú ferð endaði með
vikudvöl á Hótel Örk og einum
allsheijarbömmer þeirra tveggja.
Eiginkonunni, frú Hallgerði, er
lítið skemmt við þessar fréttir. Og
ekki batnar ástandið þegar í ljós
kemur að presturinn hefur notað
tíðar ferðir suður (þar
sem hann sá um út-
varpsþættina Trú og
siðferði) til þess að
eiga notalegar stundir
með enn einni konu
sem lika er mætt á
svæðið.
Inn í þetta fléttast ótal vending-
ar í prívatmálum íbúanna og at-
vinnu- og útgerðarmálum þorps-
ins. Það er alveg óhætt að lofa
væntanlegum leikhúsgestum því
að það er hvergi dauður punktur
alla sýninguna út í gegn!
Þeir félagar, Einar Kárason og
Kjartan Ragnarsson, njóta þess í
botn að sleppa sér lausum í
hrekkjalegum húmor sem oftast
hittir beint í mark. Það er vissu-
lega af nógu að taka í okkar litla
þjóðfélagi og undir glensinu leyn-
ast beitt skot.
Leikhópurinn fer á kostum í
hlutverkum sem byggjast á skop-
legu raunsæi. Týpurnar eru alveg
makalausar en í hverri persónu
leynist þó kunnuglegur kjami sem
gerir það að verkum að þetta verð-
ur alls ekki innantómt grín.
Það hefur verið gaman að fylgj-
ast með því hvemig þeir leikarar
sem hafa unnið saman hjá LA síð-
ustu árin hafa þroskast og eflst.
Þessi hópur, auk þeirra sem hér
koma í fyrsta sinn fram á sviði á
Akureyri, skilar samfelldri og
kjarnmikilli sýningu undir lipurri
stjóm Andrésar Sigurvinssonar
leikstjóra.
Skúli Gautason nær góðum tök-
um á hlutverki séra Jens Skúla
sem er óvenjulega klofinn per-
sónuleiki. Skúli lýsir presti af
fyndinni yfirvegun. Og þá er ekki
síður hragð að Aðalsteini Bergdal
sem leikur Eirík leikstjóra af fljúg-
andi fæmi gamanleikarans og
sýnir hreinræktaðan stjömuleik.
Af öðmm karlpeningi má nefna
Odd, sjómann úr þorpinu, og
Þormar skólastjóra. Oddur „fóm-
ar“ sér fyrir félagana og dvelur í
landi við félagsmálastúss og kjara-
haráttu á meðan hinir púla mán-
uðum saman í Smugunni. Guð-
mundur Haraldsson er virkilega
finn í hlutverkinu, groddalegur og
fullur karlrembu (en það em þeir
reyndar allir). Valdimar Öm
Flygenring leikur skólastjórann
sem fær heldur betur útreiðina
eir.s og fleiri í þessu verki. Valdi-
mar fer hráðvel með hlutverkið og
gerir hann sannfærandi.
Leikkonumar era hver annarri
betri. Drífa Amþórsdóttir fer
beint úr hlutverki Margrétar
miklu hjá Lundúnaleikhópnum í
það að túlka hina ungu Fannhvíti
skólastjórafra og gerir það með
miklum ágætum. Guðbjörg
Thoroddsen er traust leikkona og
vinnur eins vel úr sinni rullu og
hægt er að ætlast til. Hún leikur
Álfdísi, konu á framabraut, sem
hefur m.a. séð um útvarpsþætti
fyrir sunnan en þrátt fyrir heims-
konuyfirbragðið tekst prestinum
að vefja henni um fingur sér eins
og ástfanginni smástelpu.
Og Rósa Guðný
Þórsdóttir hefur
magnast með hverju
hlutverki fyrir norð-
an. Hér leikur hún
prestfrúna og útgerð-
armanninn Hallgerði
sem þarf að takast á við margvís-
leg vandamál þessa viðburöaríku
nótt baksviðs í félagsheimilinu.
Sunna Borg leikur sjálfa Nönnu
systur sem birtist með stæl í lok
fýrri þáttar. Sunna bregst ekki
fremur en fyrri daginn og það sóp-
ar að henni í hlutverki þessarar
kófdrukknu konu. í fylgd með
Nönnu er þögull leigubilstjóri sem
Sigurður Hallmarsson lék mjög
skemmtilega.
Harpa Amardóttir vann hlut-
verk Danúdu, pólskrar eiginkonu
Odds, virkilega vel og hitti áhorf-
endur greinilega i hjartastað. í
gegnum þetta hlutverk koma þeir
Einar og Kjartan á framfæri bein-
skeyttri ádeilu á fordóma og heim-
óttarskap landans og mættu áreið-
anlega margir líta í eigin barm
hvað það varðar.
Leikmynd Úlfs Karlssonar er
prýðilega útfærð í raunsæjum stO
og búningar mjög vel við hæfi.
Nanna systir er áreiðanlega
besti gamanleikur sem sést hefur
á fjölunum i seinni tíð, sprottinn
beint úr íslenskum veruleika og
óvenjulega vel unninn bæði af
leikstjóra og sprellfjöragum leik-
hópi. Eins og í öllum góðum
kómedíum er ádeilan ekki langt
undan og skotum beint í allar átt-
ir en þó hygg ég að allir geti hleg-
ið með.
Það er óhætt að mæla með
Nönnu systur fyrir þá sem vilja
eiga skemmtilega kvöldstund.
Leikfélag Akureyrar sýnir:
Nönnu systur
eftir Einar Kárason og Kjartan
Ragnarsson
Lýsing: Ingvar Björnsson
Leikmynd og búningar: Úlfur
Karlsson
Leikstjórn: Andrés Sigurvinsson
Leiklist
Auður Eydal