Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Síða 27
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996 39 Menning Eldrúnir, einangrun og eigið framtak - Steina Vasulka, Haraldur Jónsson og „Do it“ á Kjarvalsstöðum Ef frá er talin yfírlitssýning á Kjarvalsstöðum á femínískri skjálist á síðasta ári hefur þessi listgrein ekki verið áber- andi á sýningum hér á landi. Fyrir fáum árum sýndi Sjón- varpið þó þáttaröð um skjálist og í kjölfarið hefur einstaka listamaður sýnt myndbanda- verk, ýmist sem hluta af inn- setningu eða gerningi ellegar 1 formi stuttmynda. Enginn hef- ur þó gengið jafn langt og Steina Vasulka í því að skapa sérstæðar og alltumlykjandi innsetningar, byggðar á margrása samspOi myndar og hljóma, en Steina, sem hefur búið lengi í Bandaríkjunum, telst meðal frumkvöðla í þess- ari listgrein líkt og Gene Youngblood staðfestir í sýn- ingarskrá. Fj'rir tveimur árum tók Steina þátt i sam- sýningu í Listasafni íslands og sýndi þar eftirminnilegt verk þar sem mismunandi myndskeiðum af fossum og vatni var varpað úr mörgum geislaspilurum á stóra skerma sem stóðu hér og þar í annars koldimmum salnum. Svipað fyrirkomulag er á sýningu Steinu nú á Kjarvalsstöðum. Þar er eldurinn hins vegar í aðalhlutverki í verki sem ber titilinn Eldrúnir. Dularfutl og kraftmikil Hljómfallið er síst veigaminni þáttur en hin myndræna útfærsla hjá Steinu Vasulka, enda er hún tónlistarmenntuð. í verkinu Eldrúnum eru fjórir geislaspOarar sem hafa mismunandi tímastillingu er flytja verkið nánast eins og kammerhljómsveit. Speglar fyrir enda salarins hjálpa tO við að magna upp hin sjónrænu áhrif og hið sama gerir bergmálseffekt í hljóðblönd- uninni. í Eldrúnum gefur að líta dularfuO og Eldrúnir eftir Steinu Vasulka. Myndlist Ólafur J. Engilbertsson kraftmikO myndskeið af t.d. logsuðu undir vatnsyfirborði, bráðnandi plast (sem Gene Youngblood líkir við leggöng) og járnsmið að hamra heitt járn. Steina hyggst sýna þrjú önn- ur verk meðan sýningin stendur yfir svo þar ætti að vera úr nógu að moða fyrir unnendur framsækins og hátæknivædds myndlistarleik- húss. Samspil skynfæra og einangrun Haraldur Jónsson hefur um nokkurra ára bil gert hljóðlát verk í tex og fleiri efni sem gjarn- an hafa verið mjúk ásýndar og alsett götum. Haraldi er greinOega umhugað um sam- spil skynfæranna og einangr- un eiginleika þeirra hvers um sig. Hluti þessa samspOs lýtur að því hvernig sjónsviðið áætlar snertingu og einangr- un hljóðs. Á sýningu Haralds á Kjarvalsstöðum er t.d. verk sem ber heitið Breiðtjald og samanstendur af „hljóðein- angruðu", svörtu gólfteppi á vegg. Einnig má sjá samspO skynþáttanna á huglægari og jafnvel ljóðrænni nótum þar sem tvíræðni tungumálsins er sterkur þáttur. Á miðju gólfi standa staflar af bókstöfunum Þ og Ð úr vel rúnnuðu texi. Titill verksins er Fontar sem vísar bæði tO enskrar merk- ingar leturs og líkingar verks- ins við skirnarfonta. Jafn- framt vísar verkið Súrefn- iskassar til tvegga merkinga, annarrar áþreifanlegrar sem lýtur að því að lofta út, hinnar sem vanabundinnar hugmynd- ar um einangrað sjúkratæki. Sýning Haralds líður nokkuð fyrir fæð verka og takmarkaða möguleika rýmisins. Ljósmyndaröðin gerir ekki annað en að undirstrika að erfitt er að ná einhverri nánd við verk í svo opnu rými. „Do it“, eða „Kýldu á það“ sýningin í vestur- sal, á vafalaust eftir að skOa ýmsu forvitnilegu en athyglisvert er við lestur sýningarskrár að hér er um mjög ljóðræna og húmoríska fram- setningu hugmynda að ræða, mjög í anda Flux- us-hreyfingarinnar en á opnari og kómískari nótum. Sýningarnar á Kjarvalsstöðum standa fram í maí. Fréttir Hafísinn farinn aö færast inn á Húnaflóann: Skip þurfa að fara varlega í myrkri Hlaða brann Stór skemma, sem notuð var sem hlaða, varð eldi að bráð á Fljótsbakka á Héraði sl. föstu- dagskvöld. Ekki er vitað um eldsupptök en töluvert mikið af heyi var í hlöðunni. Vel gekk þó að slökkva eldinn þegar slökkvi- lið kom á staðinn. -pp Marta for- maður BHM Á aðalfundi Bandalags há- skólamanna, sem haldinn var á Grand Hotel 29. og 30. mars síð- astliðinn, var Marta Á. Hjálm- arsdóttir meinatæknir kosin for- maður bandalagsins í stað Páls Halldórssonar. -ÞK Stálu sæl- gæti og rafhlöðum Tveir unglingar voru teknir í gærmorgun fyrir innbrot í sölut- urn í Vesturbænum. Lögreglu- menn handtóku tvo pOta en í fór- um þeirra fannst talsvert af sæl- gæti og rafhlöðum. Rúða hafði veriö brotin í söluturni í ná- grenninu og voru piltamir flutt- ir á lögreglustöð. -pp „Við höfum fengið fregnir af því í dag að hafísinn er um 25-30 kfló- metra undan landi frá Gjögri. Hann er farinn að færast inn á Húnafló- ann þannig að skip þurfa að sveigja suður fyrir hann. Hann hefur þó heldur færst frá landi siðan í gær,“ sagði Þór Jakobsson, veðurfræðing- ur á Veðurstofu íslands, í samtali við DV í gær. íslenskar sjávarafurðir: Framleiðslan nær þrefaldast Fyrstu þrjá mánuði þessa árs hef- ur framleiðsla frystra sjávarafurða hjá íslenskum sjávarafurðum nær þrefaldast miðað við síðasta ár. Nú er búið að frysta 58.500 þúsund tonn á íslandi, Namibíu og Rússlandi. Á sama tíma í fyrra var búið að frysta 21.500 tonn. Aukningin er á öflum vígstöðv- um. Mun meira var fryst af loðnu hér innanlands en í fyrra. Fram- leiðslan í Namibíu hefur aukist um 89% og nú bætast við 25.000 tonn af Alaskaufsa í Rússlandi en voru 460 í fyrra. -GK „Við höfum fengið fregnir af hon- um við Kolbeinseyjarsvæðið, þar er ís um aUt. Jaðarinn er svona um 6 sjómUur frá Kögri og Horni. Það er mjög bagalegt að ekki skuli vera veðurathugunarmaður á Horn- bjargsvita, hann er kominn i eyði, því miður, síðan Ólafur Þ. Jónsson fór. Stjórnvöld samþykktu ekki að hafa þar mann.“ Þór sagði að skip þyrftu að fara varlega fyrir Horn, sérstaklega í myrkri. í austlægum áttum færðist ísinn norður og vestur af Vestfjörð- um fjær og þeim væri spáð núna. Þá sagði Þór að sjórinn væri fremur hlýr á þessu svæði þannig að ísinn bráðnaöi þegar hann kæmi inn á Húnaflóann en það tæki ein- hverja daga. ' -ÞK Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA íÁSKRIFT í SÍMA 550 5752 €CCO - SKÓR RÝMINGARSALA ✓Skóverslun ÞÓRBAR GÆÐI & ÞIÓNUSTA Laugavegi 40a - Sími 551-4181

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.