Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 32
44 MÁNUDAGUR í. APRÍL 1996 Veðrið í dag Hæg breytileg átt mmönn Er Ólafur Ragnar Grímsson á réttum aldri. Safe pair of hands „Ólafur er á hinum rétta aldri og hvað sem mönnum finnst um hann þá ber hann með sér að vera það sem Bretar kalla safe pair of hands.“ Össur Skarphéðinsson, í Alþýðublaðinu. Ofsóttir viðskiptavinir „Það er samdóma álit allra kaupmanna sem starfa hér að bæði kaupmenn og viðskiptavin- ir séu beittir ofsóknum af stöðu- mælavörðum Reykjavíkurborg- ar.“ María Maríusdóttir, kaupmaður við Laugaveg, i DV. BBB Nú þorir enginn lengur að fá sér kjöt. Frakkar óttast nú ekk- ert meir en BBB (Brjálaða breska beljan).“ Hallgrímur Helgason, í Alþýðublaðinu. Ummæli Skrölti eitt ár „Ætli maður skrölti ekki með í fyrstu deildinni eitt ár til við- bótar." Sigurður Sveinsson, í Morgunblaðinu. Pressan í herferð „Pressan fyrir sunnan hefur hins vegar fylgt sér saman í her- ferð. Eftir henni að dæma höfum við unnið flesta leikina með hjálp dómaranna." Alfreð Gi'slason, í DV. ✓ Halastjarnan sem nú svífur í átt að sólu sést vel með berum augum. Halastjörnur Halastjörnur hafa verið í fréttum undanfarna daga, enda má sjá eina slíka á kvöldhimninum þar sem hún fer í átt til sólar. Halastjömur eru furðulegar en fagrar, eins og stjörnur með langan hala. Á áram áður hélt fólk að þær væru skelfilegir fyrirboð- ar um dauða og óáran. Nú er vitað að halastjarnan sjálf, kjaminn, er lítill hnullungur, gerður úr ísi og ryki, svona eins og óhreinn snjóbolti. Þegar halastjarnan kemur nærri sólu verður hitinn til þess að ský úr ryki og gasi myndast umhverfis kjaraann. Þetta kallast hjúpur og sólvindurinn teygir úr honum og gerir hann að geysilega löngum hala. Gasið glóir og rykið end- Blessuð veröldin urspeglar sólarljósið og þá verður til þessi dýrlega sýn sem blasir við okkur frá jörðu. Stundum eru halastjörnur með tvo hala, mjóan og beinan hala úr gasi og breiðari og dreifðari rykhala. Halley-halastj arnan Sumar halastjömur koma reglulega að sólinni. Frægust er Halley-hala- stjaman sem sást síðast árið 1986. Hún kemur við hjá okkur á 76 ára fresti og það hefur verið fylgst með henni í meira en 2000 ár. í dag er gert ráð fyrir hægri breytilegri átt, skýjuðu að mestu og Veðrið í dag sums staðar dálítiUi súld eða rign- ingu um landið norðan- og vestan- vert, einkum við ströndina. Suð- austan til verður skýjað með köfl- um. Hiti verður á bilinu 4-8 stig. Sólarlag í Reykjavík: 20.20. Sólarupprás á morgun: 6.41. Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.25. Árdegisflóð á morgun: 5.33. Vedrið kl. 12 á hádegi i gœr: Akureyri skýjað 8 Akurnes skýjað 7 Bergsstaðir alskýjaó 6 Bolungarvík alskýjað 5 Egilsstaðir alskýjaó 6 Keflavíkurflugv. skýjað 6 Kirkjubkl. skýjaö 7 RaufarhöfnJ rigning 5 Reykjavík skýjað 5 Stórhöfði alskýjað 4 Helsinki snjókoma -2 Kaupmannah. kornsnjór 0 Ósló . skýjaó 2 Stokkhólmur snjókoma 2 Þórshöfn skýjaó 7 Amsterdam úrk. í grennd 5 Barcelona skýjað 14 Chicago rigning 5 Frankfurt hálfskýjað 5 Glasgow skýjað 7 Hamborg úrk. i grennd 3 London skýjað 7 Los Angeles skýjaó 13 Lúxemborg snjóél 3 París skýjað 8 Róm léttskýjað 16 Mallorca léttskýjað 18 New York skýjað 4 Nice léttskýjaó 15 Nuuk alskýjað 0 Orlando jpoka 16 Vín snjóél 0 Washington skýjað 7 Winnipeg léttskýjaö -19 Ingimar Örn Pétursson rekstrarhagfræðingur: Gott að gefa sér tíma og skoða tækifærin hér heima DV, Suðurnesjum: „Það lá geysiiega mikU vinna á bak við gerð skýrslunnar. Það tók mig þrjá mánuði að fuUgera hana og vann ég að degi sem á kvöldi og jafnt um helgar. Ég talaði við mik- inn fjölda fólks og skoðaði mikið af gögnum,“ segir Ingimar Örn Péturs- son, rekstrarhagfræðingur og höf- undur skýrslunnar um úttekt á flug- málum KeflavíkurflugvaUar, með tilUiti tU ferju-, mUlilanda- og inn- anlandsflugs smærri flugvéla. Ingi- mar vann skýrsluna fyrir Markaðs- Maður dagsins og atvinnumálanefnd Reykjanes- bæjar. Ingimar var tæp níu ár í námi í Bandaríkjunum en kom heim í fyrrasumar. „Það var mjög gott að vera í Bandaríkjunum og kynnast öðrum lífsviðhorfum og breikka sjóndeildarhringinn. Ingimar fór fyrst tU Bandaríkjanna til að læra flugvirkjun og lauk því 1988. Fór hann að vinna í innanlandsdeUd hjá flugfélagi sem er systurfélag Amer- Ingimar Örn Pétursson. ican Airlines. Ingimar hélt síðan áfram að mennta sig og lauk BS- gráðu í viðhaldsverkfræði og kláraði síðan rekstrarhagfræði með alþjóðleg viðskipti sem sérsvið. Því næst tók hann masterinn í fjármála- stjórn og lauk við lokaritgerðina um síðustu áramót. Ingimar vUl helst halda sig við ráðgjafarstörf og hefur verið að. vinna lítiUega að undirbúningi að ferðaskrifstofu sem SBK hefur í hyggju að stofna og þá hefur hann einnig unnið fyrir Olíufélagið. Búið var að bjóða Ingimar starf í Banda- ríkjunum hjá stóru fjármálafyrir- tæki: „Það getur aUtaf komið tU greina að fara út aftur, möguleik- arnir eru ótvírætt mun meiri þar. En ég er hins vegar að skoða nú hvaða möguleikar eru fyrir hendi hér fyrir mann með mína menntun. Og það er sjálfsagt að gefa sér tíma hér heima og skoða tækifærin. Þegar kemur að áhugamálum hjá Ingimar er ekki verið að hika við svarið: „Ferðalög eru efst á lista hjá mér. Að sjá ný lönd og annað mann- líf er ofarlega i huga mínum, þá hef ég gaman af siglingum og hef hugs- að mér að stunda siglingar hérna við strendurnar." Eiginkona Ingimars er Leslie Pét- ursson og voru þau að eignast fyrsta barn sitt, Pétur Inga, 5. mars. Ingi- mar átti eina dóttur fyrir, Báru Rós, 11 ára, og viU svo skemmtUega tU að þau eru fædd sama daginn. Leslie er bandarísk og starfar sem leikskóla- kennari á Garðaseli í Reykjanesbæ og að sögn Ingimars talar hún orðið góða íslensku og líkar vel að búa hér. -ÆMK Myndgátan Lausn á gátu nr. 1482: Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði. DV Stíll Agöthu Christie er í háveg- um hafður í Páskahreti. Páskahret Páskahret er nýtt íslenskt leikrit eftir Árna Hjartarson sem leikfélagið Hugleikur frumsýndi um síðustu helgi. Leikritið er i senn fyndið gamanleikrit og með sakamálaívafi þar sem glæpa- sögu í Agötu Christie-stíl er plantað niður í íslenskt um- hverfi. í leiðinni er skotið á ýmsa þætti í íslensku þjóðlífi. Leikhús Leikritið gerist í skíðaferð milli Þórsmerkur og Land- mannaiauga í dymbilviku. Páskahret brestur á og ferðahóp- urinn nær við Ulan leik að sælu- húsinu í Hrafntinnuskeri. í gleð- skap um kvöldið er glæpurinn framinn. I hópnum er sýslu- mannsfuUtrúi frá Hvolsvelli sem fær nú þá ósk sína uppfyllta að glíma við dularfulla morðgátu. Leikstjóri er Hávar Sigurjóns- son og eru sýningar á verkinu í Tjamarbíói og verður riæsta sýning á miðvikudagskvöld. Bridge Eitt besta par heims í bridge, Bandaríkjamennirnir Dawid Berkowitz og Larry Cohen, nota op- unina eitt grand með 14-16 punkta styrk og hugsanlega 5 spilum í háiit. Á síðasta ári spiluðu þeir í sterkri tvímenningskeppni og fengu upp hendur NS í þessu spili. Sagnir gengu þannig hjá þeim félögunum, norður gjafari og AV á hættu: * 743 * K1083 * ÁG * G864 é. D8 ¥G7 ♦ D9874 * Á1073 * 9652 * ÁD962 2 * 952 ♦ ÁKG10 •» 54 -f K10653 * KD Norður Austur Suður Vestur Cohen Berkowitz pass pass 1G pass 2G pass 3 pass 4 p/h Tveggja granda sögn Cohens í norður var eðlileg áskorun í þrjú grönd og þar sem norður spurði ekki um hálit með tveimur laufum var Berkowitz eðlilega hræddur um að veikleikar í hjartalitnum kæmu í veg fyrir að 3 grönd stæðu. Þar sem Berkowitz var með hámark punkta- lega séð vildi hann ekki gefa úttekt (game) upp á bátinn og valdi að segja 3 spaða á fjórlitinn (sögn sem alla jafna lofar 5 spilum í litnum). Cohen sá einnig fyrir sér veikleik- ann í hjartanu og ákvað að hækka á drottninguna aðra. Þannig náðu þeir eina úttektarsamningnum sem átti sæmilegan möguleika á að standa. Vestur hafði litlar vísbend- ingar um útspil og valdi að spila út spaða. Berkowitz hafi ekki efni á að taka öll trompin strax og varð að spila tígulkóngnum í öðrum slag. Vestur drap á ás og hafði ekki gæfu til að sjá að félagi átti trompun í tígli. Hann spilaði aftur trompi og NS fengu hreinan topp fyrir 11 slagi í þessum samningi. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.