Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Síða 33
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996
45
Ein höggmynda Sólveigar í
Gerðarsafni.
Högg-
myndir
unnar í
marmara
í Listasafni Kópavogs, Gerð-
arsafiii, stendur nú yfir sýning á
höggmyndum eftir Sólveigu
Baldursdóttur. Flest eru verkin,
sem hún sýnir, unnin í marm-
ara.
Sólveig Baldursdóttir er fædd
aö Páfastöðum í Skagafirði árið
1961. Eftir myndlistarnám hér
heima lá leið hennar til Dan-
merkur þar sem hún bæði nam
list sína og starfaði sem aðstoð-
armaður tveggja þekktra mynd-
höggvara, Eriks Varmings i
Kalundborg og Inoue Jun-Ichi í
Sýningar
Óðinsvéum. Sólveig tók þátt í
nokkrum samsýningum í Dan-
mörku á þessum tíma og hélt
eina einkasýningu. 1988 fluttist
hún heim til íslands og kenndi á
Akureyri tvo vetur en fór svo til
Ítalíu, nánar tiltekið Carrara.
Þar bjó Sólveig og starfaði
ásamt fjölskyldu sinni, Jónasi
Viðari myndlistamanni og dætr-
um næstu fjögur árin en kom
síðan heim og hafði þá fyrst að-
stöðu á Nýlendugötunni í húsi
Myndhöggvarafélagsins en setti
síðan upp verkstæði á Akureyri
i fyrrasumar.
Sýningin í Gerðarsafni er
fyrsta einkasýning hennar hér
heima en árið 1994 hélt hún
höggmyndasýningu í Brussel.
Sýningin stendur til 8. apríl.
Gömlu lögin
Smári Ólason orgamsti held-
ur fyrirlestur í kvöld, kl. 20.30, í
Digraneskirkju um „gömlu lög-
in“ við Passíusálma Hallgríms
Péturssonar.
Háskólafyrirlestur
Dr. Robert Bogdan prófessor
flytur fyrirlestur í dag í stofu
101 í Odda, Háskóla íslands, kl.
17.15 um nýja fræðilega nálgun í
fötlunarrannsóknum.
Samkomur
Páskaeggjamót
Taflfélagið Hellir heldur
páskaeggjamót í dag kl. 17.15.
Teflt verður í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi.
Málstofa í hjúknmarfræði
Susan Benedict, Fulbright-
gistikennari, flytur fyrirlestur
kl. 12.15 í stofu 6 á 1. hæö i Eir-
bergi, Eiríksgötu 34. Fyrirlestur-
inn er á ensku og nefhist: Breast
Chancer - Choices and Treat-
ments.
SSH
Stuðnings- og sjálfshjálpar-
hópur hálshnykkssjúklinga
verður með fund í dag í ÍSÍ-hót-
elinu í Laugardal. Fundurinn
hefst kl. 20. Gestur verður Stef-
án Jóhannsson MA, ráðgjafi.
Leikhúskjallarinn:
Hvar fegurðin ein ríkir
Dagskrá Listaklúbbsins í kvöld
er helguð himnaríki, draumalönd-
um og fleiri óáþreifanlegum stöð-
um. Einkum verður sagt frá
sænska dýrlingnum, heilagri Birg-
ittu frá Vadstena, en einnig verða
flutt brot úr verkum Halldórs Lax-
ness og Davíðs Stefánssonar.
Skemmtanir
Umsjón með dagskránni hefur
Þorgeir Ólafsson en flytjendur eru
leikararnir Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir og Hinrik Ólafsson.
Munu þau, auk þess að lesa,
syngja lög við Ijóð eftir Davíð Stef-
ánsson og Halldór Laxness við
undirleik Jóhanns G. Jóhannsson-
ar, tónlistarstjóra Þjóðleikhússins.
Birgitta Birgisdóttir frá
Vadstena er einn frægasti dýrling-
ur Norðurlanda. Hún er einkum
þekkt fyrir merkilegar opinberanir
sínar þar sem hún meöal annars
greinir frá samtölum sínum við
Maríu mey, Jesúm og fleiri. Hún
hafði mikil áhrif á listsköpun og
túlkanir seinni tíma listamanna á
viðburðum í ævi Jesú, auk þess
sem hún hafði bein afskipti af
stjórnmálum í Evrópu, einkum
með þvi að bera boö að ofan til
konunga, páfa og fleiri fyrirmanna.
í kvöld verður meðal annars flutt
ATVJNNU
eeysis-
EÆTLTR
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
flytur textann og syngur lög
ásamt Hinriki Ólafssyni.
ein þekktasta opinberun Birgittu
sem fjailar um réttarhöld í himna-
ríki yfir látnum syni hennar.
H ! 11
1. Sundl. Laugardal
2. Sunnutorg
3. Olís Álfheimum
4. Réttarhv./Bústaðarv.
5. Mjódd
6. Kjöt og Fiskur
7. Fellaskóli
8. Shell, Árbær
9. Mýrarhúsaskóli
10. Melaskóli
11. B.S.Í
12. Shell, Miklabraut
13. Nesti, Ártúnshöfða
14. Olís, Grafarvogi
15. Hallsv./Gagnv.
16. Kaupf. Mosfellsbær
Tvíburar Jóhönnu
og Rúnars
2502 grömm að þyngd og 49 sentí-
metra löng en hin fæddist kl. 23.59
og var hún 2540 grömm að þyngd.
Foreldrar tvíburanna eru Jóhanna
Herdís Þórsdóttir og Rúnar Guðjón
Svansson og eru þetta fyrstu börn
þeirra.
Þessar litlu og fallegu stúlkur
eru tvíburar sem fæddust á fæðing-
ardeild Landspítalans 26. mars.
Önnur fæddist kl. 23.52 og var hún
Barn dagsins
Anthony Hopkins í hlutverki Nixons
fyrir miðri mynd. Með honum eru
Kissinger (Paul Sorvino) og Halde-
mann (James Woods).
Nixon
Oliver Stone fer sjaldan troðnar
slóðir og vekja myndir hans jafiian
umtal. Laugarásbíó sýnir um þess-
ar mundir nýjustu kvikmynd Oli-
vers Stones, Nixon, sem eins og
margar kvikmyndir hans hefur
vakið umtal og deilur og eru menn
ekki á eitt sáttir frekar en fyrri
daginn um söguskýringar Stones.
Það er breski stórleikarinn Ant-
hony Hopkins sem leikur Nixon og
var hann tilnefndur til óskarsverð-
launa. Fjöldi þekktra leikara er í
minni hlutverkum; Joan Allen
Kvikmyndir
leikur eiginkonu Nixons, Mary
Steenburgen leikur móður hans,
Powers Boothe leikur Alexander
Haig, Ed Harris leikur Howard
Hunt, Edward Herrmann leikur
Nelson Rockefeller, Bob Hoskins
leikur J. Edgar Hoover, Madelaine
Kahn leikur Mörthu Mitchell, E.G.
Marshall eiginmann hennar, John
Mitchell, David Paymer leikur Ron
Ziegler, David Hyde Pierce leikur
John Dean, James Woods leikur
H.R. Haldeman, J.T. Walsh leikur
John Erlichman og Paul Sorvino
leikur Henry Kissinger.
Nýjár myndir
Háskólabíó: Heim i fríið
Háskólabíó: Dauðamaður nálgast
Laugarásbíó: Náið þeim stutta
Saga-bíó: Babe
Bíóhöllin: Faðir brúðarinnar II
Bíóborgin: Copycat
Regnboginn: A förum frá Vegas
Stjörnubió: Draumadisir
Gengið
Almennt gengi LÍ
29.mars 1996 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 66,020 66,360 65,900
Pund 100,730 101,250 101,370
Kan. dollar 48,380 48,680 47,990
Dönsk kr. 11,5890 11,6510 11,7210
Norsk kr. 10,2990 10,3560 10,3910
Sænsk kr. 9,8870 9,9410 9,9070
Fi. mark 14,2450 14,3290 14,6760
Fra. franki 13,1150 13,1890 13,2110
Belg. franki 2,1769 2,1900 2,2035
Sviss. franki 55,4700 55,7800 55,6300
Holl. gyllini 39,9600 40,1900 40,470þ
Þýskt mark 44,7500 44,9800 45,3000
ít. lira 0,04210 0,04236 0,04275
Aust. sch. 6,3580 6,3980 6,4450
Port. escudo 0,4325 0,4351 0,4364
Spá. peseti 0,5312 0,5345 0,5384
Jap. yen 0,62010 0,62380 0,63330
jrsktpund 103,760 104,410 104,520
SDR 96,39000 96,97000 97,18000
ECU 82,9600 83,4600
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270
Krossgátan
Lárétt: 1 harðfenni, 6 haf, 8 blóm, 9
stakt, 10 aukist, 11 mál, 13 fyndna,
15 etur, 17 mynni, 18 löngun, 19
grind, 20 stjakaði, 21 nudd.
Lóðrétt: 1 sprækur, 2 Óðinsheiti, 3
fífl, 4 útgerðarmaður, 5 egg, 6 band,
7 borðandi, 12 ásökun, 14 eydd, 16
varkárni, 17 reyki, 18 þræll.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 hörgull, 8 ótal, 9 nói, 10
funinn, 11 elg, 12 tali, 14 kotra, 17
an, 18 ufsa, 20 mun, 21 tárast.
Lóðrétt: 1 hóf, 2 ötul, 3 rangt, 4
glitrar, 5 unna, 6 lón, 7 liðinn, 11
ekur, 13 laus, 15 oft, 16 ama, 19 sá.