Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Page 4
4
Ifréttir
.....-*y.Rr T
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 ÐV
Tilraunir til að bjarga Kolbrúnu af strandstað í Mjóafirði:
Björgunarmenn áttu
fótum fjör að launa
- þegar báturinn rann af skerinu og sökk
Frá strandstaðnum þar sem björgunarmenn freistuðu þess að bjarga Kolbrúnu ÍS. Ekki tókst betur til en svo að báturinn rann af skerinu.
DV-myndir Hörður Kristjánsson
DV, ísafiröi:
Síðdegis á fimmtudag lögðu fjór-
ir bátar úr höfn á ísafirði með tæki
og mannskap til að freista þess að
bjarga Kolbrúnu. Þetta voru bátam-
ir Bliki ÍS sem er í eigu Hafsteins
Ingólfssonar kafara, Bára ÍS, Hall-
dór Sigurðsson ÍS og Alda ÍS. Þá
komu þeir feðgar, Sigmundur Sig-
mundsson, bóndi á Látrum í Mjóa-
fírði, og Jón sonur hans, á skektu
með utanborðsmótor. Aðstoðuðu
þeir feðgar björgunarmenn allan
tíman meðan á aðgerðum stóð. Bliki
kom á strandstað í Mjóafirði á átt-
unda tímanum. Strax var hafist
handa við að losa um rækjutrollið
sem var dregið yfir í Ölduna þegar
hún kom á vettvang. Þá voru taugar
settar í gálga á bakborössíðu Kol-
brúnar og yfir í Báruna og Halldór
Sigurðsson. Lögðust þeir síðan sam-
síða og drógu í Kolbrúnu sem réttist
þannig á skerinu að lestarlúga og
lúkarskappi komu upp úr sjó.
Bliki var þá bundinn við bak-
borðshlið Kolbrúnar og voru þrjár
dælur settar yfir í bátinn og dælt úr
lest, lúkar og stýrishúsi. Gekk dæl-
ing mjög vel og kl. 9.45 var báturinn
nártast þurrausinn og aðeins eftir
vottur af sjó í lest skipsins. Fóru
björgunarmenn þá í að flytja dælur
frá borði og loka lúkar. Hafsteinn
Ingólfsson kafari var þá niðri í lest
bátsins, en án köfunartækja að fylgj-
ast með dælingu og ætlaði síðan að
fara að loka lestarlúgu. Þá gerist það
að báturinn fór á hreyfingu. Möstur
Kolbrúnar voru þá um 15 gráður
upp úr sjó og héldu Halldór Sigurðs-
son og Bára strekktum taugum af
bakborðshliðinni. Mönnum bar sam-
an um það að miðað við eðlileg
þyngdarhlutfóll í bátnum hefði
hann, þegar hér var komið sögu átt
að velta á réttan kjöl. Hins vegar
gerðist hið óvænta að Kolbrún valt á
stjórnborðssíðuna og möstrin fóru
að nýju á kaf í sjó. Hafsteinn, sem
verið hafði í lestinni, sá sitt óvænna
og forðaði sér þegar flæða fór inn
um lestarlúguna og komst hann upp
á lunninguna. Annar maður, sem
þarna var í flotbúningi, henti sér í
sjóinn og svamlaði frá bátnum.
Tveir menn voru þá á hlið bátsins.
Bliki ÍS sem hafði verið bundin við
Kolbrúnu dróst upp á síðu hennar
þegar hún valt. Hafði Hafsteinn snör
handtök um að losa taug sem bund-
in var í stefni Kolbrúnar og við það
losnaði Bliki og féll með lunninguna
af nokkrum þunga á slingubretti á
bakborðssíðu Kolbrúnar. Voru
mennirnir sem enn voru á Kolbrúnu
þá drifnir yfir í Blika. Allt gerðist
þetta á fáum andartökum og snerist
Kolbrún á skerinu og rann út af því.
Sökk hún mjög hratt, fyrst að aftan
en síðan að framan og lagðist á hlið-
ina á botninn. Þannig liðu ekki
nema fimm mínútur frá því að
menn fóru að flytja dælur frá borði
á Kolbrúnu þar til hún sökk kl. 9.50.
Björgunarmenn áttu því sannarlega
fótum fjör að launa. Þegar hér var
komið sögu var búið að vera aðfall í
um eina klukkustund. Dýpið niður á
bakborðssíðu Kolbrúnar þar sem
hún liggur á botninum var þá um 2
metrar. -HK
Stjórnarandstaðan hótar málþófi:
Við erum alveg tilbúin að
sitja hér fram á sumarið
- segir Valgerður Sverrisdóttir, formaður þingflokks Framsóknarflokksins
„Við erum alveg tilbúin að vera
hér fram á sumar ef stjórnarand-
staðan vill það. Nú verður farið i að
semja um málin eins og venjulega.
Við leggjum höfuðáherslu á að fá
nokkur ákveðin mál í gegn og ætl-
um okkur það. Það verður bara að
taka sinn tíma. Við munum sætta
okkur við það,“ sagði Valgerður
Sverrisdóttir, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins, í samtali við
DV í gær.
Stjómarandstaðan hefur nú updí
stór orð um það að standa fyrir í af-
greiðslú mála ef skerðingarfrum-
vörpin svonefndu verða ekki dregin
til baka.
„Það er ólga hér inni á þinginu.
Það getur því verið að það sitji leng-
ur, miklu lengur, en stjórnin ætlaði,
ef ríkisstjórnin ætlar að knýja þessi
skerðingarfrumvörp í gegn. Okkur í
stjórnarandstöðunni þótti frunta-
lega að farið fyrir páskana þegar
frumvörpin voru sett á með engum
fyrirvara. Við teljum líka að það séu
misvísandi yfirlýsingar frá fjár-
málaráðherra og forsætisráðherra
um lífeyrissjóðsfrumvarpið og það
mál þarf að hreinsa upp áður en við
erum til viðtals um hvemig á að
vinda fram þinginu. Við viljum
þessi frumvörp út af borðinu vegna
þess að við teljum að verkalýðs-
hreyfingin eigi að fá tækifæri til að
semja um þessi mál við sinn mótað-
ila,“ sagði Össur Skarphéðinsson.
„Það virðist alveg augljóst að
mikil átök eru framundan á Al-
þingi. Það eru auðvitað þessi skerð-
ingarfrumvörp sem málið snýst um
fyrst og fremst. Ríkisstjórnin hefur
ekki gefið neina vísbendingu um
það að hún sé tilbúin að draga þessi
frumvörp til baka eins og krafist er.
Svo eru ýmis önnur stórmál í gangi
og málafjöldinn slikur að allt bend-
ir til þess að þinghaldiö muni lengj-
ast verulega," sagði Kristín Ást-
geirsdóttir, þingkona Kvennalist-
ans, um málið.
-S.dór
Ævintýrakringlan:
Tanja
Tatarastelpa
Leikritið „Tanja Tat-
arastelpa" verður sýnt í Ævin-
týrakringlunni 3. hæð í Kringl-
unni. Leikritið hefst kl. 12.30 og
kostar 300 kr. á sýninguna. Ólöf
Sverrisdóttir leikkona leikur
Tönju en hún samdi þáttinn fyr-
ir nokkrum árum og flutti á
leikskólum borgarinnar.
Framvegis verða leiksýningar
á laugardögum en á fimmtudög-
um kl. 17.00 verða leiklistar-
námskeið eða eitthvað annað
skemmtilegt i boði í Ævintýra-
kringlunni.
Ævintýrakringlan er á 3. hæð
í Kringlunni og er opin frá kl.
14-18.30 virka daga og frá kl.
10-16 laugardaga.