Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Blaðsíða 35
unglingaspjall
LAUGARDAGUR 13. APRJL 1996 ' 1
1>V
Þórunn Brandsdnttir, furmaður sknlafélagsins í Idnsknlanum í Reykjavík:
Vil tengja fálagslífið
náminu í skólanum
sumarbústað og sveitina í sumar
- segir Jón Kristjánsson, þjálfari og leikmaður Islandsmeistara Vals
Jón Kristjánsson er þjálfari og fremstur í dag að þínu mati?
leikmaður nýkrýndra íslands- Þolfimimaðurinn Bjarni Ákason.
meistara Vais. Jón hefur undan- Uppáhaldstímarit: PC-Magasin.
farin ár unnið nokkra ís-
landsmeistaratitla sem
leikmaður með meistara-
flokki Vals en settist í sæti
Þorbjöms Jenssonar á síð-
ustu leiktíð og stýrði sín-
um mönnum til sigurs í úr-
slitaleikjum við KA á dög-
unum.
Jón Kristjánsson sýnir á
sér hina hliðina að þessu
sinni.
Fullt nafn: Jón Ríkharð
Kristjánsson.
Fæðingardagur og ár:
4. júní 1967.
Sambýliskona: Gyða
Kristmannsdóttir.
Fóstursonur: Krist-
mann Freyr.
Bifreið: Brasilískur eð-
alvagn.
Starf: Þjónustustjóri hjá
ACO ehf. og þjálfari.
Laxm: Ekkert til að
skrifa heim yfir.
Áhugamál: Tölvur,
skák, ýmis hugarleikfimi
og íþróttir.
Hefur þú unnið í happ-
drætti eða lottói? Fjórar
réttar í lottói.
Hvað finnst þér
skemmtilegast að gera?
Vera með fjölskyldunni og
sinna áhugamálum.
Hvað finnst þér leiðin-
legast að gera? Vaska
upp.
Uppáhaldsmatur:
Kótelettur og grillað svina-
kjöt.
Uppáhaldsdrykkur: Malt.
Hvaða íþróttamaður stendur
Jón Kristjánsson fagnar íslandsmeistaratitlinum ásamt
Ólafi Stefánssyni. DV-mynd BG
Hver er fallegasta kona sem
þú hefur séð? Ummmm?
Ertu hlynntur eða andvígur
ríkisstjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig
mest að hitta? Bill Gates.
Uppáhaldsleikari: A1
Pacino.
Uppáhaldsleikkona:
Engin sérstök.
Uppáhaldssöngvari:
Stefán Hilmarsson, Vals-
ari.
Uppáhaldsstjórnmála-
maður: Enginn.
Uppáhaldsteikni-
myndapersóna: Engin.
Uppáhaldssjónvarps-
efni: Spennumyndir.
Uppáhaldsmatsölu-
staður: Punktur og
pasta.
Hvaða bók langar þig
mest að lesa? Persuit
og wow eftir Tom Pet-
ers.
Hver útvarpsrásanna
finnst þér best? Engin
sérstök.
Uppáhaldsútvarps-
maður: Gunnar Níels-
son, frístundaíþróttaf-
réttaritari á Bylgjunni.
Á hvaða sjónvarpsstöð
horfir þú mest? Sjón-
varpið.
Uppáhaldssjónvarps-
maður: Enginn sérstak-
ur.
Uppáhaldsskemmti-
staður: ACO.
Uppáhaldsfélag í
íþróttum: Valur.
Stefnir þú að ein-
hverju sérstöku í
framtiðinni? Já! Mörgu.
Hvað ætlar þú að gera
í sumarfríinu? Vinna,
fara i sumarbústað og í sveitina.
-GHS
in hliðin
Þórunn Brandsdóttir, 16 ára nemi
í Iðnskólanum í Reykjavík, hefur
nýlega náð kjöri til embættis for-
manns skólafélagsins í Iðnskólan-
um. Þórunn er nemandi á fyrsta ári
í iðnhönnun og stefnir að því að
klára námið innan tveggja ára en
segir að sér seinki sennilega eitt-
hvað vegna annríkis í skólafélag-
inu. Þórunn hefur mikinn áhuga á
félagsmálum og er harðákveðin í
því að sjá til þess að félagslífið í Iön-
skólanum verði blómlegt og
skemmtilegt næsta vetur.
„Við erum með töluverða klúbba-
starfsemi í skólanum, myndbanda-
klúbb, tölvuklúbb, ljósmyndaklúbb,
hestaklúbh, leiklistarklúbb, ferða-
klúbb, RPG-klúbb,“ segir Þórunn og
útskýrir að starfsemi þess síðast-
nefnda gangi út á hlutverkaleiki þar
sem ramminn er settur í upphafi og
síðan eru þrautir lagðar fyrir þátt-
takendurna.
Hún telur upp enn fleiri klúbba
og nefnir að nemendur úr skólanum
hafi lent í fimmta sæti í keppni í
hestamennsku milli hestaklúbba
framhaldsskólanna nýlega.
Félagslífið á
eftir að aukast
Nýstofnaður er tónlistarklúbbur í
Iðnskólanum og segir Þórunn að
vonast sé til þess að takist að þjálfa
upp plötusnúða þannig að plötu-
snúðar úr skólanum sjái um tónlist-
ina í félagslífinu næsta vetur.
„Ég hef trú á að félagslífið eigi eft-
ir að aukast mikið og ég hef unnið
hart að því. Ég vil tengja félagslífið
náminu þannig að nemendur geti
fengið vinnu við félagslífið metið í
skólanum, til dæmis ef þeir vinna
við leikmynd eða búninga fyrir leik-
listarklúbbinn. Þetta hefur fengið
góðan hljómgrunn hjá deildarstjór-
um,“ segir hún.
Fjölbreytt nám er í boði í Iðnskó-
lanum. Brautimar eru meðal ann-
ars Málmiðnaðardeild, Bygginga-
deild, Rafiðnaðardeild, Tölvudeild,
Tækniteiknun, Almenn deild, Mat-
væladeild, Bókagerð og Iðnhönnun-
ardeild. Strákarnir eru enn sem
komið er í meirihluta í skólanum,
naumum meirihluta, en stelpurnar
eru einnig fjölmargar, sérstaídega í
sumum deildum skólans.
Þórunn Brandsdóttir er nýkjör-
inn formaður skólafélagsins f
Iðnskólanum í Reykjavík. Þór-
unn vonast til þess að geta
fengið skólayfirvöld til að
meta vinnu við félagslífið til
eininga í skólanum.
Hanna
póstkassa
Þórunn segir að skólinn hafi ný-
lega byrjað að bjóða upp á nám í
iðnhönnun. Námið gangi mikið út á
teikningu, lita- og formfræði, efnis-
fræði og listasögu, svo nokkuð sé
nefnt. Nemendumir sæki hönnun-
arverkstæði og hanni til dæmis
póstkassa. Hún segir að ekki sé
hægt að fullmennta sig í faginu hér
og vonast því til þess að fara í fram-
haldsnám til Bretlands að náminu
loknu.
-GHS
íslensk hjörtu geta glaðst því að
von er á breska rokksöngvaranum
David Bowie til íslands í lok júní
með fríðu foruneyti 25 manna og
heldur hann hér tónleika i Laugar-
dalshöll að kvöldi flmmtudagsins
20. júní. Bowie kemur hingað meðal
annars með sjö manna hljómsveit
sinni og eiginkonunni og ljós-
myndafyrirsætunni Iman.
Rokksöngvarinn er á hljómleika-
ferðalagi og kemur hingað til lands
á kvenréttindadaginn þann 19. júní
beinustu leið frá Moskvu. Hann
stoppar hér aðeins í þrjá daga. Til-
gangurinn meö heimsókninni er að
spila á listahátíð í Höllinni. Að tón-
leikunum loknum fer Bowie strax
áfram til Berlínar.
Miðasala vegna hljómleika
Bowies er að hefjast þessa dagana
og verða miðamir seldir á óvenju-
lega nýstárlegan hátt eða í hrað-
bönkum um allt land til að aUir
Bowie-unnendur sitji við sama borð
með að nálgast miða á tónleika
rokkhetjunnar.
-GHS
Rokksöngvarinn David Bowie og eiginkona hans, Iman, koma hingað til
lands í júní. Bowie verður með tónleika í Laugardalshöll 20. júní.
Listahátíð í Reykjavík:
Bowie og Iman
koma í júní