Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 9 bridge Landsbankamótið: Sveit Samvinnuferða- Landsýnar íslandsmeistari Eins og kunnugt er af fréttum sigraði sveit Samvinnuferða- Land- sýnar í úrslitakeppni um íslands- meistaratitilinn í sveitakeppni sem haldin var um bænadagana í Bridgehöllinni við Þönglabakka. Það var hins vegar sveit Antons Haraldssonar frá Akureyri sem kom mest á óvart en hún leiddi mót- ið mestallan tímann. Hún varð hins vegar að gefa eftir fyrsta sætið í síð- ustu umferðunum en silfrið virtist aldrei i hættu. Nýju íslandsmeistararnir eru Helgi Jóhannsson, sem vinnur nú sinn annan titil í opnum flokki, Guðmundur Sv. Hermannsson, sem einnig vinnur sinn annan titil í opn- um ílokki, Björn Eysteinsson, sem vinnur sinn þriðja titil í opnum ílokki, Karl Sigurhjartarson, sem vinnur nú sinn sjöunda titil í opn- um flokki, Einar Jónsson, sem vinn- ur annan titil sinn í opnum flokki, og að lokum Ragnar Hermannsson sem vinnur titilinn í fyrsta sinn. Umsjón Stefán Guðjohnsen Athygli vakti einnig slök frammi- staða sveitar Landsbréfa sem marg- ir höfðu spáð sigri. Sveitin hafnaði í Qórða sæti, þrátt fyrir að Jón Bald- ursson og Sævar Þorbjörnsson yrðu efstir í butlerútreikningi paranna í mótinu. Guðmundur og Helgi urðu í öðru sæti og í því þriðja urðu Magn- ús Magnússon og Sigurður Vil- hjálmsson úr Akureyrarsveitinni. Landsliðsfyrirliðamir, Björn Ey- steinsson og Karl Sigurhjartarson, skoruðu einnig mikið og við skulum skoða eitt spil sem sýnir vandvirkni Karls í úrspilinu. * 8 * AG982 4- 632 * G1073 4 KD76 6 ♦ D9754 * 865 * Á1095 *> K543 * ÁK8 * K2 Vestur Norður Austur Suður pass pass pass 1 lauf pass 1 tígull pass 1 grand pass 2 tíglar* pass 2 hjörtu pass 3 lauf pass 4 hjörtu Allir pass * Ylirfærsla í hjarta Með Björn og Karl í n-s og Ragn- ar Magnússon og Pál Valdimarsson í a-v gengu sagnir samkv. ofan- skráðu. Tígulgosi virðist eðlilegt útspil og Páll valdi það. Ragnar kallaði og Karl drap á ásinn. Geimið er í harð- ara lagi, en með laufás réttum, trompinu 2-2, þá gætu verið tólf slagir. En allur er varinn góður. Ef austur á öll trompin, þá er rétt að spila litlu trompi á ásinn. Karl spil- aði því litlu trompi að heiman en þegar vestur var með drap hann ás- inn og spilaði laufí á kónginn. Páll drap á ásinn, spilaði tígultíu, sem Karl drap á kónginn. Hann hélt áfram með lauf, Páll drap á drottn- ingu en átti ekki meiri tígul og spil- ið var unnið. Við hitt borðið var sami loka- samningur og sama útspil. Þar virti sagnhafi öryggisspilið í trompinu að vettugi og spilaði strax hjartakóng og meiri hjarta. Þegar vestur var með í annað sinn, þá svínaði hann trompi, gaf síðan tvo slagi á lauf og fékk ellefu slagi. Karl tapaði því einum impa á vandvirkninni í þetta sinn. * G432 •* D107 * G10 * ÁD94 N V A S Karl Sigurhjartarson í sveit Samvinnuferða-Landsýnar er vandvirkur í úrspil- inu. DV-mynd ÍS Umboðsmenn: Akureyri, Radiónausl : Akfanas, Hhómsýn, Bygiogohúsið i;,*:;' Blönduós, KlHúnvelninga IBorgatnes, Kf Botglitiinga Búðardolur, Einar Siefónsson Djúpimgor, K.A.S.K. Drongsnes, Kf Sleingrimsfjorítii EgiissloAir, KfHéroðsbúa Eskifjörður, Elis Guðnoson Eösktúðsíjörður, Helgilngason Eloleyti, Björgvitl Þórðorson Grindavdi, Rnfborg Drunrfafiöríui, Guðni HoHgrimsson Hnfnorfj, Raftækjov. Skúln bórss, Rofmælti Heío, Moslell Heibsnnrfor, Blómsturvellir Hólmavik, Kf Steingrimsfjnrðnr Húsavík, Kf bingeyblga, Bóknv. b. Slafónss. Hvnmmslnngi, Kf Vestur- Húnvelnirgu Hvolsvöllur, Kf Rongæingo Höln Hoirmfirði, K.A.S.K. ísnfjorðor, Póllinn Keflovik, Somkoup, Roifiókjollorinn Heskoupsstoður, Verslunin Vik IÓbfsfjörður, Volberg, Rorfíóvinnustofon Polteksfjötður, Rofbúð Jónosor Reyðorfjörður, KfHéroðsbúo Reykjovik, Heimskiingbn Kringlunni SouðóikrókE Kf Skoglirðingo Selfoss, Rofsel Sighrfjörður, Aðolbúðin Veslmonneyjor, Eyjorodió Þorlóksliöfn, Rós Þórshöfn, Kf Longnesingo Vopnofjörður, Kf Vopnfirðingo VlkMýrdol, KfÁrnesmgo yfirburði PHILIPS Nú býðst PHILIPS PT 4521 sjónvarpstæki á sérstöku tilboði. Þetta eru hágæða 28" stereo tæki sem eru búin myndgæðum sem finnast aðeins hjá PHILIPS. Rétt verð: Tilboð: PHILIPS PT 4521 • Black Matrix myndlampi • CTI litastýring • Nicam stereo • íslenskt textavarp • Easy logic fjarstýring með aðgerðastýringu á skjá • 2 scarttengi • Beintenging fyrir hljómt. (Surround) • Spatial hljómbreytir 89.900 TIL ALLT AO 3« MÁNAOA Stgr. Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO Síðasta sýningarhelgi. Opið laugardag og sunnudag kl. 11-18. Fróðleg og íslensk/dönsku b leyndr“jl“““ Kvikmyndnsýi ÍÐi i ó klukkutíma fresti ÉARHBLGI MIÐAVERÐ: 200 KR. ÓKEYPIS FYRIR BÖRN UNDIR 12 ÁRA ALDRI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.