Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Page 34
trótíir
LAUGARDAGUR 13. APRIL 1996
Eiður Guðjohnsen í búningi PSV Eindhoven. Hann er samningsbundinn
hollenska liðinu út næsta keppnistímabil.
vinnumennskan er engu að síður
mikil vinna og samkeppni um stöð-
ur er meiri en margan grunar. Álag-
ið getur verið mikið, leikið er þétt
og leikmenn verða því að nýta
hvíldina rétt. Þetta reynir á alla
bæði andlega og líkamlega. Pressan
á mér er kannski ekki svo mikil því
ég er ungur að árum og rétt að byrja
í atvinnumennskunni. Ég er ákveð-
inn í að standa mig hér úti, annað
er ekki inni í myndinni hjá mér. Ég
samdi til júni 1997 og ekkert er far-
ið að ræða um framlengingu enda
nógur tími til stefnu.
PSV Eindhoven á eftir um ókom-
in ár að verða í fremstu röð liða í
hollensku knattspyrnunni og að
sjálfsögðu einnig í Evrópu. Við höf-
um að öllum líkindum tapað barátt-
unni við Ajax um meistaratitilinn
þótt nokkrar umferðir séu eftir, en
allt getur gerst. Við ætlum að ein-
beita okkur af fullum krafti í bikar-
keppninni en þangað eru við komn-
ir í undanúrslit. Við eigum að leika
á heimavelli gegn Roda 1. maí svo
möguleikar okkar á að komast í úr-
slit keppninnar verða að teljast
nokkrir. Það er mikill hugur í
mönnum að ná þeim titli,“ sagði
Eiður Smári.
Eiður Smári sagði að Hollending-
ar mættu eiga það að þeir væru
þrælgóðir knattspyrnumenn. Ajax,
PSV og Feyenoord væru í broddi
fylkingar en lið í 6-8 næstu sætum
ættu innan sinna vébanda sterka
fótboltamenn. Þessi félög vantaði
bara meira fjármagn til að gera þau
enn sterkari.
Eiður Smári var inntur eftir því
hvort ekki margir könnuðust við
pabba hans í Hollandi.
Tala við pabba
í hverri viku
„Það kannast kannski ekki eins
margir við hann í Hollandi eins og
annars staðar í Evrópu. Það er ekki
fylgst mikið með belgíska boltanum
í Hollandi þar sem pabbi lék lengi.
Hollendingar fylgjast mest með fót-
boltanum í Englandi, Þýskalandi,
Ítalíu og á Spáni. Blöð og sjónvarp
dekka boltann frá þessum löndum
all nokkuð. Flestir þó hér um slóðir
hafa heyrt hans getið. Pabbi fylgist
vel með því sem er að gerast hjá
mér og við tölum saman í síma í
hverri viku.“
- Nú hefur mörgum sýnst að
Ajax væri að gefa eftir en framan
af sýndi liðið mikla yfirburði í
deildinni?
„Það getur eitthvað verið til í
þessu. Við sjálfir gáfum líka eftir á
sama tíma, vorum þá að tapa tveim-
ur leikjum í röð og ofan á allt sam-
an voru lykilmenn að meiðast. Fyr-
ir vikið varð að kalla menn úr vara-
liðinu til að fylla í skörðin. Ef við
hefðum nýtt afturkipp Ajax betur er
aldrei að vita hvernig staðan í deild-
inni væri núna.
Ég sé ekki betur en við munum
keyra á saman mannskap á næsta
tímabili og leikið hefur í vetur.
Maður er alltaf að heyra það og lesa
í blöðum að einhverjir verði keypt-
ir til að breikka hópinn enn frekar."
Stórkostleg
tilfinning
- Þið stóðuð í ströngu í Evrópu-
keppninni gegn Barcelona og
margir höfðu á orði að þið hefðu
verið óheppnir að detta út:
„Það var stórkostlega tilfinning
að koma inn á í leiknum suður í
Barcelona frammi fyrir 120 þúsund
áhorfendum. Ég var ekki inn á í
nema tvær mínútur, en það var nóg
til að finna tilfinninguna. Maður
gleymir þessari stund seint en að
vísu verður síðari leikurinn heim
kannski enn ofarlegri í minning-
unni. Þar lék ég mun meira sem er
aðalatriðið. Eftir leikinn hafði Jo-
han Cruyff, þjálfari Barcelona, á
orði að lið hans hefði verið heppið.
Það skiptir miklu að vera með í
Evrópukeppni á hverju ári og við
erum öruggir þangað nú þegar,“
sagði Eiður Smári.
- Þú ert ungur en hvar stendur
þú sem knattspyrnumaður í dag?
„Mig vantar fyrst og fremst
reynsluna. Ég veit að það vantar lít-
ið upp á margt til að verða gott. Það
kemur svo mikið með reynslunni
þannig að ég er bara bjartsýnn á
framhaldið. Það verður ekki aftur
snúið úr þessu og ljóst að knatt-
spyrnan verður mitt lifibrauð á
næstu árum. Maður veit ekkert
hvað gerist þegar samningurinn
rennur út, það verður að koma í
ljós. Ég hef fengið jákvæða umfjöll-
um í blöðum. Það er gaman að
heyra að menn eru ánægðir með
mig. Ég læt það hins vegar ekki
hafa áhrif á mig.“
- Þú verður örugglega alltaf til-
búinn að leika fyrir ísland þegar
eftir því verður leitað:
„Svo framarlega sem það skarast
ekki við leiki hjá PSV verð ég ör-
ugglega alltaf til búinn í það verði
ég valinn á annað borð. Það ætti þá
að geta gerst að ég fengi tækifæri að
leika með föður mínum í landsliði.
Það væri óneitanlega gaman,“ sagði
Eiður Smári í viðtalinu við DV.
-JKS
Eiður Smári Guðjohnsen lék síðast hér á landi með 21-árs landsliðinu gegn Tyrkjum í fyrrahaust og sést hann hér
á fullri ferð í þeim leik. Eiður Smári er á máia hjá hollenska liðinu PSV og er ánægður með veruna þar og er þegar
farinn að vekja athygli með hraða sínum og tækni þrátt fyrir ungan aldur. Það er bjart fram undan hjá pilti.
Ég ætla að
standa míg
- segir Eiður Smári Guðjohnsen sem vakið hefur athygli hjá PSV
AUir sem til þekktu vissu að í
yngsta atvinnumanni okkar í knatt-
spyrnu byggju miklir hæfileikar.
Með tíð og tíma og meiri þroska
myndi hann örugglega sýna hvað í
honum býr. Þessir hæfileikar hafa
komið fram mun fyrr en menn
héldu. Eiður Smári hefur fengið að
spreyta sig fyrr en hann sjálfur
þorði nokkurn tímann að vona.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann
komist vel frá sínu ef marka má frá-
sagnir af leikjum sem hann hefur
tekið þátt í.
Eiður Smári Guðjohnsen er
yngsti atvinnumaður íslands í
knattspyrnu en fyrir tæplega tveim-
ur árum gerði hann samning við
hollehska stórliðið PSV Eindhoven.
Samningur þessi rennur út eftir
næsta keppnistímabil. Eiður Smári,
sem verður 18 ára gamall í septem-
ber, þarf ekki að fara langt til að
sækja hæfileika sína í knattspyrn-
unni. Faðir hans, Arnór, hefur ver-
ið einn sterkasti knattspyrnumaður
íslands um árabil. Hann hefur gert
garðinn frægan í Belgíu, Frakklandi
og núna I Sviþjóð með úrvalsdeild-
arliðinu Örebro.
PSV er í hópi þriggja stærstu
knattspyrnuliða Hollands en aðal-
styrktaraðilar félagsins er stórfyrir-
tækið Philips. Völlur liðsins þykir
einkar glæislegur og er oftast upp-
selt á heimaleiki liðsins en völlur-
inn tekur hátt í 30 þúsund áhorfend-
ur.
I framtíðarplani liðsins
í hollenskum fjölmiðlum hefur
komið fram að hæfileikar þessa
unga íslendings séu miklir. Hann er
mikið efni og muni ábyggilega taka
þátt í uppbyggingarstarfi félagsins í
framtíðinni. Svo stór orð eru það.
„Ég er að leika mun meira en ég
átti von á. Það er aðallega vegna
meiðsla annarra leikmanna. Sjálfs-
öryggið eykst með hverjum leik svo
segja má að þetta hafi gengið fram-
ar vonum. í byrjun þessa timabils
bjóst ég við að leika eingöngu með
varaliðinu en ég er búinn öðlast
góða reynslu nú þegar með leikjun-
um með aöalliöinu," sagði Eiður
Smári Guðjohnsen í spjalli við DV í
vikunni en þá var hann nýkominn
inn úr dyrunum af æfingu.
Eiður sagði PSV Eindhoven stór-
klúbb á evrópska vísu. Félagið væri
tvímælalaust á uppleið að hans
mati knattspyrnulega séð. Félagið
stæði á traustum fótum en á bak við
.það stæðu geysilega sterkir styrkt-
araðilar. Þar væri Philips lang-
sterkast. Áhuginn á knattspyrnu í
borginni væri engum líkur og borg-
arbúar styddu sitt lið í gegnum súrt
og sætt.
„Mér var tekið sérlega vel í upp-
hafi og það var mér mikill styrkur.
Líf atvinnumannsins í knattspyrnu
hefur ekki komið mér svo mikið á
óvart. Ég er alltaf að komast betur
inn í þennan heim vegna tæki-
færanna með aðalliðinu í vetur. At-