Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1996, Qupperneq 7
JDV MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1996
sænskir dagar
Öðrum fremur
Fræðimaðurinn Laila Spik heldur
fyririestur um menningu Sama í
Norræna húsinu.
DV-mynd GS
Sænskir dagar:
Sænskar vörur og
sænsk menning í
Reykjavík
Sænskir dagar verða I Kringlunni
næsta daga er íslensk og sænsk fyr-
irtæki kynna sænskar vörur og
þjónustu næstu daga í sýningarbás-
um. Einnig verður sérstök sýning
og sala á sænskum vörum í
nokkrum verslunum í Reykjavík í
apríl.
í tilefni sænsku daganna koma
ýmsir góðir gestir til íslands frá Sví-
þjóð. Meðal þeirra er Bellmansöngv-
arinn Martin Bagge og félagar hans.
Þeir munu skemmta í hádeginu á
fimmtudag á Kaffi Milano og í Norr-
æna húsinu á fimmtudagskvöld kl.
20.30. í hádeginu á fóstudag
skemmta Bagge og félagar á Kaffi
Reykjavík og kl. 15.30 í Kringlunni.
Klukkan 16.30 á föstudag kynnir
fræðimaðurinn Laila Spik, sem er
Sami, menningu Sama og sýnir hún
Lappakofa í Kringlunni. Tískusýn-
ing verður í Kringlunni á föstudag-
inn kl. 16.
Á laugardaginn verður barnadag-
skrá í Kringlunni frá kl. 13 til 16. Þá
skemmta Bagge og félagar kl. 13.30
og tískusýning verður kl. 14. Laila
Spik segir frá Sömum kl. 14.30.
Rithöfundurinn Jan Guillou held-
ur fyrirlestur í Norræna húsinu kl.
16 á laugardaginn um njósnasögur.
Kl. 17 verður sýnd kvikmyndin
Vendetta í Norræna húsinu.
Á sunnudaginn hefst barnadag-
skrá Elísabetar Brekkan og Línu
langsokks í Kringlunni kl. 14. Hálfri
klukkustund síðar segir Laila Spik
frá aðstæðum bama í Samalandi.
Ljósmyndarinn og rithöfundur-
inn Bobby Andström segir á sunnu-
daginn frá ferð um Svíþjóð í Nor-
ræna húsinu kl. 16. Kvikmyndin
Sagolandet eftir Jan Troell verður
sýnd í Norræna húsinu kl. 19.
Hljómsveit Martin Bagges, Ens-
emble Ginestra, heldur tónleika í
Listasafni Kópavogs kl. 20.30.
Sænskir og íslenskir réttir verða
á boðstólum í Kaffi Reykjavík á
sunnudagskvöld frá kl. 19 til 22.30.
Ensemble.Ginestra skemmtir frá kl.
22 til 23.
Á mánudagskvöld kl. 20 flytur La-
Oa Spik fyrirlestur um menningu
Sama í Norræna húsinu.
Saab er sænskur
eðalvagn og sá öruggasti
sem völ er á
Upplýsingastjóri sænska útflutningsráðsins:
Flutt út fyrir 7000 milljarða
að rekja til þess að við erum við-
skiptaþjóð," útskýrir Albinson.
Hann leggur áherslu á að
sterkasta vopn Svía séu gæði og
með þeim geti þeir keppt viö aðrar
þjóðir.
-IBS
„Við erum feimin hér í Svíþjóð.
Við ættum að vera miklu stoltari
því við erum feikilega dugleg við-
skiptaþjóð. Allt byrjaði þetta með
víkingunum. Við slógum þá í haus-
inn sem ekki vildu versla við okk-
ur,“ segir Mikael Albinson, upplýs-
ingastjóri hjá sænska útflutnings-
ráðinu sem er með aðalskrifstofur
sínar í Stokkhólmi.
„Núna flytja 10 þúsund sænsk fyr-
irtæki út vörur fyrir meira en 1
milljón sænskra króna hvert. Við
gerum ráð fyrir að flytja út vörur
fyrir 700 milljarða sænskra króna í
ár. Það eru ekki bara skrúfur og
rær sem við flytjum út,“ bendir Al-
binson á. 700 milljarðar sænskra
króna eru um 7000 milljarðar ís-
lenskra króna.
Það vakti athygli margra að Svíar
hafa verið miklu duglegri að laga
sig að reglum Evrópusambandsins
heldur en margar þjóðir sem hafa
verið lengi í sambandinu. „Við vor-
um búnir að aðlaga okkur áður en
við gerðumst aðilar. Við erum
hlýðnir og svo urðum við líka að
gera það til þess að vera samkeppn-
isfærir. En þetta á líka rætur sínar
Stærsta tryggingafélag Svíþjóðar,
Folksam hefur valið Saab öruggasta
bíl sem völ er á 3 ár í röð.
Enda er staðalbúnaður Saab til
fyrirmyndar í alla staði. Má þar nefna
sem dæmi ABS bremsukerfi, loftpúða
í stýri, festingar fyrir barnabílstóla í
fram og aftursæti, kafbátasæti að
framan, öryggisbeltastrekkjara,
3ja punkta öryggisbelti í aftursætum
og svona mætti lengi telja.
Þar að auki er hægt að fá innbyggða
barnabílstóla sem henta börnum á
aldrinum 3ja til 10 ára.
Bílheimar ehf.
Sœvarhöfba 2a Sími: 525 9000