Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1996, Side 14
28 sænskir dagar
MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1996 DV
Sænskir og finnskir hermenn
sofa í Caravan-svefnpokum
Maria Ferraz frá Portúgal hefur saumað svefnpoka hjá Nordiska Fjáder í
Malmö í um 20 ár.
Eigandi Abu Garcia:
Valdi að fram-
leiða veiðihjól
í stað úra
Saga sænska fyrirtækisins Abu
Garcia hófst eiginlega 1887 þó að
veiðihjólin, sem fyrirtækið er
frægt fyrir, hafi ekki litið dagsins
ljós fyrr en mörgum árum seinna.
Það var þetta ár sem uppfinn-
ingamaðurinn Henning Hammar-
lund stofnaði vasaúrverksmiðju í
Svangsta í Svíþjóð. Fjórum árum
seinna réði hann úrsmiðinn Carl
August Borgström til starfa. Auk
vasaúra framleiddi verksmiðjan
meðal annars gjaldmæla í bíla og
ritvélar. En 1920 varö Hammar-
lund gjaldþrota. Borgström, sem
var orðinn verkstjóri, keypti lager-
inn og vélarnar og hélt framleiðsl-
unni áfram. Árið 1926 hafði hann
þróað nýjan gjaldmæli. Er
Borgström lést 1934 tók sonur hans
Göte við starfínu og þróaði enn
nýjan gjaldmæli sem var tilbúinn
1939.
Búist var við að þessi nýi mæl-
ir, sem var lítill og féll inn í mæla-
borð bíla, myndi slá í gegn á
heimsmarkaðnum en seinni
heimsstyrjöldin setti strik í reikn-
inginn. Eftir miklar markaðskann-
anir var um tvennt að velja, að
mati Göte. Hann gat haldið áfram
úrsmíði eða hafið framleiðslu á
veiðibúnaði. Sjálfur hafði hann
áhuga á veiði og áhugamálið varð
fyrir valinu.
í lok ársins 1939 hófst þróun
fyrsta veiðihjólsins sem hlaut
nafnið Record. Framleiddar voru
Orðið Caravan er arabíska og
sagt þýða verslunarmenn á ferð.
Þetta orð hefur fyrirtækið Nordiska
Fjader Fritid AB, sem er dótturfyr-
irtæki Ajungilaks í'Noregi, valið
sem heiti á svefhpokana sína og aðr-
ar útilífsvörur.
Eins og Norðmenn eru Svíar
framarlega í framleiðslu á útilífs-
vörum fyrir loftslag á norðlægum
slóðum. Þeir eru sagðir hafa rann-
sakað manna best hvernig hægt er
að sofa vel í snjó og kulda, regni og ,
raka. Svíar og Norðmenn eru mik- j
ið úti í náttúrunni, bæði á sumrin <
og á veturna, og þeir gera miklar
kröfur til alls búnaðar.
Nordiska Fjader var í upphafí
danskt fyrirtæki sem var stofnað
1901. í fyrstu var verslað með dún
og fíður en síðar meir hófst;
framleiðsla á sængum og kodd-
um. Fyrir um 60 árum hófst,
framleiðsla á svefnpokum.
Þegar fyrirtækið Nordiska
Fjader í Danmörku varð
gjaldþrota fyrir
nokkrum árum keypti
fyrirtækið
Ájungilak í Nor-
egi Nordiska
Fjader í Svíþjóð
sem er með
bækistöðvar
Malmö.
ísland mikilvægt
Fyrirtækið flytur út vörur sínar
til 10 landa og meðal þeirra er ís-
land. „íslahd er eitt af mikilvæg-
ustu viðskiptalöndum okkar. Miðað
við fólks^ölda flytjum við mest út
til íslands. Finnland og Þýskaland
eru einnig góðir markaðir," sagði
Claes Segersten
markaðsstjóri hjá
Nordiska Fjáder
Fritid AB.
Fyrirtækið
selur bæði
sænska
inu,“ lýsir Segersten yfir. Hann
segir herinn oft þurfa svefn-
poka fyrir einhver sérstök
verkefni. „Við höfum
möguleika á að
verða við ósk-
um um ákveð-
ið notagildi.“
Á þessu ári ætl-
ar alþjóðlegur leið-
angur að fara silki-
veginn frá Sian í
Kína til Istanbul í
Tyrklandi á kamel-
dýrum og feta þar með í fótspor
sænska landkönnuðarins Svens
Hedins sem fór þessa leið fyrir 100
árum. Silkivegurinn er forn versl-
unarleið milli Kína og Evrópu. Nor-
diska Fjáder Fritid styrkir leiðang-
urinn með því að sjá honum fyrir
útbúnaði til ferðarinnar. „Það er
gaman að taka þátt
í svona verk-
efni. Við
fáum
auðvit-
að ekkert
greitt fyrir
það en þetta er
góð auglýsing
fyrir okkur auk'
þess sem við fáum að
vita hvernig vörur okk-
ar reynast,“ lagði Segerst-
en áherslu á. -IBS
Þetta er einn af nýjustu Caravan-
svefnpokunum.
Veiöibúnaöur frá Abu Garcia er frægur um allan heim.
fjórar gerðir. Þegar veiðihjólin
voru tilbúin til sölu hélt Göte á
fund stórkaupmanns í Gautaborg.
Göte átti von á ýmsum spurning-
um en kaupmaðurinn spurði að-
eins hversu mörg veiðihjól hann
gæti fengið á ári. Göte taldi sig
geta afhent 5.000 hjól og þar með
hófst ævintýrið.
Fyrsta veiðihjólið
Árið 1952 leit fyrsta Ambassa-
deur hjólið dagsins ljós. Tveimur
árum seinna hélt Göte ásamt syni
sínum Lennart á sýningu á veiði-
búnaði í Bandaríkjunum. Göte,
sem ekki var enskumælandi, stóð
fyrir utan sýningarhöllina og
sýndi með löngum köstum hversu
gott Ambassadeur- hjólið var.
Lennart stóð hins vegar innanhúss
og vísaði viðskiptavinum út á
kastsýningu föðurins. Bandaríkin
urðu skjótt helsti markaður Abu.
Fyrirtækið mætti auðvitað sam-
keppni og keppinautarnir hófu
framleiðslu á kasthjólum. Hjá Abu
héldu menn ótrauðir áfram þróun-
arstarfinu. Árið 1965 kynntu Abu-
menn Cardinal veiðihjólið.
Þegar Göte lést 1974 tók Lennart
sonur hans við en til þess að geta
greitt erfðaskattinn þurfti hann að
fá fjármagn inn í fyrirtækið og
seldi reksturinn.
Ýmsar breytingar fylgdu í kjöl-
farið og þar á meðal breyting á
nafni fyrirtækisins. Ástæðan var
sú að á bandaríska markaðnum
var það fyrirtækið Garcia Corp.
sem seldi flestar vörur Abu undir
sínu nafni. Þegar rekstur þess fyr-
irtækis fór að ganga illa keypti
Abu hann og breytti nafni fyrir-
tækis síns í Abu Garcia. -IBS