Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1996, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1996, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 Fréttir Skoðanakönnun DV um fylgi flokkanna: Sjálfstæðisflokkur upp en Framsókn tapar fylgi - enn bæta kratar við sig og Þjóðvaki mælist varla Fylgi flokka ■ samkvæmt skoðanakönnun — Skipan þingsæta — samkvæmt skoöanakönnun — 30 30 Sjálfstæðisflokkur eykur fylgi sitt á nýjan leik á meðan hinn stjórnar- flokkurinn, Framsókn, tapar fylgi. Enn bætir Alþýðuflokkurinn við sig en Alþýðubandalag og Kvennalisti hafa dalað. Fylgi Þjóðvaka mælist varla sem fyrr. Þetta eru helstu nið- urstöður skoðanakönnunar DV um fylgi flokkanna sem gerð var síðast- liðið þriðjudagskvöld. Af þeim sem tóku afstöðu í könn- uninni sögðust 12,7 prósent styðja Alþýðuflokkinn, 22 prósent Fram- sóknarflokkinn, 46,2 prósent Sjálf- stæðisflokkinn, 14,6 prósent Alþýðu- bandalagið, 1,4 prósent Þjóðvaka og 3,1 prósent Kvennalista. Önnur stjórnmálaöfl komust ekki á blað. Miðað við síðustu könnun DV í byrjun mars hefur fylgi Alþýðu- flokksins aukist um 1,7 prósentu- stig, fylgi Framsóknarflokksins dal- að um 3,2 prósentustig, fylgi Sjálf- stæðisflokksins aukist um 5,4 pró- sentustig, fylgi Alþýðubandalagsins minnkað um 1,6 prósentustig, Þjóð- vaki bætt við sig 0,6 prósentustigum og Kvennalistinn tapað 2,1 pró- sentustigi. Úrtakið í skoðanakönnun DV var 600 manns, jafnt skipt á milli kynja og búsetu, þ.e. landsbyggðar og höf- uðborgarsvæðis. Spurt var: „Hvaða lista mundir þú kjósa ef þingkosn- ingar færu fram núna?“ Skekkju- mörk i könnun sem þessari eru tvö til þrjú prósentustig. Af öllu úrtakinu reyndust 7,5 pró- sent styðja Alþýðuflokkinn, 13 pró- sent Framsóknarflokkinn, 27,3 pró- sent Sjálfstæðisflokkinn, 8,7 prósent Alþýðubandalagið, 0,8 prósent Þjóð- vaka og 1,8 prósent Kvennalistann. í könnuninni voru 37 prósent að- spurðra óákveðin og 3,8 prósent neituðu að gefa upp afstöðu sína. Alls tóku því 59,2 prósent afstöðu í skoðanakönnuninni sem er svipuð þátttaka og í siðustu könnunum DV. Sé þingsætum skipt á milli flokka samkvæmt fylgishlutfalli í könnun- inni fengi Alþýðuflokkur 8 þing- menn, bætti við sig einum manni frá kosningum og síðustu könnun. Framsóknarflokkur fengi 14 menn kjörna, tapaði tveimur frá síðustu könnun og einum miðað við úrslit kosninga í fyrra. Sjálfstæðisflokkur fengi 30 þingsæti, bætti við sig 3 frá marskönnuninni og 5 frá núverandi þingmannafjölda. Alþýðubandalagið mælist með svipað fylgi og í kosn- ingum og fengi því jafnmarga þing- menn, eða 9, en tapaði einu sæti frá síðustu könnun DV. Enn mælist Þjóðvaki varla í könnuninni og fengi engan þingmann kjörinn en er með fjóra á þingi í dag. Kvennalist- inn fengi 2 þingmenn ef kosið yrði nú, var með 3 í síðustu könnun líkt og flokkurinn hefur á Alþingi. Ef svör þátttakenda í könnuninni eru skoðuð eftir búsetu vekur at- hygli að stuðningur við Framsókn- arflokkinn hefur minnkað verulega á landsbyggðinni frá síðustu könn- un í mars. Fylgisaukning Sjálfstæð- isflokksins kemur einkum af höfuð- borgarsvæðinu. -bjb Stuttar fréttir Heilbrigöur búskapur Að mati OECD er þjóðarbú- skapurinn á íslandi heilbrigður og samkeppnisstaðan viðunandi, samkvæmt fréttum RÚV. Finnur á ársfundi Á ársfundi Evrópubankans átti Finnur Ingólfsson fundi með sendinefndum Eystrasaltsríkja og nokkurra annarra A-Evrópu- ríkja um þátttöku íslenskra fyrir- tækja í samstarfsverkefnum, s.s. í matvælaframleiðslu, orkuiðn- aði og hugbúnaðargerð. -bjb Þorskaflinn 27,5% meiri í ár en á sama tíma 1995: Smábátarnir hærri en togaraflotinn Afli smábáta í marsmánuði rúm- lega tvöfaldaðist milli ára og fer úr 2.473 tonnum í fyrra í 5.515 tonn nú og nemur aukningin 123,1%. Þetta er í fyrsta sinn sem þorskafli smábáta er meiri I einum mánuði en allur Þú getur svarað þessari spurningu meö því aö hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já m Nei 2 ,r i i i FOLKSINS 904-1600 Á að leyfa sölu á áfengum bjór í matvöruverslunum? þorskafli togaraflotans. Heildarþorskafli í nýliðnum mars- mánuði er 27,8% meiri en hann var í mars í fyrra og er þorskaflinn frá áramótum 20,5% meiri en hann var á sama tíma i fyrra. Þorskafli togar- anna dregst hins vegar saman frá því sem hann var í mars í fyrra um 15,3%. Hann var 5.181 tonn en er nú 4.391 tonn. Á hinn bóginn eykst þorskafli bátaflotans úr 11.175 tonn- um í fyrra í 14.156 tonn nú sem er 26,7% aukning. Afli togaraflotans dróst saman í marsmánuði um rúmlega 11% og hefur minnkað frá áramótum miðað við samá tíma í fyrra um 5,6%. Á móti kemur að togararnir hafa tvö- faldað rækjuafla sinn frá áramótum miðað við sama tíma í fyrra. -SÁ DV, Seyðisfirði: Seyöisfjörður: Fyrstu vorsíldinni landað leitt smá og mjög átumikil og því erfið til vinnslu. Fyrsti síldarfarm- urinn I fyrravor barst hingað 7. maí svo þetta er fyrr á ferðinni nú. Gunnar verksmiðjustjóri býst við meiri afla á næstunni því verk- smiðjan í Fuglafirði í Færeyjum hefur úr nógu að moða og einhver löndunarbið er þar. -JJ Færeyska nótaskipið Júpiter kom með fyrsta síldarfarminn á vorver- tiðinni 16. apríl til verksmiðju SR- mjöls hér á Seyðisfirði. Aflinn fékkst í síldarsmugunni, um 350 sjó- mílur austur af landinu. Síldin er nokkuð blönduð - yfir- Stuttar fréttir 16 í Jafnréttió Sextán umsóknir bárust um stöðu jafnréttisfulltrúa Reykja- víkurborgar. Þar af sóttu 14 kon- ur um, samkvæmt Tímanum. KEA kaupir Kaupfélag Eyfirðinga, KEA, hefur keypt fjórðungshlut í sjáv- arútvegsfyrirtækinu Búlands- tindi á Stöðvarfirði. Samkvæmt Stöð 2 er kaupverð 30 mjlljónir. Ósk um rigningu Hagstætt veðurfar í vetur var óhagstætt fyrir hálendisgróður- inn. Samkvæmt Tlmanum vill landgræðslustjóri rigningu í maí næstkomandi. Salmonella könnuð Rannsókn er hafin á salmon- ellu í sauðfé á 50 sauðfjárbúum á Suður- og Vesturlandi. Sam- kvæmt RÚV er tilgangurinn að finna út smitleiðir og uppruna salmonellusmits. Kýrnar út í vorið Bændur eru byrjaðir að leysa kýrnar út, I fyrsta sinn á þessu vori. Samkvæmt RÚV er þetta gert undir Eyjafjöllum. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.