Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1996, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996
5
20% afsláttur af öllum Tefal
vorum
m.a. malvinnsluvélar, brauSristar,
kaffivélar grill, eldhús -og baðvogir ofl. ofl
SAMLOKUGRILL
mosverð
Afsláttur af öllum Indesit og Tefal vörum í verslun okkar í 10 daga!
ZWILUNG
J.A. HENCELS
Hnífar
Emile Henry leirvörur
Fréttir
STRAU
JÁRN
Jón Guðlaugsson langhlaupari greip til „örþrifaráðs“ gegn grjótkasti:
Hengdi upp gardínur að
utan til að verja húsið
- allt sjóðvitlaust og fólk lét illa og kærði mig, segir Jón
Vásterás-borg
stefnir ís-
lenska ríkinu
- neitar að greiða fyrir nám flugvirkjanema
Vasterás-borg stefndi í síðustu
viku íslenska ríkinu fyrir héraðs-
dóm borgarinnar. Borgin vill fá
greiddar 3,5 milljónir sænskra
króna eða 35 milljónir íslenskra,
ásamt vöxtum frá því í júlí 1992 fyr-
ir nám íslenskra flugvirkjanema í
Hásslöframhaldsskólanum sem er í
Vásterás.
„Ég hef ekki fengið þetta staðfest.
Málin standa þannig að þau eru í
viðræðum milli menntamálaráðu-
• neyta landanna," sagði Björn
Bjarnason menntamálaráðherra en
menntamálaráðuneyti Islands hefur
neitað að verða við kröfum skólans
í Vasterás.
„Það fór embættismaður héðan
fyrir nokkrum vikum og ræddi við
menntamálaráðuneytið í Svíþjóð.
Það er í bígerð að efna til fleiri
funda. Ef þeir í'Vásterás kjósa að
sækja málið fyrir dómstólum er það
þeirra ákvörðunaratriði. Að okkar
mati er alveg ljóst að um óréttmæta
kröfu er að ræða,“ lýsti mennta-
málaráðherra yfir.
Skólinn í Vásterás tók fyrst við
íslendingum 1991 til 1992. Síðan
hafa rúmlega 40 íslendingar verið
þar við nám. Núna eru 15 íslending-
ar í skólanum og af þeim hófu 9
nám síðastliðið haust.
í stefnu Vásterás-borgar er sagt
frá bakgrunni málsins. Greint er frá
samningi, sem gerður var milli
Norðurlanda 1971, þar sem kveðið
er á um að ekki verði krafist
greiðslu fyrir nám á framhalds-
skólastigi. Var samningurinn gerð-
ur til að auka möguleika fyrir
námsmenn til að afla sér menntun-
ar í öðru norrænu landi. í mars 1992
var bætt við samninginn ákvæði
þar sem segir að ekki verði krafist
greiðslu fyrir nám sem sé í sam-
ræmi við lög um framhaldsskóla-
nám.
í stefnunni segir að 1991 hafi ver-
ið gert samkomulag um nám ís-
lenskra flugvirkjanema í Vásterás
milli íslands og borgarinnar. Um
hafi verið að ræða flugvirkjanám
með viss réttindi. í desember 1992
hafi einnig verið samið milli borg-
arinnar og íslands um flugvirkja-
nám með enn meiri réttindi.
Vásterás-borg lítur svo á að nám-
ið, sem leiðir til meiri réttinda, sé
dýrara en venjulegt framhaldsskóla-
nám og að samkvæmt samkomulag-
inu frá 1992 eigi íslenska ríkið að
greiða mismuninn. í mars 1994
hafnaöi sænska stjórnin beiðni
Vásterás um fulla greiðslu fyrir
nám Islendinganna. í júlí í fyrra
sendi sænska ríkið Bimi Bjama-
syni bréf þar sem lagt er til að ís-
lenska ríkið borgi Vásterás fyrir
námsárið 1995 til 1996 það sem sveit-
arfélagið þarf að greiða um fram
þær bætur sem það fær frá sænska
ríkinu.
Þar sem skuldin hafði ekki verið
greidd 1. mars í ár ákvað Vásterás
að stefha íslenska ríkinu.
„Við höfum gert ráðstafanir til að
upplýsa nemendur hér í Iðnskólan-
um um að við teljum óforsvaranlegt
að halda þessu áfram á þessum for-
sendum. Þeir verða að leita annað,"
sagði Björn Bjarnason. -IBS
rt_ BRÆÐURNIR
mommsm
Lágmúla 8 • Sími 553 8820
„Þetta var örþrifaráð. Krakkarnir
hafa verið að brjóta rúður og ég er
að fara að keppa í viðavangshlaupi
fyrir sunnan á sumardaginn fyrsta.
Ég hengdi gardínurnar því upp tfl
að verja húsið mitt á meðan,“ sagði
Jón Guðlaugsson, íbúi í Hafnar-
stræti 23 á Akureyri, í samtali við
DV aðspurður hvers vegna hann
hefði hengt hansagardínur utan á
Qóra glugga á heimili sínu í vik-
unni.
Nágrannar mótmæltu framferði
Jón Guðlaugsson hengdi gardínur utan á hús sitt til að verja það fyrir
grjótkasti á meðan hann keppti í víðavangshlaupi fyrir sunnan á sumardag-
inn fyrsta. Gardínurnar hafa nú verið fjarlægðar. DV-mynd SH
Jóns og kom lögreglan á staðinn á
sunnudagskvöldið. Varðstjóri hjá
lögreglunni sagði að þeir sem vfldu
kvarta ættu að leita til byggingaryf-
irvalda vegna málsins - þetta væri
ekki lögreglumál. Jón tók hins veg-
ar gardínurnar niður á mánudags-
kvöld.
„Það varð allt sjóðvitlaust út af
þessu, fólk lét svo illa og kærði
mig,“ sagði Jón. „Það var ekki
nokkur leið að hafa gardínurnar
lengur. Fólk kann ekki að meta
þetta. Er fólkið orðið svona við-
kvæmt? Ég held að hvergi annars
staðar séu sett upp svona listaverk.“
Jón, sem varð sjötugur 3. aprO,
sagðist hafa keppt í víðavangshlaup-
um í 40 ár. „Ég hljóp 30 kOómetra í
einum spretti í gær. Ég veit ekki
hvað það er að vera gamall. En það
er ekkert að marka því ég hef afltaf
farið svo vel með heOsuna," sagði
Jón Guðlaugsson. -Ótt