Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1996, Page 12
12
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVIK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftan/erð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Forsetalínur skýrast
Fátt virðist geta komið í veg fyrir, að Ólafur Ragnar
Grímsson verði kosinn næsti forseti íslands. í skoðana-
könnun DV í gær var hann kominn með hreinan meiri-
hluta svarenda og nærri helming alls úrtaksins. Þetta er
fjórfalt fylgi þess frambjóðanda, sem næst kom.
Með þessu hrynur kenningin um, að þjóðin vilji ekki
virkan stjórnmálamann í embætti forseta. Hún getur
ekki aðeins hugsað sér stjómmálamann í embætti lands-
fóður, heldur getur hún meira að segja hugsað sér óvæg-
inn pólitískan slagsmálamann í þetta embætti.
Skoðanir þjóðarinnar á frambjóðendum skipta miklu,
því að þeir hafa misjafna afstöðu til embættisins. Ólafur
Ragnar hefur til dæmis lagt áherzlu á mikil samskipti
forsetans við útlönd, þar með á vægi hans í utanríkismál-
um og enn frekar í málefnum utanríkisviðskipta.
Meðal forustumanna í stjómmálum er andstaða við
víkkaða túlkun á verksviði forsetans. Forsætisráðherra
tók af skarið í löngu nöldurviðtali um helgina, þar sem
hann fordæmdi almennt þá frambjóðendur, sem þá voru
komnir fram, og kallaði þá „farandsendiherra".
Hjá honum eins og sumum pólitískum valdamönnum
koma fram áhyggjur af, að næsti forseti hafi tilhneigingu
til að neita að skrifa undir lög á umdeildum sviðum og
þvingi þannig fram þjóðaratkvæðagreiðslur, sem mundu
trufla hefðbundið valdakerfi í landinu.
Kominn er forsetaframbjóðandi, sem fellur að þessum
sjónarmiðum. Pétur Kr. Hafstein vill túlka embættið
þrengra en aðrir frambjóðendur. Hann vill ekki, að for-
seti skyggi á þingræðið í landinu. Og hann vill ekki, að
forsetinn sé eins konar farandsendiherra í útlöndum.
Skoðanakönnunin sýnir, að skoðanir Davíðs og Péturs
eiga erfitt uppdráttar hjá kjósendum. Það staðfestir
kenningu í leiðara DV fyrir réttri viku um, að þjóðin
muni sjálf finna sér forseta hjálparlaust og muni ekki
láta valdakerfið í landinu segja sér fyrir verkum.
íslendingar eru yfirleitt þýlyndir og láta flest yfir sig
ganga möglunarlítið. Þeir endurkjósa stjómmálamenn
og -flokka, sem hafa ítrekað valtað yfir fólkið í landinu
og valdið því stórtjóni, t.d. með ríkisrekstri landbúnaðar.
En þrælaþjóðin tekur sér frí í forsetakosningum.
Þetta tengist þeirri staðreynd, að ráðherrar og ráðu-
neytisstjórar, með forsætisráðherra í broddi fylkingar,
hafa ekki fengið umboð sitt beint frá þjóðinni, sem hins
vegar fær að kjósa sér forseta beint og tekur greinilega
sjálfstæða og jafnvel róttæka afstöðu til þess.
Enda sagði forsætisráðherra í áðumefndu viðtali, að
það væri álitamál, hvort hér ætti yfirleitt að vera forseti
og hvort hann ætti að öðrum kosti ekki fremur að vera
kosinn af Alþingi heldur en í beinni þjóðaratkvæða-
greiðslu. Orð hans endurspegla vanda valdakerfisins.
Hin eindregna afstaða forsætisráðherra til forsetaemb-
ættisins, sem kom þá fyrst í ljós, þegar hann var sjálfúr
hættur við að bjóða sig fram til þess, hefur án efa farið
þversum í fólk og eflt þau sjónarmið, sem hann var að
gagnrýna í áðurnefndu nöldurviðtali í málgagninu.
Þar sem þrír fjórðu hlutar kjósenda hafa nú þegar gert
upp hug sinn til frambjóðenda og fjórir efstu skipta með
sér öllum þorra fylgisins, má búast við, að nýir frambjóð-
endur hafi ekki erindi sem erfiði. Hin eiginlega kosn-
ingabarátta er því að hefjast óvenjulega snemma.
Ef ekki verður mikil breyting á fylgishlutföllum efstu
frambjóðenda á næstu tveimur vikum, siglir Ólafur
Ragnar við góðan byr og beina leið til Bessastaða.
Jónas Kristjánsson
Alþjóðalög -
lögleysur
Undanfarna daga hefur óvígur
her rekið yfir 400 þúsund óbreytta
borgara, um tiunda hluta íbúa
annars lands, á vergang frá heim-
ilum sínum, sprengt heimili tug-
þúsunda í tætlur, einangrað og
sett í herkví nærri tvær milljónir
manna á herteknum svæðum, sem
þeir svipta með þessu lífsframfæri
sínu. Hundruð ef ekki þúsundir
manna hafa látið lífið, þúsundum
er haldið í fangabúðum án dóms
og laga, öflugur flugher gerir loft-
árásir á höfuðborg og bæi ná-
grannaríkisiris.
Er þetta lýsing á innrás íraka í
Kúveit? Óekkí, þetta er Líbanon.
Ríkið sem í hlut á er hið heilaga
og ósnertanlega ísarel, sem á ár-
inu 1982 gerði allsherjarinnrás í
Líbanon, hernam landið og drap
yfir 20 þúsund manns (margfalt
fleiri en írakar í Kúveit), innlim-
aði sýðsta hluta þess og hefur síð-
an hegðað sér þar á svipaðan hátt
og Þjóðverjar í Póllandi fyrrum.
Sameinuöu (bandarísku)
þjóðirnar
Að lokum neyddust Bandaríkin
til að samþykkja ályktun Öryggis-
ráðs SÞ nr. 242 um að ísrael sé
skylt að hafa sig brott frá Líbanon.
Þessi samþykkt hefur að nafni til
sama gildi og samþykktir SÞ gagn-
vart írak, en ólíkt er um fram-
fylgdina. Nákvæmlega ekkert hef-
ur verið gert til að knýja ísraels-
menn til hlýðni við ályktun 242
síðustu 14 ár. Fyrir innrásina 1982
áttu íbúar Suður-Líbanons ekki í
stríði við Israel, (þar voru hins
vegar stöðvar PLO).
Eftir hernámið hafa hatrömm-
ustu andstæðingar ísraels verið
Shíamúslímar í suðurhluta Lí-
banons. Nú heimta ísraelsmenn að
Kjallarinn
Gunnar Eyþórsson
blaðamaður
stjórn Líbanons gangi í lið með
ísraelska hernum gegn Hizbollah
og gerist handbendi innrásarliðs-
ins, annars skapi ísraelsher flótta-
mannavandamál sem stjórnin í
Beirút ráði ekki við.
Ekki er annað að sjá í fjölmiðl-
um en þetta blygðunarleysi sé hin
mesta drengskaparkrafa. Þetta sé
allt bara réttdræpum hryðjuverka-
mönnum að kenna. tsrael hafi full-
an rétt til að drepa fólk að vild í
Líbanon og Líbönum sé hollast að
hætta að múðra út í hernámið.
Vesturlönd lfta undan, þetta eru
nefnilega arabar, ekki múslímar í
Bosníu.
Friðartal
Vitaskuld verður að sjá allt
þetta í samhengi við friðartilraun-
ir og kosningabaráttu Peresar og
annarra friðarsinna í ísrael, sem
öfgamenn beggja aðila vilja eyði-
leggja. Það er saga út af fyrir sig.
En öfgafull og ofstopafull fram-
koma ísraels gagnvart nágrönnum
sínum allt frá 1982, í skjóli ofurefl-
is Bandaríkjanna á hernaðarsvið-
inu, er ástæðan fyrir uppgangi
Hizbollah og vaxandi ítökum írans
meðal öfgasamtaka Shíamúslíma í
Líbanon, á Vesturbakkanum, í
Gaza og annars staðar.
ísraelsmenn eru þarna að elta
sinn eigin skugga. Þeir safna glóð-
um elds að höfði sér af sömu
skammsýni og einkennt hefur alla
þeirra pólitík, innanlands sem
utan frá upphafi. Enn á ný hafa
þeir leyfi umheimsins (þ.e. Banda-
ríkjanna) til að traðka á nábúum
sínum. Þetta er þeirra hugmynd
um frið. Svo uppsker hver sem
hann sáir.
Gunnar Eyþórsson
„ísraelsmenn eru þarna aö elta sinn eigin
skugga. Þeir safna glóðum elds að höfði
sér af sömu skammsýni og einkennt hefur
alla þeirra pólitík.“
Skoðanir annarra
Fiskréttaverksmiðja
„Um langt árabil hafa sjónir manna beinzt að full-
vinnslu sjávarafurða til aukinnar verðmætasköpun-
ar og aukinnar atvinnu. . . . Það er til fyrirmyndar
að Aflvaki leiti eftir slíku samstarfi við sölusamtök-
in, sem hafa mikla reynslu af rekstri fiskréttaverk-
smiðju erlendis. . . . Reiknað er með aö hlutfall til-
reiddra fiskafurða muni nema um 60% um aldamót
af heildarsölu sjávarafurða. Til mikils er að vinna.“
Úr forystugreinum Mbl. 17. apríl.
Kínverjum launuð vinsemdin
„íslendingar verða fegnir öllu sem kemur at utan.
- Ekki nóg með að einhverjir bakkabræður hafi ver-
ið sendir til aö halda úti sendiráði ríkisins í Kína,
heldur hafa að undanförnu farið ekki færri en einir
hundrað pólitíkusar af ýmsum sortum opinberra er-
indagjörða til Kína, með sjálfan forsetann, forsætis-
ráðherrann, borgarstjórann í Reykjavík og annað
fyrirfólk í fararbroddi. Kínverjum er launuð vin-
semdin með því að þeir eru aufúsugestir á íslandi;
meira að segja á hinu virðulega Alþingi þykir hæfi-
legt að hafa þá sem gesti. Og er varla furða, því sjald-
an verða íslenskir pólitíkusar jafn meyrir og þegar
þeir fá tækifæri til að bugta sig fyrir kínverskum
kommúnistum."
Úr forystugrein Alþbl. 16. apríl.
Pólitísk hafrannsókn?
„Það er engin ástæða til að kasta rýrð á ágæta
starfsmenn Hafrannsóknastofnunar en ég held að
margt heföi farið á annan og betri veg ef ákveðið
hefði verið í upphafi að stofnunin nyti akademisks
frelsis á borð við það frelsi sem háskólastofnanir
njóta yfirleitt í stað þess aö spyrða hana við fram-
kvæmdavaldið. . . . Frjáls og óheft umræða er for-
senda framfara í vísindum."
Gísli Pálsson i Tímanum 17. apríl.