Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1996, Page 25
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 37
Rússnesk-
ur píanó-
leikari
Píanótónleikar verða haldnir
í Háskólabíói í kvöld kl. 20.00.
Einleikari á píanó verður Rúss-
inn Alexei Lubimov og hljóm-
sveitarstjóri Osmo Vánska. AI-
exei Lubimov er án efa einn
fremsti píanóleikari heimsins í
dag. Hann fæddist í Moskvu og
hlaut þar sína tónlistarmennt-
un.
Frá árinu 1987 hefur Lubimov
verið á stöðugum tónleikaferð-
um um heiminn. Nú tekur að
líða að starfslokum Osmos
Vanskás sem aðalhljómsveitar-
stjóra Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands en hann lætur af störfum
sem slíkur í júní nk. Næsta
haust mun hann taka við stöðu
aðalhljómsveitarstjóra skosku
BBC hljómsveitarinnar í Glas-
gow. Því fara að verða síðustu
forvöð að sjá hann við stjóm. Á
efnisskránni verður píanó-
konsert Mozarts nr. 21K.467 og
sinfónía nr. 2 eftir Rachmanin-
off.
Sýningar
Glott í
Rósenberg
Hljómsveitin Glott heldur tón-
leika í Rósenbergkjallaranum í
kvöld og mun sveitin leika gam-
alt og nýtt, bæði frumsamið efni
og frá öðrurri.
Kynning-
arfundur
í dag klukkan 17 verður hald-
inn kynningarfundur mn nýj-
ung í íslenskum byggingariðn-
aði. Til að tryggja öllum aðilum,
sem tengjast skipulags-, bygg-
ingar- og umhverfismálum, eins
réttar og aðgengilegar upplýs-
ingar og kostur er hefur Bygg-
ingarþjónustan nú byggt upp
flokkaðan, sérhæfðan gagna-
banka fyrir íslenskan bygging-
ariðnað, fyrir símsvörun og á
Alnetinu í samstarfi við Ný-
herja. Gagnabankinn verður
kynntur á fundinum í ráðstefnu-
sal Nýherja að Skaftahlíð 24.
Samkomur
Ráðstefna
Verkfræðingafélag íslands
heldur ráðstefnu í húsi Iðnaðar-
ins að Hallveigarstíg 1 í dag kl.
13. Umræðuefnið er „Framtíð
iðnaðarins á íslandi."
Kirkjufélag
Kirkjufélag Digranespresta-
kalls heldur opinn fund í dag kl.
20.30 í safnaðarheimili Digra-
neskirkju. Ræðumaður kvölds-
ins verður Haraldur Ólafsson
prófessor. Einsöng syngur Katla
Björk Rannversdóttir og helgi-
stund verður í umsjá séra Gunn-
ars Sigurjónssonar.
Kvenfélag
Kvenfélag Kópavogs er með
hattafund í dag kl. 20.30 í félags-
heimilinu 1. hæð. Sýndar verða
gamlar myndir og það nýjasta í
ávaxta- og blómaskreytingum.
og skipting landsins í
Norðurlandshérað
eystra
Norðurlandshéraö
vestra
■
Austuriandshérað
Vesturlandshéraö
Reykjavíkurhérað
Ji J
Reykjaneshérað q
Suðurlandshérað
Kaffi Oliver:
Beaverly Brothers
í kvöld mun nýr dúett, sem
kallar sig Beaverly Brothers,
spila á Kaffi Oliver við Ingólfs-
stræti. Annar helmigur Bea-
verly Brothers er Björn Jörund-
ur sem hefur verið hvað þekkt-
astur fyrir skemmtilega sviðs-
framkomu með hljómsveitinni
Nýrri danskri og fvrir leik sinn
á sviði í Rocky Horror rokkóp-
erunni.
Skemmtanir
Hinn hluti dúettsins er Ric-
hard Scobie, landskunnur trú-
bador, gamall meðlimur Riks-
haw og sveitarinnar Loðin
rotta. Þeir félagar munu verða á
léttu nótunum og spila óraf-
magnað og er tónlistarval þeirra
úr öllum áttum. Þetta er uppá-
koma sem unnendur góðrar tón-
listar hafa eflaust gaman af.
í kvöld mun nýr dúett, sem kallar sig Beaverly Brothers, spila á Kaffi Oliver
við Ingólfsstræti.
Þungfært
á Vest-
fjörðum
Á Holtavörðuheiði og Bröttu-
brekku gengur á með dimmum élj-
um og þar er hálka. Á Vestfjörðum
er þungfært um hálsana í Barða-
Færð á vegum
strandarsýslu en á norðanverðum
fjörðunum er snjór á vegum og
nokkur hálka og skafrenningur og
þungfært á Steingrímsfjarðarheiði.
Norðan- og norðaustanlands er víða
éljagangur og hálka á vegum. Ann-
ars er víðast góð færð á vegum.
13 Hálka og snjór 0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
Q) LokaðrStOÖU ® Þungfært (g) Fært fjallabílum
Bróðir
Helga Þórs
Þessi ungi sveinn, sem fæddist
klukkan 19.00 að kvöldi sunnudags-
ins 14. apríl, svaf vært þegar ljós-
myndari smellti af honum mynd.
Barn dagsins
Hann reyndist vera stór eftir aldri,
58 sm á lengd og vó 4.210 grömm
við fæðingu. Foreldrar hans eru
Berglind Helgadóttir og Jóhann
Stefánsson og eiga þau fyrir soninn
Helga Þór sem er 4 ára.
Bréfberinn er leikinn af Massimo
Troisi.
II
Postino
Bíóhöllin sýnir myndina II
Postino eða bréfberann sem til-
nefnd var til fimm óskarsverð-
launa. II Postino hefur vakið
mikla hrifningu þar sem hún
hefur verið tekin til sýningar.
Hún segir frá ljóðskáldinu
Pablo Neruda sem hverfur í út-
legð frá heimalandi sínu Chile
árið 1962 í kjölfar pólitískra of-
Kvikmyndir
sókna. Hann sest að í smábæ
undan ströndum Napolí. Hann
fær sendan mikinn fjölda bréfa
daglega og veldur það yfirvöld-
um áhyggjum. Er brugðið á það
ráð að ráða sjómann tímabundið
í stöðu bréfbera og kynni hans
og ljóðskáldsins verða náin. Mik-
ill vinskapur myndast milli
þeirra sem verður með tímanum
í formi læriföður og nemanda.
Bréfberinn var leikinn af
Massimo Troisi sem tilnefndur
var til Óskarsverðlauna fyrir
leik sinn en hann dó úr
hjartaslagi daginn eftir að tök-
um á myndinni lauk.
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 77 18. apríl 1996 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Toliqenqi
Dollar 66,680 67,020 66,630
Pund 100,720 101,230 101,200
Kan. dollar 49,090 49,390 48,890
Dönsk kr. 11,4850 11,5460 11,6250
Norsk kr. 10,2700. 10,3270 10,3260
Sænsk kr. 9,8820 9,9360 9,9790
Fi. mark 14,0980 14,1810 14,3190
Fra. franki 13,0460 13,1210 13,1530
Belg. franki 2,1576 2,1706 2,1854
Sviss. franki 54,4500 54,7500 55,5700
Holl. gyllini 39,6500 39,8900 40,1300
Þýskt mark 44,3500 44,5800 44,8700
ít. lira 0,04231 0,04257 0,04226
Aust. sch. 6,3020 6,3410 6,3850
Port. escudo 0,4319 0,4345 0,4346
Spá. peseti 0,5314 0,5347 0,5340
Jap. yen 0,61780 0,62160 0,62540
írskt pund 104,220 104,870 104,310
SDR/t 96,46000 97,04000 97,15000
ECU/t 82,9300 83,4300 83,3800
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Krossgátan
Lárétt: 1 fljótlega, 6 hús, 8 fisk, 9
ræna, 10 kerald, 11 finleg, 13 gremj-
ist, 16 traustan, 8 bjór, 19 hár, 20
Bandaríkjamaður, 21 orka.
Lóðrétt: 1 vindur, 2 rekkja, 3 fyrr-
um, 4 kaggi, 5 spara, 6 skip, 7 pípa,
12 álitin, 14 snemma, 15 skökk, 17
varg, 20 lengdarmál.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 ys, 3 brand, 8 mærin, 9 óa,
10 hlessa, 11 Edda, 12 vol, 14 ló, 16
drífa, 17 snattar, 19 sveina.
Lóðrétt: 1 ym, 2 sæld, 3 bredda, 4
risar, 5 ansvíti, 6 nóa, 7 dallar, 10
helsi, 13 ofan, 15 óns, 18 te.