Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1996, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1996 Fréttir DV Ríkissaksóknari ákærir fyrrum gjaldkera Heilsugæslunnar við Barónsstíg: Dró sér 1,4 milljónir af gjöldum sjúklinga - bar ábyrgð á komugjöldum og greiðslum fyrir aðgerðir og rannsóknir Tæplega fertug kona hefur verið ákærð fyrir að hafa sem gjaldkeri dregið sér tæplega 1,4 milljónir króna úr sjóðum stjómsýslu Heilsu- gæslunnar við Barónsstíg. Þess er krafist, auk refsingar, að konan endurgreiði féð en hún hefur ekki gert skil á þeim fjármunum sem hún viðurkenndi að hafa dregið sér. Athæfi konunnar uppgötvaðist sumarið 1994 þegar hún var í fríi frá störfum sínum sem gjaldkeri. Þá kom í ljós að hún hafði skilið eftir miða sem eins konar skuldaviður- kenningu vegna peninga sem hún hafði tekið. Endurskoðandi fór sið- an yfir málið og kom þá í ljós að konan var grunuð um að hafa dreg- ið sér tæplega 1,4 milljónir króna. í kjölfar þessa var haft samband við konuna sem viðurkenndi nánast strax að hafa dregið sér umrædda peninga sem gjaldkeri. Fjárdráttur- inn stóð yfir frá því haustið 1993 þar' til í ágúst 1994. Um sjóði Heiisugæslunnar fara m.a. komugjöld sjúklinga og annast Heilsuverndarstöðin framkvæmda- stjóm fyrir 8 heilsugæslustöðvar I Reykjavík. Á öllum stöðum er tekið viö komugjöldum, gjöldum fyrir rannsóknir, ýmsar aðgerðir og fleira. Guðmundur Einarsson, forstjóri Heilsugæslunnar í Reykjavík, sagði í samtali við DV að konunni hefði verið vikið úr starfi eftir að upp komst um fjárdráttinn. Henni var gefið.svigrúm til að greiða til baka það fé sem hún hafði tekið en þegar loforð um slíkt vom ekki efnd var ákveðið að kæra málið til lögreglu - kærandinn var stjórnunarsvið Heilsuvemdarstöðvarinnar og barst kæran td Rannsóknarlögreglu ríkis- ins í mars 1995. Konan viðurkenndi að fuliu það sem hún var grunuð um. Ríkissaksóknari gefur konunni að sök að hafa dregið sér féð og nýtt það í eigin þágu. -Ótt Bíllinn er svo illa farinn að vart svarar kostnaði að gera hann upp. Nær allar rúður eru brotnar og hliðarnar mikið beyglaðar eftir spörk. DV-mynd GVA Bíll eyðilagöur af hópi skemmdarvarga í miðbæ Reykjavíkur: Sátu í bílnum meðan rúðurnar voru brotnar virtust þurfa að fá útrás á einhverju, segir einn sjónarvotta Árásin var gerð á Essó-planinu milli Tryggvagötu og Geirsgötu að- „Þeir virtust þurfa að fá útrás á einhverju eða einhverjum. Við frétt- um síöar að þessi hópur hefði átt í útistöðum við aðra í miðbænum þessa nótt,“ segir piltur úr hópi fimm unglinga, sem urðu fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu í miðbæ Reykjavíkur að bBl þeirra var eyði- lagður. Þrír sátu í bílnum þegar hann var lagður í rúst. Krakkamir vilja ekki láta nafna sinna getið af ótta við hefndarað- gerðir en skemmdarvargarnir voru milli 50 og 60 að því er þeim telst tU. Þeir voru allir á þrítugsaldri. „Ég vissi ekki hvað ég átti að gera. Þeir byrjuðu bara aö berja í rúðurn- ar og svo brotnuðu þær,“ segir sá sem sat undir stýri meðan árásin var gerð. Hann slapp ómeiddur en sá sem sat við hlið hans skarst lítillega þegar hann fékk glerbrot í sig. Auk þess að brjóta nær aUar rúð- ur í bílnum var hann mikið beyglað- ur og bæði afturljósin brotin eftir spörk. Bíllinn hafði verið í eigu fjöl- skyldu bílstjórans í fimm mánuði. Skemmdirnar em það miklar að vart svarar kostnaði að gera upp flakið. Það þarf að rétta mikið á báðum hliðum, setja í rúður og ljós og sprauta bUinn að nýju. faranótt 1. maí. Þá var fjölmenni hvað mest í miðbænum en sá hópur sem réðst á bílinn tilheyrði ekki skólakrökkum að fagna próflokum. BUstjórinn stöðvaði bílinn á plan- inu og ætlaði að taka tvo vini sína upp í. Þeir komust þó ekki inn en urðu sjónarvottar að því sem gerðist. Þeir segjast munu þekkja árásar- mennina aftur en lýsa jafnframt eft- ir vitnum sem gætu borið kennsl á þá. Eru hugsanlegir sjónarvottar beðnir að hafa samband við lögregl- una í Reykjavík. -GK Læknis- og lyfjakostnaður: Auknar endur- greiðslur til þeirra sem minnst hafa - greitt fjórmn sinnum á ári Heilbrigðis- og tryggingamál- ráðuneytið gaf nú um mánaða- mótin út breytingar á reglugerð nr. 59/1996 um heimUisuppbót, sérstaka heimilisuppbót og frekari uppbætur samkvæmt 9. og 10. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð og á reglum nr. 231/1993 um endurgreiðslu á umtalsverðum útgjöldum sjúkratryggðra vegna læknis- hjálpar og lyfja með síðari breytingum. Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðis- og tryggingamálaráð- herra leitaði f mars sl. eftir samráði við samtök aldraðra og öryrkja um með hvaða hætti bæta mætti hag þeirra sem búa við lökust kjör. Breytingamar miða að því að gera endurgreiðslu lyfja og lækniskostnaðar fljótvirkari en nú er, auka rétt bamafólks tU endurgreiðslu lyfja og lækka þá fjárhæð sem hinir tekjulægstu þurfa að greiða áður en þeir eiga rétt á endurgreiðslu. Heim- ilt er að hækka frekari uppbæt- ur hjá þeim sem njóta umönn- unar og þeim sem njóta sér- stakrar heimUisuppbótar. Á næstu fjórum mánuðum verða reglurnar endurskoöaðar. Endurgreiðslan fer sam- kvæmt nýju reglunum fram fjórum sinnum á ári í stað tvisvar áður og er 60-90% af kostnaði umfram gmnnkostn- að. Ráðherra sagði, þegar þessar breytingar voru kynntar, að )ær myndu breyta miklu fyrir mjög marga. -ÞK Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já 1] Nei 2} ,r ö d i FOLKSINS 904-1600 t >« Er 1. maí úreltur sem baráttudagur? Höfn-Þríhyrningur á Hellu: Vörutalning 1. maí Vörutalning var gerð fyrsta maí hjá Höfn-Þríhymingi á HeUu. „Það er bara verið að átta sig á árangrin- um fyrstu fjóra mánuði ársins,“ seg- ir Gestur Hjaltason, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, við DV. Gestur segir að gerðar hafi verið talsverðar breytingar í rekstri og þó einkum .í innkaupum frá betri og ódýrari birgjum. „Þær breytingar komust á í mars og við vildum sjá hvemig staðan væri nákvæmlega nú og hvernig vörurnar seljast," segir Gestur. Höfn-Þríhyrningur kaupir nú einkanlega inn hjá Baugi, fyrirtæki Hagkaups og Bónuss, og njóta viðskiptavinir fyrirtækisins hagstæðra innkaupa þess í vöru- verði að sögn Gests. „Þeir sem tóku þátt í talningunni tóku þátt af fús- um og frjálsum vilja og enginn var þvingaður." -SÁ Stuttar fréttir RÚV án auglýsinga Starfshópur um endurskoðun útvarpslaga leggur til að Ríkisútvarpið hverfi af auglýsingamarkaði og tekinn verði upp nefskattur í stað afnotagjalda. Samið um síldina Verið er að reyna að ná samningum strandríkjanna fjögurra sem hagsmuna eiga að gæta um skiptingu veiða úr norsk- íslenska síldarstofninum áður en íslensk skip hefja veiðamar í næstu viku. RÚV greindi frá þessu. Miklagarði greitt Kaupfélag Eyfirðinga og Samvinnusjóður íslands eiga að greiða þrotabúi Miklagarðs samtals 37 milljónir króna, samkvæmt dómi Hæstaréttar í gær. Samkvæmt RÚV hefur þrotabúið þar með unnið tæplega 30 riftunarmál. Sjálfstæður sjóður Samkvæmt frumvarpi sem kynnt var í ríkisstjórn í gær verður Ofanflóðasjóði tryggður sjálfstæður tekjustofn og honum heimilt að taka lán vegna aðkallandi snjóflóðavama. Selt í Jarðborunum Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra fékk í gær heimild ríkisstjómarinnar til að selja hlut 28% ríkisins í Jarðborunum hf. Samkvæmt RÚV ætlar Reykjavíkurborg að selja hluta af sínum þriðjungshlut í fyrirtækinu. Uppsagnir hjá KEA Öllu starfsfólki Vöruhúss KEA á Akureyri, 20 að tölu, hefur verið sagt upp störfum en á aðalfundi KEA nýlega var ákveðið aö leggja starfsemi vöruhússins niður vegna rekstrarörðugleika. Hagnaður hjá Samskip Rekstrarhagnaður Samskipa nam 183 milljónum króna í fyrra og var rúmum 100 milljónum betri en 1994. Borgin getur tapað Reykjavíkurborg getur tapað 170 milljónum á ári ef stjómarfrum- varp um skattlagningu fjár- magnstekna verður samþykkt óbreytt. Tíminn greindi frá. Tilraun með kornrækt Tilraun með kornrækt er hafln á Ökmm á Mýrum, skv. Mogga, og er hún liður í stærri kornræktartil- raun í Borgarfirði. í opinberri heimsókn Forsætisráðherra fór í gær til Sví- þjóðar til að sitja leiðtogafund Eystrasaltsráðsins. Þaðan fer hann í öpinbera heimsókn'til Eistlands. -bjb/-GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.