Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1996, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1996
7
I>V
Fréttir
Liður í landskeppni á laugardaginn:
Hjólreiðakeppi
12 ára barna
í Perlunni
- DV tekur á móti sögum iirn TiCTrQ 1 Mmfowsinní
Umferðarráð 1 samvinnu við lög-
reglu og Bindindisfélag ökumanna
stendur fyrir hjólreiðakeppni fyrir
utan Perluna laugardaginn 4. maí
klukkan 10-12. Þetta er liður í land-
skeppni sem hefur verið í gangi
undanfarna daga. Keppt er í fimm
riðlum um allt land og er keppt í
Suðvesturlandsriðlinum á laugar-
daginn. Keppnin er fyrir alla
krakka í 7. bekk grunnskóla, þ.e. 12
ára.
Krakkaklúbbur DV verður á
sama tíma með bás í Perlunni á 4.
hæð og verður hægt að skila þangað
sögum í smásagnasamkeppni um
Tígra í umferðinni. Einnig er hægt
að fá þátttökugögn en skilafrestur
er til mánudagsins 6. maí. Sögurnar
er enn fremur hægt að senda til
Krakkaklúbbs DV, Þverholti 14, 105
Reykjavík, og Umferðarráðs, Borg-
artúni 33, 150 Reykjavík.
Margar skemmtilegar sögur háfa
borist og allir þeir sem senda sögu
fá glæsileg verðlaun.
Tígri, lukkudýr Krakkaklúbbsins,
kemur á svæðið klukkan 11.30 og
heilsar upp á krakkana og gefur
nammi. -ÞK
Hjólreiðakeppni verður haldin í
Perlunni á laugardaginn. Nú fer hver
að verða síðastur að senda sögu í
smásagnasamkeppnina Tígri í um-
ferðinni þar sem síðasti skiladagur
er mánudagurinn 6. maí.DV-mynd S
Margrét Guðmundsdóttir, Guðrún Þ. Stephensen,
Sigurveig Jónsdóttir, Bessi Bjarnason, Þóra Friðriksdóttir.
SÝNINGUM FER FÆKKANDI
á þessu hugljúfa og gamansama verki. ÞJÓDLEIKHÚSID
Uppselt hefúr verið frá frumsýningu, á yfir 30 sýningar. sími 551 1200
Panasonicdagar
ekki missa af þeim!
sjónvörp • Ferðageislaspilarar
HiFi myndbandstæki • hljómtækjasamstæður
bílgeislaspilarar • rafmagnsrakvélar
geislaspilarar • vasaútvörp • örbylgjuofnar
JAPIS
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI