Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1996, Side 13
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1996
13
PV______________________________Fréttir
Minnisvarðinn um
Stephan G. á Arnar-
stapa lagfærður
- Ferðamálasjóöur hafnaði beiðni um styrk
ÖS ■
Amerísk gæða
framleiðsla
White-Westinghouse
DV, Fljótum:
Stjórn Ungmennasambands
Skagafjaröar hefur í hyggju að láta
gera viö minnisvarðann um Steph-
an G. Stephansson á Arnarstapa í
Skagafiröi í sumar. Sambandið leit-
ar nú eftir fjárstuöningi við fram-
Guðmundur Ingimarsson, formaður UMSS, við minnisvarðann á Arnarstapa.
DV-mynd Örn
Grindavíkurhöfn:
Rífandi gangur hjá
Færeyingunum
DV, Suöurnesjum:
„Þetta gengur alveg ótrúlega vel.
Þeir moka þessu upp og ekkert hefur
þurft að sprengja enn sem komið er.
Engin fyrirstaða verið,“ sagði Jón
Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri í
Grindavík, í samtali við DV.
Nú standa yfir dýpkunaraðgerðir í
Grindavík sem hafa gengið betur en
nokkur þorði að vona. Það eru Fær-
eyingar sem vinna verkið og verður
dýpkað á 12 þúsund fermetra svæði
innan hafnarinnar. Verkinu á að
verka lokið fyrir 1. september næst-
komandi.
„Um 15% verksins hefur verið lok-
ið á tveimur fyrstu vikunum og það
lofar mjög góðu og vonandi verður
áframhaldið eins,“ sagði Jón Gunnar
og er greinilega mjög ánægður með
vinnu Færeyinganna. -ÆMK
Grindavíkurhöfn dýpkuð.
DV-mynd ÆMK
kvæmdina sem fyrirsjáanlegt er að
verður taisvert kostnaðarsöm.
Það urðu forsvarsmönnum UMSS
mikil vonbrigði að stjórn Ferða-
málasjóðs hafnaði fyrir skömmu
beiðni um fjárstyrk til að viðgerðar
á minnisvarðanum en einnig á að
lagfæra umhverfi hans, gera þar
göngustíga og aðstöðu svo fólk geti
tyllt sér niður, en talsvert er um að
ferðafólk stansi við minnisvarðann.
„Þessi niðurstaða Ferðamálasjóðs
er okkur hjá UMSS mikil von-
brigði," sagði Guðmundur Ingi-
marsson, formaður UMSS. „Það hef-
ur legið fyrir í nokkur ár að nauð-
synlegt væri að ráðast í viðgerð á
minnisvarðanum og umhverfi, ekki
síst með tilliti til vaxandi ferða-
mannastraums. UMSS hefur látið
gera kostnaðaráætlun sem hljóðar
upp á 1,8 millj. króna.
Við höfum fengið vilyrði um 300
þús. krónur frá Héraðsnefnd Skag-
firðinga og gerðum okkur vonir um
stuðning frá ferðamálasamtökun-
um. Nú er þetta hins vegar allt í
óvissu þar sem sambandið sjálft hef-
ur ekki fjárhagslegt bolmagn til að
leggja nema lítinn pening í þetta.
Okkar framlag verður að mestu
fólgið í vinnu. En við gerum okkur
þó vonir um að Vegagerðin taki ein-
hvern þátt í gerð göngustíga þótt
engin loforð liggi fyrir um slíkt
enn,“ sagði Guðmundur.
Leitt er ef ekki verður hægt að
ráðast í viðgerðina sem fyrst því bú-
ast má við að fjöldi Vestur-íslend-
inga leggi leið sína í Skagafjörð í
sumar í tengslum við opnun Vestur-
farasafnsins á Hofsósi og er ekki
ósennilegt að gestirnir úr Vestur-
heimi muni staldra við minnisvarð-
ann um þjóðskáldið á ferð sinni um
héraðið. -ÖÞ
• 75 - 450 lítrar
• Stillanlegur vatnshiti
• Tveir hitastillar
• Tvö element
• Glerungshúð að innan
• Öryggisventill
• Einstefnulokar
• Frí heimsending í Rvk.
og nágrenni
VISA - EURO - RADGREIÐSLUR
jyiL 20
y RAFVÖRUR
ÁRMÚLI 5 • 108 RVK • SÍMI 568 6411
DV
í samstarfi við
Smásagnakeppni um
Tígra í umferðinni
Allir fá verðlaun! --
Allir sem senda inn sögur fá að gjöf teinaglit á reiðhjólið.
50 sögur verða valdar og gefnar út í bók, Tígrabókinni. Þeir sem eiga
sögu í bókinni eiga möguleika á að vinna reiðhjólahjálm frá
versluninni Markinu, Armúla 40.
AMRKjD
— *
KrakkarJ
Munið að senda inn sögur um
Tígra í umferðinni fyrir 6. maí.
Til að skila inn sögum getið þið komið
við í Tígrabásnum í Perlunni, 4. hæð, á
laugaraag frá kl. 10-12 Einnig getið þið
sent okkur sögurnar í pósti, merktar:
Krakkaklúbbur DV, Þverholti 14, 105
Reykjavík, Einnig er tekið við sögum
hjá Umferðarráði, Borgartúni 33,
Reykjavík
Það er leikur að skrifa um
í umferðinni.
||wnERÐAR og ^ lögregluna