Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Side 2
kágfa
fréttir
LAUGARDAGUR 4. MAI 1996
Bakteríusýking á Landspítalanum:
Sykill i mjuksapu
- allri mjúksápu útrýmt í snatri og venjuleg handsápa tekin í notkun á ný
Sýking hefur komið upp á Land-
spítala og er hún rakin til sýkils í
mjúksápu, fljótandi handþvott-
asápu, sem er við flestar handlaug-
ar og á snyrtiherbergjum spítalans.
Að sögn Karls G. Kristinssonar,
sýklafræðings og formanns sýkla-
varnanefndar Ríkisspítala, hefur
sýkillinn greinst í sápuleginum
sjálfum, bæði inni á spítalanum. en
einnig hjá framleiðanda sápunnar.
Mjúksápan var snarlega tekin úr
Flug frá Skotlandi:
Álftirnar fóru
nákvæmlega
sömu leið
Álftirnar Jón Gunnar og Ingólfur,
sem bera gervihnattasenda þannig
að hægt er að fylgjast með ferðum
þeirra, komu til landsins i síðasta
mánuði eftir giftusamlegt flug yfir
hafið. Athyglisvert er að þær flugu
báðar sömu leiðina.
Síðastliðinn vetur héldu báðar
álftirnar til í Caerlaverock í
Skotlandi en þar er friðland fyrir
fugla. Ólafur Einarsson, líffræðing-
ur hjá Náttúrufræðistofnun Islands,
fylgdist með flugi álftanna.
Ingólfur lagði af stað frá vetrardv-
alarstað sínum þann 29. mars og fór
í fyrsta áfanga til Suðureyja. 31.
mars lagði hann af stað þaðan og fór
beina leið á Breiðamerkursand og
var kominn þangað síðdegis 1. apr-
íl. Næsta dag fór hann í Þykkvabæ-
inn þar sem hann hefur haldið til
síðan.
Jón Gunnar hins vegar fór frá
sama stað í Skotlandi til Suðureyja
5. apríl. Þann 6. apríl lagði hann af
stað til íslands en var lengur á leið-
inni en Ingólfur því hann tók land á
Breiðamerkursandi 8. apríl. Eins og
Ingólfur fór Jón Gunnar næsta dag
austur í Álftafjörð og hefúr verið
þar síðan.
Báðar álftirnar flugu lágflug, í
innan við 100 metra hæð. -ÞK
Alftir á ferð og flugi
..
ÍSLAND
Jón Gunnar fór
Ingólfur fór svo baginn eftir
daginn eftir í ; austur í Alftafjörð.
Þykkvabæinn.
Flugu svo beina leið
á Breiðamerkursand.
Ingólfur kom 1. apríl e
Jón Gunnar 8. apríl.
Fóru báöar til Suður-
eyja í fyrsta áfanga. * •»
Færeyjar
’.Skotland
N-irland vCaerlaverock
ÍRLAND '
Wa|es BRETLAND
Alftirnar Ingólfur og
Jón Gunnar fóru héðan
29. mars og 5. apríl.
DV
umferð á sjúkrastofnunum Ríkis-
spítala þegar sýkingin uppgötvaðist.
í stað hennar hefur verið sett venju-
leg handsápa. „Það hefur verið
ákveðið að hætta að nota þessa sápu
og verið að skoða aðra möguleika,"
segir Karl G. Kristinsson. Hann seg-
ir að þetta „líf ‘ í sápunni hafi kom-
ið verulega á óvart, ekki síst hversu
mikið sýklamagnið reyndist vera,
en fæstir gera sér í hugarlund að
sápulögur sé smitberi.
Karl segir að ekki sé ætlast til að
sápur séu algjörlega lausar við bakt-
eríur, enda engin þörf á því í sjálfu
sér. Hins vegar sé sífellt verið að
finna sápur sem valda ekki ofnæmi
og eru ekki ertandi og í þeim til-
gangi séu rotvarnarefni og sótt-
hreinsandi efni spöruð meir og meir
við framleiðsluna. Það hafi svo í fór
með sér aukna hættu á bakteríu-
gróðri í sápunni.
Samkvæmt heimildum DV þótti í
fyrstunni líklegt að sýkingin hefði
borist á brúsana og dreifst þaðan
um spítalann þegar fyllt var á þá,
fremur en að sýkillinn hafi komið
inn á spítalann í sjálfri sápunni.
Mjúksápan var við handlaugarnar í
litlum brúsum með dælu. Þeir eru
margnota og fyllt var á þá daglega.
í stað mjúksápunnar eru nú kom-
in venjuleg litil sápustykki, eins og
tíðkast á hótelum, og er skipt um
sápustykkin daglega. -SÁ
Lárus Kristmundsson, bóndi á Efri-Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd, með lömbin sem minkurinn beit. Minkurinn
er talinn hafa sloppið úr minkabúi en hann bítur ekki fleiri lömb, hunda eða fugla úr þessu. DV-mynd ÞÖK
Minkur bítur lömb
Minkur beit tvö lömb á túninu við
bæinn Efri-Brunnastaði á Vatns-
leysuströnd þann fyrsta maí.
„Ég horfði á þegar minkurinn beit
lömbin, hann skaust svo inn í holu og
ég náði í byssu og skaut hann,“ sagði
Lárus Kristmundsson, bóndi á Efri-
Brunnastöðum.
Lárus taldi ekki víst að lömbin
næðu sér og verið gæti að þyrfti að af-
lífa þau. Þau eru það illa farin að þau
eiga erfit með að standa í fæturna.
„Þetta eru tvílembingar, minkur-
inn beit annað í afturfætur og hitt í
framfætur. Þau eru ekki brotin en ég
er hræddur um að illt sé að koma í
sárin,“ sagði Lárus.
Hann taldi að þetta væri búrmink-
ur sem hefði sloppið af einhverju búi,
hann væri svartur og öðruvísi en þeir
villtu.
Áður en minkurinn beit lömbin
hafði hann bitið heimilishundinn við
auga og einnig hafði Lárus orðið var
við að hann dræpi fugla. Minkurinn
hafði verið viðloðandi bæinn í
nokkra daga -ÞK
Salmonellusýkingin á bolludag:
8 milljóna skaða
bótakrafa
- bíðum viðbragða Samsölubakarísins, segir aðstoðarforstj óri Ríkisspítala
„Það er búið að taka saman
kostnað Ríkisspítala vegna salmon-
ellusýkingarinnar á bolludag og
hann reyndist rúmar átta milljónir
króná. Við höfum snúið okkur til
Samsölubakarísins og óskað eftir að
fá þennan kostnað greiddan," segir
Ingólfur Þórisson, aðstoðarforstjóri
Ríkisspítala, við DV.
Ingólfur segir að nú sé beðið við-
bragða Samsölubakarísins og það sé
undir því komið hver þau verða,
hvort höfðað verður skaðabótamál á
hendur bakaríinu eða ekki.
-SÁ
NIÐURSTAÐA
Er 1. maí úreltur sem
baráttudagur?
—
,r ö d d
FOLKSINS
904-1600
Nei
Þú getur svarað þessari
spurningu með því að
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já _3Lj
Nei JjJ
,r 5 d d
FOLKSINS
904-1600
Á ríkið að fjármagna baráttu
Sophiu Hansen?
stuttar fréttir
Menntamálanefnd
klofln
Menntamálanefnd Alþingis er
| klofin í afstöðu til frumvarps um
1 framhaldsskóla. Stjórnarþing-
menn vilja að kennsludagar verði
145, kveðið á um innritunargjöld
og kennarar gefi umsögn fyrir
samþykkt námsskrár, skv. RÚV.
Vilja skattaafslátt
Þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa
lagt fram frumvarp og vilja að
inneign á hússnæðissparnað-
arreikningum veiti skattaafslátt.
Slíkur afsláttur verður afnuminn
um áramót. RÚV sagði frá.
Síldin komin
á sunnudag
Fyrstu göngur norsk-islensku síld-
arinnar verða trúlega komnar inn
í lögsöguna á sunnudag þegar síld-
arrannsóknir hefjast. Útvarpið
greindi frá.
Styrkja sumar-
ráðningar
Borgaryfirvöld ætla að styrkja fyr-
irtæki og stofnanir til aö ráöa 16,
17, og 18 ára skólakrakka í vinnu
í sumar. Bændur geta einnig sótt
um styrk.
Fjallað um vinnu-
skólann
Umboðsmaður barna vill að nefnd
fjalli um málefni vinnuskólans
með tilliti til hagsmuna, þarfa og
réttinda barna því þessi starfsemi
verði æ mikilvægari.
Leggja niður vinnu
Dagsbrún hvetur félagsmenn sina
til aö leggja niður vinnu daginn
sem atkvæði verða greidd um
frumvarp um samskipti á vinnu-
markaði.
Samning gegn
mengun
Umhverfisráðherra hvatti til al-
þjóðasamninga gegn mengun af
völdum þrávirkra lífrænna efha á
fundi í New York.
Stórkaupmenn
andvígir
Stórkaupmenn eru andvígir fram-
! komnu frumvarpi um breytingar
á vörugjöldum m.a. vegna þess að
það mismunar atvinnugreinum.
Frosti ráðinn forstjóri
Nýherji hefur ráðið Frosta Sig-
urjónsson rekstrarhagfræðing í
stöðu forstjóra frá 15. maí.
Upplagseftirlit
Hljómplötuframleiðendur hafa
falið Hagvangi að annast upplags-
eftirlit. Félagsmenn eiga 95%
markaðshlutdeild.
Bann við jarðsprengjum
íslendingar eiga aðild að nýjum 55
ríkja sáttmála um bann við jarð-
sprengjum sem staðfestur var í
gær. Utvarpið sagði frá.
Opnar skrifstofu
Pétur Kr. Hafstein opnar í dag
upplýsingaskrifstofu að Austur-
stræti 14. Þar verður létt stemning
og lifandi tónlist í dag.
Fá hjálma og veifur
AUir sjö ára Akureyringar fá gef-
ins reiðhjólahjálma og öryggi-
sveifur á reiðhjól hjá Kíwanis-
klúbbnum Kaldbak í dag.
Sportklifurfélag stofnað
Sportklifurfélag Reykjavikur hef-
ur verið stofnað. Fyrsti félags-
fundurinn verður haldinn á mið-
vikudag.
Allir fá vinning
Allir fá vinning í happdrætti
SlBS. I ágúst fá öll númer ljós-
prentaða bók með handskrifuðuin
verkum 124 skálda. -GHS
Einu ekki of fj
I frásögn af samkomu ung’
miðbæ Reykjavíkur að loknur
ræmdu prófunum vantaði eil
þegar sagt var frá hópi
stúlkna sem þar voru. Stúll
höfðu ekki neytt áfengis og er
velvirðingar á mistökunum.