Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Síða 4
Grindavík PV Samstarf LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996 Háskalegt atvik á gæsluvelli í Kópavogi: Smábarn yfirgefið - starfsfólkið farið í mat þegar móðirin kom að sækja barnið Tveir leikir í einu - í beinni útsendingu á Stöð 3 Þórkötlu Ragnarsdóttur, móður tæplega þriggja ára barns, brá held- ur betur í brún þegar hún kom á gæsluvöllinn við Álfabrekku og Efstahjalla í Kópavogi þremur til Qórum mínútum fyrir kl. 12 í fyrra- dag. „Dóttir mín, Alexandra Elva, var hágrátandi og hrædd eftir að hafa meitt sig, starfsmennirnir farn- ir i hádegismat og hliðið opið,“ seg- ir Þórkatla við DV Sem betur fer hafði önnur kona komið þarna að eftir að Alexandra Eva var orðin ein á gæsluvellinum og var að stumra yfir henni þegar Þórkötlu bar að. Þessi kona undrað- ist að finna yfirgefið og umsjárlaust barn á mannlausum gæsluvellinum. Þórkatla þakkar forsjóninni fyrir að þessi kona var þarna stödd því að annars hefði dóttir hennar hugsan- lega farið út á götuna og hæglega getað villst eða farið sér að voða. „Ég var stödd í húsi við Engihjall- ann og þegar ég lagði af stað að sækja Alexöndru Elvu vantaði klukkuna á eldhúsveggnum sjö mín- útur í tólf en gæsluvellinum er lok- að klukkan 12. Ég spurði konuna, sem var að hlynna að dóttur minni, hvað klukkan væri þegar ég kom þangað og þá vantaði hana tæpar fjórar mínútur í tólf,“ segir Þór- katla. Hún hefur kvartað undan þessu atviki við fóstrurnar sem voru á vakt á gæsluvellinum og þær svarað og sagst ekki hafa séð Al- exöndru Evu eða nokkurt annað barn þegar þær yfirgáfu völlinn. Barnið hljóti því að hafa verið inni í einu af leikfangahúsunum sem á vellinum eru. Ekki náðist í gær í félagsmála- stjóra Kópavogs né deildarstjóra gæsluvalla bæjarins vegna þessa máls en Sigurður Geirdal bæjar- stjóri sagðist mundu kanna málið en sér virtist að þama hefðu orðið mannleg mistök. „Almenn viðbrögð við svona er að gera könnun á starfsháttum og vinnureglum á þessum gæsluvelli og öðrum og at- huga hvernig þetta geröist og hvem- ig komið verði í veg fyrir að slíkt gerist aftur, á þessum gæsluvelli eða öðrum." -SÁ Margir knattspyrnuáhugamenn bíða spenntir eftir síðustu leikjun- um úr ensku úrvalsdeildinni næst- komandi sunnudag. Mikil barátta er milli Manchester Finnur Ingólfsson iönaöarráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Ingvar Vikt- United og Newcastle um Englands- orsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, undirrituðu viljayfirlýsinguna. DV-mynd S meistaratitUinn og mun Newcastle spila á heimavelli gegn Tottenham og Manchester United á útivelli gegn Middlesbro. Stöð 3 mun sýna báða leikina beint á sama tíma. Leikur Middles- bro og Manchester United veröur sýndur á hinni hefðbundnu rás Stöðvar 3 en leikur Newcastle og Tottenham veröur sýndur á rás Discovery. Leikirnir hefjast klukkan 15.00 og munu Geir Magnússon og Lárus Guðmundsson lýsa leikjunum. Forsetaframbjóðandinn Guðrún Agnarsdóttir býður kjósendum að kynnast sér nánar á nýrri heimasíðu á veraldarvefnum. Heimasíða Guðrúnar er aðgengi- leg á http:/www.saga.is/Gudr- un.Agnarsdottir. Heimasíðan mun veita ítarlegar upplýsingar um ævi, störf og stefnu Guðrúnar og áherslur hennar í kosn- ingabaráttunni. Hún mun einnig halda dagbók þar sem hún spjallar um daginn og veginn í kosninga- amstrinu og gefa fólki færi á að kom- ast í beint samband við sig. Á netinu mun hún taka þátt í beinu spjalli við kjósendur á hverjum miðvikudegi milli klukkan 18 og 19. Guðrún segist sjálf hafa notað Int- ernetið til að halda betri tengslum við skyldfólk og vini sem búa erlend- is auk samskipta við vinnufélaga. Hún telur að á sama hátt geti íslend- ingar með skynsamlegri nýtingu þessarar nýju tækni haídið nánum tengslum við aðrar þjóðir og skapað ný menningarleg tengsl og atvinnu- tækifæri ef rétt er á málum tekið. Netfang Guðrúnar er gudrun.agn- arsdottir@saga.is. -ÞK Keflavík V Jarðgufa í Trölladyngju Faxaflói Á þessu svæöi gæti reynst * 3/ hagkvæmt aö virkja jarögufu. Kleifarvatn Guðrún Agnarsdótt* ir með heimasíðu Þórkatla Elva, tæplega þriggja ára gömul, var skilin ein eftir á gæsluvelli í Kópavogi og var aðvífandi kona að stumra yfir henni grátandi og hræddri þegar móðir hennar kom að sækja hana - fjórum mínútum fyrir 12 í fyrradag. DV-mynd GS Pétur Kr. Hafstein hóf kosningabaráttu sína á Vestfjörðum: Troðfullt út úr dyrum á ísafirði Hvert sæti var skipað og troð- fullt út úr dyrum á fyrsta kosn- ingafundi Péturs Kr. Hafstein í stjórnsýsluhúsinu á Isafirði 1. maí - á hátíöisdegi verkalýðsins. Fyrr um daginn var Pétur viðstaddur 1. maí hátíðahöldin á ísafirði ásamt eiginkonu sinni, Ingu Ástu. Yfir 200 manns voru á fundinum í stjórnsýsluhúsinu, að sögn sýslu- mannsins í ísafjarðarsýslu. Pétur flutti ræðu og lagði áherslu á að embætti forseta Islands væri einn af hornsteinum íslenskrar stjórn- skipunar. Mikilvægt væri að for- setinn væri sameiningartákn og friðarafl í samfélaginu. Sjö ræðumenn tóku til máls, þeirra á meðal Pétur Bjarnason fræðslustjóri, Einar Jónatansson úr Bolungarvík og Baldur Bjarna- son úr Vigur. Kristján Haraldsson, framkvæmdastjóri Orkubús Vest- fjarða, var fundarstjóri. Pétur Kr. Hafstein hóf kosninga- baráttu sína til embættis forseta íslands á Vestfjörðum. Hann heim- sótti Súðavík, Bolungarvík, Suður- eyri og Þingeyri og á þriöjudags- kvöldið hlýddu þau Pétur og Inga Ásta á tónleika Jónasar Ingimund- arsonar á Flateyri. -ÞK í gufunni „Nauðsynlegar rannsóknir hafa ekki farið fram til að hægt sé að segja hve mikið er til af þessari orku og hvað hún gæti kostað," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri þegar hún gekk til und- irritunar á viljayfirlýsingu með Hafnfirðingum og iðnaðarráðuneyti um rannsóknir á jarðgufu í ná- grenni höfuðborgarsvæðisins. Viljayfirlýsingin var undirrituð á Grand Hótel Reykjavík í gær. Við undirritunina kom fram að einkum er horft til svæðisins umhverfis Trölladyngju í leit að virkjanlegri jarðgufu. Þaðan eru 12 kílómetrar til Straumsvíkur. Þá kom fram að bandarískt fyrir- tæki, Southern Paper, hefur spurst fyrir um nýtanlega jarðgufu fyrir pappírsverksmiðju. -GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.