Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Side 6
6
LAUGARDAGUR 4. MAÍ1996
Vonbrigði yfir nýrri samþykkt um notkun jarðsprengna:
Óskir um allsherjarbann
hunsaðar til ársins 2001
Ný alþjóðleg samþykkt um jarð-
sprengjur, sem 55 ríki samþykktu
formlega í gær, bannar notkun jarð-
sprengna sem ekki er hægt að finna
og beint er gegn mönnum. En sam-
þykktin leggur ekki algert bann við
notkun jarðsprengna eins og margir
höfðu vonað og ríkisstjórnir 34
landa, þar á meðal íslands, höfðu
kraflst.
Samþykkt sem gerð var á alþjóð-
legri ráðstefnu í Genf í gær var ætl-
að að endurskoða samþykkt Sam-
einuðu þjóðanna frá 1980 um notk-
un hefðbundinna vopna. Þó ekki
hefði verið lagt algert bann við
notkun jarðsprengna voru lagðar
verulegar hömlur á notkun nýrra
gerða þeirra. Þeir sem óskuðu eftir
algeru jarðsprengjubanni, þar á
meðal ríkin 34, Sameinuðu þjóðirn-
ar og Alþjóða Rauði krossinn, verða
að biða til ársins 2001 með að fá þær
óskir uppfylltar. Fyrst þá verður
samþykktin um notkun jarð-
sprengna aftur tekin til endurskoð-
unar.
Samþykktin þykir fara mjög
mildilega með þá sem enn eru
hlynntir notkun jarðsprengna.
Helstu atriði samþykktarinnar eru
þau að svokallaðar „dumb“ jarð-
sprengjur, sem beint er gegn fólki,
verða bannaðar. Nýjar jarðsprengj-
ur verða að innihalda að minnsta
kosti 8 grömm af járni svo þær megi
finna. Finnanlegar jarðsprengjur,
sem verða ekki sjálfkrafa óvirkar,
má einungis nota á afgirtum, merkt-
um eða vöktuðum svæðum. Sprengj-
ur sem komið er fyrir með þyrlum
eða slíkum tækjum skulu verða
óvirkar sjálfvirkt innan 30 daga.
Inn- og útflutningur bannaðra jarð-
sprengna er ekki leyfður. En þeim
ríkjum sem ekki telja sig geta farið
eftir samþykktinni strax er gefinn 9
ára aðlögunartími.
Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
lýsti yfir vonbrigðum með að krafan
um algert bann við jarðsprengjum
skyldi ekki fá hljómgrunn. Hann
sagði að þegar algert bann við jarð-
sprengjum yrði aftur á dagskrá
heföu þær orðið að minnsta kosti 54
þúsund manns að bana og um 80
þúsund manns hefðu hlotið örkuml.
Fulltrúar á ráðstefnunni samein-
uðust í einnar mínútu þögn tfl að
votta þeim 14 þúsund manns virð-
ingu sína sem talið er að hafi orðið
jarðsprengjum að bráð frá því ráð-
stefnan um jarðsprengjur var hald-
in í haust.
Jarðsprengjur særa eða örkumla
um 25 þúsund manns á ári hverju
en það samsvarar 20 manns á hverri
mínútu. Yfir 100 milljónir jarð-
sprengna liggja faldar í jörðu í 64
löndum um allan heim. Eru 3-7
miiljónir jarðsprengna í Evrópu,
þar af um 2 milljónir í ríkjum fyrr-
um Júgóslavíu.
Reuter
stuttar fréttir
Skæður skjálfti
Að minnsta kosti 8 fórust og
yfir 100 slösuðust í hörðum jarð-
skjálfta í Mongólíu í Kína.
Vonast eftir viðræðum
Boris Jeltsin Rússlandsforseti
vonast til að þríhliða viðræður
geti hafist við uppreisnarmenn í
Tsjetsjeníu.
Óttast um frið
Palestínumenn óttast um afdrif
friðarsamninga við ísraelsmenn
eftir að hinir síðarnefndu létu
vera að dagsetja brottflutning að
hluta frá borginni Hebron á Vest-
urbakkanum.
Evrópuher til Bosníu
IHans van den Broek, fram-
kvæmdastjóri utanríkismála hjá
Evrópusambandinu, leggur til að
Evrópuríki safni í her sem taki
við friðargæslu í Bosníu eftir að
hersveitir NATO fara þaðan.
IBarist í Líberíu
Hart var barist á götum Mon-
róvíu, höfuðborgar Liberíu.
Tvö kúariðutilfeili
Tvö tflfelli kúariðu hafa fund-
ist í Frakklandi.
Boðar umbætur
IJose Maria Aznar, verðandi
forsætisráðhera Spánar, boðaöi
miklar umbætur og græðslu sára
eftir borgarastríð.
Kærður fyrir káf
Fyrrum ritari leikarans Geor-
ge C. Scotts, 68, hefur kært hann
Ifyrir grófa kynferðislega áreitni
og vill draga hann fyrir rétt áöur
en hann deyr. Lögmenn Scotts
segja að réttarhöld muni ganga af
honum dauðum. Reuter
Erlendir markaðir:
Efnahagsbati
í Bandaríkjunum
Verð á hlutabréfum hrapaði, doll-
arinn féll og vextir hækkuðu í kaup-
höllinni í New York á fimmtudag.
Vextir hafa ekki verið svo háir í eitt
ár. Ástæðan fyrir þessum breyting-
um er fréttir um meiri efnahagsbata
en búist var við. Batinn mældist 2,8
prósentustig eða einu prósenti
meiri en hagfræðingar bjuggust við.
Breytingarnar í verðbréfavið-
skiptum í Bandaríkjunum höfðu
áhrif á viðskiptin í Lundúnum og
voru hlutabréfakaup lifleg. Hluta-
bréfaviðskiptin höfðu hins vegar
verið nokkuð stöðug þegar kaup-
höllin í Frankfurt lokaði. Hluta-
bréfavísitalan í Tokyo lækkaði á
fimmtudag.
Bensinverð á erlendum mörkuð-
um lækkaði um þrjá til fjóra dollara
tunnan í síðustu viku. Verö á hráol-
íu lækkaði einnig. Reuter
Bosnískur maður gerir hér jarðsprengju óvirka nærri flugvellinum í Sarajevo í gær. Hann er vinnur hjá einkafyrirtæki
sem tekur þátt í að hreinsa landið af jarðsprengjum. Mikill fjöldi jarðsprengna er eitt umfangsmesta vandamálið í
Bosníu eftir fjögurra ára ófrið. Símamynd Reuter
Major kokhraustur eftir tap
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, var kokhraustur eftir
ósigurinn í sveitarstjórnarkosning-
unum í gær og sagðist mundu halda
völdum alveg fram til þingkosninga
næsta vor. Sagði hann að þegar
Verkamannaflokkurinn færi að
skýra út fyrir kjósendum hvernig
hann hygðist fjármagna stefnuskrá
sína mundu þeir flykkjast til íhalds-
flokksins á ný. Hann benti ennfrem-
ur á að kjörsókn hefði aðeins verið
30 prósent í kosningunum nú og
hann væri þess fullviss að milljónir
kjósenda íhaldsflokksins mundu
ekki láta sig vanta í næstu þing-
kosningum.
. Um 3 þúsund manns voru í kjöri
í sveitarstjórnarkosningunum í
fyrradag. íhaldsmenn töpuðu tæp-
lega 600 fulltrúum, um helmingi
þeirra sæta sem flokkurinn hafði
fyrir kosningar. Fengu íhaldsmenn
færri fulltrúa kjörna en Frjálslyndir
demókratar. Verkamannaflokkur-
inn fékk 43 prósent atkvæðanna,
íhaldsflokkurinn 27 prósent og
Frjálslyndir demókratar 26 prósent.
íhaldsmenn viðurkenndu að úr-
slitin væru áfall en þó ekki eins
slæm og spáð hafði verið. Leiðin
lægi nú upp á við. Verkamanna-
flokkurinn hefði þegar „toppað" og
leiðin lægi aðeins niður á við fyrir
Tony Blair.
Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
6'100 5S57,15
F M A M
FT-SE 100
3800 /7^\
3700 3600^
3776,4
DV
Andófsmaður
biður fjölskyld-
unni vægðar
Kínverski andófsmaðurinn
( Liu Gang, sem flúið hefur til
| Bandaríkjanna undan ofsókn-
; um yfirvalda í heimalandinu,
vonar að kínversk yfirvöld láti
' fjölskyldu hans og vini í friði.
Gang, sem var einn aðalmaður-
inn í andófmu á Torgi hins
himneska friðar 1989, er nú
staddur hjá kunningjum í
Boston.
Gang segir að áður en hann
flúði Kína hafi hann verið fóm-
arlamb stanslausra ofsókna af
hálfu lögreglu sem elti hann
hvert sem hann fór, hleraði
símann, opnaði póst, ók utan í
bílinn hans á ferð og hindraði
hann á allan hátt. Fyrir flótt-
ann var Gang hundeltur þar
sem hann hafði hunsað ferða-
f bann yfirvalda.
Ellilífeyrisþeg-
ar gerðu aðsúg
að Jeltsín
Ellilífeyrisþegar í bænum
Jaroslavi, 250 km norðaustur af
Moskvu, veittu Jeltsín forseta
heldur óblíðar móttökur á
kosningaferðalagi hans í gær.
Geröu þeir aðsúg að honum
með hrópum þar sem þeir
höfðu ekki fengið greiddan líf-
eyri né ellilaun í marga mán-
uði. Þrátt fyrir kuldalegar mót-
tökur og forskot kommúnista
| var Jeltsín glaður í bragði en
1 brást óvkæða við þegar hann
var spurður hvort hann drægi
framboð sitt til baka.
Jeltsín hætti við að heim-
sækja borgina Vladimir í dag.
Ekki var gefið upp um ástæður
■ þess.
Fjöldamorðingi
líflátinn
Keith Wflliams, sem fundinn
var sekur um morð á tveimur
körlum og einni konu fyrir 18
árum, var tekinn af lífi í fang-
elsinu í San Quentin í Kaliforn-
! íu í gærmorgun. Var hann líf-
látinn með lyfjagjöf eftir að al-
ríkisdómstófl hafði synjað
■ áfrýjunarbeiðni.
Williams falsaði tékka 1976,
keypti bíl og ók að húsi þar sem
hann réðst inn og tók tvo menn
af lífi. Rændi hann konu á
heimilinu sem hann drap síðar
eftir að hafa nauðgað henni.
Talið er að 75 fangar verði líf-
látnir í Bandaríkjunum í ár en
56 voru líflátnir í fyrra. Hæsti-
réttur Bandaríkjanna bannaði
dauðarefsingu 1972 en fjórum
árum síðar úrskurðaði réttur-
inn að ríki gætu tekið hana upp
aftur, sem flest þeirra gerðu.
Hákarlar og
sæhestar í út-
rýmingarhættu
Alþjóðanáttúruvemdarsam-
j tökin, WWF, sögðu i gær að
sjávardýr eins og hvíthákarl og
I sæhestar tilheyrðu nú þeim
i dýrategundum sem væru í
j bráðri útrýmingarhættu. Bæt-
: ast þessi dýr sjávar þar með í
hóp með tígrisdýrum, filum og
fleiri dýrum. Á fjórða tug vís-
»= indamanna sem hittust í
: London í vikunni komst að
I þeirri niðurstöðu að 131 af 152
! tegundum sjávardýra væri í út-
rýmingarhættu og 15 teg-
I undanna væru í verulegri
rí hættu.
Niðurstöður fundarins verða
I lagðar til grundvallar þegar
I „rauði listinn“ yfir dýr í útrým-
ingarhættu verður gefinn út í
haust en hann er birtur á
sí þriggja ára fresti.
Hvíthákarl er aðallega veidd-
ur vegna tálkna sem notuö eru
í súpu og sæhestur er aðallega
( veiddur í Austurlöndum vegna
1 lyfjaframleiðslu. Reuter
1