Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Page 8
LAUGARDAGUR 4. MAI1996 matgæðingur vikunnar Valgerður Hrólfsdóttir bæjarfulltrúi er matgæðingur vikunnar: s sælkerinn Mexíkanskur rækjuréttur Grafið kjöt - auðvelt og sjálfsagt að gera Það er mjög auðvelt að grafa kjöt sjálfur og gaman að koma ; vinum sinum og ættingjum á | óvart með því. Það er mjög ein- falt að grafa kjöt og það er sér- j staklega gott sem forréttur eða sem kvöldsnæðingur á góðri stundu. Svona er kjötið grafið: Uppskríftin Um 1 kg lundir, til dæmis af | stórgrip, lamþi, svíni eða hrein- ; dýri S2 msk. salt 2 msk. sykur | %-1 msk. grófmalaður svartur j pipar um 1 dl ferskar kryddjurtir, til dæmis basilíkum, timjan, rós- marín, salvía eða mynta 2-4 msk. koníak eða ákavíti, má sleppa Hægt er að grafa allar gerðir af meyru kjöti. Reglan er sú í sama og með grafinn fisk en gjarnan má minnka magnið af salti og sykri. Gott er að nota ferskar kryddjurtir. Sérlega gott er að nota appel- sinubörk á svínalundir ásamt til : dæmis salvíu og sítrónumelsissu en gæta verður þess að hvitan af appelsínunni fylgi ekki með því að hún gefur vont bragð. Gott er að bera grafið kjöt ! fram með sinnepssósu. Hreinsið kjötið af fitu og himn- um. Þurrkið kjötið vel en skolið það ekki. Blandið saman salti, sykri og grófmöiuðum pipar og núið inn í kjötið. Setjið ferskar kryddjurtir í botninn á fati og leggið lundina í fatið. Setjið afganginn af krydd- jurtunum yfir lundina. Setjið álþynnu yfir fatið og bætið skurðarbretti þar ofan á. Leggið hálft kfló í farg ofan á og kælið í 3-4 sólarhringa. Skafið jurtirnar af kjötinu, skerið kjötið í þunnar sneiðar og berið fram. Hægt er að frysta grafið kjöt. Þá er nauðsynlegt aö pakka því vel inn I loftþéttar umbúðir. Kjötið má geyma í frysti í 3-4 mánuði. -GHS Leiðrétting Leiðrétting við uppskrift frá Eivor Jónsson, sem birtist í helgarblaði DV nýlega. í rjómasósunni á að vera: 2 egg, % dl sykur og ’/21 rjómi. Beðist er velvirðingar á þessum mistök- | um. -GHS Guðmundur Rafn Geirdal, væntanlegur forsetaframbjóðandi: Hátíðlegt að borða sjávarsaltaðar hnetur „Ég er vanur að borða það sem hendi er næst ef ég er svangur og ef mig langar þokkalega mikið í það næ ég að tyggja það og kyngja og þegar það er komið niður í maga er ekki aftur snúið. Ef ég upplifi að ég er orðinn saddur hætti ég að borða og pæli ekki í mat fyrr en ég verð svangur næst,“ segir Guðmundur Rafn Geirdal, væntanlegur forseta- frambjóðandi, en hann er sælkeri vikunnar að þessu sinni. „Ég miða yfirleitt viö að hafa fæð- ið sem heilbrigðast, einfaldast og ódýrast og að ég borgi sem oftast fyrir það sjálfur og að ég sé ekki með of mikla fyrirhöfn né aðrir fyr- ir mig. Á morgnana fæ ég mér yfír- leitt tvær ristaðar heilhveitibrauð- sneiðar með smjörva, marmelaði og brauðosti," segir Guðmundur Rafn og bætir við að frá hádegi fram til fjögur á daginn fái hann sér yfirleitt eitt af þrennu: a. salat sem ég vel úr salatborði Hagkaups með hvítlauksdressing; b. langloku með grænmeti; c. granóla með jógúrt. Síðdegis fæ ég mér oft ávöxt, til dæmis epli, appelsínur, banana eða greip; einkum á sumrin. Heilbrigt fæði „Ég er yfirleitt ekki svangur um Bessastaði en myndi þó veita sér þannmunað að fá sérráðgjöf frá næringarfræðingum og öðrum sem hafa þekkingu á heilbrigðu fæði. Borðar ekki margskreytta fæðu „Ég væri líklegur til að fá ein- hvem til að útbúa fyrir mig á ein- faldan og ódýran hátt þvi ég vil spara eins og kostur er í embætti ef ég verð kosinn því ég vil styrkja sjálfstæði þjóðarinnar með því að auka líkur á að embættið starfi inn- an ramma fjárlaga og að erlendar skuldir séu greiddar niður,“ segir Guðmundur Rafn og gefur lesend- um þau ráð að borða eins heilbrigt fæði og kostur er því að það auki líkurnar á bættri heilsu og hún sé einmitt það dýrmætasta sem menn eigi. „Heilbrigt fæði er oft ódýrt. Lík- aminn þarf ekki á svo flóknu sæl- kerafæði að halda þó það sé gott til hátíðarbrigða. Sem andlegur maður held ég aldrei hátíð með marg- skreyttri fæði eða hef ekki gert und- anfarin sex ár. Hins vegar finnst mér hátíð að lygna aftur augunum og borða létt sjávarsaltaðar hnetur úti í sólinni í góðu sumarveðri," segir hann að lokum. -GHS kvöldmatarleytið en fæ mér hins vegar kvöldmat um 10-leytið á virk- um kvöldum þegar ég kem heim úr vinnu og það er þá oftast steiktur fiskur með soðnum kartöflum. Á föstudagskvöldum kaupi ég oft kjúkling, Stjömusalat og franskar kartöflur (já ljótt að segja) og á laug- ardags- og sunnudagskvöldum fæ ég mér oft nautahakk (uss, uss, uss),“ segir Guðmundur Rafn. Hann segist ekki vera mikill sæl- keri enda hafi hann ekki eldað sam- kvæmt uppskrift í um átta ár og sig langi ekki til að elda mat eftir upp- skrift og því hafi hann ekki neinar sérstakar uppskriftir fram að færa. Hann segist kjósa eins heilbrigt fæði og kostur sé og hann sé líkleg- ur til að velja það sama færi hann á Guðmundur Rafn Geirdal, væntanlegur forsetaframbjóðandi og sælkeri blaðsins þessa vikuna, gefur lesendum ráð um heilbrigt og gott mataræði. DV-mynd ÞÖK bananar - fyrir fjóra Það kann að hljóma undarlega en er samt satt. Djúpsteiktir bananar eru frábærlega góðir og þykja kóngamatur í fjarlægum heimsálfum, til dæmis i Taílandi. Sniðugt er að bera bananana fram sem einn rétt á fimm rétta matseðli og auðvitað þyk- ir okkur íslendingum svona nýstárlegur matur henta best þegar gestir eru aö koma. Uppskrífdn 2 stórir, harðir bananar 3-4 msk. hunang um H1 olía 60 g hveiti 30 g kartöflumjöl 1 tsk. lyftiduft 1 msk. olía 1 msk. strásykur 1 dl vatn örlítið salt Aðferðin Takið hýðið af banön- unum. Skerið þá í miðju og skiptið þeim í tvennt, þversum. Hitið hunang í vatni þannig að það verði þunnfljótandi. Blandið saman í djúpsteiking- ardeigið. Hitið olíuna í 180 gráður. Dýfið banana- bitunum ofan í og steikið þá í fitunni. Látið fituna renna af þeim. Borið fram með ís og einni matskeið af hun- angi sem hellt er yfir ban- anana. 8 ■mm -GHS Valgerður Hrólfsdóttir, bæjarfull- trúi á Akureyri er matgæðingur vik- unnar að þessu sinni og kynnir hér uppskriftir að mexíkönskum rækju- rétti, sem borinn er fram með með ýmsu góðgæti, laufléttu fléttubrauði, pottrétti með svínalundum og nýstár- legri köku i eftirrétt sem hún kallar Imbuköku. Mexíkanskur rækjuréttur 2 laukar 1 græn paprika 1 dós sveppir, 200 g 1 msk. smjör 1 msk. hveiti 1 dl chilisósa 2 dl rjómi 1 tsk. salt hvítur eða svartur pipar framan á hnifsoddi cayennepipar, örlítið eða eftir smekk 300-400 g rækjur \ dl appelsínuþykkni 1 dl vatn Hakkið laukinn og saxið paprik- una. Látið renna af sveppunum. Léttsteikið, lauk og sveppi í smjörinu. Stráið hveitinu yflr og hrærið í á meðan. Bætið paprikunni, chilisósu, rjóma, salti og kryddi í. Látið sjóða við væg- an hita í 8-10 minút- ur. Bætið rækjun- um, appelsínu- þykkninu og vatn- inu í og látið malla. Rétturinn er bor- inn fram með hris- grjónum og brauði. iy2 msk. sykur 7 dl vatn 1 egg 1 dl matarolía 2 lítrar hveiti Gerið er leyst upp í fingurvolgu vatni. Bætið salti, sykri, olíu og eggi út í. Hnoðið mjölinu saman við. Lát- ið deigið lyfta sér í 30 mínútur. Skipt- ið síðan deiginu í þrennt og hveijum hluta aftur í þrennt. Búið til lengjur og fléttið. Lyfturnar þrjár eru látnar lyfta sér á bökunarplötu í 20-30 mínútur. Penslið með eggi og stráið gjarnan birkifræi eða ein- hverju slíku ofan á. Bakið við 200 gráður í 30-35 mínútur. Lauflátt fláttu- brauð 50 g ger iy2 msk. salt Valgerður Hrólfsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, er matgæðingur vikunn- ar að þessu sinni. DV-mynd GK Pottréttur með svínalundum 500 g svínalundir 1 msk. smjör 1 tsk. salt 1H tsk. karrý 3 dl rjómi 3 græn epli Skerið kjötið í um 2ja cm þykka bita. Brúnið það i smjörinu á pönnu. Setjið steikta kjötið í pott. Bætið salti, karrý og rjóma út í. Látið malla á vægum hita í 5-8 min- útur. Flysjið eplin og skerið úr kjamana. Skerið síðan eplin í litla bita. Látið allt sjóða áfram í 3-5 mínútur. Rétturinn er bor- inn fram með soðnum kartöflum eða hrísgijónum og salati. Imbukaka 6 dl kaffi 350 g sykur 2 tsk. kanill 1 tsk. negull 4 dl rúsínur 4 tsk. vanillusykur 1 tsk. salt 100 g smjör Þetta er soðið und- ir loki í um það bil fjórar mínútur. Þá er því sem er í pottinum hellt út Í400gafhveitiog 2 tsk. natron. Allt er hrært saman og sett í litla ofn- skúffu. Kakan er bökuð við 175 gráð- ur. Valgerður skorar á vinnufélaga sinn, Kristján Má Magn- ússon. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.