Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Page 10
10 LAUGARDAGUR 4. MAI 1996 Hreinn Líndal óperusöngvari er í einni elstu riddarareglu í heimi: Sæmdur æð orðu kaþóls kirkjunnar - fyrir hjálparstörf - sinnir heimilislausum og dauðvona sjúklingum í New „Við erum náttúrulega í herbúningi þegar við erum á ferð á vegum riddarareglunnar en ekki með neinar byssur eða önnur vopn. Svo erum við í riddarabúningi með orðum við há- tíðleg tækifæri. Áður fyrr fóru riddararnir í krossferðir en nú hjálpum við, fórum inn á erfiðustu og hættulegustu svæðin og aðstoð- um fólk í neyð. Við förum sums staðar þar sem Rauði krossinn fer ekki,“ segir Hreinn Líndal óperusöngvari, sem margir íslendingar muna eftir, en hann var sæmdur orðu einnar æðstu reglu Kaþólsku kirkjunnar, reglu Riddaranna af Möltu, fyrir þremur árum. I staðinn fyrir golf og tennis Hreinn er fæddur í Reykjavík og alinn upp í Keflavík en hefur starfað erlendis í rúm 30 ár, meðal annars í fjölda ára í Austurríki og Bretlandi, á Ítalíu í 11 ár og 14 ár í Bandaríkj- unum. Meðan hann bjó á Ítalíu hóf hann þátt- töku í hjálparstarfi og hefur helgað sig þeim störfum í sífellt auknari mæli. í frítíma sínum sinnir hann nú heimilislausum í New York og heimsækir reglulega sjúkrahús þar sem eru dauðvona einstæðingar. „Ég vinn reglulega við sjúkrahúsin hér við að aðstoða veikt fólk. í staðinn fyrir að spila golf og tennis, eins og aðrir gera, þá fer ég upp á spítala og gef fólkinu þar allan þann tíma sem ég get. Þarna eru krabbameinssjúklingar, fársjúk börn og fólk, sem er að deyja úr eyðni. Allir eru búnir að yfirgefa þetta fólk. Það á engan að,“ segir Hreinn. Mikill heiður að fá orðuna Það er mikill heiður að hljóta orðu Riddar- anna af Möltu enda er orðan aðeins veitt fyr- ir langt og mikið hjálparstarf. Hreinn var fyrst útnefndur til að hljóta orðuna fyrir fimm árum síðan en hlaut hana ekki fyrr en fyrir þremur árum því að fyrst var allur hans ferill kannaður. Honum var veitt orðan við stóra at- höfn í Saint Patrick’s dómkirkjunni í New York og segir hann að kardínálinn hafi sagt við athöfnina að orðan væri ekki bara eitt- hvað til að skreyta sig með heldur væri við- komandi að skuldbinda sig til að sinna hjálp- arstarfinu jafn vel og helst betur en áður. Hreinn segir að Riddararnir af Möltu sé elsta riddararegla í heimi enda hafi hún veriö stofnsett árið 1070. Orðan sé herorða og regl- an sé herregla. Áður fyrr hafi einungis aðals- menn verið teknir inn í regluna en nú sé búið að breyta því. Starfsemi reglunnar sé gífur- lega umfangsmikil og riddararnir starfi við hjálparstarf út um allan heim. I síðustu viku hafi hann tU dæmis farið með lyf og ýmis hjálpargögn til Líbanons ásamt tveimur full- trúum bandarísku samtakanna AmeriCare og líbönskum túlki. Fóru með 40 tonn Hreinn hefur stundað hjálparstörf á vegum kaþólsku kirkjunnar árum sam- an og sinnt heimilislausum og heimsótt reglulega einstæðinga á sjúkrahús- um í New York. Hann heimsækir meðal annars dauðvona alnæmissjúklinga og krabbameinssjúk börn og segist reyna að gefa þeim allan þann tíma sem hann getur. Hreinn var tekinn í elstu riddarareglu í heimi fyrir nokkrum árum og var þá veitt ein æðsta orða kaþólsku kirkjunnar fyrir hjálparstörf sín. Hreinn er hér að heimsækja börn á einu sjúkrahúsinu. af hjálpargögnum Það voru Mölturiddarar í Bandaríkjunum sem fjármögnuðu hjálparsendinguna til Lí- banons í samvinnu við AmeriCare og flaug þotan frá Amsterdam með samtals um 40 tonn af lyfjum og ýmsum sjúkragögnum. Öll gögn- in voru flutt til Amsterdams á undan fylgdar- mönnunum fjórum. Riddarareglan vildi að sjálfsögðu fylla vélina af gögnum og voru þvi Mölturiddarar í Þýskalandi fengnir til að leggja sitt af mörkum. Trukkar komu yfirfull- ir frá mörgum stöðum í Þýskalandi og tókst þannig að fylla flutningavélina. Þegar þotan lenti í Beirút á sunnudags- morguninn var tók heilbrigðis- ráðherra Lí- banons á móti bandarísku sendinefndinni ásamt sendi- herra Mölturidd- ara í Líbanon og öðru fólki auk þess sem vopnað- ir hermenn voru viðstaddir í tuga- tali. Bandaríkja- menn eru óvin- sælir í Líbanon vegna stuðnings bandarískra yfir- valda við ísraels- menn og er stöð- ug hætta á því að Bandaríkja- mönnum verði rænt af Hiz- bollah-skærulið- um. Þannig mátti Hreinn ekki vera í bún- ingnum sínum í Líbanon því á honum stendur „U.S.A.". „Við áttum að fljúga til baka aftur klukkan átta á þriðjudags- morguninn tii Hreinn Líndal óperusöngvari í herbúningi reglunnar Riddararnir af Möltu á götunum í New York. Hreinn mátti ekki vera í búningnum í Líbanon því á honum stendur USA og það skapaði hættu. Sviss en fórum í loftið klukkan tvö um nóttina vegna árása á helgu borgina Han Hanaan þar sem kristnir gerðu fyrsta kraftaverkið og breyttu vatninu í vín. Meira að segja múslim- ar álíta borgina helgan stað en við vorum í stöðugri gæslu af hálfu líbanska ríkisins, lög- reglumenn og vopnaðir hermenn voru með okkur allan timann og viku aldrei frá okkur,“ segir Hreinn. Hann segist ekki hafa fengið að fara út fyr- ir dyrnar á hótelherberginu án gæslu enda hafi tveir verðir staðið við dyrnar hjá sér alla nótt- ina og hann hafi ekki fengið að fara út af hótel- inu til að reka erindi reglunnar nema í fylgd her- manna þvl að svo mikil hætta sé á því að Bandaríkja- mönnum sé rænt. „Ástandið þarna er óskap- lega erfitt og við erum á fullu að undirbúa aðra ferð sem verður líklega farin eftir tvær vikur. Til Beirút voru komnir 400 þúsund flóttamenn að sunnan, sjúkrahúsin voru yfirfull af særðum og slösuðum og 152 borgarar höfðu látist. Við fengum að fara í birgðastöðina þar sem þeir voru búnir að stafla þessu upp en þaðan átti að deila þessu út til sjúkrahúsanna," segir Hreinn. Fer aftur til Líbanons „Núna erum við að hjálpa þessu fólki til að komast inn á heimili sín í Líbanon og endur- byggja sjúkrahús, sem búið er að eyðileggja. Það vantar öll sjúkragögn fyrir börn og gam- alt fólk og krabbameinsmeðul vantar alveg. í næstu sendingu verða lyf og sjúkragögn fyrir þetta fólk og allt annað sem þarf, áhöld fyrir sjúkrahúsin og þess háttar," segir hann og býst við að vera sendur í aðra ferð til Lí- banons eftir hálfan mánuð. Reglan hefur einnig í bígerð að senda hjálpargögn til Bosn- íu-Hersegóvínu, Rússlands og Afríkulanda. Hjálparsendingar reglunnar hafa kostað tugi eða hundruð milljarða íslenskra króna undanfarin átta ár. Hvernig skyldu þessar hjálparsendingar vera fjármagnaðar? „Við vinnum fyrir regluna og gefum af- rakstur vinnu okkar. Mikið af þeim sem eru í reglunni eru milljónamæringar og gefa eina milljón dollara eða skrifa ávísun upp á hund- rað þúsund dollara. Við störfum út um allan heim og þegar vantar í viðbót þá fáum við að- stoð frá riddurum í öðrum löndum eins og núna þegar þeir komu með aðstoð frá Þýska- landi áður en við ílugum til Líbanons," segir Hreinn. Gífurleg öryggisgæsla var meðan á dvölinni i Líbanon stóð. Vopnaðir verð- ir stóðu vörð við herbergisdyrnar á hótelinu og Hreinn fékk ekkert að fara án þess að fá fylgd. Sjálfur vinnur hann sjálfboðaliðastarf á sjúkrahúsum í New York og mætir þar nokkrum sinnum í viku auk þess sem hann vinnur fyrir sér með óperusöngnum og heldur stundum styrktartónleika og lætur ágóðann renna til reglunnar. Pílagrímsferð til Lourdes Hann bendir á að reglan hafi nýlega opnað sjúkrahús á Haítí og í fleiri löndum auk þess riddarar reglunnar fara reglulega með dauð- vona sjúklinga í pílagrímsferð frá Bandaríkj- unum til Lourdes í Frakklandi í þeirri von að vatnið þar geri kraftaverk á einhverjum sjúk- linganna. í þessari viku verður einmitt slík ferð farin. Hreinn segir þessar ferðir gera mikið fyrir fólkið, það fái trúna á guð aftur og geti betur sætt sig við dauðann. Hreinn segir að hjálparstarfið í Bandaríkj- unum hafi gefið sér mikið. „Maður lærir alltaf mikið í svona ferð. Þá sér hvað maður hefur það gott í sínu eigin lífi,“ segir hann. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.