Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Síða 12
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996
u erlend bóksjá
Ný bók um helförina
vekur harðar deilur
Bretland
ISkáldsögur:
1. Rosamunde Pllcher:
Comlng Home.
2. Josteln Gaarder:
Sophle’s World.
3. Nlck Hornby:
Hlgh Rdellty.
4. Stephen Klng:
The Two Dead Glrls.
5. Kate Atklnson:
Behlnd the Scenes at the Museum.
6. Irvlne Welsh:
Trainspottlng.
7. John Grlsham:
The Ralnmaker.
8. P.D. James:
Orlginal Sln.
9. John le Carré:
Our Game.
10. Danielle Steel:
Wlngs.
Rit almenns eðlis:
1. Will Hutton:
The State We’re In.
2. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
3. John Cole:
As It Seemed to Me.
4. Graham Hancock:
Flngerprlnts ot the Gods.
5. John Gray:
Men Are from Mars, Women Are from
Venus.
6. Nelson Mandela:
Long Walk to Freedom.
7. Brlan Lowry:
The Truth is out there.
8. Helen Prejean:
Dead Man Walking.
9. Alan Bennett:
Writlng Home.
10. D. & E. Brlmson:
Everywhere We Go.
(Byggt á The Sunday Tlmes)
Danmörk
1. Jane Austen:
Fornuft og folelse.
2. Jung Chang:
Vllde svaner.
3. Use Norgaard:
Kun en plge.
4. Nat Howthorne:
Den flammende bogstav.
15. Terry McMillan:
Andened.
6. Use Norgaard:
De sendte en dame.
7. Peter Hoeg:
De máske egnede.
(Byggt á Politiken Sondag)
Var þýska helfórin gegn gyðing-
um einungis verk brjálaðra nasista
eða eðlileg afleiðing landlægs gyö-
ingahaturs í Þýskalandi? Var vit-
neskja um þá stefnu nasista að
myrða allt fólk af gyöingaættum í
Evrópu á vitorði tiltölulega fárra
manna eða tók umtalsverður hluti
þýsku þjóðarinnar þátt í hryllingn-
um af fúsum og frjálsum vilja?
Þessar spurningar eru enn á ný
komnar upp á yfirborð tilfinninga-
ríkrar fjölmiölaumræðu í Evrópu og
Bandaríkjunum. Tilefnið er ný bók
eftir bandaríska sagnfræðinginn
Daniel Jonah Goldhagen, aðstoðar-
prófessor við Harward-háskóla. Hún
nefnist Hitler’s Willing Ex-
ecutioners: Ordinary Germans
and the Holocaust. Þótt bókin sé
ekki væntanleg á þýskan markað
fyrr en í ágúst hefur hún þegar gef-
ið sagnfræðingum, stjórnmála-
mönnum og fjölmiðlum tilefni til
heiftarlegra árása á vinnubrögð
sagnfræðingsins og umræðna um
lykilspurninguna: hvað vissu Þjóð-
arverjar almennt um útrýmingu
gyðinga - og gerðu?
Fjöldamorð framin af
„venjulegum" Þjóðverj-
um
Ekki er deilt um þær staðreyndir
sem Goldhagen dregur fram í bók-
inni. Jafnvel þeir gagnrýnendur
sem lýsa sig andvíga alhæfingum
höfundarins viðurkenna að hann
haíi safnað saman á einn stað afar
mikilvægu safni staðreynda um
fjöldamorðin á gyðingum. Þótt þær
upplýsingar séu í sjálfu sér ekki
nýjar birti hann margt i bók sinni
sem fram til þessa hafði farið hljótt.
Hitler fagnað.
Þar byggir hann t.d. á rannsókn
sem gerð var í Hamborg á árunum
1957-1965 á lögreglusveit númer 101.
Þetta var ein fjölmargra sveita lög-
reglumanna sem höfðu það verkefni
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
að safna saman og drepa gyðinga í
Póllandi. Þær fóru bæ úr bæ, þorp
úr þorpi, mánuð eftir mánuð og
drápu óbreytta borgara af gyðinga-
ættum, karla, konur og börn.
Hræðilegri samantekt um villi-
mennsku mannsins er vart til á
jarðríki.
Samt voru þessir morðfúsu lög-
reglumenn ekki nasistar af SS-gerð-
inni. Þeir voru samansafn „venju-
legra“ manna sem vegna aldurs, lík-
amlegs atgervis eða af öðrum ástæð-
um voru ekki tækir í herinn. Marg-
ir þeirra voru fjölskyldumenn.
Það neyddi þá heldur enginn til
að drepa gyðinga. Sumir óskuðu eft-
ir að fá að sleppa við að vera í af-
tökusveitunum og þeim var leyft
það án refsingar. Flestir kusu hins
vegar að drepa saklausa borgara
dag eftir dag, viku eftir viku, mán-
uð eftir mánuð.
Spurning um vilja
Staðreyndir af þessu tagi, og þær
eru yfirþyrmandi, sýna auðvitað að
fjölmennur hópur „venjulegra"
Þjóðverja tók ótilneýddur þátt í út-
rýmingu gyðinga. Um það er ekki
hægt að deila. Hins vegar fordæma
margir Þjóðverjar hversu almennar
ályktanir höfundurinn setur fram
sem meginkenningu bókarinnar.
í stuttu máli segir Goldhagen:
Þýska þjóðin var gegnsýrð af gyð-
ingahatri. Hún var því sálfræðilega
undir það búin að drepa þessa sam-
borgara sína. Þegar tækifærið gafst
gerðust Þjóðverjar viljugir morð-
ingjar Hitlers. Það voru ekki nasist-
ar sem myrtu sex milljónir gyðinga;
það voru almennir Þjóðverjar.
Ábyrgir þýskir fjölmiðlar hafa
lagt á það áherslu í umfjöllun sinni
að þeim detti ekki í hug að vísa á
bug þeim staðreyndum sem fram
komi i bók Goldhagens, enda séu
þær óyggjandi og hafi legið fyrir
lengi. Þær gefi hins vegar ekki til-
efni til svo víðtækra yfirlýsinga um
sök allra Þjóðverja. Goldhagen taki
heldur ekkert tillit til þeirrar stað-
reyndar að íbúar í mörgum þeim
löndum sem þýski herinn lagði und-
ir sig hafi tekið virkan þátt í útrým-
ingu gyðinga af engu minni grimmd
en Þjóðverjar sjálfir.
Fyrsta risaveldið
fundið
Fornleifafræðingar telja sig nú
hafa komist að því með ráðningu
| myndleturs Maya-indíána í
Rómönsku Ameríku að þeir hafi
verið í nánu sambandi við tvö
önnur konungsríki.
Áður fyrr var það trú vísinda-
manna að Maya-bæirnir niðri á
láglendinu hefðu verið sjálfstæð
konungsríki. En í myndletri
þeirra eru svo margar vísanir í
konungsríki í Gvatemala og
Mexíkó að Mayamir hljóta að
1 hafa átt náin samskipti við þau.
Það má því eiginlega segja að
þarna hafi verið fyrsta risaveld-
f ið.
Elskið börnin ykkar
Börn sem finna fyrir ást for-
eldra sinna í uppvextinum verða
heilbrigðir einstaklingar, bæði
j tilfinningalega og líkamlega þeg-
ar þau verða fullorðin, segja
tveir bandarískir sálfræðingar
sem kynntu niðurstöður rann-
sókna sinna á ráðstefnu um sam-
band hugar og líkama.
Sálfræðingarnir ræddu við 87
Ífyrrum námsmenn í Harvard
sem tóku þátt í rannsókn árið
1954 um hvernig fólk bregst við
streitu. í ljós kom að 82 prósent
þeirra sem töldu að foreldrarnir
hefðu ekki elskað þá höfðu orðið
alvarlega veik en aðeins 38 pró-
sent þeirra sem töldu sig finna
; fyrir ást foreldranna.
Umsjén
Guðlauyur Bergmundsson
Meiri ávextir og grænmeti
geta lengt lífið og bætt
Viltu lengja líf þitt og koma í veg
fyrir að þú fáir langvinna sjúkdóma
síðar á lífsleiðinni? Ef þú segir já
ættirðu kannski að borða svolítið
meira af ávöxtum og grænmeti. Og
ekki gleyma vítamínunum. Þetta er
álit fjölmargra vísindamanna sem
sátu öldrunarráðstefnu á vegum
Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða
heilbrigðisstofnunarinnar (WHO)
fyrir skömmu.
„Því verður ekki í móti mælt nú
að beint samband er milli bæði mat-
aræðis og næringar og margra af
þeim langvinnu sjúkdómum sem
hrjá fólk á efri árum,“ sagði Jeffrey
Blumberg frá Tufts háskólanum í
Boston í Bandaríkjunum.
Alexander Kalache, brasilískur
læknir sem veitir öldrunar- og
heilsufarsdeild WHO forstöðu, sagði
að árið 2020 yrðu rúmlega 1,2 millj-
arðar af fólki í heiminum 65 ára og
eldri. Þrír af hverjum fjórum þeirra
verða í þróunarríkjunum.
íbúum Evrópu hefur fjölgað um
17,5 prósent frá árinu 1970 en á
sama tíma hefur þeim sem eru
komnir yfir sextugt fjölgað um 30,7
prósent og þeim sem eru yfir áttrætt
hefur fjölgað um hvorki meira né
minna en 62,4 prósent.
„Það ætti ekki að setja samasem-
merki milli fleiri ævidaga og leng-
ingu dauðaferlisins. Það er ekki
bara mikilvægt að bæta árum við
lífið heldur verður einnig að bæta
lífi viö árin,“ sagöi Ursula Lehr,
fyrrum heilbrigðisráðherra Þýska-
lands, sem starfar nú við háskólann
í Heidelberg.
Sérfræðingarnir töldu að það að
borða hollan og góðan mat væri
partur af forvarnarstarfinu, svo og
líkamsrækt, félagsstörf af ýmsu tagi
og virkjun hugarstarfsins. C- og E-
vítamín geta einnig átt þátt í því að
draga úr sjúkdómum sem fylgja
hækkandi aldri, svo sem krabba-
meini, hjartasjúkdómum og skertri
heilastarfsemi. Margir lögðu
áherslu á að „oxunarstreita" af
völdum sindurefna og hættulegra
sameinda, sem valda skaða á DNA
kjarnasýrum mannslíkamans, væri
meðal helstu ástæðna öldrunar og
langvinnra sjúkdóma.
Sindurefnin er að finna í sígar-
ettureyk og í mörgum mengunarefn-
um en þau eru líka hluti af náttúru-
legri framleiðslu líkamans. Næring,
þar með talið gott mataræði og
vítamín að auki, kunna að gegna
mikilvægu hlutverki í baráttunni
gegn oxunarstreitunni.
„Yfirgnæfandi vísbendingar eru
nú um aö aukin neysla á ávöxtum
og grænmeti geti mjög svo dregið úr
hættunni á mörgum hrömunarsjúk-
dómum sem fylgja því að verða
gamall," sagði Lester Packer sem
starfar við Kaliforníuháskóla í
Berkeley.
Bandaríkin
Skáldsögun
1. Maevc Blnchy:
The Glass Lake.
2. Davld Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
3. John Grlsham:
The Rainmaker.
4. Catherine Coulter:
The Cove.
5. Danlelle Steel:
TheGlft.
6. Amanda Quick:
Mystlque.
7. Elizabeth Lowell:
Autumn Lover.
, 8. Jane Smlley:
Moo.
9. V.C. Andrews:
Tarnlshed Gold.
10. Mlchael P. Kube-McDowell:
Before the Storm.
11. Steve Thayer:
The Weatherman.
12. Michael Palmer:
Silent Treatment.
13. Wllbur Smith:
The Seventh Scroll.
14. Josteln Gaarder:
Sophle’s World.
15. John Sandford:
Mlnd Prey.
Rit almenns eðlis:
1. Ann Rule:
Dead by Sunset.
2. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
3. James Carvllle:
We're Rlght, They’re Wrong.
4. Mary Pipher:
Revivlng Ophella.
5. Helen Prejean:
Dead Man Walklng.
6. Thomas Cahlll:
How the Irlsh Saved Clvllization.
7. Ollver Sacks:
An Anthropologfst on Mars.
8. Robert Fulghum:
From Beginning to End.
: 9. Thomas Moore:
Care of the Soul.
10. Rlchard Preston:
The Hot Zone.
11. M. Scott Peck:
The Road Less Traveled.
12. Nlcholas Negroponte:
Belng Dlgital.
13. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Llght.
14. Butler, Gregory & Ray:
America’s Dumbest Crimlnals.
15. Clarlssa Plnkola Estés:
Women Who Run wlth the Wolves.
(Byggt á New York Tlmes
| Book Review)
Vondur svefn
skemmir
Slæmur nætursvefn veldur
ekki einasta syfju og slappleika
næsta dag heldur getur hann
einnig haft áhrif á skapið, athygl-
ina og andlega skerpu.
Það eru vísindamenn við há-
skólann í Edinborg sem halda
1 þessu fram eftir að hafa rannsak-
' að sextán manna hóp. Svefn hjá
helmingi hópsins var truflaður
| með hljóðmerkjum á tveggja
j mínútna fresti, ekki nægilega
háum til að vekja fólkið heldur
losaði það aðeins svefninn.
Þeir sem voru truflaðir í næt-
ursvefninum reyndust ekki vera
jafn ánægðir daginn eftir og hin-
j ir sem sváfú ótruflaðir og þeir
; reyndust líka slappari. Þá reynd-
' ust þeir sem fengu ekki ótruflað-
an svefn vera lengur en hinir að
leysa verkefni sem mældu at-
hygli og andlega skerpu.
Hneturnar og
ofnæmið
Börn, sem eru gjörn á að fá of-
næmi, kunna að verða enn við-
;; kvæmari fyrir því en ella vegna
? örlítilia skammta af hnetuafurð-
um sem þau borða 1 sælgæti,
; kökum og jafnvel móðurmjólk-
• inni, segja breskir vísindaménn.
Ef mjög ungum börnum er gef-
: in fæða á borð við jarðhnetu-
; smjör kann það að gera þau
'í gjamari á að fá ofnæmi og þar
: með valda þeim ævilöngum þján-
; ingum, segja Pamela Ewan og
; starfsfélagar hennar við Adden-
brooke-sjúkrahúsið í Cambridge.
Ewan rannsakaði 62 sjúklinga
með hnetuofnæmi á aldrinum 11
mánaða til 53 ára.