Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Síða 25
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996
25
Sálfræðinámskeið fyrir sjómenn og eiginkonur þeirra:
Rask að hitta manninn eftir langa útiveru
„Það var komið inn á það hvaða
áhrif langar útiverur hefðu á fjöl-
skyldulíf. Það var heilmargt sem
maður var búinn að finna fyrir
lengi en fékk svar við þarna og
tókst að tengja álaginu sem fylgir
vinnunni. Það voru aðallega sam-
skiptin þegar fjölskyldurnar hitt-
umst eftir langan tíma og hvað það
er í raun og veru mikið rask að
hitta eiginmanninn. Það var farið
svolítið skemmtilega inn á það,“
segir Erling Arnar Óskarsson, sjó-
maður á frystitogaranum Engey.
í sjómannablaðinu Vík-
ingi kom fram nýlega að
útgerðarfyrirtækið Grandi
hf. hefði staðið fyrir nám-
skeiðum fyrir sjómenn
sína og eiginkonur þeirra.
Fyrirtækið fékk sálfræð-
ingana Álfheiði Steinþórs-
dóttur og Guðfinnu Eydal
til að fjalla um samskipti á
vinnustað og fjölskyldu-
mál með sjómönnum á
frystitogurum og var byrj-
að á áhöfninni á Engey
meðan togarinn var í
stoppi. Sérnámskeið voru
svo haldin um fjölskyldu-
mál með eiginkonum sjó-
mannanna.
skemmtilegt. Við gátum eiginlega
allar sagt það sama í sambandi við
uppeldið á börnunum, að sjá um allt
heimilishaldið, bankamál og heimil-
ið almennt. Við vorum með misjafn-
ar skoðanir á því hvernig væri þeg-
ar þeir kæmu heim, hvað við gerð-
um til að taka á móti þeim og feng-
um hugmyndir um hvað væri hægt
að gera og koma þeim skemmtilega
á óvart,“ segir Lucinda.
Þau Erling Arnar eiga þrjú börn
á aldrinum sex mánaða upp í átta
ára.
Gott að taka
konurnar með
„Við fórum að ræða málin, strák-
arnir, eins og við höfðum ekki gert
áður, til dæmis hvernig menn legðu
sitt af mörkum til að gera góða inni-
veru. Það komu punktar um hvað
fólk væri að gera. Menn fóru að
ræða þetta öðruvísi og mér fannst
einna merkilegast að fyrirtækið
hefði opinn huga fyrir þessum mál-
Fengum ýr
hugmynmr
msar
Eiginkonur sjómanna
hafa mjög sérstaka stöðu
meðal islenskra kvenna
því að þær þurfa alfarið
að sjá um heimilið, fjár-
málin, uppeldi barnanna
og halda fjölskyldulífmu
gangandi langtímum sam-
an í fjarveru fóðurins. Það
hlýtur því að hafa rask-
andi áhrif þegar eiginmað-
urinn kemur skyndilega í
land og vill vera virkur
þátttakandi í heimilislíf-
inu. Lucinda Friðbjörns-
dóttir er i stöðu sjómanns-
konunnar og þekkir þetta
allt af eigin raun.
„Mér fannst þetta mjög
Erling Arnar og eiginkona hans, Lucinda Friðbjörnsdóttir, sóttu námskeið á vegum
Granda í haust. Þar var fjallað um samskipti sjómanna á vinnustað og raskið á fjöl-
skyldulífið þegar sjómaður kemur í land eftir langa útiveru. Voru Erling Arnar og
Lucinda mjög ánægð með námskeiðið. Þau eiga þrjú börn á aldrinum sex mánaða til
átta ára. Hér eru þau með það yngsta.
DV-mynd Sveinn
Tilboð nr. 2
Iqkö eldunartæki
Tilboð nr. i
w'...<*&#>*>«* &
\1
• •1
•ol
c #
0,0
2 ára ábyrgd á TEKA
heimilistækjum.
(Group Teka, AG)
3 stk. í pakka /^f% 't
(verð miðast við að keypt
séu 3 stk. eða sambærilegt).
Innifalið í tilboði:
Innbyggingarofn, gerð HT490 eða HT490ME, undir- eða-«
yfirofn, undir-yfirhiti. Grill, mótordrifinn grillteinn.
Vifta CE 60, SOG 310 rrf/klst., litir: hvítt, brúnt.
Helluborð E60/4P eða SM4P, með eða án stjórnborðs,
litir: hvítt, brúnt,
Vifta CE 60, SOG 310 nf/klst., litur: hvítt, brúnt,
3 stk. í pakka W%
(verð miðast við að keypt
séu 3 stk. eða sambærilegt).
Innifalið í tilboði:
Innbyggingarofn, gerð HT610 eða -
HT610ME, undir- eða yfirofn, blástur (þríviddarblástur),
sjálfhreinsibúinn. Grill, grillteinn, mótordrifinn, forritanleg
klukka, fjölvirkur, litur: hvítt, brúnt.
Vifta CE 60, SOG 310 rrf/klst., litur: hvítt, brúnt.
Keramikhelluborð, VTN eða VTCM, með eða án stjórnborðs,
gaumljós, litir á ramma, hvítt, brúnt eða rústfrítt stál.
rðs,
únt. ;
únt.
um og tæki konumar með í reikn-
inginn," segir Erling Arnar og
Lucinda tekur undir þau orð.
„Mér fannst loksins að einhver
sýndi okkur athygli, vildi fræða
okkur og tala um þessi mál viö okk-
ur,“ segir hún og telur að öll útgerð-
arfyrirtæki ættu að sjá sjómönnum
og eiginkonum þeirra fyrir svona
námskeiðum. Erling Arnar bætir
við að fram að þessu hafi ekki verið
opinn hugur fyrir þessum málefn-
um sjómanna.
Gengur þvert á
uppeldisaðferðirnar
„Þetta er allt á frumstigi og ekki
vitað mikið um þetta en svona sjó-
mennska hefur náttúrlega mikil
áhrif á fólk til langs tíma, langar
fjarverur og allt það sem því fylgir,"
segir Erling Arnar og bendir á að
sjómaður, sem hefur verið lengi í
burtu, hafi tilhneigingu til að ganga
þvert á uppeldisaðferðir móðurinn-
ar þegar hann loks kemur í land og
vill til dæmis láta meira eftir börn-
unum.
Áhöfnin á Engey er 26 sjómenn og
tóku þeir allir þátt í námskeiðinu
tvo heila daga í haust. Eiginkonurn-
ar voru 20 talsins og sóttu þær nám-
skeiðið nokkur kvöld í október. Erl-
ing Arnar segir að á námskeiðinu
hafi ýmislegt komið til umræðu sem
menn hafi ekki „verið að bera á
borð fyrir aðra“ áður. -GHS
Dagana 6. til 9. maí n.k. mun Klihm jr. frá
þýska fyrirtækinu Rodcraft sýna og kynna
Rodcraft loftverkfæri og ýmsar nýjungar á
því sviði.
Kynningin verður í verslun okkar að
Borgartúni 26 í Reykjavík.
RODCRAFT*
■U POWER TOOLS
Til sýnis verða
80 tegundir af
loftverkfærum.
Gestum gefst
einstakt tækifæri til
að prófa loftverkfærin
á staðnum og fá
óð ráð frá sérfræðingi.
Láttu þennan spennandi og fræðandi
viðburð ekki fram hjá þér fara.
Allir velkomnir.
Borgartúni 26
Reykjavík
Sími 562 2262
Símbréf 562 2203