Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Page 27
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996
ítónlist
ísland
plötur og diskar-
| 1. ( 1 ) The Score
Fugees
t 2. ( 4 ) Reif í botn
Ýmsir
t 3. ( 2 ) Pottþétt 3
Ýmsir
t 4. ( 3 ) Evil Empire
Rage againstthe Machine
| 5. ( 5 ) Jagged Little Pill
Alanis Morissette
t 6. ( 9 ) Presidents of the USA
Presidents of the USA
| 7. ( 7 ) Grammy Nominees 1996
Ýmsir
t 8. ( 6 ) Sunburned & Paranoid
Skunk Anansie
t 9. ( 8 ) The Bends
Radiohead
110- (10) Greatest Hits
Take That
111. (15) Falling into You
Celine Dion
11Z (Al) Outside
David Bowie
113. (11) Mercury Falling
Sting
114- (12) Croucie D’ou La
Emelíana Torrini
115. (18) Music for the Jilted Generation
Prodigy
116. (Al) Strange Days
Ur kvikmynd
117. (Al) Expecting to Hy
Bluetones
118. (Al) Life
Cardigans
119. (Al) Second Toughest in the Infants
Underworld
120. (- ) Tiny Music...
Stone Temple Pilots
London
| 1. (1 ) Firestarter
The Prodigy
| 2. ( 2 ) The X-Files
Mark Snow
t 3. ( 4 ) Return of the Mac
Mark Morrison
t 4. ( 3 ) Children
Robert Miles
t 5. ( 6 ) Ohh Ahh. Just a Little Bit
Gina G
t 6. (- ) California Love
2Pac featuring Dr. Dre
t 7. ( 5 ) Give Me a Little more Time
Gabrielle
t 8. (- ) Bulls on Parade
Rage Against the Machine
t 9 (8) X-Files
Dj Daco
t 10. ( 9 ) How Deep Is Your Love
Take That
New York
| 1. (1 ) Because You Loved Me
Celine Dion
$ 2. ( 2 ) Always Be My Baby
Mariah Carey
| 3. ( 3 ) Nobody Knows
The Tony Rich Project
t 4. ( 5 ) Ironic
Alanis Morissette
t 5. ( 4 ) Down Low (Nobody Has to know)
R. Kelly Fcaturing Ronald Isley
| 6. ( 6 ) Sittin' up in My Room
Brandy
t 7.(10) 1,2,3,4 (Sumpin' New)
Coolio
t 8. ( 7 ) Not Gon' Cry
Mary J. Blige
t 9. (12) Doin It
LL Cool J
t 10. (11) Follow You Down
Gin Blossoms
Bretland
— plötur og diskar —
t 1.(1) Greatest Hits
Take That
| 2. ( 2 ) (What's the Story) Morning Glory?
Oasis
) 3. ( 3 ) Falling into You
Celine Dion
f 4. ( - ) Wildest Dreams
Tina Turner
| 5. ( 5 ) Jagged Little Pill
Alanis Morissette
t 6. ( 7 ) Bizarre Fruit/Bizarre Fruit
M People
I 7. ( 6 | Hits
Mike and the Mechanics
t 8. ( - ) Maximum High
Shed Seven
| 9. ( 8 ) Garbage
Garbage
| 10. (10) Different Class
Pulp
iWMtMNMMMMMIWM I
Bandaríkin
— plötur og diskar—
t 1.(2) Jagged Little Pill
Alanis Morissette
|2.(1) Anthology 2
The Beatles
| 3. ( 3 ) Falling into You
Celine Dion
It 4. (- ) Tiny Music...
Stone Temple Pilots
f 5. ( 4 ) The Score
Fugees
t 6. (- ) The Coming
Busta Rhymes
| 7. ( 6 ) Daydream
Mariah Carey
I 8. ( 5 ) All Eyez on Me
2Pac
| 9. ( 8 ) (Whats the Story) Morning Glory?
Oasis
t10. ( 7 ) Waiting To Exhale
Úr kvikmynd
Nearly God:
Flestir sem eitthvað fylgjast með
tónlistarbransanum kannast við
nafnið „Tricky", ef ekki í gegnum
tónlistina þá í gengum samband
hans við súperstjörnuna Björk Guð-
mundsdóttur. Á síðasta ári gaf
Tricky út plötuna Maxinquaye sem
fékk frábæra dóma og seldist í yfir
200 þúsund eintökum.
Nú tæpu ári seinna gefur Tricky
út aðra plötu en ekki undir sama
nafni. Hvers vegna?
Samningsbrot
Ástæðan er einfold. í samningi
Trickys við útgáfufyrirtækið Island
er gert ráð fyrir að hann gefi ekki út
nema eina plötu á hverjum tólf
mánuðum. Hins vegar er klausa í
samningnum sem gefur honum leyfi
til að gefa út efni sem honum finnst
gott undir öðru nafni. Tricky valdi
nafnið „Nearly God“. Ástæðan fyrir
nafninu er viðtal við Tricky á síö-
asta ári þar sem hann var spurður
„How does it feel to be god?“
(Hvernig tilflnning er að vera guð.)
Svo bætti blaðamaðurinn við:
„Nearly god.“ (Næstum guð.)
Nýorðin barnsmóðir Trickys,
Martina, sem hann vann mjög náið
með á síðustu plötu talar varla leng-
ur við hann, fyrir utan foreldr-
askyldur, og hefur Tricky því nælt
sér í aðra þekktari meðreiðarsveina
á nýju plötunni. Kunnugir segja
hins vegar samtarf hins 28 ára
Trickys og skólastelpunnar sem
hann fann sitjandi á vegg, skróp-
andi í tíma fyrir nokkrum árum,
hafa verið galdurinn. Hvort þau ná
sömu vinsældum sundruð á enn eft-
ir að koma í Ijós.
Stdrstjörnur
Þrátt fyrir vangaveltur um að-
skilnaö Martinu og Trickys má bú-
ast við að nýir meðreiðarsveinar
geti skapað heilt sólkerfi því þama
eru stórstjömur á ferð. Fyrsta skal
nefna Björk Guðmundsdóttur (sem
spilar hér 21. júní n.k.). Hún syngur
með honum tvö lög á plötunni og
þess má geta að þau voru að hluta
til unnin i hljóðverinu Hljóðhamri
hér á landi. Þarna er líka fyrrum
Stereo MC’s meðlimur Cath Coffey,
Tricky: Sem heitir núna Nearly God og syngur og spilar með Björk, Neneh Cherry, Alison Nloyet, Terry Hall og Cath
Coffey.
Terry Hall, Neneh Cherry og söng-
konan Alison Moyet. sem lítið hefur
heyrst 1 síðustu ár.
Platan hefur fengið misjafna
dóma, ýmist þótt of þung til spilun-
ar í útvarpi eða fengið 5 stjömur og
þótt „nearly perfect" (næstum full-
komin). Það sem vekur hins vegar
strax áhuga þegar umslagið er lesið
er að nokkur stærstu útgáfúfyrir-
tæki heimsins virðast skiptast á um
að gefa út lögin, sem þó koma út á
einni plötu. Sem dæmi má nefna að
Warner Channel Music gefur út lag
númer 1; Island, EMI og Virgin gefa
út lag númer 3; Island og Polygram
gefa út lag númer 4 og Island og
Sony gefa út lag númer 6. Skráður
útgefandi plötunnar er hins vegar
fyrirtækið Durban Poison (sem er
alls óþekkt og líklega í eigu
Trickys).
Um lífið
í nýlegu viðtali við Tricky í The
Face kemur ýmislegt fram. T.d. var
samstarf hans og Damon Albam,
söngvara Blur (sem þó nokkuð
margar íslenskar stelpur virðast
eiga mynd aD, tekið af plötunni þar
sem Damon var ekki alveg nógu
sáttur. Radio 1 í Bretlandi neitar aö
spila nýju plötuna vegna þess hve
hún er þung í vöfum. Tricky segir
þar auðveldara að taka upp byssu
og skella henni í andlitið á einhverj-
um heldur en að taka upp barnið
sitt og veita því ást og hann hvorki
játar né neitar sögusögnum um
meint samband við Björk Guð-
mundsdóttur.
Eitt er víst að Tricky er búinn að
gefa út nýja plötu, hún heitir Near-
ly God, lögin eru gefin út af mörg-
um útgáfufyrirtækjum en platan
bara af einu og á henni er að finna
mörg stærstu nöfnin í bransanum.
Það getur verið flókið að vera
„næstum guð“.
-GBG
Hliðarverkefni Tricky
c
^ , I í ^
- «' ^
& I \ 1
J I I I
Lionel Richie
Ekkert rapp
Bandaríski söngvarinn og lagasmiöurinn, Lionel Richie, er kom-
inn á kreik á ný eftir nokkurt hlé. Hann ætlar að taka markaðinn
með trompi því ekki er nóg með að hann sé með nýja plötu í
farteskinu heldur er hann líka kominn með aðra löppina til
Hollywood og leikur aukahlutverk í myndinni The Preacher’s Wife
en aðalhlutverkin eru í höndum Denzels Washingtons og Whitney
Houston. En tónlistin verður áfram aðalatvinna Richies og sagt er
að hann hafi verið að velta því fyrir sér að hafa rapplög meö á nýju
plötunni sinni. Hann lagði hugmyndina fyrir nokkra rappara sem
hann hitti en þeir tóku víst afar dræmt i hugmyndina ög sögðu að
það væri engin ástæða fyrir jafn góðan söngvara og Richie að vera
að rappa: „Ástæðan fyrir því að við röppum er að við getum ekki
sungið," eiga þeir að hafa sagt.
-SþS-