Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Qupperneq 32
útlönd
LAUGARDAGUR 4. MAI1996
Denis Thatcher lét ekki mikið fyrir
sér fara þau ellefu ár sem eiginkona
hans, Margrét, var forsætisráðherra
Bretlands. Hann var yfirleitt þögull
meðan eiginkonan lét gamminn geisa
um allar jarðir. Denis virtist afar undir-
gefinn eiginmaður en hafði þó orð á sér
fyrir að þykja sopinn góður. Gengu
margar sögur um drykkjuna og var
meint drykkja hans tilefni ótal blaða-
greina og skopteikninga.
Eitt sinn kom vammlaus íhalds-
maður að Denis og spurði hreint út
hvort hann ætti við drykkjuvanda að
etja. Denis, sem er mikill áhugamaður
um íþróttir og þykir hafa sérstæðan
drykkjustíl, lyfti glasinu og svaraði:
„Já, „frú“ mín góð, það er rétt. En vand-
inn er að ég fæ aldrei nóg.“
En nú getur fólk hætt að geta sér til
um manninn á bak við konuna þar sem
dóttir þeirra hjóna, blaðamaðurinn
Carol Thatcher, hefur gefið út bók um
pabba sinn sem kynnt var í London á
dögunum. Bókin heitir Below the Para-
pet eða Undir brjóstvirkinu. í bókinni
Margrét Thatcher virðist ekki deila áhuga eiginmanns síns á hinum Ijúfu veigum en lítið var um að vín væri
haft um hönd á hennar heimili. Hér svoigrar Denis úr bjórglasi á kosningaferðalagi 1987.
ingja Rajiv, sonur Indiru, fékk hálfa
fötu af þessum andskota yfir sig og allt
virtist tómt helvítis klúður."
Denis var einnig með í for þegar Mar-
grét Thatcher heimsótti Falklandseyjar
eftir að Bretar höfðu sigrast á innrásar-
her Argentínumanna. Honum varð litið
yfir eyðilegt landslagið og sagði: „Það er
víst öruggt mál að við komum hingað
ekki landareignanna vegna. Þetta er allt
tóm helvítis auðn.“
Flösku af víni og
konuna í mildu skapi
Carol lýsir því hernig Denis varð að
aðlaga sig breytingum þegar Margrét
varð forsætisráðherra eftir kosningasig-
ur sinn 1977 og þau hjón fluttu að Down-
ingstræti 10. Hann segist hafa uppgötv-
að að hann var afar feiminn maður sem
varð að sigrast á feimninni með hraði.
En það var ekki einungis Denis sem
þurfti að venja sig þeirri tilhugsun að
lifa í skugga forsætisráðherra Breta
Dóttir Thatcher-hjónanna skrifar bók um pabba sinn, Denis:
Drakk og brúkaði munn
í skugga Járnfrúarinnar
dregur dóttirin upp hlýlega mynd af forsætisráðherrans á ellefu ára
tryggum fylgdarmanni og verndara valdatíma hans í Downingstræti 10.
* /*“**&*
Krakkar!
Þið getið komið við í Perlunni (4. hæð) í
dag og á morgun og skilað inn sögum í
smásagnasamkeppnina Tígri í umferðinni.
Tígri, lukkudýr Krakkaklúbbs DV, kemur
í heimsókn kl. 11.30 í dag.
Gfagdkg vörðfauii
frá vér^fuuíttíií
M4RI
Sjáumst í
sumarskapií
í samstarfi við
ogi^lögregluna /
Gleðimaður
og húmoristi
I bókinni kemur fram að Denis
er ekkert dauðyfli heldur litríkur
persónuleiki sem hefur afar ákveðn-
ar skoðanir um hluti og er ekkert að
liggja á þeim, alla vega ekki í góðra
vina hópi eða þegar ginblandan er
innan seilingar. Þykir langur vegur
milli þess Denisar sem þjóðin sá í
fylgd með Járnfrúnni og þess Denis-
ar sem gerir að gamni sínu með vin-
um og kunningjum þegar „skriðdýr
gulu pressunnar eru úr kallfæri".
Þá er Denis snjall golfleikari. Enda
þykir hann hafa haft nægan tíma til
að spila golf með vinum sínum með-
an konan var önnum kafin sem for-
sætisráðherra.
í bókinni er dregin upp mynd af
fjármálamanni sem fylgst hefur
náið með stjórnmálabaráttunni og
þykir á stundum hafa afar eitraða
tungu þegar þau mál ber á góma. En
lesendur vilja gjarnan fá staðfest-
ingu á þeim grun sínum að Denis
hafi aUa tíð verið mikill gleðimaður
og eitraður húmoristi sem ekki fékk
að njóta sín í skugga eiginkonunn-
ar. Og bókin virðist peninganna
virði sé það tilgangurinn meö lestr-
inum.
Kúgað Ijúfmenni
Bókin kom út í sömu viku og
Andrés prins og Sarah Ferguson,
Fergie, tilkynntu að þau ætluðu að
skilja. Þótti því viðeigandi að vitna
í kafla bókarinnar þar sem segir frá
þegar Denis sat til borðs með Fergie
í veislu. Var hún að kvarta yfir út-
reiðinni sem hún fékk í breskum
fjölmiðlum. Denis lét sér fátt um
finnast og sagði: „Já, frú. En hefur
yður nokkurn tíma dottið í hug að
halda yður saman.“
fréttaljós
á laugardegi
Tímaritið Private Eye gerði grín
að Denis í mörg ár sem ljúfmannleg-
um en afar kúguðum eiginmanni.
Carol Thathcer segir í bók sinni að
faðir hennar hafi alltaf lesið skáld-
uð bréf í hans nafni í tímaritinu
sem hófust með orðunum Kæri Bill.
í bréfunum var dregin upp mynd af
dæmigerðu karlrembusvíni: reykj-
andi drykkjubolta sem hafði yndi af
íþróttum en var beygður undir of-
riki konu sinnar og verðskuldaði
því meðaumkun hvers karlmanns.
Carol segir að sér hafi reyndar kom-
ið á óvart hversu oft grínistar tíma-
ritsins hefðu hitt naglann á höfuðið
þegar þeir lýstu lífinu bak við lukt-
ar dyr Downingstrætis 10.
Best að segja
sem minnst
.
Síðasti skiladagur er 6. maí
Denis við Fergie: „Hefur yður
nokkurn tíma dottið í hug að halda
yður saman.“
Denis, sem nú er áttræður, lagði
ofuráherslu á að segja sem minnst á
valdatíma konu sinnar til að firra
hana vandræðum. Hann setti sér
strangar reglur að fara eftir í þeim
efnum: „Talaðu aldrei við blaða-
menn, hvorki innlenda né útlenda.
Bros og létt kveðja er nægjanleg.
Mundu að það er betra að þegja og
vera talinn fifl en að opna munninn
og taka af allan vafa. Segðu blaða-
mönnum aldrei að hypja sig, þá
verða þeir móðgaðir.“
Og það var kannski eins gott að
Denis var fámáll. Pólitískar skoðan-
ir hans, þó þær séu ekki óvenjuleg-
ar fyrir Englending af hans kynslóð
og með hans bakgrunn, þykja nefni-
lega ekki „réttar". Þannig hefði lýs-
ing hans á bálför Indiru Gandhi
1984, sem hann var viðstaddur
ásamt Margréti, vakið írafár og
hneykslun á sínum tíma.
„Fólk bara gekk og gekk í kring
um köstinn og bölvað bálið ætlaði
aldrei að slokkna. Þá fóru menn að
skvetta smjörolíu á eldinn. Aum-
Caroi Thatcher upp hlýlega mynd af
tryggum fylgdarmanni og verndara
forsætisráðherrans á ellefu ára
valdatíma hans í Downingstræti 10.
Kemur fram að Denis er ekkert
dauðyfli heldur litríkur persónuleiki
sem hefur afar ákveðnar skoðanir.
næstu árin. Carol virðist bera ótta-
blandna virðingu fyrir móður sinni
sem ekki var viðstödd útgáfu bókar-
innar. Hún sagðist ekki vilja segja
mikið um móður sína þar sem hún
væri fjarverandi, aðeins að hún
væri afar svöl kona og nokkuð
glæsileg að auki.
Carol virðist afar lík fóður sínum
á margan hátt. Þau þykja bæði
miklar félagsverur og hafa síður en
svo á móti því að fá almennilega í
glas. Eða svo vitnað sé í Denis:
„Mín hugmynd um himnaríki er að
sitja í garðinum mínum á heitu
júníkvöldi með flösku af freyðivíni
og konuna í mildu skapi."
Margrét virðist ekki deila áhuga
Denisar á hinum ljúfu veigum en
lítið var um að vín væri haft um
hönd á hennar heimili. Segir Denis
frá því þegar Margrét Roberts tök
tilvonandi eiginmann með sér heim
til að kynna hann fyrir foreldrum
sínum. Denis fékk heldur blendnar
móttökur þegar í ljós kom að hon-
um þætti gott að fá sér í staupinu.
Hann segir svo frá: „Margrét kynnti
mig og sagði síðan: „Denis mundi
vilja fá eitthvaö að drekka." Ég get
svo svarið að pabbi hennar varð að
dusta rykið af einu sérríflöskunni á
heimilinu." Reuter