Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Qupperneq 51
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996
afmæli
Stefán Björgvin Gunnarsson
Stefán Björgvin Gunnarsson,
fyrrv. bóndi og verkamaður, Aust-
urvegi 40, Selfossi, er níutíu og
fimm ára í dag.
Starfsferill
Stefán fæddist að Sleðbrjót í Jök-
ulsárhlíð en ólst upp á Húsavík og
flutti siðan eftir fermingu að Fos-
svöllum i Jökulsárhlíð.
Stefán hóf búskap að Grund í
Jökuldal 1937 en flutti að Kirkjubæ
í Hróarstungu 1952 og stundaði þar
búskap til 1962. Þá flutti hann á
Selfoss þar sem hann hefur átt
heima síðan. Á Selfossi stundaði
hann lengst af verkamannavinnu
hjá Selfossbæ.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 1934 Herdísi
Friðriksdóttur, f. 5.4. 1913, d. 27.5.
1989, húsfreyju.
Börn Stefáns og Herdísar eru
Gestur, f. 1934, verkamaður í
Reykjavík, og á hann þrjú börn en
sambýliskona hans er Ingbjörg
Hjálmarsdóttir; Ragnheiður Gunn-
hildur, f. 1937, húsmóðir i Reykja-
vík, og á hún fjögur börn; Karl, f.
1944, skrifstofustjóri hjá Osta- og
smjörsölunni, búsettur í Kópavogi,
kvæntur Valborgu ísleifsdóttur,
85 ára
Guðrún Daníelsdóttir,
Bogarbraut 65, Borgamesi.
80 ára
Margrét J. Jónsdóttir,
Sóltúni, Garði.
Guðrún Magnúsdóttir,
Bálkastöðum, Ytri-Torfustaða-
hreppi.
75 ára
HaUfríður Njálsdóttir,
Hlíðarvegi 44, Siglufirði.
Sigríður Magnúsdóttir,
frá Oddsparti í Þykkvabæ,
Hraunbæ 103, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum í félags-
miðstöö aldraðra, Hraunbæ 105, í
dag, laugardaginn 4.5., milli kl.
15.00 og 18.00.
70 ára
Svanlaug Þorgeirsdóttir,
Vesturbergi 89, Reykjavík.
Stefanía Sigríður Jónsdóttir,
Sólheimum 23, Reykjavík.
Hún er að heima.
Ólína Sæmundsdóttir,
Skipholti 49, Reykjavík.
60 ára_________________________
Guðný Ásdís Hilmarsdóttir,
Lerkihlíð 13, Reykjavík.
Kristbjörg Guðmundsdóttir,
Borgum, Grímseyjarhreppi.
Herborg Jónsdóttir,
Fornhaga 23, Reykjavík.
Gerður Þorsteinsdóttir,
Miðleiti 4, Reykjavík.
Unnur Jónsdóttir,
Esjuvöllum 10, Akranesi.
starfsstúlku í Seljahlíð, og eiga þau
fjögur börn; ína Sigurborg, f. 1947,
húsmóðir og starfsmaður hjá
Kaupfélagi Árnesinga á Selfossi,
búsett á Selfossi, gift Guðjóni Ás-
mundssyni rennismið og eiga þau
fimm börn.
Systkini Stefáns: Jónína, f. 1899,
d. 1989, ljósmóðir; Ragnar, f. 1902,
d. 1967, bóndi; Þórdís, f. 1903, d.
1995, húsfreyja; Guðný, f. 1905, d.
1984, húsfreyja; Helgi, f. 1906, d.
1988, bóndi; Aðalsteinn, f. 1909, d.
1988, bóndi og verkamaður; Þor-
valdína, f. 1910, húsfreyja í Hafnar-
firði; Bergþóra, f. 1912, húsfreyja í
Reykjavík; Karl, f. 1914, d. 1988,
bóndi; Baldur, f. 1915, verkamaður
í Reykjavík; Sigrún, f. 1917, hús-
freyja á Akureyri; Hermann, f.
1920, d. 1951, prestur.
Foreldrar Stefáns voru Gunnar
Jónsson, bóndi á Fossvöllum, og
Ragnheiður Stefánsdóttir hús-
freyja.
Ætt
Gunnar var sonur Jóns, b. á Há-
reksstöðum, Benjamínssonar. Móð-
ir Jóns var Guðrún Gísladóttir, b. á
Hvanná, bróður Þorsteins, langafa
Jóns Magnússonar forsætisráð-
herra. Gísli var sonur Jóns, b. í
Bót, Sigurðssonar og k.h., Ragn-
hildar Guðmundsdóttur.
50 ára________________________
Áslaug Ásgeirsdóttir,
Teigagrund IV, Ytri-Torfustaða-
hreppi.
Rafn Sævar Heiðmundsson,
Suðurgötu 12, Sandgerði.
Sigurjón H. Siggeirsson,
Stakkholti 3, Reykjavík.
Ólína Eygló Ólafsdóttir,
Garöarsbraut 35A, Húsavík.
Hafsteinn Kristinsson,
Hólagötu 29, Njarðvík.
Björgvin Víglundsson,
Hamrahlíð 31, Reykjavik.
Kristinn G. Garðarsson,
Breiðvangi 33, Hafnarfirði.
Ástþór Ragnarsson,
Grundarstíg 6, Reykjavík.
40 ára
Birna Borg Sigurgeirsdóttir,
Lyngbergi 25, Þorlákshöfn.
Valdimar Össurarson,
Stekkjarmel, Vesturbyggð.
Erla Lind Þorvaldsdóttir,
Skagabraut 24, Akranesi.
Ari Guðmundsson,
Stýrimannastíg 11, Reykjavík.
Gunnar Sigurðsson,
Drafnargötu 2, Öxaríjarðarhreppi.
Hallgrímur Arnalds,
Fífuhjalla 4, Kópavogi.
Frímann Sigurnýasson,
Bræðratungu 22, Kópavogi.
Guðni Þór Ingvarsson,
Seljalandi 7, Reykjavík.
Edda Stefánsdóttir,
Skútahrauni 18,
Skútustaðahreppi.
Reynir Einarsson,
Kögurseli 20, Reykjavík.
Móðir Gunnars var Guðrún
Jónsdóttir, b. í Breiðuvík í Borgar-
firði, Bjarnasonar. Móðir Jóns var
Guðný Pétursdóttir, b. á Breiða-
vaði, Nikulássonar og k.h., Snjó-
fríðar Jónsdóttur pamfils. b. á Mýr-
um í Skriðdal, Jónssonar.
Ragnheiður var dóttir Stefáns, b.
í Teigaseli, bróður Bjargar, móður
ísaks Jónssonar skólastjóra. Stefán
var sonur Bjarna, b. í Blöndugerði,
Stefánssonar, b. á Egilsstöðum í
Vopnafirði, Þorsteinssonar. Móðir
Melody-Amber skákmótið í Món-
akó er ekkert venjulegt skákmót.
Hollenski auðmaðurinn van Ooste-
rom á heiðurinn af nýstárlegu fyrir-
komulagi þess en í ár fagnaði mótið
fimm ára afmæli sínu. Hugmynd
Hollendingsins er fyrst og fremst sú
að búa til skemmtilegt mót fyrir
áhorfendur en í þeim tilgangi lætur
hann keppendur gera ýmsar hund-
akúnstir, eins og að tefla blindandi.
Keppninni i Mónakó er tvískipt.
Hver keppandi teflir tvær atskákir
við hvern hinna, með 25 mínútna
umhugsunartíma í byrjun skákar
og 10 sekúndur til viðbótar við
hvern leik (Fischer-klukkan). Önn-
ur atskákin er hins vegar jafnframt
blindskák. Þá sitja skákmennirnir
fyrir framan tölvuskjái og slá inn
leiki á ímynduðu taflborði. Svar-
leikur mótherjans birtist síðan jafn-
harðan á skjánum. Eins og nærri
má geta verður oft mikill handa-
gangur í öskjunni, einkum þegar
tíminn er farinn aö styttast. Mörg-
um þykir þó nóg um hraðann og
spennuna í hefðbundinni atskák,
hvað þá þegar við bætist „þreifandi
myrkur‘“.
Umsjón
Jón LÁrnason
Rússinn ungi, Vladimir Kramnik,
fagnaði sigri að þessu sinni. Enginn
var honum fremri í blindskákinni,
þar sem hann sigraði með yfirburð-
um - hlaut 9 vinninga úr 11 skák-
um. I atskákkeppninni deildi hann
3.-4. sæti með Piket (hlaut 7 vinn-
inga af 11) en Indverjinn Anand og
Úkraínumaðurinn Ivantsjúk fengu
7.5 v. Samanlagt fékk Kramnik 16
vinninga, Anand 15, Ivantsjúk 14,5,
Kamsky 12, Karpov, Lautier og
Sírov 11,5, Piket og Judit Polgar 11,
Nikolic 8,5, Ljubojevic 5 og Xie Jun
4.5 v.
Skákmeistarar eru margir hverj-
ir annálaðir fyrir óbrigðult minni
og hæfileika sem mörgum leik-
manni þykja magnaðir, þ.e. að þeir
skuli geta rutt út úr sér dýpstu flétt-
um án þess að nokkurt skákborð sé
í sjónmáli. Þetta hefur þó löngum
tíðkast og nægir í því sambandi að
minna á gömlu íslensku meistar-
ana, eins og Ásmund Ásgeirsson og
fleiri. Hætt er við að þeim hefði
ekki fundist mikið um taflmennsku
meistaranna í Mónakó. Hér er lítið
dæmi um „skákblindu" af versta
tagi:
Hvítt: Xie Jun
Svart: Judit Polgar
Sikileyjarvöm.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Db6 5. Rb3 Rf6 6. Rc3 e6 7.
Bd3 d6 8. 0-0 Be7 9. Be3 Dc7 10.
Df3 b5?
Judit gefur peð, trúlega alveg
óvart, því að hvítur má þiggja það
sér að meinalausu. En kínverska
skákdrottningin telur ekki ástæðu
til annars en treysta Judit. Nú er
hún alveg viss um að svarta peðið
Stefáns var Guðrún Jónsdóttir,
prests á Hjaltastað, Oddssonar sem
ritaði um Hjaltastaðarfjandann.
Móðir Ragnheiðar var Björg, systir
Björns, langafa Geirs Hallgríms-
sonar forsætisráðherra. Ragnheið-
ur var dóttir Þorleifs, b. á Karls-
stöðum, Péturssonar, bróður Guð-
laugar, móður Eiríks Bjömssonar
á Karlsskála.
Stefán hefur undanfarin ár dval-
ið á Ljósheimum á Selfossi. Hann
verður á afmælisdaginn hjá dóttur
hljóti að vera komið til a6 til að
styðja við b-peðið.
11. e5? Rd5 12. Rxd5 exd5 13.
Dxd5 0-0 14. Rd4 Rxd4 15. Dxd4
Bb7 16. Hadl dxe5
17. Db6?? axb6
- og nú gafst Xie Jun upp. Svartur
hafði sem sagt aldrei leikið peðinu
til a6 til að styðja við framrás b-peðs-
ins, eins og svo algengt er í Sikileyj-
arvörninni.
En í Mónakó brá auðvitað einnig
fyrir snotrum töktum, jafnt í blind-
skákinni sem í atskákkeppninni. Lít-
um á aðra stöðu. Gata Kamsky hafði
hvítt og átti leik í þessari stöðu gegn
Predrag Nikolic. Hvað leikur hvítur?
46. Hc7! Dxc7 47. Rxe6
- og Nikolic gafst upp. Hvítur hót-
ar máti á g7 og drottningunni á c7 og
eitthvað verður að láta undan. Takið
eftir að svartur getur ekki sagt skák
sér til lífs, því að skyndilega er cl
reiturinn valdaður af hvítu drottn-
ingunni.
Nokkrum dögum eftir sigurinn í
Mónakó var Vladimir Kramnik sest-
ur að tafli í sjálfri Kreml, þar sem at-
skákmót PCA-samtaka Kasparovs
fór fram. Keppnin var með útsláttar-
fyrirkomulagi og mátti minnstu
muna að Nigel Short tækist að slá
Kramnik út í fyrstu umferð. En
Kramnik komst áfram á jöfnu, vann
síðan Tsernín, svo Judit Polgar og
loks Garrí Kasparov í úrslitaeinvígi.
Glíma þeirra var ekki átakalaus; að
loknum tveimur atskákum var jafnt
á með þeim komið og voru þá tefld-
ar tvær 5 mínútna hraðskákir til úr-
slita. Kramnik vann fyrri skákina
með svörtu í 63 leikjum og þegar fok-
iö var í flest skjól í þeirri síðari bauð
Kasparov jafntefli sem Kramnik
glaður þáði.
Grípum niður í eina af vinnings-
skákum Kramniks í Kreml. í stöð-
unni hér á eftir hafði hann hvítt og
átti leik gegn Tsernín. Svartur hefur
teflt býsna djarft, seilst eftir peði á
kostnað liðsskipanarinnar og þess
að hleypa hvitu drottningunni inn
Stefán Björgvin Gunnarsson.
sinni og fjölskyldu að Stekkholti 11
á Selfossi.
fyrir víglínuna. Nú var enda
Kramnik fljótur að leiða taflið til
lykta:
Svartur gætir ekki máthótunar-
innar á e8 á annan hátt, þ.e.a.s. án
þess að tapa liði.
26. Hdl!
En eftir þennan einfalda leik er
frekari barátta svarts vonlaus. Hót-
unin er 27. Dd8 mát, eða 27. Dxg7. Ef
26. - BfB þá 27. Rd6 aftur með tvö-
faldri hótun, nú á drottningunni og
f7. Svartur gafst upp.
Kasparov á síðasta orðið, með
hvítt í stöðunni hér að neðan, þar
sem hann á í höggi við Viswanathan
Anand. Ljóst er að Kasparov hefur
ekki farið mjúkum höndum um Ind-
verjann knáa. Sjáið biskupinn á h8
og óvirka stöðu svörtu mannanna.
Nú var kominn tími til að veita náð-
arhöggið:
32. Bd8! Re6
Ef 32. - Hxd8 33. Re7+ og svartur
verður að gefa drottninguna.
33. Re7+ Hxe7 34. fxe7 Dd7 35.
Hh3
- og Anand gafst upp.
Landsmótið á Eyrarbakka.
Úrslitakeppnin í landsmótinu í
skólaskák stendur yfir nú um helg-
ina í samkomuhúsinu Stað á Eyrar-
bakka. Þetta er í 17. sinn sem lands-
mótið fer fram en mótin hafa frá
upphafi veriö mjög fjölmenn. Áætla
má að um þrjú þúsund nemendur
um allt land taki þátt í keppninni í
skólum landsins.
Snjöllustu skákmenn kjördæ-
manna tefla í úrslitakeppninni, sem
skipt er í tvo 12 manna riðla, yngri
flokk (nemendur 1,- 7. bekkjar) og
eldri flokk (nemendur 8.-10. bekkj-
ar). Margir okkar efnilegustu skák-
manna tefla á mótinu, þar á meðal
ólympíumeistararnir Jón Viktor
Gunnarsson, Bragi Þorfinnsson,
Bergsteinn Einarsson og Einar
Hjalti Jensson.
Áskrifendur fá 'i;? f:
aukaafslátt af smáauglýsingum DV
5505009
auglýsingar
Til hamingju með
afmælið 4. maí
rák
Svipmyndir frá hraðmótum
- Vladimir Kramnik sigursæll í Mónakó og Kreml