Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Síða 53
DV LAUGARDAGUR 4. MAÍ1996
61
<
í
í
i
i
i
Á
i
Handverkssýning í
röraverksmiðju
Um þessar mundir sýnir Snorri
Snorrason ýmis verk í sýningarsal
Sets hf. á Selfossi. Sýnir hann olíu-
og pastelmyndir ásamt skúlptúr úr
rekaviði og íslensku móbergi. Sýn-
ingin er opin í dag og á morgun kl.
14.00-18.00.
Sýningar
Safnahúsið á Húsavík
A morgun munu nemendur for-
(j námsdeildar, graflskrar hönnunar
og málunardeildar Myndlistaskól-
ans á Akureyri sýna verk sín í
Safnahúsinu á Húsavík. Hefst sýn-
ingin kl. 14.00 og stendur til 18.00. Á
sýningunni munu nemendur og
kennarar kynna starfsemi skólans
og gestir eiga þess kost að fá teikn-
Hækkun
sjálfræðisaldurs
í tengslum við landsþing
Barnaheilla standa samtökin
fyrir málþingi um hækkun sjálf-
ræðisaldurs að Hótel Sögu í dag
kl. 13.15- 16.00. Öllum er heimill
aðgangur.
Málþing um bókasöfn
í dag kl. 14.15 verður að til-
hlutan Menningarmálanefndar
Akureyrar haldið málþing um
bókasöfn í C-álmu Verkmennta-
skólans á Akureyri. Allir sem
áhuga hafa eru hvattir til að
mæta.
Staða varnarliðsins
Stanley W. Brown, yfirmaður
Vamarliðsins á Keflavíkurflug-
velli, flytur erindi á sameigin-
legum hádegisverðarfundi Sam-
taka um vestræna samvinnu og
Varðbergs í Skála á Hótel Sögu í
dag kl. 12.00.
Söfn og þjóðarfræði
er yfirskrift málþings sem
haldið er i Skógum undir Eyja-
fjöllum i dag kl. 13.00 og er mál-
þingið öllum opið.
Samkomur
Skaftfellingafélagið í Reykjavík
Kaffiboð félagsins verður á
morgun kl. 14.00 í Skaftfellinga-
búð, Laugavegi 178.
Félag kennara á eftirlaunum
Aðal- og skemmtifundur verð-
ur í dag kl. 14.00 í Kennarahús-
inu við Laufásveg.
Opið hús hjá Bahá'íum
Bahá’íar eru með opið hús að
Álfabakka 12 í Mjódd kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Sjálfbær nýting sjávarspendýra og
samfálög á norðurslóðum
er yfirskrift ráðstefnu sem
haldin er á vegum Háskólans á
Akureuri í dag. Ráðstefnan hefst
kl. 13.20 og verða sjö erindi flutt,
öll á ensku.
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 88
3. maí 1996 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 67,070 67,410 66,630
Pund 100,800 101,310 101,060
Kan. dollar 49,160 49,460 48,890
Dönsk kr. 11,3800 11,4400 11,6250
M Norsk kr. 10,2020 10,2580 10,3260
V Sænsk kr. 9,7830 9,8370 9,9790
Fi. mark 13,9350 14,0170 14,3190
Fra. franki 12,9690 13,0430 13,1530
Belg. franki 2,1335 2,1463 2,1854
f Sviss. franki 53,9000 54,2000 55,5700
Holl. gyllmi 39,2600 39,4900 40,1300
Pýskt mark 43,8800 44,1000 44,8700
It. líra 0,04282 0,04308 0,04226
i Aust. sch. 6,2330 6,2720 6,3850
Port. escudo 0,4263 0,4289 0,4346
Spá. peseti 0,5245 0,5277 0,5340
Jap. yen 0,64160 0,64540 0,62540
irsktpund 104,340 104,980 104,310
SDR/t 97,17000 97,75000 97,15000
1 ECU/t 82,2700 82,7700 83,3800
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Léttskýjað í höfuðborginni
Höfuðborgarbúar og aðrir sem
búa á suðvesturhorninu og Suður-
landi geta ornað sér í sólinni í dag
en spáð er norðaustangolu eða kalda
Veðrið í dag
og léttskýjuðu í þessum landshlut-
um. Um landið norðanvert og aust-
anvert gætu orðið slydduél og skúr-
ir suðaustanlands. Hiti verður á bil-
inu frá frostmarki og upp í tíu stig,
hlýjast verður sunnanlands en kald-
ast verður við norðurströndina og
hugsanlega fer hitinn ekki yfir þjú
stig þar.
Sólarlag í Reykjavík: 22.03
Sólarupprás á morgun: 4.45
Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.08
Stórstreymi
Árdegisflóð á morgun: 7.25
Veðrið kl. 12 á hádegi í gær:
Akureyri alskýjað 7
Akurnes alskýjað 8
Bergsstaðir rigning 5
Bolungarvík skýjaó 5
Egilsstaðir alskýjað 6
Keflavíkurflugv. rign. á síð.klst. 8
Kirkjubkl. alskýjað 11
Raufarhöfn alskýjað 3
Reykjavik skýjaö 8
Stórhöföi skúr 7
Helsinki rign. á sið.kls. 8
Kaupmannah. þokumóóa 10
Ósló rign. á síó.kls. 6
Stokkhólmur þokumóða 9
Þórshöfn hálfskýjað 42
Amsterdam rign. á síð.kls. 9
Barcelona skýjað 19
Chicago heiðskirt 9
Frankfurt skýjað 14
Glasgow skýjað 8
Hamborg mistur 14
London skýjað 10
Los Angeles þokumóða 17
Lúxemborg skýjað 12
París skýjað 12
Róm hálfskýjað 19
Mallorca alskýjaö 20
New York alskýjað 12
Nice léttskýjað 17
Nuuk alskýjaö 3
Orlando léttskýjað 22
Vtn skýjað 20
Washington skúr á síö.kls. 15
Winnipeg léttskýjað -3
Félagsheimili Kópavogs:
Maraþon fjögurra sönghópa
Kársneskórarnir, sem syngja f Félagsheimilinu í dag, eru fjórir.
Um 220 nemendur úr Kársnes-
og Þingholtsskóla halda mara-
t þontónleika i Félagsheimili Kópa-
vogs i dag og hefjast þeir kl. 9.00
og lýkur kl. 21.00. Alls verður boð-
ið upp á 12 tónleika með fjórum
sönghópum, Litla kór Kársnes-
skóla, Drengjakór og Stúlknakór
Kársnesskóla og Skólakór Kárs-
ness og skiptast kóramir á að
syngja. Á efnisskránni eru um 130
lög eftir íslensk og erlend tónskáld
auk þjóðlaga frá ýmsum löndum í
vönduðum raddsetningum.
Skemmtanir
Kórstarf í Kársnesskóla stendur
með miklum blóma í Kársnes- og
Þingholtsskóla og hafa kórarnir
, jafnan vakið athygli fyrir vandað-
an söng og fjölbreytt lagaval. Um
: 40 unglingar úr Skólakór Kársness
fara í sumar til Ungverjalands á
kóramót æskukóra og eru mara-
þontónleikarnir haldnir í fjáröfl-
unarskyni en kórarnir eru í óða-
m
önn að undirbúa tónleikaferðir
þegar skóla lýkur. Auk þess sem
kórinn tekur þátt í samsöngstón-
leikum mun hann halda eigin tón-
leika og syngja brot af því besta
sem íslensk tónskáld hafa samið
fyrir barna- og unglingahópa.
Stjómandi Kársneskóranna er
Þómnn Björnsdóttir og undirleik-
ari er Marteinn H. Friðriksson.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1504:
<TíTG VIL SSEM honum
'þesnA 06 £6 B6yi?6isr
vfií> HÚN BNDÍST Aí-LT
H
\
Æviskeið
EyþoR-wt-
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi
dagsönn
Helga Bachmann, Edda Þórarins-
dóttir og Halla Margrét Jóhannes-
dóttir eru konurnar þrjár.
Þrjár konur stórar
Nú fer sýningum Kjallaraleik-
hússins á Þrem konum stórum að
| fækka, en aðsókn hefur verið góð
og sýningin fengið góða umfjöll-
un. Næsta sýning er annað kvöld
í Tjarnarbíói.
Leikhús
Þijár konur stórar er nýjasta
leikrit Edwards Albees og var það
fyrst frumsýnt í Enska leikhús-
inu í Vín árið 1991 í leikstjórn
höfundar. Að undanfömu hefur
verkið verið sýnt við fádæma góð-
ar undirtektir í New York og
London. Leikritið hefur hlotið
. fjölda verðlauna, meðal þeirra
Pulitzer-verðlaunin árið 1994.
Helgi Skúlason leikstýrir verk-
inu en þýðingu annaðist Hall-
grímur H. Helgason. Þrjú hlut-
verk eru í leikritinu og eru það
leikkonurnar Helga Bachmann,
Edda Þórarinsdóttir og Halla
I Margrét Jóhannesdóttir sem fara
með þau.
Danskir
kaffihúsatónleikar
Dönsk stemning verður á efri
hæð Sólons íslanduss í dag kl. 16.00
en þá mun danska vísnasöngkonan
Pia Raug halda tónleika og flytur
hún eigin lög og ljóð.
Styrktartónleikar í Digraneskirkju
Á morgun kl. 17.00 verða haldnir
í Digraneskirkju fyrri tónleikar
Kórs Digraneskirkju til styrktar
orgelsjóði kirkjunnar. Auk kirkju-
kórsins koma fram Kór Nýja tónlist-
arskólans, Guðmundur Sigurðsson
leikur einleik á orgel, Þórunn Stef-
ánsdóttir og Þórunn Freyja Stefáns-
dóttir syngja einsöng og Jóhann
Stefánsson trompetleikari leikur.
Vortónleikar Tónskóla Sigursveins
Vortónleikar Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar verða í dag
kl. 14.00 í Hraunbergi 2 og kl. 17.00.Í
Norræna húsinu. Á tónleikunum
koma fram nemendur í einleik og
samleik. Tónleikar Suzúkideildar
verða á morgun kl. 14.00 í Hraun-
bergi 2.
Tónleikar
Léttsveit Kvennakórsins
Tónleikar Léttsveitar Kvennakórs
Reykjavikur verða hcddnir á morg-
un kl. 16.00 og á þriðjudag kl. 20.30.
Stjórnandi er Jóhanna V. Þórhalls-
dóttir. Á efnisskrá eru söngleikja-
lög, íslensk lög og lög frá Norður-
löndum.
Barnatónleikar
í dag kl. 16.00 verða haldnir nor-
rænir barnatónleikar í Möguleik-
húsinu. Á tónleikunum koma fram
Geirr Lystrup frá Noregi og Aðal-
steinn Ásberg og Anna Pálína.
Sameiginlegir tónleikar
Kór Átthagafélags Strandamanna
og Húnakórinn halda sameiginlega
tónleika á morgun kl. 21.00 í Ytri-
Njarðvíkurkirkju.
Lokatónleikar Vísnadaganna
Annað kvöld kl. 20.30 lýkur Nor-
rænum visnadögum með lokatón-
leikum í tónleikasal Tónlistarskóla
FÍH við Rauðagerði. Þar koma fram
allir norrænir gestir hátíðarinnar
og íslendingarnir Valgeir Guðjóns-
son, Hörður Torfason og Ánna
Pálína Árnadóttir.