Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1996, Blaðsíða 7
ittgfumr-tsjr.
FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 1996
Menning
Hvunndagsleikhúsið frestar sýningu:
Roö ohappa og leikar-
arnir raddlausir af ryki
Hvunndagsleikhúsið hefur að
undanförnu verið að æfa gríska
ærslaleikinn Jötuninn eftir Evripí-
des í tilefni listahátíðar. Jötunninn
er púkaleikur í formi söngleiks en í
Grikklandi til forna var siður að
sýna slíka gleðileiki á eftir harm-
leikjum til að létta lund áhorfenda.
En í þessu tilfelli þarf ef til vill frek-
ar að létta lund aðstandenda sýning-
arinnar. Ástæðan fyrir því er að
orðið hefur að fresta frumsýning-
unni sem áætluð var laugardags-
kvöldið 8. júni. Þess í stað verður
frumsýnt fimmtudagskvöldið 13.
júní en samkvæmt sýningarskrá
var áætlað að sú sýning yrði sú
þriðja og síðasta í röðinni.
Að sögn Ingu Bjarnason, sem er
leikstjóri sýningarinnar, er hér um
að kenna röð óhappa og slysa sem
hent hafa þá leikara og dansara sem
að sýningunni standa. Meðal þeirra
Sigurður Flosason.
Djass á Listahátíð:
Sigurður
Flosason og
alþjóðlegur
kvintett
Sigurður Flosason djassleikari
verður með tvenna tónleika á lista-
hátíð þar sem hann flytur nýja og
nýlega tónlist ásamt alþjóðlega
djasskvintettinum. Meðleikarar Sig-
urðar koma víða að, eru allir í
fremstu röð á sínu sviði og hefur
Sigurður spilað með þeim flestum
við önnur tækifæri.
Sigurður Flosason hefur á undan-
förnum árum verið einn af virtustu
djassleikurum þjóðarinnar. Með
honum spila Scott Wendholt, Eyþór
Gunnarsson, Lennart Ginman og
John Riley. Scott Wendholt er
trompetleikari sem er rísandi
stjarna í djassheimi New York borg-
ar auk þess að hafa hljóðritað 3
geisladiska og starfað með ýmsum
stórsveitum. Eyþór Gunnarsson er
íslendingum að góðu kunnur en
hann varð snemma atvinnutónlist-
armaður og var meðal annars einn
af stofnendum Mezzoforte. Lennart
Ginman er einn fremsti bassaleik-
ari Dana af yngri kynslóðinni. John
Riley er einn af vinsælli trommu-
leikurum í New York í dag.
Sigurður Flosason og alþjóðlegi
djasskvintettinn halda tvenna tón-
leika. Hinir fyrri verða í Deiglunni
á Akureyri í kvöld, 6. júní, kl. 21.30
en þeir síðari verða í Loftkastalan-
um fostudagskvöldið 7. júní kl.
21.00. -ggá
óheppilegu atvika sem komið hafa
upp á er að gömul meiðsl tóku sig
upp hjá Arnari Jónssyni leikara en
hann fer með stórt hlutverk í sýn-
ingunni. Einnig hefur töluvert borið
á því að söngvarar sýningarinnar
hafi misst röddina og vilja menn
helst kenna ryki í húsinu um það en
hópurinn hefur verið að æfa í Loft-
kastalanum þar sem sýningar munu
einnig fara fram. Aðstandendur
sýningarinnar eru þó vongóðir um
að ástandið verði komið í eðlilegt
horf fyrir frumsýninguna þann 13.
júní.
Sýningin mun vera mikið sjónar-
spil, búningar og fórðun eru með
því skrautlegra sem sést hefur á
sviði hér á landi auk þess sem mik-
ið fer fyrir tónlistarflutningi en fjög-
urra manna rokkhljómsveit gengur
til liðs við hina hefðbundnu tónlist.
Helgi Hálfdanarson sá um þýð-
ingu verksins, tónlist er í höndum
Leifs Þórarinssonar en Gerla og Ás-
dís Guðjónsdóttir hafa umsjón með
leikmynd og búningum. -ggá
Andlit B:27cm H:32cm
Kr. 1400,-
Bndshðtða 20-112 RaykjavlR - Sfml 5B7 1410
Notfð
nýtt!
GOOOOOOOíTÁ,
SAMKVÆMT tðQUM NR.M
S.MAhSSÍ
jiBÉæsSiír.
SEÐLABANKI m ^
ÍSLANDS 4
við tökum gamla myndbandstækið sem..
G0000000 0
SAMKVÆMT iðGUM NR.3S
S. UAÍ1988
SEÐLABANKI', a
ÍSLANDS %■
..tíuþúsundkróna greiðslu upp í nýtt
iv'öSAac*
G0000000 0
SAMKVÆMT LÓOUM NR.3S
S. MAi 1988
SEÐLABANKI Ife
!SLANDS%
Panasonic
myndbandstæki
G00000000*.
SAMKVÆMT LÖÓUM NR.3S
S. MAÍ1986
SEÐLABANKI;
ÍSLANDS %
JAPISS
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI
SÍMI 562 5200
G00000Q00
SAMKVÆMT LðOUM NR3fi
S. MAÍ1966 <*’
SEÐLABANKI#
ÍSLANDS * -