Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1996, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ1996
Fréttir
i>v
Börn fundu 85 þúsund krónur og fóru með á lögreglustöðina:
Höfum aldrei séð
<
<
svona mikla peninga
- segir Inga Rós Hafsteinsdóttir, 9 ára, sem fann peningana ásamt vinum sínum
„Við vorum að hjóla þrjú á Sól-
brautinni, Ég og Anna María, vin-
kona mín, vorum á leið á leikjanám-
skeið og vinur okkar, Ingi Hrafn,
var að fara í unglingavinnuna. Við
sáum allt í einu hvar peningabunki
lá á götunni fyrir framan okkur.
Við stoppuðum og sáum strax að
þetta voru margir peningaseðlar og
við höfum aldrei séð svona mikla
peninga áður,“ segir Inga Rós Haf-
steinsdóttir, 9 ára Seltirningur, sem
ásamt vinum sínum, Önnu Maríu
Halldórsdóttur, 11 ára, og Inga
Hrafni Guðmundssyni, 14 ára,
fundu 85 þúsund krónur í peningum
á Sólbraut á Seltjarnarnesi í
fyrramorgun. Peningarnir voru fest-
ir saman í bréfaklemmu og lágu á
miðjum götustígnum.
„Við ákváðum strax í sameiningu
að fara til lögreglunnar og láta hana
hafa peningana svo hún gæti fundið
út hverjir ættu þá. Lögreglumaður-
inn var voða ánægður þegar við
sögðum honum söguna og létum
hann fá peningana. Hann fann síðan
fólkið sem átti þá. Fólkið var mjög
ánægt og gaf okkur öllum 5 þúsund
Vinkonurnar Inga Rós Hafsteinsdóttir, 9 ára, til vinstri, og Anna
ásamt Sæmundi Pálssyni, lögreglumanni á Seltjarnarnesi.
María Halldórsdóttir, 11 ára, meö fundarlaunin sín
DV-mynd S
krónur í fundarlaun. Ég og vinir
mínir ætlum að setja 5 þúsund
króna fundarlaunin beint í banka
og passa að týna aldrei peningum,"
segir Inga Rós.
Sýndu frábært fordæmi
„Börnin sýndu frábært fordæmi
og ég gef þeim hæstu einkunn. Það
er gaman að vita af svona vel upp-
öldum börnum og mér finnst líka
mjög gaman að þau skyldu koma
með peningana beint á lögreglustöð-
ina, Fólkið bjóst að sjálfsögðu ekki
við að fá peningana aftur í hendurn-
ar og því var mikil gleðistund þegar
það frétti af þessu. Krakkarnir voru
líka ægilega glaðir að fá fundarlaun-
in en þeir áttu þau nú heldur betur
inni eftir þessa frábæru frammi-
stöðu sína. Það voru því allir
ánægðir með þessi góðu málalok.
Við í lögreglunni erum mjög stoltur
af börnunum," sagði Sæmundur
Pálsson, lögreglumaður á Seltjarn-
arnesi, í spjalli við DV, en hann var
á vakt á lögreglustöðinni þegar
börnin komu með peningana þang-
að. -RR
Hollustuvernd lét endursenda útrunnið kaffi úr landi:
Oþolandi að nota
íslenskan markað
sem ruslakistu
- segir Jóhannes Gunnarsson, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna
„Full ástæða er til að ætla að hér
hafi ekki verið um mistök að ræða
enda var fremst i gámnum kaffi með
dagsetningu sem var í lagi. Þannig
virðist hafa átt að fela útrunna kaffið
við skoðun. Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem upp kemst um innflutning
á Gevalia kaffi sem komiö er fram
yfir leyfilega dagsetningu. Það er með
öllu óþolandi að íslenskur markaður
sé notaður sem ruslakista fyrir út-
runnar matvörur," segir Jóhannes
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Neytendasamtakanna, í bréfi sem
hann sendi Hollustvernd rikisins þar
sem hann óskar eftir því að gerð
verði sérstök rannsókn á gæðum
þeirra vara sem Rydenskaffi hf. selur.
Nú nýverið var gámur til fyrirtæk-
isins endursendur þar sem Hollustu-
vernd gerði athugasemd við hluta af
innihaldi hans.
„Við sjáum um markaðseftirlit
með innfluttri vöru og sáum að gild-
istími þessa kaffís var útrunninn.
Þess vegna var gámurinn endursend-
ur í fullu samráði við fyrirtækið,"
segir Jón Gíslason hjá Hollustuvemd
þegar DV bar það undir hann hvort
gamalt kaffi hefði komið til kaffi-
brennslunnar Rydenskaffis.
Hjá Rydenskaffi vUdu menn lítið
kannast við málið en sögðu fáránlegt
að ætla þeim að setja gamalt kaffi á
markað. Fólk væri svo meðvitað um
hvað það keypti að það þýddi ekkert
annað en dauða fyrir viðkomandi fyr-
irtæki.
„Ég veit að þessi gámur átti að fara
eitthvað annað en til íslands, hvort
sem það hefur verið austur fyrir
gamla járntjald eða eitthvað annað.
Við seljum hins vegar ekkert annað
en úrvalskaffi,“ sagði Óskar Baldurs-
son hjá Rydenskaffi. -sv
Hekla og Vestfjarðaleið:
Tveir nýir hóp-
ferðabílar
frá Scania og
Berkhof
Tveir glæsilegir hópferðabílar
bætast í flotann núna um helgina,
en þá verða til sýnis í sýningarsal
Heklu við Laugaveg tveir 49 sæta
bílar frá Scania með húsi frá Berk-
hof í Hollandi, sem Vestfjarðaleið
hefur keypt, og kostar hvor vagn
um 21 miUjón króna, en Vestijarða-
leið er einnig umboðsaðili Berkhof
á íslandi.
Bílarnir eru mjög vel búnir og
yfirbyggingin frá Berkhof er stil-
hrein og sterk. Hvor bíll er búinn
381 hestafls vél frá Scania.
Starfsamt þing í sumarfrí:
127 frumvorp
urðu að lögum
Alþingi var frestað fram til
loka septembermánaðar. í
ræðu Ólafs G. Einarssonar, for-
seta þingsins, kom fram að 163
þingfundir hefðu verið haldnir
á þingtímabilinu sem lauk í
gær. 207 lagafrumvörp voru
lögð fram og voru stjórnar-
frumvörp 131 en þingmanna-
frumvörp 76. 109 stjórnarfrum-
vörp urðu að lögum en óút-
rædd eru 22. 18 þingmannafr-
umvörp urðu að lögum en 58
eru óútrædd.
Þingforseti sagði að þingið
hefði verið mjög starfsamt og
fengist við fjölmörg átakamál
og afgreitt mikil deilumál bæði
innan og utan þings, ekki síst
frumvörpin um réttindi og
skyldur opinberra starfs-
manna og um stéttarfélög og
vinnudeilur. Ólafur sagði að
þinghaldið hefði farið nokkuð
úr skorðum, en lét í ljósi sér-
stakar þakkir sínar til ráð-
herra og þingmanna fyrir sam-
starfsvilja þeirra. Hann lét
jafnframt í ljósi vonbrigði með
að ekki hefði tekist að standa
við starfsáætlun þingsins þrátt
fyrir að hún hefði verið endur-
skoðuð í janúar sl. Þetta sýndi
fram á mikilvægi þess að ríkis-
stjórnir á hverjum tíma áætl-
uðu Alþingi nægan tíma til að
fjalla um og afgreiða mál sem
þær vildu fá afgreidd, en til að
það tækist þyrfti að komast á
sú skipan að mál væru ekki
lögð fram á síðustu vikum fyr-
ir jól og sumarfrí.
Ólafur minnti á orð sín í
upphafi þings um að stíga
skref í þá átt að skipuleggja
þinghaldið betur með því að
þingmenn sameinuðust um
það að halda ekki lengri ræður
hverju sinni en sem næmi
hálfri klukkustund. Hann
sagði að þetta hefði nokkuð
gengið eftir þrátt fyrir að ekki
hefði verið gert um það form-
legt samkomulag.
Ólafur gagnrýndi þá sem
teldu slíka hófsemd í ræðu-
höldum tákn um veikleika
stjórnarandstöðunnar, en það
væri algjör firra. Það væri
ekki merki um veika stjórnar-
andstöðu þótt þingstörf gengju
eðlilega fyrir sig. „Það er ekki
þörf á því að setja störf Alþing-
is í uppnám með óeðlilega
löngum ræðuhöldum," sagði
þingforseti.
Svavar Gestsson gagnrýndi
að ekkert samkomulag hefði
verið um niðurröðun þingmála
milli stjórnarliða og stjórnar-
andstöðu og þinghaldið ein-
kennst af átökum þeirra. Nauð-
synlegt væri því að tryggja bet-
ur rétt þingminnihluta og þjóð-
inni þar með starfhæfara þing.
Á hinn bóginn þakkaði hann
þingforseta gott samstarf og
samskiptalipurð og bað þing-
menn að rísa úr sætum honum
til heiðurs. -SÁ
Ljósið kveikti í
Annar nýju Scania-bílanna sem Vestfjaröaleið er að taka í notkun og sýndir
verða hjá Heklu um helgina.
Rannsóknarlögregla ríkisins hef-
ur upplýst að orsaka elds í flutn-
ingabfl á mánudagskvöldið sé að
leita í ljósi í vörurými bílsins. Bíll-
inn skemmdist töluvert mikið en
búið var að lesta hann með hús-
gögnum, vélum, matvælum og klór-
efni á brúsa. Engin hætta stafaði af
efninu.