Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Blaðsíða 2
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 1996 Fréttir DV Ragna Björk Emilsdóttir og Ásgeir Guðmundsson ætla að ganga í hjónaband. Vígslan fer fram í breið- þotu yfir heimskautsbaug - gert ráð fyrir 200 gestum og 360 sseta þota lögð undir brúðkaupið DV, Suðurnesjum: „Við nefndum þetta við Arngrím Jóhannsson, eiganda Atlanta flugfé- lagsins, og hann sagði að þetta væri alveg biluð hugmynd og sjálfsagt að framkvæma hana. Hann og eigin- kona hans, Þóra Guðmundsdóttir, tóku þessu strax mjög vel,“ sögðu Ragna Björk Emilsdóttir og Ásgeir Guðmundsson sem ætla að ganga í hjónaband um miðnætti laugardag- inn 22. júní. Þetta væri ekki i frá- sögur færandi nema vegna þess að athöfnin á að fara fram í háloftun- hinni nýju 360 manna breið- um þotu Atlanta flugfélagsins Ulfari Þórðarsyni en Ragna Björk starfar sem flugfreyja hjá Atlanta og Ásgeir er flugmaður hjá Cargolux í Lúxem- borg. Flugstjórar í ferðinni verða Am- grímur Jóhannsson, eigandi Atl- anta, og Hafþór Hafsteinsson, flug- maður og rekstrarstjóri Atlanta. Björn Þverdal verður flugvélstjóri í ferðinni og Þóra Guðmundsdóttir, eigandi Atlanta og eiginkona Arn- gríms, hefur umsjón með öllu um borð. Þess má geta að um 10 þúsund lítrar af eldsneyti fara í flugferðina. „Hugmyndin kviknaði þegar við vorum í Túnis og þá datt okkur þetta í hug. Við kynntumst hins vegar á Vesturgötunni og flugum saman með Atlanta flugfélaginu í Jedda, Nígeríu og Túnis,“ segja Ragna Björk og Ásgeir. „Þetta verður miðnæturbrúðkaup og athöfnin stendur frá 22.-23. júní. „Við nefndum þetta við Arngrím Jóhannsson, eiganda Atlanta flugfelags.ns og hann sagðlaðþettavænaivegb,l uö hugmynd og sjálfsagt að framkvæma hana. Hann og eiginkona hans, Þora Guðmundsdott.r, toku þessii strax mjög vel,“ sögðu Ragna Björk Emilsdóttir og Ásgeir Guðmundsson sem ætla að ganga i hjonabandum nnðn nk. laugardag. Myndin var tekin þegar verið var að æfa fyrir athöfnina. DV-myna /tgir ivia Það verður farið í loftið fimmtán mínútum fyrir miðnætti 22. júní og við verðum um miðnætti á heim- skautsbaug, 66 gráður norður. Þetta verður ósköp venjuleg athöfn. Það verður prestur um borö, Sigurður Arnarson í Grafarvogskirkju, sem gefur okkur saman. Það verða veit- ingar og einnig lítil hljómsveit um borð. Athöfnin og flugferðin munu taka um eina klukkustund. Við ger- um ráð fyrir um 200 gestum.“ „Þetta er stór hugmynd og við er- um ekki stórt fólk, en við hefðum aldrei getað komið þessum draumi okkar í loftið nema með aðstoð eig- enda Atlanta og starfsfólks. Þetta sýnir þann góða hugsunarhátt og andrúmsloft sem ríkir hjá Atlanta. Það gefa allir vinnu sína og eru til- búnir að aðstoða okkur á allan hátt til að gera þetta að veruleika. Fólk sem þekkir okkur er ekkert hissa á þessu uppátæki. Viö vildum hafa þetta öðruvísi þannig að athöfhin yrði minnisstæð. Foreldrar okkar tóku mjög vel í þetta og eru hrifnir af þessari hugmynd," segja þau Ragna Björk og Ásgeir. Þau segja að eftir flugið verði veislunni fram haldið í Hraunholti í Hafnarfirði þar sem hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar og Egill Ólafsson munu leika. „Við erum líka með annað plan í gangi ef þetta bregst. Við erum vön fluginu og vitum að það getur alltaf breyst með vélina og þá fer gifting- in fram í Dómkirkjunni á laugar- dagskvöldið," sögðu hin væntanlegu brúðhjón „Það eru fæstir sem trúa þessu en það er bara þeirra vandamál. Það eru sumir sem halda að við séum að skrökva þessu. Það er kannski að einhverju leyti mér að kenna þar sem ég hef átt það til að gera að gamni mínu,“ segir Ásgeir. Brúðkaupsnóttinni ætla svo hjónaleysin að eyða í tjaldi skammt frá Reykjavík. „Það fylgir starfi okkar að gista á lúxushótelum svo við vildum fá til- breytingu. Við ætlum aö komast í íslenska náttúru og vakna við fugla- söng,“ segir Ásgeir. „Þetta er alveg klárt og við höfum verið að undirbúa athöfnina að und- anfórnu. Ég ætla að fljúga vélinni sjálfur. Það verður flogið norður fyr- ir heimskautsbaug og við látum jáin þeirra koma í sólskinið við heim- skautsbauginn," sagði Arngrímur Jóhannsson, eigandi Atlanta flugfé- lagsins, í samtali við DV. -ÆMK Stuttar fréttir Hátíðarhöldin gengu vel Þjóðhátíðardagur íslendinga var að venju haldinn hátíðlegur um land allt í gær. Veörið lék hvar- vetna við fólk og var ekki annað að heyra á lögreglumönnum en að há- tíðarhöldin hefðu gengiö vel fyrir sig.Talið er að um 20 þúsund manns hafi komið saman í miðbæ Reykja- víkur til þess að sýna sig, sjá aðra og berja augum það sem boðið var upp á til skemmtunar. Mikill mann- fjöldi var í bænum aðfaranótt 17. júní og að sögn lögreglu gekk allt slysalaust fyrir sig. -sv Heldur mikið Varðstjóra lögreglunnar á Akur- eyri þótti menn hafa drukkið helst til mikið í bænum um helgina, með tilheyrandi skrámum, pústrum og veseni. Allt gekk þó stórslysalaust fyrir sig. 'sv Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 904 1996. 39,90 kr. mínútan 1 Ástþór Magnússon 2 Gubrún Agnarsdóttlr 3 Guörún Pótundóttlr 4 Ólafur Ragnar Grímsson 5 Pótur Hafsteln roRsm 904 1996 Hvaða frambjóðanda vilt þú sem forseta íslands? Þetta er dagleg atkvæðagreiðsla en ekki skoaanakönnun Vigdís Finnbogadóttirforseti lagði blómsveig að minnisvarða JonsSigurðs- sonar forseta við Austurvöll í sextánda og hinsta sinn við upphaf þjoðhatio- arhaldanna á 17. júní í gærmorgun. Að vanda fékk hún aðstoð nystuden a við verkið. DV-mynd S 20 fengu fálkaorðu Forseti íslands sæmdi í gær 20 íslendinga heiðursmerkjum hinnar íslensku fálkaorðu. Heiðursverðlaun Heiðursverðlaun lýðveldis- sjóðs runnu í gær til Jóns Boga- sonar, fyrrum sjómanns og starfsmanns Hafrannsóknastofh- unar, og Gísla Jónssonar, fyrrum menntaskólakennara á Akureyri. Jón borgarlistamaður Jón Ásgeirsson tónskáld var í gær útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum og fékk um leið 500 þúsund krónur. 194.784 kjósendur Hagstofa íslands hefur fundið út að kjósendur á kjörskrárstofni við kjör forseta íslands 29. júní nk. eru alls 194.784. Konur eru þar af 97.444 og karlar 97.340. Frá 1980 hefur kjósendum fjölgað um 36%. -bjb Feðgar með reynslu af því að bjargast úr sjávarháska: Sonurinn bjargaðist af Sæborgu en faðirinn 25 árum fyrr ' V 'C ^ '' í - FORSETAi 8% 0RG PH GA AM GP Meðal þeirra mörgu sem biðu eftir ástvinum sínum sem bjargað var af Sæborgu var Örlygur Rúdolf Þor- kelsson. Hann var þar mættur ásamt Elínu Maríu Óladóttur, tengdadóttur sinni, og kornungum sonarsyni, Andra Má, til að taka á móti syni sínum, Örlygi Emi. Þau Örlygur Rúdolf og Elín María sögðust hafa fengið fréttimar strax um þrjúleytið og heföu þau vitað frá upphafí að all- ir hefðu bjargast. Örlygur Rúdolf sagði að engu að síður væri mjög ónotalegt aö fá slíkar fréttir. Þau Ör- lygur Rúdolf og Elín María vora því að vonum fegin þegar Örlygur Örn var kominn á fast land og í faðm fjöl- skyldunnar. Sjálfur var Örlygur Rúdolf lengi' á sjó en er núna hættur og kominn í land. En fyrir 25 árum missti hann þrjá skipsfélaga sína þegar Andri KE fórst 15 sjómílur norðaustur af Garð- skaga. Hann sagði það óhugnanlega lífsreynslu sem aldrei gleymdist. Andri KE fórst um páskana 1971 en þá hafði Örlygur eldri þegar ver- ið á sjó í 20 ár og Örlygur yngri var ekki enn fæddur. Hjá Örlygi Erni var aldrei spurning um hvað skyldi leggja fyrir sig, hann ætlaði á sjó eins og faðir hans. Örlygur Rúdolf kvaðst aldrei hafa verið hræddur við að Örlygur Örn færi á sjó, slíkt væri til einskis þar sem hann tryði því að menn færu þegar þeim væri það ætl- að. Örlygur Rúdolf sagði að honum hefði ekki komið til hugar að hætta á sjó eftir að Andri KE fórst en þó hefði hann vissulega verið smeykur fyrst á eftir. Þegar Örlygur Rúdolf var spurður að því hvort hann teldi að sonur hans hefði gengið í gegnum svipaða líðan og hann gerði þegar Andri KE fórst sagði hann að hann teldi svo ekki vera. Munurinn lægi í því að hjá Örlygi yngri á Sæborginni hefði orðið full mannbjörg, það hlyti að vera töluvert öðruvísi tilfinning hjá áhöfninni að vita til þess að allir hefðu komist úr slíkri raun heilir á húfi. -ggá - sjá nánar á bls. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.