Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Blaðsíða 30
42 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ1996 Afmæli Bragi Sigurjónsson Bragi Sigurjónsson bifvélavirki, Birkigrund 63, Kópavogi, varð sex- tugur í gær. Starfsferill Bragi er fæddur á Geirlandi í Kópavogi sem þá tilheyrði Seltjarn- arneshreppi. Hann lauk unglinga- prófi frá Mýrarhúsaskóla 1950, var við nám í Austurbæjarskólann í Reykjavík og lauk námi í bifvéla- virkjun frá Iðnskólanum í Reykja- vík 1958 og fékk meistararéttindi í þeirri grein 1962. Hann hóf störf hjá Skógræktarfé- lagi Reykjavíkur vorið 1948 ásamt foður sínum og bróður þegar hafist var handa við að girða Heiðmörk- ina. Þar vann hann á sumrin með námi allt árið til 1955 er hann hóf iðnnám. Hann var lærlingur og starfsmaður hjá Strætisvögnum Reykjavíkur og eftir það verkstæð- isformaður hjá Strætisvögnum Kópavogs til 1962, verkstæðisfor- maður hjá Kr. Kristjánsson hf. 1962-1965, hóf vörubílaakstur á eig- in bíl frá Þrótti 1966. Árið 1973 stofn- aði hann Bifreiðaverkstæðið Kamb og var jafnframt með jarðvinnuvél- ar. Hin síðari ár hefur hann ein- göngu starfrækt fyrirtækið Kamb sem verktakafyrirtæki með jarð- vinnuvélar. Bragi var í stjórn Þróttar i mörg ár og for- maður félagsins 1985-1993. Hann var einnig nokkur ár í stjórn Landsambands vörubíl- stjóra. Fjölskylda Bragi kvæntist 20.6. 1959 Ragnheiði Dórótheu Árnadóttur, f. 1.9. 1939, skrifstofumanni I Reykjavík. Þau hafa búið í Kópa- vogi allan sinn búskap, í Bræðra- tungu 2 1960- 1976 og síðan í Birki- grund 63. Ragnheiður er dóttir Árna Hanssonar, f. 1907, fyrrverandi húsasmiðs í Kópavogi, Hanssonar, formanns og bónda í Holti á Brim- ilsvöllum, Ámasonar, og Helgu, f. 1908, d. 1990, húsfreyju í Kópavogi, Tómasdóttur, sjómanns og bónda, Bakkabúð á Brimilsvöllum, Sig- urðssonar. Börn Braga og Ragnheiöar: Árni Brynjar, f. 19. 12. 1959, bændaskóla- kennari og bóndi á Þorgautsstöðum, Hvítársíðu, kvæntur Þuríði Ketils- dóttur, f. 1966, bónda á Þorgauts- stöðum, synir þeirra eru Ketill Gauti, f. 1988, og Bragi Heiðar f. 1994; Helga Björk, f. 1. 3. 1963, bankagjalkeri; And- vana stúlka, f. 6.2. 1970; Sigurjón Rúnar, f. 1.1. 1972, vörubílstjóri; Guð- rún fflín, f. 12.7. 1979, menntaskólanemi. Systkini Braga: Unnur, f. 1923, d. 1987, húsfreyja í Reykjavík; Anna, f. 1925, fyrrverandi starfsmaður á Landakotsspítala; Svava, f. 1927, d. 1985, húsfreyja í Reykjavík; Ólafur Geir, f. 1928, d. 1966, vörubílstjóri hjá Skógræktar- félagi Reykjavíkur; Helga Marín, f. 1930, húsfreyja í Reykjavík; Sigrún, f. 1931, símavörður í Seljahlíð; Fanney, f. 1934, snyrtifræðingur í Reykjavík. Foreldrar Braga: Sigurjón Ólafs- son, f. 31.12. 1898, d. 27.5. 1964, vöru- bílstjóri og bóndi, og Guðrún Ámundadóttir, f. 10.4. 1896, d. 6.7. 1972, húsfreyja. Ætt Faðir Sigurjóns var Ólafur, skó- smiður í Reykjavík, f. 1865, d. 1933, Ólafsson, síðast vinnumanns á Kirkjubæjarklaustri, f. 1837, d. 1864, Árnasonar, bónda á Undirhrauni, f. 1802, d. 1846, Ásgrímssonar. Móðir Ólafs Ólafssonar var Þórunn, hús- freyja Blesahrauni og Geirlandi á Síðu, f. 1838, d. 1901, Sigurðardóttir, síðast bónda á Eintúnahálsi, f. 1796, d. 1867, Oddssonar. Móðir Sigurjóns var Þóranna, húsfreyja i Reykjavík, f. 1875, d. 1940, Jónsdóttir, bónda í Mörk, f. 1830, d. 1900, Bjarnasonar, bónda á Fossi og Heiði, f. 1798, d. 1870, Ein- arssonar. Móðir Þórönnu var Sig- ríður Þórhalladóttir, húsfreyja í Mörk, f. 1834, d. 1907, bónda í Mörk og víðar, f. 1799, d. 1870, Runólfsson- ar. Faðir Guðrúnar var Ámundi, bóndi á Kambi í Villingaholts- hreppi, f. 1864, d. 1963, Sigmunds- sonar, bónda á Kambi, f. 1825, d. 1901, Jóhannssonar, bónda í Efra- Langholti, f. 1791, Einarssonar. Móðir Guðrúnar var Ingibjörg, húsfreyja á Kambi, f. 1868, d. 1940, Pálsdóttir, síðast bónda og hrepp- stjóra á Selalæk á Rangárvöllum, f. 1834, d. 1870, Guðmundssonar, bónda á Keldum, f. 1794, d. 1883, Brynjólfssonar. Móðir Ingibjargar var Þuríður, síðast húsfreyja á Sela- læk, f. 1832, d.' 1869, Þorgilsdóttir, bónda á Rauðnefsstöðum, f. 1799, d. 1878, Jónssonar. Bragi Sigurjónsson. Jón Sigurðsson Jón Sigurðsson vél- fræðingur, Starrhólma 4, Kópavogi, varð sextugur í gær. Starfsferill Jón er fæddur á ísafirði og ólst þar upp. Hann er gagnfræðingur frá Gagn- fræðaskóla ísafjarðar 1954, vélvirki frá Vél- smiðju Hafnarfiarðar 1958 og vélfræðingur frá Vél- skólanum í Reykjavík 1961. Jón var vélstjóri á togurum og hjá Skipaútgerð ríkisins 1960-63. Hann hóf störf hjá Kassa- gerð Reykjavíkur 1963 og hefur verið verkstjóri viðhaldsdeildar frá 1980. Jón bjó á ísafirði til 1954, í Hafnarfirði 1954-64 og Kópavogi frá þeim tima. Hann hefur starfað með Kiwanishreyfingunni frá 1980 (Eldey í Kópavogi og var forseti þar 1992-93). Fjölskylda Kona Jóns er Hanna Ósk Jóns- dóttir, f. 1.10. 1938, húsmóðir. For- eldrar hennar: Jón Egill Sveinsson Jón Sigurðsson. og Steinunn Óskarsdóttir. Börn Jóns og Hönnu: Guðrún V. Jónsdóttir, f. 24.2. 1956, aðstoðarm- aður tannlæknis, maki Helgi H. Jónsson, vélvirki, þau eru búsett í Kópavogi og eru börn þeirra Jón Óskar Magnússon, Andri Már Helgason og Hanna Ósk Helgadóttir; Sigurður Jónsson, f. 2.1. 1961, tón- listarkennari, hans börn eru Saga Juvia og Parrekur Snær; Steinar Jónsson, f. 5.9. 1962, starfsmaður í Kassagerð Reykjavíkur, maki Ellen Emilsdóttir, dóttir þeirra er Mar- grét Vala en böm hans eru Tinna Dögg og Elvar Freyr; Brynja Jóns- dóttir, f. 1.8.1972, nemi, maki Sigur- björn Einarsson. Systkini Jóns: Sigríður, látin; Sig- rún Lovísa, Jóhanna, Guðmundur Breiðfjörð, Katrín, Guðrún Þorgerð- ur, látin. Foreldrar Jóns: Sigurður Sigurðs- son, f. 1896, d. 1987, vigtarmaður á ísafirði, og Guðrún Guðmundsdótt- ir, f. 1895, d. 1982, húsmóðir. Þau bjuggu á ísafirði. Jón er staddur í Barcelona. Ellert H. Jónsson Ellert Högni Jónsson sjómaður, Suðurvangi 4, Hafnarfirði, er fertug- ur í dag. Fjölskylda Ellert er fæddur í Hafnarfirði og ólst þar upp. Hann gekk í Öldutúns- skóla en hefur síðan stundað sjó- mennsku lengst af. Ellert hóf sambúð 1990 með Helgu Halldórsdóttur, f. 6.6. 1953, ritara. Foreldrar hennar: Halldór Guð- mundsson pípulagningarmeistari og Anna Steinunn Jónsdóttir. Þau eru búsett í Akurgerði 8 í Reykjavík. Ellert var áður kvæntur (í aprO 1973) Heiðveigu Helgadóttur, f. 21.4. 1955. Þau skildu 1988. Dóttir Ellerts og Helgu er Elín Ósk, f. 26.12. 1990. Böm Ellerts og Heiðveigar: Erla, f. 24.5. 1973, sam- býlismaður hennar er Birgir Snær Valsson, f. 21.10. 1974, börn þeirra eru Vala Björk, f. 4.1. 1992, og Heið- ar Smári, f. 29.10. 1994; Gunnar, f. 28.10. 1974, sambýliskona hans er Fanney Elínrós Guðmundsdóttir, f. 28.5. 1976, dóttir þeirra er Þórdís Helga, f. 11.3. 1995. Systkini EOerts: Jón Þórir, f. 24.3. 1955; Vigdís Helga, f. 6.9. 1959; Haf- þór Hafdal, f. 24.9. 1964; Katrín Sig- ríður, f. 14.5. 1966. EOert á þrjú hálf- systkini. Foreldrar Ellerts: Jón Hafdal, f. 8.5. 1935, at- vinnurekandi í Hafnarfirði, og Guð- ný Sigríður Sigurðardóttir, f. 29.5. 1931, d. 5.7. 1984, húsmóðir. Hl hamingju með afmælið 18. júní 90 ára Jón Guðbjartsson, Hraunbæ 103, Reykjavík. Hermann Daníelsson, Hrafnistu í Reykjavík. Margrét Guðnadóttir, Snorrabraut 58, Reykjavík. 80 ára Óskar Jónsson, ÞOjuvöUum 30, Neskaupstað. 75 ára Gísli Guðjónsson, Lindarbraut 16, Seltjamar- nesi. 60 ára Helgi Þorleifsson, Hátúni 10, Reykjavík. Sævar Magnússon, Seljavegi ll. Selfossi. Hjörleifur Ólafsson, Seljugerði 1, Reykjavík. 50 ára Ása Jóhannesdóttir, Þórsgötu 25, Reykjavík. Haraldur Jörgensen, BlómsturvöUum 49, Neskaup- stað. Ásgerður Ingólfsdóttir, Hafraholti 2, Isafirði. Kolbrún Jónsdóttir, Sunnuflöt 41, Garðabæ. Kolbrún dvelur á af- mælisdag- inn á Hotel Cayré, 4, BouLevard Raspail - 75007 París, sími: (1) 45443888, fax: (1) 45449813. Dagbjartur Bergþórsson, Höfða, Þverárhlíðarhreppi. Ólafur Sigurðsson, ÁsvaUagötu 4, Reykjavík. Vilhjálmur B. Kvaran, Holtsbúð 28, Garðabæ. Gísli Már Ólafsson, Espilundi 15, Akureyri. Ingimundur Tryggvi Magn- ússon, Melhaga 14, Reykjavík. María Bjarnadóttir, Hlíðargötu 24, Neskaupstað. 40 ára Guðný Steindórsdóttir, Hvammi, Bæjarhreppi. Sigurður Ó. Aðalbjömsson, Suðurgötu 88, Hafnarfirði. Jón Halldór Jónsson, Háaleiti 17, Keflavik. Einar Ólafsson, Skipholti 48, Reykjavík. Lilja Richardsdóttir, Heiðarvegi 11, Vestmannaeyj- um. Már Vilhjálmsson, Grænuhlíð 16, Reykjavík. Magnús Ólafur Halldórs- son, Ásbúðartröð 5, Hafnarfirði. ----------------7//////////AI Smáauglýsingadeild DV er opin: • virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22 Tekið er á móti smáauglýsingum til kl. 22 til birtingar næsta dag Ath. Smáauglýsing í Helgarblad DV þarf þó aó berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag Smá- auglýsingar DV 5505000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.