Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ1996 45 í Gallerí Úmru sýnir bandaríski listamaðurinn Robert Shay skál- ar sem hafa að geyma frásagnir og á skálin að tákna dugnað og eljusemi sem þarf til að lifa. U háfirt \ i R e v k i n v í k ,96 Myndlistarsýningar Páll á Húsafelli Listasafn Sigurjóns. Hreinn Friðfinnsson Sólon íslandus. Karl Kvaran Norræna húsið. Carl Andre Önnur hæð. Pia Rakel Sverrisdóttir Norræna húsið, anddyri. Benedikt Gtmnarsson Gallerí Stöðlakot. Náttúrusýn í íslenskri myndlist Kjarvalsstaðir. Húbert Nói Gallerí Sævars Karls. Kocheisen og Hullman Gangur Snagar Form Ísland/Gallerí Greip. Sigríður Sigurjónsdóttir Loftkastalinn. William Morris og verk hans Þjóðarbókhlaðan. Osvaldo Romberg Perlan. Eftirsóttir einfarar Gallerí Hornið. Jón Axel Björnsson Gallerí Borg. Andres Serano Sjónarhóll. Dauðinn i íslenskum veru- leika Mokka. Rachel Whiteread íslensk grafík. Robert Shay Gallerí Úmbra. Ragna Róbertsdóttir Ingólfsstræti 8. Svavar Guðnason Listasafn ASÍ. Silfur í Þjóðminjasafhi Þjóðminjasafn íslands. Austiurísk myndlist: Egon Schiele og Arnulf Rainer Listasafh íslands. Tolli Gallerí Regnboginn. Fjörvit Nýlistsafnið. Notkun jarð- fræðikorta Hið íslenska náttúrufræðifé- lag efhir til námskeiðs í notkun mismunandi jarðfræðikorta næstkomandi laugardag kl. 13.00-18.00. Kynnt verða berggrunns-, jarðgrunns- og vatnafarskort sem unnin hafa verið af höfuðborgarsvæðinu. Síðan verður farið út á mörkina í Elliðaárdal, Álftanes og suður fyrir Hafnaitjörð og leiðbeint þar um notkun kortanna. Samkomur Forsetaframbj óðendur tala í Kvennakirkju Kvennakirkjan heldur upp á kvenréttindadaginn með messu í Seltjarnarneskirkju í kvöld kl. 20.30. Forsetaframbjóðendumir Guðrún Agnarsdóttir og Guðrún Pétursdóttir tala um lífsgildi, trú og konur. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir flytur stutta prédikun. Siglufjörður Kópasker Húsavík id & Dalvík\ ) Sauöárkrókur J s Tl* Akureyrl Mývatnssvelt Egilsstaöir 1. GR Grafarholti 2. GR Korpu 3. Golfkl. Ness 4. Golfkl. Kjölur 5. Golfkl. Bakkakots 6. Golfkl. Keilir 7. Golfkl. Kópav/Garðab 8. Golfkl. Setberg 9. Golfkl. Oddfellowa íöröur Q indveröarnes 'kíöjaberg O Hella k ■Jv- Olafsvik Golfvellir á Islandi Kefla Sandgeröl Húsafell 'orgarnes -~~0' tvík . Vogar Grindavík Heimild: Goifsamband islands Vestmannaeyjar Scobie á Kaffi Reykjavík Kaffi Reykjavík er skemmtistaður í fornfrægu húsi í gamla bænum. Staður- inn hefur undanfarin misseri verið einn sá allra vinsælasti og um helgar eru yfir- leitt biðraðir af fólki fram eftir nóttu. Kaífi Reykjavík býður upp á lifandi tón- list á hverju kvöldi. Um helgar er þar yfir- leitt mikil stuömúsík sem heyrist en á virkum dögum er yfirleitt allt á rólegum nótum. I kvöld er það hin kunni söngvari, Ric- hard Scobie, sem mætir með gítarinn sinn og skemmtir gestum staðarins. Richard Scobie hefur komið víða við og er þekktur Skemmtanir rokksöngvari en getur einnig sýnt á sér rólegri hlið. Um þessar mundir er hann í hljómsveitinni Spooky Boogie sem kynnir sig sem fönkaðasta diskóflokk landsins. Með honum þar eru kunnir kappar, með- al annars Stefán Hilmarsson, Björn Jör- undur og Sigurður Gröndal. Þá hafa þeir einnig komið fram sem dúett, Björn Jör- undur og Richard Scobie. Richard Scobie skemmtir gestum á Kaffi Reykjavík í kvöld. Gönguferð við Flúðir Á Suðurlandi er landslag þannig að hægt er að velja um margar og fjölbreyttar gönguleiðir og eru Flúð- ir og nágrenni engin undantekning. Gönguleiðir Hér á kortinu má sjá eina góða gönguleið sem liggur meðal annars á Galtafell. Margar fleiri leiðir er hægt að velja um, auk þess sem á Flúðum er vel búið að ferðamönn- um og þar er meðal annars skemmtilegur golfvöllur. Það var Einar Þ. Guðjohnsen sem stikaði gönguleiðina sem kortið sýnir og er hana að finna í bókaröð sem hann samdi, Gönguleiðir á íslandi. Sonur Brynju og Andrésar Myndarlegi drengurinn á mynd- inni fæddist á fæöingardeild Land- spítalans 4. júní kl. 21.18. Hann var Barn dagsins við fæðingu 3970 grömm að þyngd og mældist 52 sentímetra langur. Foreldrar hans eru Brynja Darja Ivanovich og Andrés Zoran og er hann fyrsta barn þeirra. Edward Burns, Mike McGlone og Jack Mulcahy leika þrjá bræður með ýmis vandamál. McMullen- bræðurnir The Brothers McMullen, sem Laugarásbíó hóf sýningar á í síð- ustu viku, er frumraun leikstjór- ans Edwards Burns og hefur myndin vakið mikla athygli og á hinni virtu kvikmyndahátíð Ro- berts Redfords í Sundance var hún valin besta kvikmyndin í fyrra. I myndinni segir á gamansam- an máta frá þremur bræðrum og hvaða augum þeir lita lífið og ástina. Þeir eru kaþólskir og ald- ir upp á trúuðu heimili en eiga samt í erfiðleikum með að Kvikmyndir ákveða hvað er rétt fyrir þá. Sá elsti, Jack, er giftur og er hrifinn af eiginkonu sinni en er að halda fram hjá henni, sá í miðið, Barry, hleypur frá hverri stúlkunni á fætur annarri og sá yngsti, Patrick, sem er trúaðast- ur þeirra á hann erfiðleikum með að ákveða sig í ástamálun- um. Þeir bræður eyða saman tíma á æskuheimili þeirra og þar eru málin rædd og hlutirnir leystir á farsælan hátt. Nýjar myndir Háskólabíó: Innsti ótti Laugarásbió: McMullen-bræð- áU Saga-bíó: Allir i boltanum Bíóhöllin: Á hæpnasta svaði Bíóborgin: Trainspotting Regnboginn: Skítseiði jarðar Stjörnubíó: Dauðsmannseyja Krossgátan Lárétt: 1 kvennabósa, 8 barn, 9 gestagang, 10 bergmálaði, 11 gyltu, 12 hungur, 14 nudd, 15 augnhár, 17 ljúka, 19 innan, 21 málar, 23 rimi, 24 tré. Lóðrétt: 1 gripahús, 2 fugl, 3 stétt, 4 skap, 5 eldstæði, 6 tröll, 7 áhuga, 13 sprota, 15 matargeymsla, 16 spíri, 18 lægð, 20 drykkur, 22 oddi. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 þref, 5 ask, 8 Jórunn, 9 ómynd, 11 ei, 12 fela, 14 lið, 15 nistið, 17 ara, 19 otir, 20 angurs. Lóðrétt: 1 þjófnað, 2 róm, 3 er, 4 funa, 5 andlit, 6 sneiðir, 7 kliðar, 10 yls, 13 eira, 16 tog, 18 an. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 120 18.06.1996 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 66,610 66,950 67,990 Pund 103,240 103,770 102,760 Kan. dollar 48,730 49,030 49,490 Dönsk kr. 11,4320 11,4920 11,3860 Norsk kr 10,2670 10,3230 10,2800 Sænsk kr. 10,0170 10,0720 9,9710 Fi. mark 14,3670 14,4520 14,2690 Fra. franki 12,9700 13,0440 13,0010 Belg. franki 2,1402 2,1530 2,1398 Sviss. franki 53,5100 53,8000 53,5000 Holl. gyllini 39,2800 39,5200 39,3100 Pýskt mark 44,0700 44,3000 43,9600 ít. lira 0,04335 0,04361 0,04368 Aust. sch. 6,2600 6,2990 6,2510 Port. escudo 0,4276 0,4302 0,4287 Spá. peseti 0,5210 0,5242 0,5283 Jap. yen 0,61610 0,61980 0,62670 írskt pund 106,160 106,820 105,990 SDR 96,38000 96,96000 97,60000 ECU 83,1800 83,6800 83,21000 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.