Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 1996 Fréttir____________________________________________________r>v Dagur meö Guðrúnu Pétursdóttur forsetaframbjóðanda: Spurning hvort ég nota ekki hjálminn í sjónvarpinu - frambjóðandinn hitti hafnarverkamenn, bifvélavirkja og fleiri Guörún Pétursdóttir og sambýlismaöur hennar, Ólafur Hannibalsson, spjalla á léttu nótunum viö vegfarendur í Mjóddinni. starfsmenn virðast sammála þessu. Tíminn fram undan mikilvægastur Klukkan er rétt rúmlega 10 að morgni þegar Guðrún Pétursdóttir birtist á bifreiðaverkstæðinu Still- ingu í Skeifunni. Þetta er fyrsta verkefni í þéttskipaðri dagskrá Guð- rúnar þennan daginn og ein af mörgum heimsóknum hennar í fyr- irtæki og stofnanir um allt land. Hún heilsar starfsmönnum með sínu hressilega og alþýðlega við- móti og þeir bjóða henni og blaða- manni DV, sem er með Guðrúnu í för, inn á kaffistofuna. Þar er boðið upp á cappuchino og andrúmsloftið er vingjamlegt á kaffistofunni þar sem eru samankomnir um 15 starfs- menn Guðrún biöur starfsmenn um fyr- irspurnir og þeir svara að bragði að mikilvægast í kosningunum sé að kjósa persónu en ekki málefni. Rætt er um hinn mannlega þátt forsetans og mikilvægi hans. Ein af starfskon- um fyrirtækisins segir að það vanti meira mannlega þáttinn í kosning- abaráttuna eins og þegar Vigdís var kosin á sinum tíma. Nú sé baráttan miklu formlegri og hátíðlegri og það sé ekki nógu gott. Þá snúist forseta- framboðið ekki um málefni heldur um persónu. Guðrún er sammála þessu og segir að forsetinn þurfi að vera með þjóðinni á sorgar- jafnt sem gleðistundum. í framhaldi af því segist Guðrún Guðrún spyr hvemig stemning- in sé fyrir kosn- ingarnar og hvort fólk sé búið að taka afstöðu. Svör- in eru á báða vegu. Sumir eru búnir að ákveða sig en aðrir ekki og það er almennt að heyra á mörgum starfsmönnum að óákveðni verði fram á síðustu stundu. Guörún tekur undir það og segir að tíminn fram undan verði mikilvægastur því mikið geti enn breyst. Eftir að spjallinu lýkur í kaffistofunni er Guðrúnu fylgt inn á verkstæðið og þar fær hún verklega kennslu í hvernig skipta eigi um bremsu- borða. Starfsmaður sem blaðamað- ur talar við á meðan segir það vera gott að fá frambjóðendur í heim- sókn á vinnustaði því þá fái menn tækifæri að sjá framan í væntanleg- an forseta þjóðarinnar. forsetaM K9SHm9MSW9 en hún fær frekar dræmar undir- tektir. Loftið er í þyngra lagi og mikill kliður í salnum en Guðrún lætur það ekki á sig fá. Hún gengur á milli borða og nær þá betra sam- bandi við starfsmenn en margir hafa greinilega engan áhuga á öðru en að klára matinn sinn og drífa sig aftur í vinnuna. Guðrún er spurð hvort framboð forseta- efha hafi með trú- arbrögð að gera. Hún svarar því að svo sé ekki því trú- frelsi ríki á íslandi og frambjóðandinn þurfi ekki að vera bundinn ákveð- inni trú, svo fram- arlega að hann sé íslenskur rikis- borgari. Umræða hefst við eitt borð- ið um neitunar- vald forsetans. Sumir eru hlynnt- ir þvi en aðrir ekki og segjast smeykir við að for- setinn fái of mikil völd. Guðrún fylgist með af at- hygli og fær næst spurningu hvort hún sé ekki of háð vissum stjórn- málaflokki. Hún svarar því að hún hafi ekki höfðað til ákveðinna stjórn- málaflokka heldur hafi hún mest fylgi meðal verka- manna og sjó- manna. Eftir 45 mínútna spjall í mötuneyt- inu er henni fylgt á vinnusvæðið við höfnina. Þar fær hún öryggishjálm á höfuðið og er látin klifra upp í stóran gámalyft- ara. „Þetta veitir manni vissulega öryggiskennd. Það er spuming hvort ég nota hann ekki bara þegar lætin byrja í sjónvarpinu," segir Guðrún og hlær. Hún vippar sér léttilega upp í kranann og fær þar tilsögn hjá Jóni Snorrasyni sem stýrir tækinu. Á leiðinni út í bil bjóða stúlkurn- ar í eldhúsinu Guðrúnu og blaða- manni upp á te og brauð. Það er vel þegið enda hefur enginn tími gefist til að fá vott né þurrt síðan á verk- stæðinu um morguninn. í eldhúsinu spjallar Guðrún við eldri konu sem þar vinnur. „Það er alltaf gaman að tala um Vestfirði því það em svo margar skemmtilegar sögur þaðan,“ segir Guðrún. Hornafjaröar. Andlitsföröun í Mjódd Næst er haldið í Mjóddina í Breiðholti þar sem hátíðin Sumar í Mjódd er haldin. Þar slæst Ólafur, sambýlismaður Guðrúnar, með í för og saman ganga þau um útimarkað- inn og spjalla við fólk. Þama er and- rúmsloftið mun léttara og fólk gefur sér góðan tima til að spjalla. Hún fær jákvæð viðbrögð og hvatningu, sérstaklega frá konunum. Guðrún lýkur dagskrá sinni í Mjódd með því að fá andlitsförðun í snyrtivöru- versluninni Líbíu. Hún hefur rétt tíma til að kíkja í spegil og sjá góð- an árangur förðunardömunnar því Ólafur lítur á klukkuna og minnir á að þau séu að verða of sein út á flug- völl. Þar bíður þeirra áætlunarflug- vél til Hornafjarðar og kosninga- fundur um kvöldið. „Þetta er gríðar- leg dagskrá og miklu meiri heldur en hægt er að ímynda sér fyrir fram. En þetta er spennandi og skemmtilegt verkefni og baráttan heldur áfram fram á síðasta dag,“ segir Guðrún áður en hún stígur upp í flugvélina. -RR Guörún hlustar brosandi á fyrirspurnir í kaffistofu Stillingar hf. hafa miklar áhyggjur af auknu of- beldi meðal bama og unglinga og hvemig megi stöðva það. „Það þarf meiri vakningu meðal þjóðarinnar um þetta mikilvæga málefni. Við eigum undir högg að sækja frá sjón- varpi og tölvuleikjum þar sem of- beldi er mikið,“ segir Guðrún og Klifraö upp í krana viö Sundahöfn Næst á dagskrá er heimsókn í mötuneyti Eimskips. Þar em um 150 manns, allt karlmenn nema tvær konur og allir í óða önn að klára matinn sinn. Guðrún býður fólki að skiptast á skoðunum við sig Guörún á spjalli viö nokkra starfsmenn Eimskips í mötuneytinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.