Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Blaðsíða 21
M JDV ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 1996 tilveran 33 Sigurlaug Jóhannsdóttir: Nota- drýgra bikiní „Svona bikiní, með sundbuxum, eru í tísku núna. Kosturinn við það er að ég get notað það meira en þessi hefðbundnu. Það er hægt að fara í stuttermabol utan yfrr og þá eru buxurnar notaðar sem stuttbux- ur,“ segir Sigurlaug sem fyrir ein- um og hálfum mánuði, á fyrsta sól- ardeginum, keypti bikiní. Hún hef- ur aldrei áður átt bikiní og fannst tími til kominn að verða brún á maganum. Sundbol sem hún á líka ætlar hún ekki að nota í sumar, a.m.k, ekki ef sól er. Sigurlaug var að stíga upp úr lauginni eftir sund- sprett og segir ekkert mál að synda í svona bikiníi en margar konur veigra sér einmitt við að synda í bikiníi af hefðbundnu gerðinni. „Mér finnst flott að sjá konur í bik- iníi og finnst þær eiga að þora sýna hvernig þær eru. Sumum líður kannski ekki vel í þeim og klæðast þá sundbolum og það er þá bara í lagi líka. Sumum körlum fer betur að vera í boxers en ég vil helst hafa þá í einlitum sundskýlum. Sumir eru í stuttbuxum niður á hné og það er hrikalega hallærislegt," segir hún og viðurkennir að hún komi oft í laugamar til að horfa á annað fólk. „Þá liggur maður í pottunum og hef- ur bara gaman af. “-saa. í sólinní Costa dei gsei a hjólabátnum á hótelinu Sangria og cssno í skoðunarferðum með sóiaroiíunni við sundiaugina undir pálmatrénu Buenos dias gsei Sundföt í yfirstærðum Sumir eru stórir, aðrir iitlir en hvernig svo sem fólk er vaxið vill það geta fengið á sig sundföt í réttri stærð. Allir vilja synda og sóla sig.Til fjölda ára hafa aðeins fengist svartir eða dökkbláir bolir f yfirstærðumen sem betur fer hefiur þetta breyst mikið til batnaðar. Nú geta stórar konuyr hæglega fengið litskrúðug sundföt, bæði bikiní og boli. Þau sundföt sem hér sjást tii hliðar við textann er hægt að fá í yfirstærðum. DV-myndir JAK Emelía Húnfjörð: Karlana „Þaö er um aö gera aö hafa þau sem minnst svo maður verði sem mest brúnn,“ seg- ir Emelía um það hvaöa bik- iní falli að hennar smekk. Karlmennina vill Emelía hafa í síðum, helst þröngum buxum. Hún segist fylgjast vel með fólkinu í sundi, enda komi menn mikið til að horfa. Henni fínnast „box- ers“ algengastar í dag, a.m.k. á þeim sem hún helst horfi á, þessum ungu. „Þegar sól er klæðast konurnar meira bik- iníi. Þær eru miklu ófeimn- ari í dag en áður, sérstaklega þessar ungu,“ segir Emelía sem klæddist öðru tveggja Sikinía sinna þennan sólrika dag, enda kom hún ekki til að synda. -saa á seglbrettinu á ströndinní á Spáni PÓSTUR OG SlMI C' Eftirtalin lönd í Evrópu veita íslendingum möguleika á að nota GSM: Austurríki, Belgía, Bretland, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, írland, Lettland, Litháen, Luxemborg, Noregur, Portúgal, Spánn, Sviss, Svíþjóö, Tyrkland, Ungverjaland, Þýskaland. 1 -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.