Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 1996 15 R-listinn og Geldinganesið Viö samþykkt aðalskipulags Reykjavíkur fyrir skipulagstíma- bilið 1990-2010, þann 17. október 1991, var um það fullt samkomulag í borgarstjórn að Geldinganesið, sem er u.þ.b. 220 hektarar að stærð, yrði að mestu tek- ið undir íbúða- byggð á skipulags- tímabilinu. Gert var ráð fyrir 25 hektara athafna- hverfi í Geldinga- nesi í tengslum við fyrirhugað hafnar- svæði í Eiðsvík. I maí 1990 voru kynntar tillögur úr hugmyndasam- keppni um íbúða- byggð á Geldinga- nesi sem sýndu fram á að þar mætti koma fyrir 4000-5000 manna byggð. Þegar sjálfstæðismenn tóku á nýjan leik við stjórn borgarinnar í kjölfar borgarstjórnarkosning- anna 1982 var það eitt fyrsta verk þeirra að breyta öllum fyrirætlun- um fráfarandi vinstri stjómar í Reykjavík um að stefna framtíð- aðrbyggð Reykvíkinga upp til heiða. Vinstri meirihlutinn í Reykjavík 1978-1982 hafði ákveöið að næstu íbúðabyggðasvæði yrðu á svokölluðu Rauðavatnssvæði, sem að stórum hluta er þakið sprungum. Byggt með fram ströndinni Það var eitt helsta baráttumál sjálfstæðismanna í borgarstjómar- kosningum 1982 að næstu íbúða- byggingarsvæði yrðu norðan Graf- arvogs í stað svokallaðra Austur- svæða, þ.á m. Rauðavatnssvæðis. Sjálfstæðismenn lögðu áherslu á að byggja með fram ströndinni í átt til næsta þéttbýliskjama (Mos- fellssveit) í stað þess að teygja byggð upp í heiði í átt til fjalla í allt að 120 metra hæð yfir sjó. Þeg- ar í ársbyrjun 1983 eftir að samkomulag hafði náðst við rikið um land Keldna og Keldnaholts var aðalskipulagi Reykjavíkur breytt. At- vinnusvæði voru flutt til, m.a. fellt niður að hafa atvinnusvæði þar sem nú er Hamrahverfi og Húsahverfi. í aðalskipulagi Reykja- víkur 1984- 2004 var síð- an gert ráð fyrir áfram- haldandi byggð með fram ströndinni, m.a. fellt niður að hafa at- vinnusvæði þar sem nú er Borgarhverfi og enn fremur gert ráð fyrir framtíðarbyggð á stærst- um hluta Geldinganess. Nú hefur R-listinn lagt fram í skipulagsnefnd drög að nýju aðalskipulagi Reykjavíkur sem kynnt verður nefndum og ráð- um borgarinnar og síðar almenn- ingi. í bókun R-listans kemur fram sami hringlandahátturinn í fram- tíðarbyggðamálum hvað varðar Geldinganesið og emkenndi allar ákvarðanir vinstri stjórnar í Reykjavík 1978-1982 um byggða- þróun i borginni. í bókun R-listans segir m.a. að „í borginni eða á höf- uðborgarsvæðinu þurfi að vera til stórt, samfellt atvinnusvæði til framtíðarnota. Geldinganesið er það svæði innan borgarmarkanna sem uppfyllir að mörgu leyti best skilyrði um stórt samfellt atvinnu- svæði.“ Svæði til síðari nota Þrátt fyrir ásetning R-listans um að taka allt Geldinganesið undir atvinnustarfsemi, e.t.v. stór- iðju, er því lýst yfir í bókuninni að ekki sé ástæða til að taka endan- lega ákvörðun nú, heldur gert ráð fyrir því að svæðið verði auðkennt sem svæði til síðari nota annað- hvort fyrir íbúðir eða athafna- starfsemi. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins leggja áherslu á að áfram verði gert ráð fyrir íbúða- byggð á Geldinganesi og það komi skýrt fram á aðalskipulagsupp- drætti. Fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins í skipulagsnefnd létu bóka þessa skoðun og jafn- framt að ekki hefðu komið fram nægjanleg- ar röksemdir fyrir þvi að breyta þessu fal- lega byggmgar- svæði í athafna- svæði. Geldinganesið er í næsta ná- grenni við Við- ey og byggðina í Grafarvogi. Það væri meiri háttar skipulagsslys út frá umhverfis- og byggðasjónar- miðum að taka allt Geldinganesið undir atvinnu- og iðnaðarstarf- semi eða stóriðju. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson „Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að áfram verði gert ráð fyrir íbúöabyggö á Geldinganesi.. segir Vilhjálmur m.a. í greininni. Kjallarinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi „Það væri meiri háttar skipu- lagsslys út frá umhverfis- og byggðasjónarmiðum að taka allt Geldinganesið undir at- vinnu- og iðnaðarstarfsemi eða stóriðju." Hinn opinberi umferðarháski Skorað hefur verið á mig að gefa kost á mér i embætti umferð- armálaráðherra. Svo mikill þungi hefur færst í þessar áskoranir undanfarið, að ég hef viðað að mér gögnum og gert drög að stefnu- skrá, því útilokað er að vega og meta framboð og hugsanlegan ár- angur af því án þess að hafa skýra stefnu. Ég komst undireins að því, sem ég mátti vita fyrir, að íslenska umferðarkerfið er ekki aðeins hómópatí, heldur líka einstakt meðal siðmenntaðra þjóða fyrir frumleika í að gera það flókið og hættulegt. Til þess að á tæru sé hvað ég kalla umferðarkerfi í þessu við- fangi, er það laga- og reglurammi um skipulegt vega- og gatnakerfi með samrcémdum merkingum, um heimildir og takmarkanir til þess að nota það, s.s. varðandi stjórnun farartækja og vegfarendur, auð- skildar upplýsingar um kerfið, ábyrgð og refsingar vegna afbrota, sýnilegt og vinsamlegt viðvörun- areftirlit, og loks tæmandi úttekt á ástandi og afdrifum í umferðinni ár frá ári. Lögmál frumskógarins Við gagnasöfnun mína hófst ég handa hjá Umferðarráði og bað um emtök af öll- um gildandi lög- um, reglugerð- um og reglum um þessi mál- efni. Þar var mér til undrunar vís- að á dómsmála- ráðuneytið, sem var jafn óviðbúið beiðni minni en sinnti henni samt og sendi mér síðar hið skrautlegasta safn af að því er ráöuneytið taldi eiga við. Þannig komst ég að því, að hvorki er til í samræmdu formi hverju sinni aðgengileg handbók um þetta efni né neitt ábyggilegt yfir- lit um það, hvað þá áhersluútrátt- ur. Næst var því fljótsvarað hjá við- komandi aðilum að ekkert hefur breyst frá því að upplýst var á Um- ferðaþingi 1990, að íslensk umferð- armannvirki, útbúnaður þeirra og viðhald, lytu engum samræmdum reglum né stöðlum og væru helst sýnishorn af al- þjóðlegum arki- tektúr, eða gersam- lega óháð þvi að „ör- yggi skapast af því að regla sé á hlutunum. Leiðbeiningar séu skýrar og samhljóða og umferðarumhverf- ið sé kunnuglegt". Þetta hirðuleysi er óverjandi, frá öllum sjónarhólum. Það segir sig sjálft, að við þessar aðstæð- ur er ógerningur að skapa umferðar- menningu sem standi undir nafni. íslenska umferðarkerfið er í grundvallaratriðum byggt á sandi. Ekki bætir úr skák, að sú stofnun sem á að sinna sérstaklega þessum málefnum, Umferðarráð, hefur augljóslega engin tök á að knýja fram á sjónarsviðiö umræðu og aðgerðir til þess að koma á raun- hæfri umferðarstefnu. Hún hefur ekki heldur eftir áratuga streð náð að skilgreina staðreyndir um af- drif vegfarenda. Lengi hafa bein áfóll þeirra verið metin í pening- um á 7-10 milljarða á ári, nú allra síðast á 15-18 eða svo! Því miður er heldur ekki stuðningur af að- gerðum lögreglunnar, sem eru jafn tilvilj- anakenndar og ástand umferðarkerfisins og virka iðulega fremur eins og skotgrafa- hemaður en leiðsögn úr vanda. Vanmetið við- fangsefni íslensk umferðarmál eru í stórfelldum ólestri og ótrúlega vanmetið viðfangs- efni af hálfu allra sem að þeim koma. Starf umferðarmálaráð- herra er ekki laust, enda ekki til, svo að virtir áskor- endur mínir verða a.m.k. enn um sinn að berja á aðrar dyr og ekki þá hjá Davíð í Stjórnarráðinu, sem ég ætla að gæti náð taumhaldi á hinu ótrúlega, opinbera umferðar- skrímsli sem nú leikur lausum hala. Herbert Guðmundsson „Ég komst undireins að því, sem ég mátti vita fyrir, að ís- lenska umferðarkerfið er ekki aðeins hómópatí, heldur líka einstakt meðal siðmenntaðra þjóða fyrir frumleika í að gera það flókið og hættulegt.“ Kjallarinn Herbert Guömundsson félagsmálastjóri Versiunarráðs íslands Með og á móti Á að skipa tilsjónarmann í Langholtskirkju? Þarf kraftaverka- mann til að ná sáttum Ég fagna að biskup hefur tekið þetta skref. Mér líst vel á hugmynd- ina ef sá sem verður skipað- ur hefur vald til að taka á vandamálum. Ég hef engar hugmyndir um það hver þetta ætti að vera. Hann þarf að hafa vald og þekkingu til að taka á málum. Hann þarf að hafa lagni i að ná samkomulagi og þekkja kirkjurétt vel. Deilan er búin að standa yfir í þrjú ár og það þarf kraftaverkamann til að ná sátt- um. Það er heitasta ósk okkar sem .dtja í sóknamefndinni að sáttum veröi náð. Deilan hefur lamað starf í sókninni og með hverju ári sem líður versnar ástandið. Brýnt er að leysa málið enda skaðar það kirkjuna. Vand- inn er stjómskipulag kirkjunn- ar. Fyrsta skrefið til að breyta því er ákvörðun Alþingis um að prestar verði ráðnir til fimm ára. Ég tel að það ætti að vera starf- andi nefnd innan kirkjunnar sem tekur á innri vandamálum. Deilan hefur frá upphafi staðið á milli sóknamefndar og prestsins. Að reka organistann er engin lausn. Báðir aðilar, presturinn og sóknarnefnd, verða að vera til í að gefa sín embætti eftir. Ég veit að sambærileg vandamál, sem hafa ekki komist í hámæli, eru innan annarra sókna. Marg- ir líta til þessarar deilu og bíða lausnar. Ég held að prestafélagið reki málið sem prófmál gagnvart öðrum sóknum. Með að leyfa þessu máli að standa óleystu er þjóðkirkjan að grafa eigin gröf. Fullkomlega ástæöulaust Skipun sér- staks tilsjónar- manns er ekki til neins. Úr- skurður herra Bolla Gústavs- sonar vígslu- biskups liggur fyrir. Hvaða af- stöðu sem menn hafa til úrskurðar hans þá stend- ur úrskurðurinn og það stendur upp á biskup íslands að sjá til þess að menn haldi hann. Bisk- upi ber að grípa til viðeigandi ráðstafana gagnvart þeim aðila sem ekki hlítir honum. Ég sagði það á sinum tíma þegar úrskurð- urinn lá fyrir að hann kæmi mér fyrir sjónir sem síðbúin sáttatil- raun en sáttatilraunum lauk með úrskurðinum. Eftir að hann var fallinn var deilunni lokið og þess vegna er ekki til neins að halda slíkum hlutum áfram sem þessar hugmyndir biskups fela i sér. Að því er mér hefur skilist af orðum biskupsritara þá er hugmyndin sú að skipa einhvers konar fé- lags- eða sálfræðing tilsjónar- mann. Nú er það svo að orðið til- sjónarmaður hefur alveg skýra kirkjuréttarlega merkingu. Bisk- up íslands er superintendent - tilsjónarmaður - sem er sömu merkingar og gríska orðið epis- kopos, sá sem lítur til með. Bisk- up íslands er tilsjónarmaður kirkjunnar. Á hans vegum eru prófastarnir tilsjónarmenn hver í sínu prófastsdæmi. Gelr Waago, formaður prestafé- lags íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.