Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 1996
39
Fréttir
Kaldakvísl:
Veiddu níu
punda urriða
Silungsveiðin viðist aldrei ganga
betur en einmitt núna, það virðist
vera sama hvaða vatn er. Silungur-
inn virðist vera betur haldin en oft
áður undan vetri. Enda verið ein-
stök veðurblíða í allan vetur.
„Veiðimenn voru að koma úr
Köldukvísl og þeir fengu góða veiði,
stærsti fiskurinn hjá þeim var 9
pund og það var urriði," sagði Kol-
beinn Ingólfsson er við spurðum um
silungsveiðina í gærdag.
„Það var Ómar Árnason sem
veiddi þennan stóra og tók fiskur-
inn spúnn. Veiðin hefur verið góð
þarna efra og flestir eru fiskamir 3
uppí 8 pund. Veiðimenn sem vom
fyrir fáum dögum veiddu 10 fiska og
sú veiði var frá 3 uppí 5 pund, nmst
allt bleikjur. Veiðin í Þórissvatni er
ekki byrjun ennþá en hefst 20. júní.
Menn hafa eitthvað kíkt uppeftir og
horfunar eru mjög góðar,“ sagði
Ingólfur í lokin.
Elliðvatnið hefur gefið vel af fiski
og hann virðist vera vænni en oft
áður. Stærstu fiskamir eru vatninu
em 4-5 pund. Kleifarvatnið er að
komast í gang og veiðimaður sem
var nýlega veiddi 4 punda fisk.
Vatnið er kalt ennþá en hlýnar
óðum þessa dagana.
-G.Bender
Þórir Garöarsson, framkvæmdastjóri Allrahanda, leggur af staö á tómum nýja bílnum til Isafjaröar vegna þess aö
ráöherraleyfi vantar. DV-mynd ÞÖK
Dráttur á veitingu sérleyfis til fólksflutninga til Vestfjaröa:
Hann Ingólfur Bjaml Kristjánsson meö hress meö þessa bleljuvelöl úr Soglnu en
Ingólfur er 7 ára. DV-mynd II
Meiri hraði og
fleiri ölvaðir
„Það er engin spurning að við
munum fylgjast vel með hraðanum
hér í þessu umdæmi í sumar. Mun
meira er um að menn keyri of hratt
en t.d. í fyrrasumar og því miður er
það líka svo að við erum taka mun
fleiri sem keyra undir áhrifum
áfengis," segir lögreglan á Eskifirði.
Þar á bæ segja menn ökufantana
skilja það eitt þegar þeir þurfi að
taka upp budduna og borga. Það
þyki þeim verst af öllu.
-sv
Ekið á stúlku
Ekið var á gangandi stúlku á
horni Lækjargötu og Bankastrætis
aðfaranótt sunnudags. Hún var flutt
með sjúkrabíl á slysadeild og voru
meiðsl hennar ekki talin alvarleg.
-sv
fltti! Opiðfrákl.
08.00-23.00 alla
virka daoa
ÍB stunda Trimfortn h]á Bergilndi
Uvi bar næ ég árangri."
tT
7R//VIFQR/V1
Grensásvegi 50, tíml 553 3018. Berglindar
Isafjarðarrutan
tóm til ísafjarðar
mátti ekki taka farþega úr Reykjavík vegna þess að leyfi ráðherra vantar
Fólks- og vöruflutningafyrirtækið
AOrahanda, sem er sérleyfishafi
áætlunarleiðarinnar ísafjörð-
ur-Hólmavík, hefur sótt um sérleyf-
ið á leiðinni Reykjavík-Ísafiörður.
Engar áætlunarbifreiðir aka nú á
þessari leið og hafa ekki gert síðan
Vestfiarðaleið hætti akstrinum og
skilaði sérleyfi sínu árið 1992.
Skipulagsnefnd fólksflutninga hefur
mælt með því við ráðherra aö hann
veiti Allrahanda sérleyfið en ráð-
herra hefur ekki orðið við því.
Að sögn Þóris Garðarssonar,
framkvæmdastjóra Allrahanda, hef-
ur skipulagsnefnd fólksflutninga
tekið jákvætt undir umsókn Allra-
handa. Þá hafa sveitarstjórnir Flat-
eyrarhrepps, Bolungarvíkur, Þing-
eyrarhrepps, Flateyrarhrepps og
ísafiarðarkaupstaðar og loks Fjórð-
ungssamband Vestfirðinga beint
eindregnum tilmælum til Halldórs
Blöndal samgönguráðherra að hann
veiti Allrahanda sérleyfið á þessari
leið hið fyrsta. Samgönguráðherra
hefur hins vegar ekki farið eftir áliti
nefndarinnar og þessum eindregnu
óskum sveitarstjórnanna á Vest-
fiörðum.
Allrahanda hefur keypt til lands-
ins nýjan bíl sem er svokallaður
hálfkassabíll en í honum eru sæti
fyrir 25 manns en auk þess er rými
fyrir fimm tonn af vörum. Hinn nýi
bíll er nú farinn vestur til ísafiarðar
en vegna þess dráttar sem hefur orð-
ið á veitingu sérleyfisins mátti
Allrahanda ekki taka farþega með
úr Reykjavík til ísafiarðar og var
bíllinn því ferjaður tómur vestur í
siðustu viku.-SÁ
Arekstrar við
framúrakstur
Tveir árekstrar urðu í umdæmi
lögreglunnar í Vík um helgina, báð-
ir við framúrakstur. í bæði skiptin
ætlaði sá sem ekið var fram úr að
beygja til vinstri og beygði því í veg
fyrir þann sem ætlaði fram úr. Eng-
in meiðsl urðu á fólki en bílarnir
skemmdust nokkuð í báðum tilvik-
unum.
-sv
Utleiga - barnaafmæli
götupartí - ættarmót o.fl.
Verð frá kr. 4.000 á dag án vsk.
Herkúles
Simi 568-2644, boósimi 846-3490
Sjö óku of hratt
Lögreglumenn á Dalvík og Ólafs-
firði fylgdust vel með umferðinni
um helgina þar sem verið var að
leika í 1. deildinni í knattspyrnu í
Ólafsfirði á laugardag. Sjö ökumenn
voru teknir fyrir of hraðan akstur.
Sá sem hraðast ók mældist á 130 km
hraða. -sv
Með Trlmform hefur náðst
mjdg góður árangur tu
grennlngar, allt að 10 sm
grennra mltti eftir tíu tfma
meðhöndlun. í baráttunnl
vlð „CeUullte" (appelsfnu-
húð) hefur náðst góður
árangur með Trimform.
Trlmform er mlög gon tll
bess að blálfa upp alla
vöðva Ifkamans, s.s.
magavöðva, lærl,
handleggsvöðua o.fl.
Ath. Vlð biððum ókeypis
prafutfma. Komlð og próflð
og blð slálð árangur strax.
Elnnlg höfum vlð náð
góðum árangri vlð
uöðvabólgu og buagleka.
Vlð enim lærðar f rahiuddl.
Hrlnglð og lálð nánarl
upplysingar um Trtmform f
sfma 553 3818.