Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1996, Page 32
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 1996
H
Seðlabankinn. Vita húsbændur
þar að kalda stríðinu er lokið.
Bankastjórar og
kalda stríðið
„Er ekki mál til komið að ein-
hver hringi í Seðlabanka og biðji
símadömuna að skila til banka-
stjóranna að kalda stríðinu hafi
lokið við fall Berlínarmúrsins.
Ásgeir Hannes í Tímanum.
Vel bökuð kaka
„Forsetinn þarf að geta staðið
beggja vegna borðsins, hringinn
í kringum það. Ólafur er orðinn
eins og vel bökuð kaka í því sam-
bandi.“
Rósa Ingólfsdóttir, í Alþýðublaöinu.
Ummæli
Glaður seppi
„Hannes Hólmsteinn er gjarn-
an eins og glaður seppi nálægt
húsbónda sínum þegar Davíð
vinur hans er annars vegar,
hann flaðrar upp um hann glað-
hlakkalegur og gjammar hátt.“
Birgir Hermannsson, í Alþblaðinu
Rússnesk ljósapera
í lofti
„Salurinn var lítið skítugt her-
bergi, svona 20 fermetrar. Þar
voru gömul rykfallin skjöl í hill-
um og rússnesk ljósapera hékk i
loftinu."
Gunnlaugur Sigmundsson, um
réttarsal í Tyrklandi, í Tímanum.
Krabbadýr geta verið mjög mis-
munandi að útliti og stærð.
Krabbadýr
Það eru flölmargar legundir
dýra sem teljast til krabbadýra.
Má þar nefna krabba, humar,
rækjur, helsingja, hrúðurkarla,
marílær, fiskilýs, grápöddur og
vatnaflær. Stærstur allra
krabbadýra er risakóngulóar-
krabbinn (Macrocheira kaem-
oferi), sem einnig er nefndur
stultukrabbi. Hann lifir á djúp-
sævi undan suðausturströnd
Japans. Þessi krabbategund er
þó ekki þyngst. Stærsta humar-
tegundin, og þyngst allra krabba-
dýra, er Norður-Atlantshafshum-
arinn (Homarus americanus). 11.
febrúar 1977 veiddist dýr sem vó
20,14 kíló og mældist 1,06 m frá
halablöðku út á enda stærstu
klóar. Humar þessi veiddist úti
fyrir Nova Scotia í Kanada.
Blessuð veröldin
Smávöxnustu
krabbadýrin
Smávöxnustu krabbadýrin
eru gráflær af ættkvíslinni alon-
ella. Þær eru ósjaldan innan við
0,25 mm að lengd. Höfðahumar-
inn (Homarus capensis) er
smæsti humar sem þekktur er.
Hann veiðist við Suður-Afríku
og er 10-12 cm að lengd. Smæstu
krabbar í heimi eru baunakrabb-
arnir svokölluðu og eru skeljar
sumra þeirra aðeins 6,3 mm í
þvermál. Langlifasta krabbadýr-
ið er Norður-Atlantshafshumar-
inn sem getur orðið allt að 50 ára
gamall.
Hlýtt á Suðausturlandi
Um 500 km suður af Reykjanesi
er 1028 millíbara hæð sem þokast
norður og yfir Austur-Grænlandi er
grunnt lægðardrag.
í dag verður vestlæg eða breytileg
átt, gola eða kaldi. Skýjað vestan-
Veðrið í dag
lands en víðast sæmilega bjart veð-
ur annars staðar. Hiti 10 til 20 stig,
hlýjast á Suðausturlandi.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
vestan- og norðvestangola eða kaldi.
Skýjað en að mestu þurrt og hiti 9
til 13 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 0.03
Sólarupprás á morgun: 2.54
Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.02
Árdegisflóð á morgun: 8.23
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skyjaö 10
Akurnes alskýjaö 9
Bergsstaðir skýjaó 10
Bolungarvík skýjaö 9
Egilsstaðir alskýjaö 10
Keflavíkurflugv. skýjaö 9
Kirkjubkl. léttskýjaó 11
Raufarhöfn súld 7
Reykjavik skýjað 9
Stórhöföi hálfskýjað 8
Helsinki rigning 12
Kaupmannah. skýjaö 11
Ósló skýjað 10
Stokkhólmur þokumóöa 15
Þórshöfn alskýjaö 8
Amsterdam þokumóða 15
Barcelona skýjaó 19
Chicago léttskýjaö 21
Frankfurt skýjað 16
Glasgow skýjaö 11
Hamborg skýjaö 12
London léttskýjaó 13
Los Angeles léttskýjaö 17
Lúxemborg hálfskýjað 16
Madríd skýjað 18
París léttskýjaó 19
Róm þokumóða 17
Valencia þokumóöa 20
New York heiðskírt 22
Nuuk skýjaö 1
Vín léttskýjað 16
Washington skruggur 23
Winnipeg heiöskírt 20
Óskar Sigurðsson flugstjóri:
Nágrannatengslin sterkari
í Hollandi
DV, Suðurnesjum:
„Það er alltaf jafn skemmtilegt
að fljúga en að vísu kemur alltaf
þreyta í mann þegar búið er að
fljúga mörgum sinnum en þá tek-
ur við frí í nokkra daga og áður en
varir er maður farinn að horfa
upp í loftið,“ sagði Óskar Sigurðs-
son glaður í bragði en hann er
flugstjóri hjá hollenska flugfélag-
inu Transaviu sem hefur hafið
flug á milli Keflavíkur og Amster-
dam á vegum ferðaskrifstofunnar
Istravel. Óskar flaug vélinni sem
Maður dagsins
fór jómfrúferðina frá íslandi ný-
lega og flaug útsýnarflug yfir
Reykjavík af því tilefni áður en
lagt var af stað til Amsterdam.
Óskar hefur starfað hjá
Transavíu I níu ár en sem flug-
stjóri í sex ár. Hann segist sér líka
mjög vel að vinna fyrir félagið sem
er mjög gott flugfélag. Hann flaug
fyrst hjá Vængjum árin 1975-1979
og síðan fyrir Arnarflug frá
1979-1986. „Það var tilviljun að ég
Óskar Sigurðsson.
lenti hjá Transaviu. Fyrst fékk ég
árssamning og eftir það vildu þeir
bjóða mér fastráðningu. Öll fjöl-
skyldan var ánægð með það og
ekki var eftir neinu að bíða með
að taka því, enda var enga vinnu
þá að fá í flugi á íslandi."
Óskar og fjölskylda búa í litlum
tíu þúsund manna bæ mitt á milli
Haag og Amsterdam sem er alveg
við ströndina: „Við höfum strönd
hér. Þetta er lítið þorp þar sem all-
ir þekkja alla. í sumarfríum stund-
um við konan tennis, síðan er ég
aðeins farinn að fikta við golfið.
Þá hjólum við mikið. Það er alveg
dýrlegt að hjóla um Holland sem
er flatt. Þar eru alls staðar hjóla-
stígar og umferð hjóla og annarra
farartækja er alveg aðskilin. Það
virðast vera miklu meiri tengsl
milli nágranna í Hollandi en
heima. Það kemur kannski út af
því að fólk vinnur mikið heima.
Hér erum við nágrannarnm að
fara í alls konar ferðalög saman.
Við erum að fara, 8-9 fjölskyldur,
nágrannar, I júní í tjaldútilegu
saman. Nágrannatengslin eru
mjög sterk hér í Hollandi.“
Eiginkona Óskars er Edda
Ragnarsdóttir en hún vann m.a.
hjá Flugleiðum við markaðsetn-
ingu til 1982. Þau eiga þrjá syni
sem allir búa hjá foreldrum sínum
í Hollandi. Sigurður, 21 árs, stund-
ar verkfræðinám við tækniháskól-
ann, Ólafur, 15 ára, er í þriðja
bekk í menntaskóla og Ásgeir, 11
ára, byrjar í fyrsta bekk í mennta-
skóla á næsta ári. Óskar segir að
krakkarnir í Hollandi séu fljótari
að mennta sig en krakkarnir
heima þar sem aðeins er tekið 6
vikna sumarfrí í Hollandi. -ÆMK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1537:
Ber hönd fyrir auga.
Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði.
Fjöldi leikja hjá
yngri spilurum í
fótboltanum
Knattspyrnan er vinsælasta
íþróttin hér á landi og vel er
fylgst með gengi liða i meistar-
flokki. Það er einnig hörð barátt-
an hjá þeim yngri sem eiga eftir
að taka við í framtíðinni og eru
daglega leiknir fjölmargir leikir
úti um allt land.
í dag eru tuttugu og átta leikir
skráðir í yngri flokkum og verð-
ur því mikið fjör á mörgum víg-
Iþróttir
stöðvum. Keppt er í 2. flokki, 3.
flokki og 4. flokki karla og hefj-
ast leikirnir hjá þeim eldri kl. 20
en hjá þeim yngri kl. 17. Einn
leikur er i kvöld í kvennaboltan-
um, á Akureyri leika ÍBA og
Leiftur í Mjólkurbikarkeppni
kvenna og hefst leikurinn kl. 20.
Meistaraflokkur karla hvdir sig
fram á fimmtudag en þá verða
allir leikirnir í 32 liða úrslitum í
Mjólkurbikarnum.
Eftirsóttir ein-
farar
í Galleri Horninu, Hafnar-
stræti 15, stendur yfir sýning á
verkum þriggja helstu einfara í
íslenskri alþýðulist og er sýning-
in í tengslum við listahátíð. Þeir
Sýningar
sem eiga verk á sýningunni eru
Sölvi Helgason, ísleifur Konráðs-
son og Karl Einarsson Dunganon.
Yfirskrift sýningarinnar vísar til
þess að erlendir aðilar sækjast nú
eftir því að fá keypt verk þessara
sérstæðu listamanna og er sýn-
ingunni öðrum þræði ætlað að
velta upp spurningu um það
hvort hér sé um þjóðarverðmæti
að ræða. Sýningin stendur til
sunnudagsins 23. júní og er opin
alla daga milli kl. 11.00 til 23.30.
Bridge
„Multi-opnunin tveir tíglar lýsir
hendi með 5-11 punkta og 6 spilum i
öðrum hvorum hálitanna. Þegar
multi-sagnvenjan er notuð, fara menn
ýmist eftir ströngum reglum um gerð
handarinnar eða láta vaða á nánast
hvaða sexlit sem er. í þessu spiladæmi
voru spilarar í sætum austurs og suð-
urs sem kærðu sig kollótta um hvort
hendurnar féllu nákvæmlega að þeim
reglum sem vanalega gilda um opnan-
ir á multi. Spilið kom fyrir í sveita-
keppnisleik í Danmörku fyrir
skömmu. Sagnir gengu þannig á öðru
borðanna, austur gjafari og NS á
hættu:
* ÁK752
* 75
* 6
x K10643
* D
4* DG10983
♦ Á10832
4 D
é G109863
V 4
•f KG
4 ÁG87
4 4
*» ÁK62
♦ D9754
4 952
Austur Suður Vestur Norður
2f pass 2é 34
44* 44 pass pass
5** 54 p/h
Þrátt fyrir að austur ætti 5 spil i
tígli til hliðar við hjartalitinn, opnaði
hann á multi 2-tíglum. Sagnir komust
alla leið upp á fimmta sagnstig, en 11
slagir voru einfaldir i úrvinnslu fyrir
sagnhafa. Á hinu borðinu var austur
agaður og passaði í upphafi, en suður
kaus að opna á multi:
Austur Suður Vestur Norður
pass 24 pass 2Gr
3Gr pass 44 p/h
Hönd suðurs fellur heldur ekki að
hefðbundnum venjum um multi- opn-
anir, sérstaklega vegna þess að allir
punktarnir liggja utan langlitarins.
Norður kaus að spyrja á tveimur
gröndum og austur kaus þá að segja
þrjú grönd til að lýsa tveggja lita
hendi. Suður hefði getað sagt fjóra
spaða meö hámarkshendi, en kaus að
passa og missti þar með af lestinni.
Norður taldi að litur suöurs væri
hjarta og AV stálu þess vegna samn-
ingnum og 13 impa gróða.
ísak Örn Sigurðsson
♦ 4 «>►